Morgunblaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 1
00(>f SHAM .0 }(UOA(rjTg(yí CílGAJaVÍUOHOM 8 VIKUNA 10. - - 16. MARZ PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990 BLAÐ í herþjónustu Gamanmyndin í herþjónustu (Biloxi Blues) er kvikmynd vikunnar á Stöð 2 og er á dagskrá á morgun, laugardag. Sögusvið myndarinnar eru herbúðirnar í Biloxi árið 1943. Uppeldi söguhetjunnar Eugene og félaga hans er í höndum harðsvíraðra þjálfara sem ætla sér að gera þá að „öguðum" hermönnum í orðsins fyllstu merkingu, hvað sem það kost- ar. Handritahöfundurinn gamansami, Neil Simon, er hér á ferð með sjálfstætt framhald myndarinnar Æskuminningar (Brighton Beach Memoirs) sem Stöð 2 sýndi sl. haust. Bæði verkin gengu lengi á Broadway áður en Simon hófst handa við að færa þau í kvikmyndabúning. Með aðalhlutverk fara Matthew Broderick, Christopher Walken og Matt Mulhem. Leikstjóri er Mike Nichols. Maltin:^ ★ ★ Gamlar konur f dýragarði Leikrit vikunnar á Rás 1, Gamiar konur í Dýragarði, eftir David Ashton, er á dagskrá nk. þriðjudagskvöld. Þýðandi er Sverrir Hólmarsson. Með hlutverk kvennanna fara þær Þóra Friðriksdóttir og Margrét Guðmundsdóttir. Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld. Leikritið gerist í dýragarði á heiðum haustmorgni. Tvær gamlar vinkonur sem hafa haft þann sið um árabil að hittast þar einu sinni í viku, reika um garðinn og tala um það sem fyrir augu og eyru ber. Smám saman beinist samtal þeirra að persónulegum högum og þar kemur að önnur þeirra Ijóstarar upp leyndarmáli sem slær vinkonu hennar út af laginu um stund. Hann þoldi ekki at- vinnuleysið Einar Kristjánsson frá Hermund- arfelli er verðugur fulltrúi fræði- manna og skálda úr alþýðustétt, sem jafnan hafa orðið að sinna andans efnum samhliða óvægu brauðstriti. Einar er bóndasonur úr Þistilfirði og hefur einatt kennt sig við fæðingarbæ sinn, Her- mundarfell, en þar var hann jafn- framt sjálfur ábúandi um nokkurt skeið. Menntun sína sótti Einar að mestu til Bændaskólans á Hvanneyri en það átti þó ekki fyrir honum að liggja að sinna bústörf- um nema að tak- mörkuðu leyti. Hann hefur verið búsettur á Akureyri allt frá ár- inu 1946 og hefur lengstum gengt þar starfi hú- svarðar við Barnaskólann. Þekkt- astur er Einar fyrir hin fjölbreyttu ritstörf sín en á bókmenntasviðinu hefur hann verið bæði afkastamik- ill og fjölhæfur. í þættinum Fólkið í landinu sem er á dagskrá Sjónvarps annað kvöld mun Örn Ingi, myndlista- maður á Akureyri, spjalla við Einar Kristjánsson og fá hann til að segja frá ævi sinni og störfum. Leikfélag Verkmennaskólans á Akureyri mun leika brot úr verki eftir Einar og sjálfur mun hann grípa til nikkunnar í þættinum. Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8 Útvarpsdagskrá bls. 2-8 Hvað br að gerast? bls. 3/4 Myndbönd bls. 6 Bíóin í borginni bls. 7 Vinsælustu myndböndin bls. 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.