Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA / ENGLAND Guðni Bergsson hefur leikið með Tottenham síðustu fimm leiki og liðið hefur ekki tapað stigi. „Markið kemur fyrir aldamót“ - sagði Guðni Bergsson, sem var í sigurliði Tottenham fimmta leikinn í röð TOTTENHAM hélt áfram á sigurbraut um páskahelgina, lagði Coventry að velli á laugardag og fór með sigur af hólmi gegn fallliði Millwall á mánudag. „Það hefur gengið vel hjá okkur að undanfömu," sagði Guðni Bergsson. „En þetta er eins og í fyrra — við tök- um okkur saman í andlitinu, þegar of seint er að vinna titil, en stefnan er á þriðja sætið, sem gæti þýtt farseðil í Evrópukeppni." Spurs hefur gengið upp og ofan í vetur, en fyrir skömmu gerði Terry Venables breytingar á liðinu; Guðni kom aftur inn, en írski landsliðsmaðurinn Chris Houghton var settur út í kuldann, og Paul Walsh varð að víkja fyrir Paul Stewart. Síðan hefur lið- ið leikið fímm leiki, ekki tapað stigi og er í fjórða sæti. „Það er allt annað og betra að sjá til liðs- ins nú en fyrr í vetur,“ sagði Guðni. „Hins vegar höfum við oft fallið í þá gryfju að vera ánægðir og bjartsýnir eftir gott gengi, slakað á og allt farið í baklás á ný. En það er ailtaf gaman þegar vel gengur og maður reynir að halda sínu. Fyrst er að reyna að festa sig í sessi í vörninni og vonandi gefst síðar tækifæri til að taka þátt í sókninni. Ég hef ekki beinlínis verið á skotskónum undanfarin ár, en markið kemur fyrir alda- mót!“ Þorvaldur ekki með Liverpool mátti sætta sig við að fá aðeins eitt stig á heimavelli gegn Nottingham For- est á laugardag eftir að hafa náð tveggja marka foiystu. Forest hafði tapað sex af síðustu sjö leikj- um, en jafnteflið gaf liðinu byr undir báða vængi og sigur gegn Luton fylgdi í kjölfar- ið. Þorvaldur Örlygsson lék ekki með frekar en í síðustu leikjum. Aston Villa fylgir Liverpool eftir sem skugginn, sigraði Chelsea á laugardag, en gaf eftir í Manchester í gærkvöldi og tap- aði 2:0 fyrir Manchester United. Arsenal missti af lestinni í London á laug- ardag, gerði jafntefli við Crystal Palace, en getur bætt stöðuna í kvöld, þegar Liverpool kemur í heimsókn. KNATTSPYRNA / SPANN „Reynum að endur- taka þetta að ári“ - sagði John Toshack eftir að fimmti meistara- titill Real Madrid á fimm árum var í höfn Real Madrid gerði markalaust jafntefli við Real Valladolid á sunnudag og tryggði sér þar með spænska meistaratitilinn fimmta árið í röð, en fjórar umferðir eru eftir. Þetta var 25. meistaratitill Real Madrid. „Að sigra í keppninni skipt- ir öllu,“ sagði Ramon Mendoza, forseti félagsins. „Það þýðir að við erum bestir. Evrópubikarinn kemur næst á eftir og ég segi þetta ekki vegna þess að við misstum af hon- um. Stefnan er hins veg^r áfram á Evrópubikarinn." John Toshack, sem tók við liðinu fyrir tímabilið, sagði að sigurinn hefði legið lengi í loftinu og því ekki komið á óvart. „Við höfum lagt mikið á okkur og reynum að endurtaka þetta að ári. Ég er þegar farinn að hugsa um undirbúninginn fyrir næsta tímabil og ég vona að það verði eins gott og þetta. Draum- urinn var að sigra í Evrópukeppn- inni, en með þessum sigri eigum við enn möguleika næsta ár.