Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGIMIR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 4 Opið kl. 13-15 Rauðagerði - einbhús Þetta glæsil. einbhús er til sölu. Húsið sem er 474 fm skiptist m.a. í rúmg. eldhús, borðstofu, setustofu, arinstofu, stórt hjónaherb., 2 barnaherb., sjónvherb., góðar geymslur, rúmg. bílsk. o.fl. Vand- aðar sérsmíðaðar innr. Mikil lofthæð. Sérstæð eign. Nánari uppl. á skrifst. Stekkjahverfi - einbhús Vorum að fá í sölu falleg 275 fm einbhús á tveimur hæðum ásamt bílsk. fremst í Stekkjunum. Rúmg. stofur, 6 herb. Mögul. að útbúa séríb. niðri. Hrauntunga - raðhús Höfum fengið til. sölu eitt af þessum eftirsóttu raðhúsum við Hrauntungu, Kópavogi (Sigvaldahús). Húsið er 270 fm á tveimur hæðum. Uppi er eldhús, stór stofa með arni, hjónaherb., skáli sem geta verið 2 herb. Niðri eru 2 herb. auk einstaklíb. með mögul. á stækkun, þvottahús o.fl. Innb. bílsk. Fallegt útsýni. Móafiöt - endaraðhús Mjög skemmtil. 190 fm einlyft endaraðhús. 3-4 svefnherb., góðar stofur. Parket á öllu. 2ja herb. séríb. 40 fm bílsk. Grundarás - raðhús Glæsil. 210 fm raðhús á pöllum. Saml. stofur, arinn, 4 svefnherb. 40 fm tvöf. bílsk. með gryfju. Hiíðarbyggð - raðhús 200 fm afar vandað tvílyft raðhús. 4 svefnherb. Nýtt parket. Ný eldhúsinnr. Innb. bílsk. Skagasel - einbýlishús Glæsil. 280 fm einbhús á tveimur hæðum. Niðri er hol, setustofa með arni, borðstofa, fjölskherb., eldhús, þvottahús og gestasnyrt- ing. Uppi eru 4 svefnherb., baðherb. m.m. Afar vandaðar innr. Heitur pottur í garði. 36 fm innb. bílsk. Uppl. á skrifst. Sólheimar - endaraðhús Mjög fallegt 170 fm endaraðhús með innb. bílsk. Góðar stofur, 5 svefnherb. Tvennar svalir. Mjög góð eign. Kópavogur - sérhæð Falleg 5 herb. efri sérhæð skammt frá miðbæ Kóp. Saml. stofur, 3 svefnherb. Bílskréttur. Trjágarður. Fráb. útsýni. Hagstætt verð. Fljótasel - raðhús 240 fm raðh. á tveimur hæðum auk kj. þar sem er séríb. Á neðri hæð er forstherb., gestasnyrting, saml. stofur, eldhús og þvotta- herb. Uppi eru 3 svefnherb. og baðherb. • Atvinnuhúsnæði • Brautarholt 270 fm skrifstofuhæð sem afh. fokh. að innan, fullfrág. að utan. Glæsil. útsýni. Góð greiðslukjör í boði. Síðumúli 200 fm verslhúsn. á götuhæð. Laust strax. Ármúli Vorum að fá í sölu 2 glæsil. innr. skrifsthæðir í nýju húsi samt. 500 fm. Uppl. á skrifst. Laugavegur 405 fm gott iðn.- og verslhúsn. á götuhæð. Lofthæð 3,5 m. Góð greiðslukj. f boði. Kársnesbraut 415 fm atvinnuhúsn. sem skiptist í 256 fm pláss og eitt 105 fm pláss. Lofthæð 5,5 metrar. Góðar innkdyr. Getur selst í einingum. Miðborgin Vel staðsett 470 fm versl.- og skrifsthúsn. Afar hagst. grkjör í boði. Suðurlandsbraut 270 fm verslunar- og lagerhúsn. á götuhæð með góðum inn- keyrsludyrum ásamt tveimur 110 fm skrifstofuhæðum. Getur selst í hlutum. Mögul. á góðum greiðslukjörum. Laust fljótl. Stórhöfði 200 fm húsnæði á 4. hæð. Afh. tilb. u. trév. og máln. Sameign og hús fullfrág. Ýmsir mögul. á nýtingu. FASTEIGNA ép MARKAÐURINN11 Oðinsgötu 4, simar 11S40 - 21700. ión Guðmundsson sölustj., Lsó E. Löve lögfr., Ólsfur Stefénsson viðskiptafr. 