Morgunblaðið - 14.10.1990, Page 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 1990
HORFT UM ÖXL
endum og fær enda hvar-
vetna fyrirtaks dóma sem
formúluplata, enda ekki
mikil ástæða til að krefjast
breytinga af jafn þéttri
sveit. Kunnugir telja þó að
nýi gítarleikarinn, Jannick
Gers, sem talinn er með
fremstu gítarleikurum Bret-
lands, eigi eftir að breyta
miklu með tímanum og þá
helst á tónleikum. Vonandi
gefst íslenskum þunga-
rokkáhugamönnum kostur
á að kynnast því.
Á ÁTTUNDA áratugnum var breska þungarokkið end-
urreist af sveitum eins og Saxon, Def Leppard og Iron
Maiden. Sú sveit sem einna best hefur haldið á sínu
er Iron Maiden og í síðustu viku kom frá sveitinni
áttunda breiðskífa hennar, No Prayer for the Dying.
Líkur eru svo á að sveitin komi hingað til lands til
tónleikahalds í næsta mánuði.
Iron Maiden hefur verið
að síðan 1977 með litl-
um mannabreytingum.
Stofnandi og leiðtogi sveit-
arinnar er Steve Harris
bassaleikari, sem semur
jafnan nánast öll lög og
stýrir útsetningum. Aðrir fá
útrás með því að senda frá
sér sólóskífur og á síðasta
ári komu frá Bruce Dickin-
son söngvara og Adrian
Smith gítarleikara plötur,
MLÍF og fjör í Fagradal
heitir fyrsta breiðskífa SJéttu-
úlfanna sem út kemur í
næstu viku. Sveitina skipa
landskunnir tónlistarmenn,
Björgvin Halldórsson,
Gunnar Þórðarson, Pálmi
Gunnarsson og Gunnlaugur
Bríem, en aukameðlimur er
breski fetilgítarleikarinn B.J.
Cole, sem leikið hefur með
flestum helstu poppurum
Bretlands og lék inn á plötur
með Brimkló fyrir margt
löngu. Sléttuúlfamir hyggst
halda tónleika til að kynna
plötuna og til stendur að fá
BJ. Cole til landsins.
■ HOKKS VEITIN Deep
Purple, sem heldur upp á 22
ára afmæli á árinu, er enn
að og í lok mánaðarins kemur
frá sveitinni ný breiðskífa,
Slaves and Masters. Sveitin
er nú skipuð Ritchie Black-
more, Roger Glover, Jon
Lord, ían Paice og söngv-
aranumJoe Lynn Tumer.
Forðum söngvari sveitarinn-
ar, sem hefur gengið í hana
og úr nokkrum sinnum, Ian
Gillan, og rekinn var úr
Purple fyrir skemmstu, er
þegar kominn af stað með
eigin sveit og sendi M sér
plötu fyrir skemmstu.
MPLATA Mezzoforte,
Playing for time, hefur
vakið mikla athygli á jas-
markaði í Bandaríkjunum,
og er hún nú á topp tuttugu
á fjórum helstu jassvin-
sældalistum Bandaríkjanna.
Sveitin lauk fyrir nokki’u við
nýja plötu sem á eru tvö
ný lög og gömul endurgerð,
• en allar líkur eru nú á að
útgáfu þeirrar plötu verði
frestað og sveitin taki upp
fleiri ný lög. Einnig er verið
að leggja drög að tónleika-
för sveitarinnar til Banda-
ríkjanna sem verður líklega
farin snemma á næsta ári.
en Adrian hætti síðan í Iron
Maiden til að fylgja eftir
sólóferli sínum. Nýr gítar-
leikari, Jannick Gers, stígur
sín fyrstu skref með sveit-
inni á plötunni nýju.
Tvö ár eru liðin síðan frá
síðustu plötu, Seventh Son
of a Seventh Son, og marg-
ir orðnir langeygir. I sumar
hélt sveitin upp á tíu ára
samstarf sitt með EMI með
því að senda frá sér tíu 12“
og geisladiska með smáskíf-
um sem komið höfðu út á
því tímabili. Þetta var vel
til þess fallið að undirbúa
aðdáendur fyrir breiðskífu
og það sýnir vel vinsældir
Iron Maiden hér á landi að
nánast allar smáskífumar
komust inn á sölulista þrátt
fyrir að um væri að ræða
gömul lög.
Á nýju plötunni leitar Ir-
on Maiden aftur og nýja
platan er svipuð þeim sem
áður em komnar. Hún er
því vel til þess fallin að
falla í geð traustum aðdá-
DÆGURTÓNLIST
/Hvad er adgerast í Kejlavík?
Þungt popp
ÞAÐ fer oft lítið fyrir
hfjómsveitum sem starfa
utan Reykjavíkur, enda
helst að þær komist á
framfæri starfi þær þar.
Rokklíf er þó mikið utan
höfuðborgarvæðisins og
til að mynda hefur verið
líflegt á þessu sviði á
Akranesi, í Borgarnesi
og í Keflavík, en þar
sendi rokksveitin Pand-
óra frá sér sína aðra
breiðskífu í síðustu viku
og sú þriðja kemur í
næstu viku, cn Geim-
steinn gefur allar plöt-
urnar út.
