Morgunblaðið - 24.03.1990, Side 3

Morgunblaðið - 24.03.1990, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARZ 1990 B 3 ingar á vetrum, t.d. voru 7 eða 8 íslenskir myndlistarmenn staddir hér á sama tíma sl. sumar.“ Yfírtóku þeir þá allar vinnustof- umar í Sveaborg sl. sumar? „Já, þessu er deilt skipulega niður og íslendingar hafa verið mjög dug- legir að sækja um þessar vinnustof- ur, sem ef til vill stafar af því, að að er kannski erfiðara að finna vinnustofur heima. Jafnframt hafa þeir ríka þörf fyrir því að fara til annara landa og vinna þar, þannig að það hefur veirð mikið um Islend- inga hér á Sveaborg, og má eigin- lega segja að þeir séu hlutfallslega langfjölmennastir af þeim sem koma hingað. Fyrri hluta vetrar vom hér reyndar tvær íslenskar listakonur, þær Valgerður Bergsdóttir teiknari og Anna Þóra Karlsdóttir veflista- kona.“ Er listamiðstöðin einnig með vinnustofur annars staðar? „Við erum með vinnustofur á öll- um Norðurlöndunum, þ.e.a.s. í „Hásselby slott“ í Stokkhólmi, þar eru yinnustofur í tengslum við okk- ur. í Danmörku i „Hollufdárd" á Fjóni og „Hald Hovedgaard“ á Jót- landi, og í Bergen í Noregi, „Harda- land“, og síðan á íslandi í Hafnar- firði, þar er Hafnarborg með vinnu- stofur í tengslum við okkur og síðan á Grænlandi í „Juliancháb" (Qaq- ortoq).“ Viltu bæta við einhvetju varðandi starfsemina í Norrænu listamiðstöðinni í Sveaborg? „Ekki nema það að þetta er marg- þætt starf, og þá fyrst og fremst sýningarhald sem er skipulagt hér á staðnum, þá eru gestavinnustofurn- ar, síðan gefið út tímarit, og jafn- framt er hér almenn upplýsinga- starfsemi. Einnig er mjög gott bóka- safn hér þar sem er leitast við að safna eins miklu af efni um norræna myndlist og mögulegt er.“ Að lokum, hvernig líkar þér svo hér í Sveaborg? „Ég kann ákaflega vel við mig, og ég bý hérna með ijölskyldu minni. Annað barnið mitt gengur í skóla og hitt er á dagheimili, og við- tökurnar hafa verið alveg prýðileg- ar, og ég get ekki annað sagt en að ég kunni madtavel við mig. Mér fínnst alltaf hálft í hvoru ótrúlegt, að Finnar, sem tala mál svona gjör- ólíkt máli okkar, skuli ekki vera skyldari okkur, því mér finnst svona andlega vera mikill skyldleiki á milli Finnlands og íslands, það verð ég að segja,“ sagði Halldór Björn Run- ólfsson sýningarstjóri Norrænu lista- miðstöðvarinnar í Sveaborg að lok- í flutningi á Messíasi 1974. Frá því dr. Róbert féll frá hafa ýmsir verið stjórnendur sveitarinnar, flestir að- eins eitt ár, nema Marteinn H. Frið- riksson sem var í fjögur ár, Guð- mundur Emilsson í fjögur ár og Smári Ólafsson í þijú ár. Ulrik Ottó- son hefur síðan verið stjórnandi Söngsveitarinnar síðustu tvö árin. Margir kórfélaganna hafa aftur á móti verið í Söngsveitinni árum saman. „Félagamir eru bæði fólk sem lagt hefur stund á almennt tón- listarnám og áhugafólk, en þeir fá líka sína menntun í kómum því í tengslum við hann er rekinn söng- skóli þar sem stunduð er raddþjálf- un. Einu sinn á vetri fömm við svo í æfíngabúðir út á land,“ segir Guð- mundur Öm. „Annars er starf kórsins frekar látlaust. Við höldum yfirleitt eina stóra tónleika á ári og undanfarin ár höfum við einnig verið með jóla- tónleika í