3.500 manna hverfl ■ 1.000 íhúOir ■ Hlikil lóOacftirspurii Rfanahverfi á að fá sjálfstætt yfirbragð og sfain eí&fai ndðbæ segir Guóni B. Pálsson arkitckt Reykjavík heldur áfram að vaxa í norður. Mikil uppbygging heíur átt sér stað í Grafarvogi síðustu ár og nær öllum lóðum þar er þeg- ar úthlutað. A svæðinu þar fyrir norðan, Borgarholti I, sem hefur nú fengið heitið Rimahverfíð, hófst lóðaúthlutun sl. haust. Þetta nýja hverfí mun standa norðan við Folda- og Húsahverfí en að sunn- an og austanverðu við Gufunesstöðina (Gufunesradíó). í hverfínu fullbúnu er gert ráð fyrir 1.000 ibúðum og 3.500 ibúum. Úthlutun á lóðum í fyrsta áfanga Rimahverfísins, sem er í suðurhluta þess, hófst sl. haust og er þegar búið að úthluta mörgum lóðum þar og gatna- gerð vel á veg komin. Gert er ráð fyrir, að uppbygging þessa áfanga heíjist í sumar og flest hús þar tekin í notkun á árinu 1992. íbúðir þar verða um 500 og íbúar um 1.500- 2.000. Iskipulagi Rimahverfis kemur fram sú nýjung, að göngugata er lögð þar í gegn, þar sem byggð- in verður þéttust. I göngugötunni, sem fengið hefur hið tilkomumikla heiti „Ormurinn langi“, verður komið fyrir gróðri, bekkjum, lágri garðlýsingu, sand- kössum _og leik- tækjum. í hverfinu miðju verður eins konar miðbær. Þar verður sú þjón- usta, sem þarf að vera til staðar t.d. verzlanir. Beint út frá þessum miðbæ kemur svo skóii hverfisins. Göngugatan heldur svo áfram norð- ur í væntanlegt hverfi í Borgarholti II. Báðum megin við göngugötuna verða tveggja og þriggja hæða fjöl- býlishús. Þegar komið er inn í svokallaðan miðbæ Rimahverfisins, verður torg með verzlunum og þjónustufyrir- tækjum. — Við erum að reyna nýj- ar leiðir, sagði Guðni B. Pálsson arktekt í viðtali við Morgunblaðið, en hann hefur skipulagt þetta svæði 51500 Hafnarfjörður Tjarnarbraut Höfum fengið til sölu stórglæsi- legt einbhús sem stendur við Lækinn i Hafnarfirði. Húsið er kj., 2 hæðir og geymsluris. Allar nánari uppl. á skrifst. Lækjarkinn Höfum fenglð til sölu gott einb- hús sem er hæð og ris. Allar nánari upplýsingar á skrifst. Hringbraut Höfum til sölu tvær íb. efri sér- hæð og rishæð á góðum stað. Selst í einu eða tvennu lagi. Frábært útsýni. Hraunkambur Höfum fengið til sölu gott einb- hús ca 140 fm á tveimur hæð- um. i húsinu eru 2 íb. Ekkert áhv. Ölduslóð Til sölu góð ca 106 fm 4ra herb. íb. á 1. hæð ásamt bílskrétti. Ekkert áhvílandi. Hraunbrún Höfum fengið til sölu stór- glæsil. ca 280 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk tvöf. bílsk. ca 43 fm. Hraunbrún Höfum fengið til sölu gott ein- býlishús ca 170 fm á tveimur hæðum auk 33 fm bílsk. Blikastígur - Álftanesi Til sölu tvær sjávarlóðir. Hjallabraut Eigum ennþá óráðstafað ör- fáum íbúðum fyrir Hafnfirðinga 60 ára og eldri. íb. eiga að afh. í jan. 1991. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafn., sfmar 51500 og 51501. ásamt Dagnýju Helgadóttur arki- tekt. — Flest íbúðarhverfi á höfuð- borgarsvæðinu eru svefnhverfi. Þar vinnur enginn, því að fólk sækir vinnu sína annars staðar og senni- lega verður erfitt að breyta því. Guðni B. Palsson arkitekt Við erum að reyna að ná aftur fram gömlu bæjarmyndinni, þannig að Rimahverfið verði í rauninni lítill bær með sín sérkenni, hafi sinn miðbæ, skóla, verzlanir, dagheimili og þjónustustarfsemi. Næsta bygg- ingarsvæði við verður síðan Borgar- holt II, sem ætti þá á svipaðan hátt að fá sitt eigið séryfirbragð. Guðni B. Pálsson er Reykvíking- ur og fæddur 1946. Hann lærði húsasmíði, en hóf svo nám í bygg- ingarfræði og arkitektúr og lauk prófí í þeirri grein við Listaháskól- ann í Kaupmannahöfn 1977. Að námi ioknu starfaði hann í fimm ár á arkitektastofum í Kaupmanna- höfn, en kom heim til íslands um áramótin 1981-1982. Eftir það starfaði hann hjá arkitektunum