Morgunblaðið - 03.03.1990, Side 2

Morgunblaðið - 03.03.1990, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARZ 1990 Á laugardag opnar í Listasafni íslands norræn myndlistarsýning, sem ber heitið Norræn list 1960-72, Uppþot og árekstrar. Þetta er norræn farandsýning, sem unnin er að frumkvæði Norrænu listamið- stöðvarinnar í Sveaborg. Hefst sýningin íReykjavík og hefur Lista- safii Islands staðið að undirbúningi fyrir íslands hönd. En síðan fer hún til annarra höfuðborga Norðurlanda. Hér verður sýningin til 5. aprfl. Qessi sýning er í beinu framhaldi ■ af sýningunni Norræn kon- kretlist, sem var í Listasafni ís- lands sl. sumar. En þessi sýning, sem er í öllu húsinu, tekur fyrir 7. áratug þessarar aldar. Til að átta sig á hvaða tímabil þetta er, má segja að það taki hér á landi við af tíma abstrakt málverksins, þegar málaramir voru mest að glíma við ðhlutlæga málverkið. Þetta voru umbrotatímar. Um 1960 tóku að berast að nýjar stefnur í samræmi við nýja list- og lífsskoð- un og nýja þjóðfélagshætti, enda tekið að gæta ólgu og uppreisnar- anda. Þau áhrif bárust frekar frá New York en París, eins og áður. Nýjar stefnur komu ört og hver af annarri, nýdadaisminn, Fluxus, konkretlistin, art povere og fleira í stíl við nýja lífsskoðanir. Hér á landi tók að bera á þessum breyt- ingum hjá Erro, Jóhanni Eyfells, Diter Rot og í framhaldi af því SUM-urunum, sem báru þessa nýju strauma uppi og náðu hápunkti með sýningunni SUM 1972, sem einmitt er Iokaár þessa tímabils sem sýningin nær yfir. Fjölmörg verk frá öllum Norður- löndum em komin til íslands og hefur Maretta Jaukkuri, fyrrver- andi forstöðumaður í Sveaborg og fmmkvöðull að sýningunum Konkret list og þessari sýningu um 7. áratuginn, verið hér ásamt að- stoðarmanni við að setja hana upp. Laufey Helgadóttir listfræðingur hefur annast val íslensku verkanna og skrifar grein í sýningarskrána, en þar em greinar um þróun mynd- listar á þessu tímabili í hverju Norð- urlandanna fyrir sig. Sagði Laufey að þetta væri í fyrsta skipti sem reynt væri að gera úttekt á mynd- list 7. áratugarins á Norðurlöndum og hefði það því kostað mikla vinnu og framrannsóknir. Meðal norrænna listamanna, sem eiga verk á sýningunni og menn kannast við hér, em Bjöm Norgard og Per Kirkeby frá Dan- mörku, Ovind Fahlström frá Svíþjóð, Kain Tapper frá Finnlandi og Sleppemark frá Noregi. Meðal fulltrúa íslands á sýningunni eru Magnus Pálsson, Diter Rot, Jóhann Eyfells, Erró, Jón Gunnar Ámason, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og Hreinn Friðfinns- son og verður því hægt að bera íslenska listköpun á þessum tíma saman við það sem var að gerast annars staðar á Norðurlöndum. LISTASAFN ISLANDS Myndin Matarlandslag eftir Erró fró 1964. Þetta er stórt olíumólverk, lónað ó norrænu sýninguna í lista- safni Islands af Moderne Museet í Svíþjóð. NORRÆN MYNDLIST 7. áratugurinn Festir innri sem heimild: SAGA Þórunnar Valdimardóttur, sagnfræð- ings, um Snorra á Húsafelli, sem kom út fyr- ir jólin vakti athygli, ekki aðeins sem sagn- fræðirit heldur líka fyrir það hve læsileg hún er og aðgengileg hinum almenna lesanda.„Eg reyndi að trúa því að saga gæfi lífi á skeri aukið gildi. Reyndi að trúa því að sagan og bókmenntirnar geymdu lykilinn að þeirri fornu og erfiðu list að halda hér yndi“, skrif- ar Þórunn í inngangi sem hún nefiiir Hugleið- ing eða réttlæting. Og á næstu síðu skrifar hún:„En til þess að ná víðari lesendahópi en sagnfræðinga hef ég reynt að setja heimilda- molana þannig saman að fleiri nenni að lesa. Til að létta textann beiti ég á stöku stað inn- lifún og sé fyrir mér myndir, spinn ekki at- burði heldur reyni að festa innri augu eins og myndavél á því sem heimildir gefa í skyn. Þeir sem rýna í tilvísanir sjá auðveldlega í gegnum þetta. Dæmi um svona sviðsetningu er lýsing á skírn Snorra, sem byggir á heim- ildum um Melakirkju og skírnarformúlu þess- ara tíma. Annað dæmi um þessa aðferð er það að klæða fólk samkvæmt heimildum klæðasögunnar. “ Þessi aðferð sagnfræðings- ins Þórunnar Valdimarsdóttur er all nýstár- leg og Þórunn telur sig vinna undir áhrifúm nýju frönsku sagnfræðinnar. Við fengum hana því til að spjalla við okkur um bókina og aðferð hennar. sagnfræði, sem stundum er kennd við tímaritið Annales og hóf göngu sína árið 1929.