Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 11

Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 B 11 Áburðarverksmiðjan í Gufunesi Gufuness- kirkjugarður Reldnahoít BORGARHOLT II RIMAHVERFI yera á byggingaráhuga fólks. Ibúðabyggingar eru frekar að auk- ast á ný í borginni frekar en hitt. Hér má sjá nýbyggingar alls staðar og þannig er það búið að vera seinustu árin, sérstaklega eftir að punktakerfið svonefnda leið und- ir lok. Punktakerfið var meinloka, einkum með tilliti tíl þess, að Reykajvík réð yfir miklu og góðu landi. Það var því engin nauðsyn á að finna upp kerfi, þar sem fólk þurfti að safna punktum í fleiri ár áður en það gat fengið lóð til að byggja á. Afleiðingin varð sú, að mikill fjöldi tápmikils fólks þyrptist upp í Mosfellsbæ og suður í Garðabæ, þar sem það gat fengið lóð undir einbýlishús. Reykjavík missti þarna af miklum fjölda af góðum skattborgurum eingöngu vegna þess að hún gat ekki útvegað þeim _nóg af lóðum undir einbýlis- hús. Á því leikur ekki vafi, að með þessu missti borgin af mikilli tekju- lind, bæði að því er varðar gatna- gerðargjöld, fasteignagjöld og út- svör. En nýbyggingar eiga sér ekki einungis stað í nýjm hverfum í út- jöðrum borgarinnar. Við Skúlagötu er t. d. verið að byggja fleiri hundr- uð íbúðir. Þetta leiðir til mannfjölg- unar í gamla bænum á ný. Samgöngur og umferð skipta stöðugt meira máli, eftir því sem Reykjavík og raunar höfuðborgar- svæðið allt þenst út. Hvernig er þessu nýja hverfi farið í þessu til- liti? — Hið nýja hverfí liggur mjög vel við samgöngum t.d. strætis- vagnaferðum, því að Gullinbrú verður tengiliður þarna upp eftir, segir Guðni. — Það er samt svo, að við Islendingar erum lítið fyrir almenningssamgöngur. Þó að strætisvagnaferðir hér á höfuð- borgarsvæðinu séu nokkuð góðar, þá virðist fólk helzt ekki vilja fara um öðru vísi en í sínum eigin bíl. Einkabíllinn ræður hér allt of miklu. Þetta veldur ómældum erfiðleikum sums staðar, sérstaklega í Kvos- inni, þar sem umferðarálagið er gífurlegt. En það þarf bæði tíma og hugarfarsbreytingu, áður en við förum að nota strætisvagna meira en við gerum nú. Eg held, að það myndi litlu breyta, þó að farið með almenningsvögnum væri ókeypis nú. En það má ekki gleyma gang- andi fólki í bílaumferðinni. Við skipulagningu Rimahverfis hefur verið reynt að koma þar upp kerfi af stígum, svo að gangandi fólk geti komist flestar sínar leiðir án þess að þurfa að fara yfir umferða- götur. Þarna er líka notuð svokölluð greining gatna. Við höfum svokall- aðar safngötur, sem aðalumferðin fer um. Síðan eru húsagötur, sem tengjast bara íbúðarhúsunum. Þannig fer bílaumferðin alltaf stigminnkandi, unz hún klofnar nið- ur í minnstu einingar af gatnakerf- inu, sem er húsagatan, þar sem íbúðarhúsin standa. Þegar þangað er komið, er umferðin orðin fremur lítil. Með þessu á öll umferð, bæði hvað varðar bíla og gangandi fólk að verða miklu öruggari. Trjágróður allt í kringum hverfið Meðfram Orminum langa og fleiri götum út frá honum verða Geldinganes ✓ f_______ f ( Teikning þessi sýnir syðsta hluta Rimahverfís, en lóðaúthlutun þar er þegar vel á veg komin. Göngugat- an Ormurinn langi bugðast frá suðri til norðurs milli fjölbýlishúsanna, sem standa báðum megin göngu- götunnar. Hinn uppdrátturinn sýnir afstöðu Rimahverfis til aæstu hverfa. gróðursett tré strax frá byijum og eins verða tré sett niður í kringum allt Rimahverfið. En er þá nokkur von til þess, að þessi gróður hafi nauðsynlegt skjól til að dafna og fái að vera í friði fyrir skemmdar- fýsn náungans.