Mannfred Vilhjálmssyni og Þorvaldi S. Þorvaldssyni, en hóf síðan rekst- ur eigin arkitektastofu ásamt Dagnýju Helgadóttur arkitekt og er stofa þeirra nú að Bankastræti 11. — Þegar er búið að úthluta öllum fjölbýlishúsalóðunum við Orminn langa, segir Guðni Pálsson. — Sömu sögu er að segja um tvíbýlishúsin og hluta af raðhúsunum. Svo er stefnt að því að neðri hluti hverfis- ins fari til úthlutunar, en þar verða sex tveggja hæða fjölbýlishús og eins parhús í tveimur röðum. I hvorri röð verða um 26 íbúðir. Upp- haflega áttu ekki að verða nein fjöl- býlishús í þessum hluta, en þegar til átti að taka reyndist vera veru- legur skortur á lóðum undir fjölbýl- ishús í borginni. Því varð að skipu- leggja hluta af hverfinu að nýju og var það gert nú nýlega. Parhúsin þarna eru raunar nokk- uð sérstök. Samkvæmt skipulaginu er hægt að hafa eina íbúð uppi og aðra íbúð niðri eða það er hægt að skera húsið í tvennt og vera með íbúð á tveimur hæðum. Þá geta svefnherbergi verið uppi en stofur og eldhús niðri. Þannig hafa báðir aðilar beinan aðgang að garði og húsin farin að líkast mjög einbýlis- húsum. Fyrirkomulag húsa þarna verður annars mjög fijálst. Hægt verður að velja þakgerð eftir því, sem hver vill, bogið þak, hallandi þak o.s.frv. Það eru einungis viss takmörk, sem fólki eru sett og þá fyrst og fremst af tilliti til nágrannanna. Þar fyrir utan eru skilmálar mjög opnir. Þetta er gert vísvitandi til að fá eins mikla Ijölbreytn'i og mögulegt er í byggðina. Þarna verður farið að byggja í vor og á næsta ári verður væntan- lega farið að flytja inn í fyrstu húsin. Miðað við venjulegan bygg- ingarhraða nú má búast við, að hverfið verði að mestu fullbyggt eftir tvö ár. Fjölbýiishúsalóðunum er úthlutað til byggingarmeistar- anna. Við Orminn langa er t. d. nýbúið að úthluta 10 fjölbýlishúsa- lóðum til jafnmargra bygginga- meistara til að byggja á. — Þess má geta hér, að ekki verður leyfður almennur gegnum- akstur í gegnum hverfið og er þetta gert til að skapa ákveðið umferðar- öryggi. Einu bílarnir, sem fá að aka í gegnum hverfið, eru strætisvagn- arnir. Aðrir bílar geta ekið inn að miðju hverfisins báðum megin frá. Með þessu fyrirkomulagi er verið að hugsa til framtíðarinnar. Borg- arholt II, sem er norðan við Rima- hverfi, verður töluvert stærra hverfi. Ef þarna yrði leyfður gegn- umakstur, mætti búast við mjög þungri umferð í gegnum Rima- hverfið og þar með meiri slysa- hættu. Langirimi er jafnframt safngata, sem allar húsagöturnar tengjast við og hún er gerð hlykkjótt til þess að draga úr umferðarhraða. íbúðabyggingar að aukast á ný Sú spurning vaknar, hvort ekki sé orðið offramboð á lóðum á höfuð- borgarsvæðinu. í Kópavogi og Garðabæ er nýbúið að auglýsa eftir umsóknum vegna lóðaúthutunar í nýjum hverfum og gott framboð á lóðum til nýbygginga er einnig í öðrum sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu. — Það sýndi sig þarna, að það er enn talsverð eftir- spurn eftir lóðum, að minnsta kosti í Reykjavík, segir Guðni. — Lóðirn- ar undir frjölbýlishúsin fóru mjög fljótlega og eins var um lóðirnar undir svokölluð parhús eða tvíbýlis- hús. — Það segir sína sögu, að öllum þeim lóðum, sem áttu að duga fyr- ir þetta ár, hefur þegar verið úthlut- að og því varð að hraða skipulagn- ingu á þessu hverfi, þar sem lóða- skortur var ella fyrirsjáanlegur í borginni. Það virðist því ekkert lát eftir Magnús Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.