Morgunblaðið - 25.07.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JULI 1990
15
Morgunblaðið/RAX
Fólk veifaði afsvölum húsa í borginni, enda ekki á hverjurn degi að loftbelgur svífur yfir landinu.
Loftbelgir svífa yfir
Reykjavík og Berlín
STÓREFLIS loftbelgur svífúr
yfir íslandi þessa dagana í til-
efiii af ferðamálaári Evrópu.
Loftbelgnum má halda á flugi
allt að ijóra tíma I senn, en
hann er fluttur landshorna á
milli með vörubíl. Ljósmyndari
Morgunblaðsins brá sér í flug-
ferð yfir Reykjavík með loft-
belgnum um helgina.
Samið var við breskt fyrirtæki
um að senda tvo loftbelgi milli
landa Evrópu til að minna á
ferðamálaárið. Liðna helgi var
annar loftbelgurinn á sveimi yfir
tónleikum um múrinn í horfna í
Berlín. Hinn loftbelgurinn sveif
yfir húsþökum i Reykjavík. Hann
kom til íslands með feijunni
Norrænu síðastliðinn fimmtudag
og verður fluttur utan sama dag
í þessari viku.
Loftbelgurinn er heitalofts-
belgur, nærri 2.000 rúmmetrar
að innanmáli og 20 metra hár.
Loftið í belgnum er hitað upp
með própangasi og helst belgur-
inn á flugi meðan það er nægi-
lega heitt miðað við andrúmsloft-
ið. Ijórir menn komast í körfu
belgsins. í fluginu yfir höfuð-
borginni á laugardaginn sveif
belgurinn í 6-700 og ailt niður í
30 metra hæð. Farið var um á
nálægt 10 kílómetra hraða á
klukkustund.
Áfengislaus
borðvín í ATVR
NU MÁ í fyrsta sinn fá í útsölum ÁTVR áfengislaus borðvín og er þá
hægt að kaupa áfeng borðvín og óáfeng í sömu verslun. Fjármálaráð-
herra fór fyrir nokkru Iram á að þessi kostur yrði kannaður og hefur
ÁTVR nú á boðstólum fjórar gerðir áfengislausra vína frá Frakklandi
og Þýskalandi, rauðvín, rósavín, hvítvín og freyðivín.
I fréttatilkynningu frá fjármála-
ráðuneytinu segir m.a: „Þessi ný-
breytni er í samræmi við þá þróun
sem átt hefur sér stað hérlendis að
undanförnu. Hófsemi og bindindi
hefur eflst í áfengismálum. Jafn-
framt hafa siðvenjur við víndrykkju
breyst nokkuð, virðing vaxið fyrir
góðvínum og hömlulaus neysla
sterkra drykkja er ekki jafn sjálfsögð
og áður. Reynt hefur verið síðustu
ár að hafa jákvæð áhrif á þróunina
með verðlagningu hjá ÁTVR, þar
sem hlutfallslegur verðmunur léttra
vína og sterkra hefur aukist. Jafn-
framt hefur þjónusta við áhugamenn
um góð vín verið bætt.
Með því að hafa nú til sölu óáfeng
vín við hlið áfengra vína er komið
til móts við óskir margra viðskipta-
manna, sem vilja á einfaldan hátt
geta boðið gestum jafnt áfenga og
óáfenga drykki af sambærilegri gerð.
Hins vegar er sjálfsagt að vekja at-
hygli á því að ýmsar gerðir óáfengra
vína eru til sölu í matvöruverslunum,
sum þeirra gæðavörur í sínum flokki.
Óáfengu vínin sem hér um ræðir
eru raunveruleg vín sem sneydd hafa
verið vínandanum. Þau eru að styrk-
leika rétt undir 0,5% að áfengishlut-
falli, en við þau mörk eru miðað í
Evrópubandalaginu þar sem þau eru
framleidd. Þau eru langt undir mörk-
um hérlendis um áfenga drykki þar
sem íslenski pilsnerinn, 2,25%, telst
óáfengur.
Verð á hinum óáfengu vínum er
á bilinu 320-560 krónur flaskan.
Afgreiðsla í vínbúðum er áfram
bundin við tvítugsaldur þrátt fyrir
þessa nýju vöru.“
Minna keypt af áfengi en í fyrra:
Vodka lang'vinsælast
að bjór undanskildum
SALA áfengis hefur dregist saman verslunar ríkisins er ekki tekið tillit
milli ára um 4,2% í lítrum talið
og um 6,5% ef miðað er við alko-
hóllítra. ÁTVR seldi 4.257.039
lítra af áfengi fyrstu sex mánuði
ársins og er bjór þá talinn með
svo og sérpantað áfengi. Minna
var nú keypt af flestum tegundum
en sala á rommpúnsi og bitterum
jókst þó um rúm 30%. Hins vegar
minnkaði áhugi kaupenda mest á
rósavíni, sérríi, aperitífum og
brennivíni. Sala á þessum tegund-
um dróst saman um 11-14%. Svip-
að magn var keypt af hverslags
tóbaki og fyrri liluta síðasta árs.
Þar er munntóbak undantekning;
frá janúar fram til júlí voru keypt
16 kíló af því en 24 kíló sömu
mánuði í fyrra.
Fyrri hluta árs seldust rúmlega
3,1 milljónir lítra af bjór eða 3,14%
minna en á síðasta ári. Mest var
keypt af Löwenbrau, næstum milljón
lítrar, og næstmest af Becks. Meira
var keypt af rauðum vínum en
hvítum, 192 þúsund lítrar á móti 150
þúsund. Vinsælasta rauðvínið var
Beaujolais-vínið Piat og næst því
kom Chateau Fontareche. Af
hvítvínum var mest keypt af Hoc-
hheimer Daubhaus.
Þegar þjór er undanskilinn sést á
lítratali ÁTVR að langmest selst af
Vodka, tæpir 300 þúsund lítrar fyrri
hluta ársins. Þar er Smirnoff vinsæl-
ast, því næst Eldurís og þriðja í röð-
inni er Finlandia Vodka.
í sölutölum Áfengis- og tóbaks-
til þess sem ferðamenn eða áhafnir
skipa og flugvéla flytja inn í landið
úr fríhöfn eða að utan. Ekki er held-
ur talin með sala áfengis og tóbaks
til skipa, fríhafnar eða til útflutnings.
SÍMI: 91 -24000
...ekkibarakaffi