Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 4

Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 4
I B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990 Nína Gauta í Paris. íslenskar listagyöjur íParís Látum meðfylgjandi ljósmyndaröð tala, skrifar Sigurður Þorgeirs- son, ljósmyndari í París, og sendir okkur myndir af „listagyðjunum Eddu og Nínu“. Hann lýsir umhverfi og andrúmslofti þegar myndirnar urðu til: p ■ ™estir Opus-Café risu úr sætum. I Lófatak og fagnaðarhróp þeirra virtust engan endi ætla að taka. Eftir þijú aukalög gátu píanóleikar- inn, Edda Erlendsdóttir, og fiðluleik- arinn, Jaques Prat, fengið ró í bún- ingsherbergjum sínum baksviðs. „Eg átti ekki von á slíkum móttök- um“, sagði Edda við mig. í síðastliðn- um maímánuði fylgdist ég með hljóm- leikum Eddu Erlendsdóttur og Jaques Prat í fjögur kvöld í Opus-Café. Meist- araverk Sains, Sarasates og Kreislers voru túlkuð af slíkri snilld að jafnvel Frakkar — heimsins erfiðustu hlust- endur — sátu agndofa. Til upplýsingar fyrir íslendinga, sem heimsækja París, þá er Opus Café til húsa á 167 Que-de-Valny og hægt að komast þangað með neðan- jarðarbrautinni á Metro Joures. Nína sýnir á íslandi I níunda hverfi Parísar situr lista- konan Nína Gauta í vinnustofu sinni og málar myrkranna á milli.„Ég er að undirbúa sýningu, sem opnar á Kjarvalsstöðum 14. júlí næstkom- andi“, segir hún. í París hafa málverk listakonunnar Nínu Gauta ekki síður vakið athygli en píanóleikárínn Edda Erlendsdóttir. „Rúnaletur á hug minn allan um þessar mundir. íslenskar og egypskar myndir sitja í öndvegi. Allar þær myndir sem ég sýni á Kjarvalsstöðum eru málaðar út frá táknmáli rúnalet- urs,“ segir Nína. Nína er á heimleið með ávöxt erfiðis síns. Innan skamms stendur sýning einstakrar listakonu íslendingum til boða. Listferill Nínu í Evrópu er stráður viðurkenningum og verðlaunum. Jaques í Odus Edda Erlendsdóttii oo Jaques Piat. Nína Gauta og eiginmaður hennar. Edda og eiginmaður hennar ásamt eiganda Opus Gafé til vinslri. Nína Gauta aðstoðar dóttur sína. V

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.