“ Real Madrid hefur tvisvar áður orðið Spánarmeistari fimm ár í röð; 1960-1965 og 1975-1980. Liðiðein- okaði Evrópumeistaratitilinn fýrstu fimm árin, en hefur ekki lyft þeim „stóra" síðan 1966. Toshack gerði tveggja ára samning við félagið. Liðið tapaði fyrir AC Mílanó í 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða John Toshack og náði ekki að verja spænska bik- arinn — lá fyrir Barcelona í úrslit- um. „Ég hef ekki gleymt þessu, en við höfum allir lært af því,“ sagði Toshack, sem gerði garðinn frægan með Liverpool fyrir rúmum áratug og stjórnaði Real Sociedad tii glæstra sigra áður en hann tók við stjórninni hjá meisturunum. HANDKNATTLEIKUR / SVIÞJOÐ Drotl sænskur meistari Drott varð í gærkvöldi sænsk- ur meistari í handknattleik í sjöunda sinn síðan 1968. Liðið sigraði Þorberg Aðalsteinsson og félaga hjá Saab með 23 mörkum gegn 16 og vann þar með þrjá leiki í röð, en Saab vann fyrsta leikinn. Þorbergur sagði að fyrri hálf- leikur hefði verið jafn en í síðari hálfleik var aldrei spuming um sigur Drott. Staðan í leikhléi var 9:7 fyrir Drott, sem skoraði síðan þijú fyrstu mörkin í síðari hálfleik. Þorbergur, sem lék sinn síðasta leik með Saab, gerði tvö mörk og sagðist hafa spilað meiddur og fengið sprautur fyrir leikinn og ekki náð sér vel á strik. „Við vor- um vængbrotnir í þessum leik þar sem lykilmenn voru meiddir og munar mestu að Pólveijinn Dziuba gat ekki leikið. Ég er svekktur að hafa tapað þessu en að sama skapi er ég ánægður með árangurinn á mínu síðasta keppnistímabili. Við urðum bikar- meistarar og náðum að komast alla leið í úrslit í deildinni og það er meira en flestir bjuggust við.“ ípRfam FOLX ■ ÁSGEIR Sigurvinsson lék ekki með Stuttgart er liðið gerði marka- laust jafntefli við St. Pauli á fimmtudag vegna meiðsla í öxl. Eyjólfiir Sverrisson sem gengur undir nafninu „Jolly“ á meðal áhangenda félagsins var á vara- mannabekknum í Hamborg. ■ ARNÓR Guðjohnsen lék með Anderlecht sem bakvörður er liðið vann Ekeren í belgísku knattspyrn- unni, 2:0, á laugardaginn. And- erlecht leikur gegn Steaua Búkar- est í Evrópukeppninni í kvöld, en Anderlecht vann fyrri leikinn í Belgíu, 1:0. ■ GUNNAR Gunnarsson hætti í gærkvöldi sem aðstoðarþjálfari Luka Kostics hjá 1. deildar liði Þórs í knattspymu vegna sam- starfsörðugleika þjálfaranna. Gunnar verður sennilega áfram þjálfari 2. flokks. ■ GUÐMUNDUR Torfason var kjörinn maður leiksins er St Mirren sigraði Dundee 2:1 á útivelli í skosku úrvalsdeildinni um helgina. ■ WAYNE Gretzky leikur ekki með landsliði Kanada í heimsmeist- arakeppninni í íshokkí, sem hófst í Sviss á mánudag. Gretzky og sam- heijar í Los Angeles Kings gerðu sér lítið fyrir og slógu meistara Calgary Flames út úr úrslita- keppninni um Stanley bikarinn og leika gegn Edmonton Oilers, liðinu sem Gretzky lék áður með, í úrslit- um Smythe deildarinnar. ÚRSLIT ENGLAND 1. deild (þriðjudagur): Charlton — Wimbledon...............1:2 (Young 70. sjálfsm. - Wise 3., Fashanu 9.) Manchester United — Aston Villa....2:0 (Robins 24., 45.) 1. deild (mánudagur): Chelsea — Crystal Palace...........3:0 (Dixon 22., K. Wilson 60. og Stuart 73.) Coventry — Queens Park Rangers.....1:1 (Smith 9.) - (Maddix 45.) Everton — Derby....................2:1 (Atteveld 51. og Sheedy 69.) - (Wright 61.) Millwall — Tottenham..............0:1 - (Lineker 49.) Norwich — Manchester City..........0:1 - (Heath 4.) Nottingham Forest — Luton..........3:0 (Carr 59., Parker 68. og Clough 83.) 