Morgunblaðið - 29.09.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
B 7
'
Bókastefnan i Gqutaborg:
ÞAR VAR
ÍSLAND í ÖNDVEGI
BÓKA- og bókasafnastefnan í Gautaborg 13.-16. september
sl. var ij’ölsótt og framlag íslands vakti mikla athygli. Lars-Ake
Engblom, forstjóri Norræna hússins, einn þeirra sem sæti áttu
í íslensku undirbúningsnefndinni, komst svo að orði í viðtali við
Morgunblaðið að ísland hafi átt heiðurinn að því að þessi alþjóð-
lega bókastefna, hin þriðja stærsta í Evrópu, varð fyrst og
fremst norræn.
Er óhætt að segja að ýmsir frægðarmenn frá öðrum löndum
skyggðu ekki á íslensku höfundana því að vel heppnaðar dag-
skrár íslendinga voru jafnan fyrir fullu húsi og mikill áhugi á
íslenskum bókmenntum ríkti meðal áheyrenda. íslenska óperan,
myndlistarmenn, hönnuðir o. fl. áttu sinn þátt í góðri íslands-
kynningu.
J.H.
Sveinn Einarsson, Svavar Gestsson, menntamálaráðherrra, og
Ann Sandelin, forstjóri Hanaholmen.
vKomdu nú og krunkaðu með mér.“ Garðar Cortes stjórnar kór
Islensku óperunnar á íslenska sýningarsvæðinu.
Meiri veisluhöld: Einar Már Guðmundsson, Vigdís Grímsdóttir
og Jakob S. Jónsson.
Á íslenska sýningarsvæðinu: Gerður Steinþórsdóttir, Heimir Páls-
son, Sveinn Einarsson og Guðrún Helgadóttir.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, ásamt sænska sendiherranum, Per Olof Forshell, og Önnu
Einarsdóttur, formanni undirbúningsnefndar af íslands hálfu.
1 veislu hjá Bok och bibliotek: Anna Einarsdóttir, Thor Vilhjálmsson, Matthías Johannessen, Ulf
Örnkloo, bókmenntafulltrúi sænska útvarpsins, og Jóhann Hjálmarsson.
Lars Áke Engblom, forstjóri
Norræna hússins, tekur á móti
íslandsbæklingi á flugvellinum
í Gautaborg.
íslenska sýningarsvæðið. Á myndinni eru María Engström og
Olga Bergmann.