Pandóra sendi á síðasta
ári frá sér plötuna
Saga. Tónlistin á þeirri
plötu var einskonar Zepp-
elinrokk og textar á ensku,
mmmmmmmmm en ís-
lenskir
plötu-
kaupe
ndur era
þjóð-
emis-
sinnaðir
og platan
seldist
því ekki vel. í síðustu viku
eftir Ámo
Watlhíasson
Pandóra
sendi sveitin svo frá sér
aðra breiðskífu sína, Á ís-
lensku, þar sem textar era
á íslensku. Tónlistin á plöt-
unni nýju, sem reyndar er
bara gefin út á geisladisk
Tvær breiðskífuv kotnnar og
og kassettu, tákn nýrra
tíma, er öllu aðgengilegri
en áður og yfirbragð upp-
töku og útsetninga allt
mýkra og heilsteyptara.
Það má því eins búast við
að Keflavík nái aftur sínum
fyrri sess í poppsögunni.
Pandóra er tveggja og
hálfs árs sveit, sem skipuð
er Júlíusi Guðmundssyni
trommu- og flautuleikara,
Magnúsi Einarssyni bassa-
leikara, Sigurði Eyberg
ara og munn-
hörpu- og sax-
ófónleikarar,
og Þór Sig-
urðssyni gít-
arleikara.
Sveitin er
þriggja ára
gömul og
með ein-
dæmum af-
kastamikii,
því ekki er
nóg með að
frá henni
séu komnar
tvær breið-
skífur,
sveitin er
búin að
ieika inn á
þriðju
skífuna,
sem kem-
súþriðjaáleiðmni. urútinn-
skamms. Á þeirri plötu
verður tónlist úr rokkleikn-
um Er framtíð?, sem Júlíus
samdi og settur verður upp
á vegum Leikfélags Kefla-
víkur innan skamms. Tón-
listin í því verki er „ekki
rokk, en ótrúlega fjöl-
breytt“, að sögn sveitar-
mannanna Júlíusar og Þór,
en þéir segja það af hinu
góða að glíma við eitthvað
nýtt og segja það styrkja
sveitina.
Eins og áður kom fram
era textamir á plötunni
nýju á íslensku og ekki
vilja þeir Júlíus og Þór
segja að það sé vegna
þrýstings utanfrá að þeir
hafi horfið frá enskum
textum, þrátt fyrir að þeim
finnist þungarokk hljóma
illa á íslensku, „við voram
ekkert að velta þessu fyrir
okkur sérstaklega, okkur
langaði að semja á íslensku
og gerðum það. Hitt er
vitanlega ljóst að við hefð-
um ekki fengið plötuna
gefna út á ensku.“
Þeir Júlíus og Þór gera
lltið úr þeim erfiðleikum
að vera staðsettur í Kefla-
vík. Þeir segjast hafa yfrið
nóg að gera í rokkleiknum
og svo mikið af lögum til
að vinna úr að þeir hafi
ekki haft tíma til að vera
að spiia á böllum og viija
ekki útiloka að sveitin eigi
eftir að taka sér það fyrir
hendur einhvern tímann í
framtíðinni.
Þeir segjast ekki fá
mörg tækifæri til að spila
eigin tónlist, en útgáfutón-
leikar sveitarinnar verða í
Edinborg í Keflavík næst-
komandi fimmtudag.
Ice Cube Mikki mús býr ekki í fátækrahverfunum.
BYLTINGARRAPP
BYLTTNGAR í dægurtónlist koma jafnan að neðan í
Bandaríkjunum; jassinn, blúsinn, rytmablúsinn, fönkið,
og nú rappið, allt komið frá undirokuðum. Rappið/hip-
hopi leggur undir sig tónlistamenningu blökkumanna
í Bandaríkjunum. í sjónvarpi rappa kartöflur í ham-
borgaraauglýsingum og rappplötur seljast í milljóntali.
Ameðal bandarískra
blökkumanna eykst
reiðin í garð hvítra og sú
reiði brýst út að nokkru í
rappinu hjá tónlistarmönn-
um eins og Niggers With
Attitude og Public Enemy.
Leiðtogi NWA, Ice Cube,
hefur hafíð sólóferil og á
nýrri plötu hans, Amrekkk-
as Most Wanted er að finna
hörðustu texta rappsins í
dag.
Rapþtextar era oft við-
stöðulaus spuni sem lýtur
eigin þragfræðilögmálum
og málið á þeim er einskon-
ar enska, skotin slangur-
yrðum sem erfitt er fyrir
óinnvígða að skilja. Ice
Cube gefur frat í hvíta, sem
hann segir kúga og undi-
roka blakka Bandaríkja-
menn. Hann segir fleiri
blakka vera í fangelsum en
háskólum með orðbragði
sem fer fyrir btjóstið á sið-
prúðum og ýmis samtök
beijast nú fyrir því að versl-
anir hætti að seljá tónlist
með 'textum á borð við
hans, eða krefjast þess að
á plöturnar sé settur merki-
miði sem vari við innihald-
inu og þær verði ekki seldar
börnum. Ice Cube gefur lít-
ið fyrir jóssið og segist bara
vera að segja frá lífínu I
blökumannahverfum stór-
borga Bandaríkjanna, „þeg-
ar þú ert kominn á götuna
hittir þú ekki fyrir Mikka
mús“.
Ice Cube fetar í fótspor
Malcoms X, Stoakleys
Carmichaels og H. Raps
Browns, sem blökk ung-
menni þekkja ekki lengur,
en hann lítur einnig upp til
Lewis Farrakham, leiðtoga
íslamskra Bandaríkja-
manna, sem bíða efir tæki-
færi til að taka við.
Kannski er ekki svo langt
í það, því 2056 munu nán-
ast allir íbúar Bandaríkj-
anna geta rakið ættir sínar
til litra forfeðra.