Langholtskirkju, sem við vonumst til að verði fastur liður í starfi kórsins í framtíðinni. Við höf- um ekkert gert af því að ferðast til útlanda, en nokkrum sinnum haldið tónleika úti á landi, þó ekki oft. Það sem er mest gefandi í þessu starfi er að kynnast verkunum jafn náið og maður hlýtur að gera á æfingum. Þýska sálumessan, sem flutt verður á afmælistónleikunum, var eftirlæt- isverk dr. Róberts, og er uppáhalds- verk kórsins, en hann hefur flutt hana nokkmm sinnum, síðast fyrir tíu ámm. Okkur þótti því orðið tíma- bært að endurtaka það,“ segir Guð- mundur Öm Ragnarsson formaður stjórnar kórsins og félagi í fimmtán ár. MEO „Ég ætla að skjóta þig,“ segir Helgi sem leikinn er af Halldóri Björnssyni. „Ma bjoða þér meira popp.“ Halldór Björnsson (Helgi), María Bjarnadóttir (Lára) og Þórdís Arnyótsdóttir (Dódó). Guðlaug Það sem gerist þegar við hættum að vera ung Hjartatrompet er nýtt íslenskt leikrit eftir unga skáldkonu, Kristínu Ómarsdóttur, sem ís- lenska leikhúsið ætlar að frum- sýna í Ieikhúsi Frú Emilíu við Skeifúna næsta fímmtudag. Kristín hefúr áður skrifað einþátt- unginn Draumar á hvolfi sem hlaut fyrstu verðlaun í leikrita- samkeppni Þjóðleikhússins og var sýndur á Litla sviðinu árið 1987. Fyrir síðustu jól sendi Kristín síðan frá sér smásagnasafnið I ferðlagi hjá þér. Hjartatrompet er fyrsta verk- efhi íslenska leikhússins, sem var stoliiað! haust. Að leikhúsinu standa leiksljórinn Pétur Einars- son, leikaramir Þórdís Arnljóts- dóttir, Halldór Bjömsson, Guð- laug María Bjarnadóttir og Þór- arinn Eyfiörð, Halla Helgadóttir búningahönnuður og hönnuður leikmyndar og Ingileif Thorlac- ius. Ein úr hópnum, Þórdfs Arn- ljótsdóttir, hafði reyndar haft samband við Kristínu tæpum tveimur árum áður og beðið hana um að starfa með sér og annarri leikkonu, Öldu Amardóttur. Eg byijaði á að vinna með þeim í spuna,“ segir Kristín. „Og þar sem þær eru konur urðu fyrst til tvær kvenpersónur. Ég skrifaði síðan texta handa þessum persónum sem þær unnu með. En það er erfitt að skrifa eftir pöntun. Textarnir sem við byijuðum með voru dimmir text- ar úr hafdjúpunum, en þegar ég fór að draga þá á land heimtuðu þeir fleiri persónur og þannig bættust við tvær persónur í viðbót.“ Þannig varð leikritið Hjartatrompet til, en leiðir höfundar og leikkvenna skildu með vorinu svo ekkert varð úr sviðs- setningu. En Þórdís hafði ennþá áhuga á að setja verkið upp. „Ég hafði því samband aftur við Kristínu í haust og innti hana eftir verkinu," segir Þórdís. „Pétur frétti síðan af þessu, fékk að lesa verkið og sá strax að það myndi vera hægt að gera úr því sýningu. Hópurinn sem stend- ur að Islenska leikhúsinu var því myndaður utan um þetta verk. Við höfum mikinn áhuga á að setja upp íslensk leikrit og vildum gjarnan skapa vettvang fýrir ný íslensk verk utan stofnanaleikhúsanna og þá helst eftir nýja höfunda. Það er mik- ið af ungum rithöfundum hér, sem eru að skrifa, en þeir virðast ekki hafa áhuga á að skrifa fyrir leik- hús. Kannski af því þeir þekkja það ekki og hafa ekki haft tækifæri til að kynnast þvi af því þeir hafa ekki aðgang að því.