Morgunblaðið - 21.09.1990, Side 1
VIKUNA 22.-28. SEPTEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
BLAÐ
B
Arás
Stöð 2 sýnir kvikmyndina Á rás (Finish Line) á sunnudaginn. Þetta
er átakanleg mynd um hlauparann Glen sem ekki er nógu góður til
að komast í hlaupalið skólans síns. Faðir hans er fyrrum íþrótta-
stjarna og á enga ósk heitari en þá að sonur hans verði honum
fremri á hlaupabrautinni. Allt snýst um það að strákurinn sigri, ann-
að sæti kemur ekki til greina.
Glen leggur sig allan fram fyrir föður sinn. Hann reynir allt til að
komast í liðið og uppgötvar á steralyf. Fyrsta sæti skal það vera,
hvað sem það kostar. Glen fer að ganga betur, hlaupa hraðar og
sigra. Ekkert virðist geta stöðvað hann þart til ógæfan dynur yfir.
Rjúpnaskytterí
Leiktir vikunnar á Rás 1 er nýtt íslenskt leikrit, Rjúpnaskytterí eftir Þorstein Mare.ls-
son, og er það á dagskrá nk. þriðjudagskvöld. Leikstjóri er Ingunn Ásdísardóttir og
leikendur Sigurður Karlsson, Þórarinn Eyfjörð og Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Rjúpnaskytterí segir frá fyrstu veiðiför ungs manns ásamt mági sínum. Ferðin sem
hann í upphafi leggur á sig af eintómri kurteisi við aðra fjölskyldumeðlimi breytist
von bráðar í martröð.
„Völd eru vandræðahugtak"
Stóriðjan er mál mála á íslandi í dag og sýnist sitt hverjum. í umræðunni undanfar-
ið hefur þó lítt farið fyrir málefnum Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, er
rekin hefur verið með reisn og skörungsskap undanfarin ár. Sá maður er þar stend-
ur við stjórnvölinn, Jón Sigurðsson forstjóri, lætur heldur ekki mikið á sér
bera. Á laugardagskvöld bregður hann þó þeim vana sínum og spjallar við
Sigrúnu Stefánsdóttur í þættinum Fólkið í landinu.
Einnig svipast Sigrún um í ríki Jóns á Grundartanga, þar sem sitthvað
fleira leynist í skjóli grárra veggja en hinn daglegi rekstur útheimt-
ir. Rætt er við nokkra af starfsmönnum verksmiðjunnar og litið
á félagslífið á Tanganum.
Jón Sigurðsson, forstjóri.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
IWlyndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6
Vinsælustu myndböndin 8
V