— í þessu hverfi er mjög lygnt og töluvert lygnara en niðri í miðbæ Reykjavíkur, segir Guðni. — Jarðvegurinn þarna er mjög góð gróðurmold. Því efast ég ekki um, að gróður getur dafnað þarna vel, ef rétt er að staðið frá byrjun. Það tekur tré vissulega lengri tíma áð vaxa hér en annars staðar á Norðurlöndum. Hér þarf því að setja niður stærri tré en ella. Það hefur sýnt sig t. d. við Laugaveg- inn, þar sem sett voru niður reglu- lega stór tré, að umgengnin verður allt önnur. Þar standa trén óskemmd. Þegar settar eru niður litlar tijáplöntur eða blómaker í miðbænum, eru þau eyðilögð á einu laugardagskvöldi. Hvort sem komið er fyrir gróðri eða götuinnréttingum, þá verður að gera það af myndugleika og myndarskap. Þá er eins og allir finni þá með sér hvöt til að láta það í friði. Ef að þessu er staðið af litlum hug og vanefnum, þá er eins og umgengnin verði líka eftir því. Nú þegar daginn tekur að lengja, fara margir að huga að viðhaldi húsa sinna og íbúða. Einn helzti vandinn þar er að kunna að velja rétt úr þeim mikla fjölda efna, sem boðin eru fram á markaðinum, þar sem ekki ósjaldan gefið er í skyn, að um hrein undraefni sé að ræða. Hvernig á fólk að ráða fram úr þessu? — Fólk ætti að gæta þess að nota helzt efni, sem hafa verið prófuð áður hér á landi og því einhver reynsla komin á, segir Guðni. — Veðrátta hér er svo breyti- leg. Hitinn getur hrapað úr 10 stiga hita á daginn niður í 15 stiga frost á nóttunni. Þetta hefur gífurleg áhrif á t.d. þensluþol ýmissa málma eins og áls. Hér rignir þar að auki ekki aðeins lóðrétt heldur lárétt og jafnvel upp í móti, þegar rokið er nógu mikið. Oþolinmæði og kappsemi okkar íslendinga á hér nokkra sök. Marg- ir vanda sig ekki nóg. Þegar byggja á hús er kannski rokið til hönnuðar á mánudegi með það í huga að byija á byggingunni næsta dag. Það er oft eins og það sé ekki í eðli okkar Islendinga að skipuieggja fyrirfram. Við hönnun, smíði og viðhald húsa skiptir góður undir- búningur og fyrirhyggja afar miklu máli. Það er engin hugmynd svo góð, að ekki þurfi að slípa hana og betrumbæta á einhvern hátt. Guðni B. Pálsson var að lokum spurður að því, hvort verkefni væru ekki minni nú en áður hjá arkitekt- um, þar sem umtaisverður sam- dráttur hefðu orðið í byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð á síðasta ári og svaraði hann þá: — Þetta er vissulega misjafnt í stétt- inni. Almennt hefur verið samdrátt- ur í nýbyggingum í vetur. En það þýðir ekki að láta deigan síga. Það er ekki annað að sjá en, að það sé þegar mikill hugur í fólki varðandi nýbyggingar og hann á sennilega eftir að aukast, þegar líða tekur að vori. Það er því engin ástæða til svartsýni. Óvenjulegt hverfisheiti Heiti hverfisins vekur óneitan- lega nokkra athygli enda sérstætt. Höfundur þess er Þórhalíur Vil- mundarsonar prófessor, en leitað var til hans um nafngift. í greinar- gerð hans segir, að samkvæmt ör- nefnaskrá Gufuness hét svæði sunnan stöðvarinnar Rimar og er lagt til, að síðari liður 13 gatna í hinu nýja hverfi verði -rimi. Fyrri liðir tólf gatna, sem ganga út frá megingötu gegnum hverfið, verði nöfn úr jurtaríkinu, sem tengzt geta rimupi í mó og mýrlendi, sem hér segir: Beijarimi, Fífilrimi, Flétturimi, Grasarimi, Hrísrimi, Hvannarimi, Laufrimi, Lyngrimi, Klukkurimi, Mosarimi, Mururimi og Viðarrimi. Gegnum hverfið gengur löng og hlykkjótt göngugata, sem tölusett hús standa ekki við og er lagt til, að hún verði nefnd Ormurinn langi. Hér er í fyrsta lagi höfð hliðsjón af því, að allvíða á landinu nefnast langir og hlykkjóttir rimar eða mýrar Ormur og á Vestfjörðum heitir löng og hlykkjótt mýri Lang- ormur. I öðru lagi hefur lifað á Suðvest- urlandi hinn forni nafngiftarsiður, að einkunnir (lýsingarorð eða for- nöfn) eru sett á eftir nafnorði með greini sbr. Heiðin há eða Fjallið eina. í þriðja lagi er Ormurinn langi frægt nafn sem heiti skips Ólafs konungs Tryggvaonar. Nafn göngugötunnar yrði því eftirminni- legt, en vel getur farið á því, að nöfn slíkra gatna skeri sig úr öðrum götunöfnum. Samsíða göngugöt- unni liggur gata með tölusettum húsum og er lagt til, að hún verði nefnd Langirimi og falli þannig inn í nafnkerfi annarra íbúðagatna í I hverfinu. 1000m i Keldur V* * Morgunbla&d/ QÓI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.