“ Hjartatrompet fjallar um sam- skipti fjögurra persóna sem búa saman. Þær eru Lára, sem er ekkja og húsráðandinn á heimilinu, Helgi fóstursonur hennar og Hákon mágur hennar. Leikritið hefst þegar fjórða persónan, Dódó, flyst inn á heimilið fyrir tilstilli Láru og á hún eftir að hafa mikil áhrif á heimilislífið auk þess sem líf þeirra allra á eftir að taka ýmsum breytingum. Kristín segir að hún byggi verkið upp á hugsuninni um það unga og það sem ekki er lengur ungt. „Mér fínnst það íslenska leikhúsið frumsýnir nýtt íslensk leikrit, Hjartatrompet, eftir Kristínu Ómarsdóttur merkilegur hlutur þegar fólk hættir að vera ungt og hvernig það gerist að það fer inn í fullorðinn heim. En þegar ég segi ungt er ég ekki beint að tala um aldurinn heldur þetta unga í okkur.“ Samkvæmt þessu getum við sagt að Lára og Hákon séu „fullorðin“ af því þau hafa aðlag- Morgunblaðið/Einar Falur Kristín Ómarsdóttir Horfst í augu í spegli: „Mig hefúr svo lengi langað til að snerta þig . . .“ Guðlaug María Bjarna- dóttir (Lára) og Þórdís Arnljóts- dóttir (Dódó). að ,sig leikreglum hinna fullorðnu og kunna að nota þær, en Dódó og Helgi sé\K„börn“, þó bæði séu þau líklega komin yfir tvítugt, af því þau vita ekki hvemig þau eiga að fara að því að ná sínu fram og lifa eigin lífi, án afskipta hinná. Þau gera.til- raun til að komast í burtu, en tekst ekki, því Lára kemst að því í tæka tíð og veit hvernig á koma í veg fyrir það. Hún notar sömu aðferðina á Dódó og hún hefur notað á Helga öll árin, telur henni trú um að hún sé ekki fær um að taka eigin ákvarð- anir. „Dódó er ákaflega hjartahrein manneskja og horfir á lífíð með bamslegum hreinleika," segir Þórdís sem leikur hana. „Það verður því að leika hana út frá því og hvemig aðrir sjá hana. Hún virðist kannski heimsk af því hún svarar aldrei fyr- ir sig, en er það ekki endilega, held- ur vill hún bara þóknast öllum. Þess- vegna notfæra sér hana líka allir og leita til hennar því hún huggar alla. En hún fær skammir fyrir frá hinum því hvert og eitt þeirra vill eiga hana út af fyrir sig.“ Og mis- notkunin hlýtur á endanum að leiða til uppreisnar, vopnin snúast í hönd- um kúgarans og beinast að lokum gegn honum. Eins og áður segir fjallar verkið um samskipti persónanna og við fáum ekki að kynnast heiminum sem þau lifa utan fjögurra veggja heimil- isins. Höfundurinn lýsir þessu sem raunsæislegasta verkinu sem hún hefur skrifað fram að þessu, en þó undirrituð gæti kannski tekið undir það myndi hún ekki segja verkið raunsæislegt í hefðbundum skiln- ingi. „Mér finnst þetta jafnvel dá- lítið farsakennt fjölskylduleikrit eða stofuleikhús þar sem sófasettið vant- ar,“ segir Kristín. Og víst er það rétt að það er ekki í stofunni sem atburðirnir gerist heldur í svefn- herbergi Láru. Hjartatrompet verður frumsýnt fimmtudaginn 29. mars kl. 20.30 í leikhúsi Frú Emilíu, Skeifunni 3c. Önnur sýning verður svo laugardag- inn 31. mars og þriðja sýning sunnu- daginn 1. apríl. MEO Golleri 8 býður gestum og gangandi að líta inn og þiggja léttar veitingar í tilefni af opnun þessa nýstárlega gallerís í hjarta borgarinnar milli kl. 4 og 6 laugardaginn 24. mars Austurstrœti 8, s. 18080 Oplð virka daga kl. 10-18 um helgar kl. 14-18 Harri „Rúmteppi" dúkrista

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.