„Sveinbjörn Rafnsson próf- essor var duglegur við að láta okkur lesa erlendar bækur á háskólaámnum. Þar á meðal kynntum við okkur tvær bækur, pm sögu bemskunnar og sögu dauðans eftir Philippe Aries, sem komu út árin 1960 og 1977, en hann er einn þessara svokölluðu annalista. Einnig lásum við annan slíkan höfund, Fern- and Braudel. Þeir fóm að skoða meira svið hversdagslífsins í stað þess að líta einungis á pólitíska sögu eða yfirbygg- inguna í þjóðfélaginu. Þeir fara að kafa undir yfirborðið, lifa sig inn í fortíðina. Allt í einu er sagnfræðin farin að fást við hversdagsleikann. Lýsa skynjun - sjón, heym og lykt. I Reykjavíkursögunni notaði ég þennan stíl t.d. í kaflanuum um salemisáburð- inn, með þeim afleiðingum að gantast hómnn Valdimarsdóttir cand. mag. lauk námi við Háskóla íslands haustið 1983 og hefur síðán gefíð út tvö sagnfræðirit. Sveitin við Sundin kom út í tilefni af afmæli Reykjavíkur. „Borg- in er sveit frá 1875 og fram að seinni heimsstyijöldinni. Eg lýsi búskapnum þar, sem er annar en í íslenskri sveit. Kýrnar em t.d. reknar á beit gegn um Miðbæinn. Öll íslensk húsdýr eiga þar heima, nema hvað ég fann ekkert um ketti. Bara hunda“, segir Þórunn kímin.„Þama notaði ég þessa sömu aðferð sem ég beitti svo á Snorra, að fara af stað með ein- hveija hugmynd, .tína til allt finnanlegt og sjóða úr því graut. En þá þorði ég enn ekki að sviðsetja." Af þessu má ráða að hún hafi þá haft kynni af þessari nýju stefnu í DIDO 06 AENEAS Purcell (1659-95) Bretar hafa löngum farið sínar eigin götur jafnt í tónlistarsköp- un sem öðru. Á17. öldinni héldu þeir sér til dæmis fast við margraddaða tónlist, þar sem engri rödd er gert hærra undir höfði en annarri, meðan ítalir, Frakkar og Þjóðveijar vom farnir að hneigjast meira að einni ríkjandi laglínu en aðrar raddir urðu stuðnings- eða undirraddir. Hið síðara var sérlega áberandi í ópemnni, þar sem allt var sungið og einsöngsrödd- inni gert hærra undir höfði en öðru, hvort sem um var að ræða sungna melódíska línu eða söngles. Óperan átti því ekki greiðan að- gang að Bretum. Heldra fólkið hafði meira dálæti á öðm ver- aldlegu alþreyingarformi, sem var þekkt undir nafninu „mas- que“ í Bretlandi, sennilega vegna þess að þátttakendur höfðu grímu fyrir andlitinu, sem þeir tóku niður í leikslok. Þetta leikform var sprottið af öðm eldra, sem var þekkt á Ítalíu undir nafninu „Trionfo" eða „Mascherate“ og í Frakklandi undir nafninu „Ballet de cour“. Erna Guðmundsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir og Elísa- bet F. Eiríksdóttir. Iþessu Ieikformi skiptust á talað mál, dans og tónlist í leikrænu umhverfí, þar sem allir þessir þættir nutu nokk- urn veginn sama vægis, Söngur var oftast margradd- aður og dansinn jafnt til að skemmta leikurunum sjálf- um og áheyrendum eða áhorfendum. Persónurnar voru oftast sóttar í alls konar fornar goðsagnir og þegar guðirnir felldu grímurnar, reyndust leikendur oft vera tignasta fólkið við hirðina. Mannlegleikinn var alger- lega hornreka og tókst sjaldnast að smeygja sér neins staðar inn í þetta leik- form yfirstéttarinnar, sem alla vega leit á forréttindi sín sem guðlega tilhögun mála. að er þeim mun furðu- legra, að einmitt á þess um tíma samdi Henry Purc- ell óperuna Dido og Aeneas, ópem, þar sem mannlegar tilfinningar ráða ríkjum og mannlegur harmleikur er undirstaða merkasta verks í óperuformi, sem samið hefur verið á Bretlandseyjum frá upphafi vega þar til Benjam- in Britten tók sig til við að semja ópemr á tuttugustu öldinni. Og að margra dómi er Dido og Aeneas merkasta ópera, sem samin var frá því að Monteverdi lét óperuna „L’Incoronazione di Poppea“ frá sér fara og þar til Moz- art tók að semja sínar óper- ur. ~ að skýtur svolítið skökku við, að þetta meistara verk, sem sá dagsins ljós árið 1689, varsamiðtil flutn- ings af leikmönnum á vegum skóla, sem Josias nokkur Priest rak fyrir úngar hefð- armeyjar í Chelseahverfi Lundúnaborgar. Öll aðal- hlutverk voru í höndum námsmeyjanna, þegar verkið var frumflutt, að undan- skyldu hlutverki Aeneasar, sem var sennilega í höndum einhvers kennarans. Við nánari athugun kemur þó í ljós, að Josias Priest var ekki einungis skólastjóri heldur tengdur leikhúsinu seni ball- etmeistari við Dorset Garden leikhúsið í Lundúnum og sá fjöldi dansa, sem óperan býð- ur upp á, tengist vafalítið því, að Josias Priest var fag- maður á þessu sviði. Textahöfundur var Nahun Tate. Hann var frægt skáld á 17. öld inni. Óperu- textinn ber því samt ekki vitni, en hann leyfði náms- meyjunum þó að sýna, hvað í þeim bjó og tónskáldinu að breiða úr vængjunum og náði að því leyti tilgangi sínum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.