1. deild (Iaugardagur): Aston Villa — Chelsea..............1:0 Crystal Palace — Arsenal...........1:1 Derby — Millwall...................2:0 Liverpool — Nottingham Forest......2:2 Luton — Everton....................2:1 ManchesterCity — Sheff. Wednesday..2:1 QPR — Manchester U nited...........1:2 Southampton — Charlton.............3:2 Tottenham — Coventry...............3:2 Wimbledon — Norwich... Staðan i 1. deild: ......1:1 Liverpool ...33 19 9 5 64:33 66 AstonVilla ...35 20 5 10 50:30 65 Everton ...35 17 7 11 53:40 58 Tottenham ...35 17 6 12 55:44 57 Arsenal ...33 16 6 11 47:32 54 Chelsea ...35 14 12 9 52:44 54 Southampton ...34 13 10 11 64:59 49 Nott. Forest ...35 13 9 13 48:45 48 Norwich ...35 12 12 11 37:37 48 Coventry ...35 14 6 15 38:50 48 Wimbledon ...33 11 14 8 43:37 47 Q.P.R ..35 12 11 12 41:39 47 Man. United ...34 12 8 14 44:41 44 Man. City ...35 11 11 13 40:49 44 Derby ...34 12 7 15 40:34 43 Crystal Palace ... ...34 11 8 15 37:63 41 Sheff. Wed ...35 10 10 15 33:46 40 Luton ...35 7 13 15 37:55 34 Charlton ...35 7 9 19 30:52 30 Millwall ...35 5 11 19 38: 9 26 2. deild: (þriðjudagur): Bournpmont.h — T/>iVpsLpr 2-3 Watford — Rarnslpv 2:2 West Ham — Ipswich 2:0 2. deild: (mánudagur): Blackbum — Swindon 2:1 Hull — Wolverhampton 2:0 Leeds — Sheffield United.. 4:0 Middlesbrough — Bradford 2:0 Newcastle — Stoke 3:0 Oxford — Sunderland 0:1 Port Vale — Oldham 2:0 Portsmouth — Brighton.... 3:0 W.B.A. — Plymouth 0:3 2. deild (laugardagur): Barnsely — West Ham 1:1 Bradford — Blackburn 0:1 Brighton — WBA 0:3 Ipswich — Port Vale 3:2 Leicester — Portsmouth..., 1:1 Plvmnnth — Rmirnpmniit.h 1:0 Seff. Wednesday Oxford 2:1 Stoke — Middlesbrough..... 0:0 Sunderland — Hull 0:1 Swindon — Watford 2:0 Wolves — Newcastl 0:1 Oldham — Leeds. 3:1 Staðan: Leeds ...42 22 12 8 73:47 78 Newcastle ...42 21 12 9 76:49 75 Sheffield United. ..42 21 12 9 67:53 75 Blackburn ...42-18 15 - 9 71:55 69 Swindon ...42 19 11 12 75:56 68 Sunderland ...42 18 13 11 63:58 67 West Ham ...42 18 12 12 72:51 66 Wolverhampton . ...42 17 12 13 64:54 63 Oldham ...39 16 12 11 57:48 60 Ipswich ...41 16 12 13 56:58 60 PortVale ...42 15 14 13 59:52 59 Leicester ...42 14 14 14 61:68 56 Oxford ...42 15 8 19 56:59 53 Portsmouth ...42 13 14 15 55:60 53 Watford ...42 13 12 16 53:56 52 WestBromwich . ...43 12 14 17 63:64 50 Brighton ...42 14 7 21 51:65 49 Hull ...41 11 15 15 47:55 48 Barnsley ...41 11 14 16 43:65 47 Plymouth ...41 12 10 19 51:59 46 Middlesbrough... ...41 12 10 19 45:56 46 Bournemouth .... ...43 11 12 20 54:71 45 Bradford ...42 8 13 21 40:63 37 Stoke ...42 5 17 20 29:59 32 SPÁNN Logrones — Celta 4:1 Atletico Madrid - - Tenerife 2:0 Sporting Gijon — Real Sociedad... 0:0 Valencia — Rayo Vallecano.... 4:1 Cadiz — Barcelona 0:4 Malaga — Real Mallorca... 0:2 Spvilla Castellon 3:2 Athletic Bilbao — Real Oviedo 0:0 Real Zaragoza — Osasuna 1:0 Rpsl Vpllndnlid — • Rpal Madrid 0:0 Staða efstu liða: Real Madrid ...34 24 8 2 94:30 56 AtleticoMadrid.. ...34 19 9 6 48:27 47 Barcelona ...34 21 4 9 77:34 46 Valencia ...34 17 12 5 57:38 46 Sevilla ...34 18 5 11 61:41 41 Real Sociedad ...34 14 12 8 39:31 40 GETRAUNIR: 1X1 X X 1 211 X X 2 LOTTO: 8 9 26 32 38 + 25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.