Morgunblaðið - 16.03.1990, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1990
ÖLL stöndum við einhvern
tímann á lífsieiðinni frammi
fyrir dauðanum. En eins og
við erum mörg erum við
misjafnlega vel undir það
búin að takast á við dauðann
og sorgina sem hann hefur í
för með sér.
Umræðan um þessi mál hefur
verið að aukast töluvert
síðustu ár og fyrir skömmu
var haldin hér námsstefna
þar sem fjallað var um
dauðann og stöðu þeirra er
frammi fyrir honum standa —
sjúklinga, aðstandenda og
fagfólks.
Á námsstefnunni voru flutt
ýmis erindi svo sem um
aðhlynningu íheimahúsum,
stuðning við aðstandendur og
fagfólk, óttann við dauðann
og stöðu aðstandenda. Meðal
þeirra sem tóku til máls voru
Sigurður Árnason
krabbameinslæknirog Rúnar
Matthíasson sálfræðingur.
Morgunblaðið ræddi við þá
og birtast viðtölin hér á
opnunni.
z\
JL JL ð námsstefnunni
stóðu Krabbameinsfélag ís-
lands, Félag háskóla menntaðra
hjúkrunarfræðinga, Hjúkrunar-
félag íslands, Félag áhuga-
manna um heimspeki, Þjóðkirkj-
an og Læknafélag (slands. Ás-
geir Helgason upplýsingafulltrúi
hjá Krabbameinsfélaginu sagði í
samtali við Morgunblaðið að fé-
lagið hefði gengist fyrir náms-
stefnu árið 1986 um sorg og
vinnu með dauðvona sjúklinga.
Hefði áhuginn verið svo mikill
að námsstefnan hefði verið end-
urtekin tveim mánuðum síðar.
Þá hefði þótt Ijóst að þessi mál
þörfnuðust umfjöllunar enda
hefðu þau legið í þagnargildi allt
of lengi.
í kjölfarið mætti segja að hjól-
in hefðu farið að snúast. Heima-
hlynningu krabbameinsfélagsins
var komið á fót, Samtök um sorg
og sorgarviðbrögð voru sett á
laggirnar, samstarfshópar um
líkn voru myndaðir og Heima-
stoð krabbameinsdeildar Lands-
pítalans hóf starfsemi.
Að sögn Ásgeirs var nú álitið
tímabært að taka málið upp að
nýju og setja ný leiðarljós sem
sigla mætti éftir næstu árin.
Markmiðið væri nú að koma á
stuðningi við starfsfólk, auka
stuðning við aðstandendur og
efla heimahlynningu.
TEXTI: Bergljót Friðriksdóttir
Morgunblaðið/Bjarni