Morgunblaðið - 30.11.1990, Page 1
VIKUNA 1. — 7. DESEMBER
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 30. NÖVEMBER 1990
BLAÐ
LITAST UM Á
LAIMGAIMESI
Flest okkar geta staðsett Langanesið umhugsunarlaust á uppdrætti,
enda er þetta myndalegasti skagi á íslandskortinu. Þeir munu hins veg-
ar færri er leið sína leggja þangað norður og síðustu áratugina hefur
mannabyggðin á nesinu látið hinu fjölskrúðuga fuglalífi eftir æ meira
pláss. Er nú svo komið, að hinir vængjuðu þegnar nessins eru nánast
allsráðandi enda er þar að finna hin fegurstu fuglabjörg.
í þættinum Litast um á Langanesi, sem er á dagskrá Sjónvarps nk.
sunnudagskvöld, mun Örn Ingi fara á þessar slóðir og litast um í fugla-
byggðinni. Einnig skoðar hann menjar búsetu þarna, s.s. á Skálum þar
sem 120 manns áttu sér heimkynni fyrir hálfri öld en nú eru þar rústir
einar. Sama máli gegnir um kostajörðina Sauðanes þar sem fyrrum var
veglegt prestsetur og arðbær dúntekja en hin hlöðnu húsakynni frá
1879 standa nú auð og tóm.
Upp á Heiðarfjalli, þar sem her Bretaveldis spókaði sig fyrrum, bregða
nokkrir leikarar frá Leikfélagi Húsavíkur á leik. Og frekari mannaferða
verður vart í þessu náttúruunar ríki þegar að er gáð, björgunarsveitin
á Þórshöfn er á æfingu og sannar hreysti sína.
Skondnir skúrkar
Nýr breskur gamanþáttur, Skondnir skúrkar, hefur göngu sína á Stöð
2 föstudaginn 7. desember. Þar segir af tveimur skúrkum sem hafa í
sig og á með því að blekkja fólk. Þessir kumpánar lifa fyrir hraðskreiða
bíla, fagrar konur,
dýr vín og veislu-
mat. En kjörorð
þeirra er: Aðeins
skal ræna þá gráð-
ugu.
í upphafi eru á önd-
verðum meiði en
þegar frægur svika-
hrappur og sameig-
inlegur vinur þeirra
deyr, hittast þeir og
ákveða þeir að hefja
samvinnu og Ijúka
verki sem hinn látni
vinur þeirra hafði
þegar þyrjað á.
Aðalleikararnir
Guðmundur Ólafs-
son og Árni Pétur
Guðjónsson ásamt
leikstjóranum,
Sigrúnu Valbergs- /
dóttur.
I
t
KOSS
köngulóarkonunnar
Leikrit desembermánaðar,
Koss köngulóarkonunnar eftir
argentínska rithöfundinn
Manuel Puig er á dagskrá Rás-
ar sunnudaginn 2. desember.
Leikrit þetta hefur farið sigurför
víða um heim og meðal annars
hefur verið gerð fræg kvikmynd
eftir því. Leikritið var frumflutt
hér á landi í Alþýðuleikhúsinu
fyrir tveimur árum í leikstjórn
Sigrúnar Valbergsdóttur, sem
einnig leikstýrir því nú með
sömu leikurum; þeim Guð-
mundi Ólafssyni, Árna Pétri
Guðjónssyni og Viðari Eggerts-
syni. Tónlistin er eftir Lárus
H. Grímsson og upptöku ann-
aðist Hreinn Valdimarsson.
Verkið segir frá samskiptum
tveggja fanga. Annar þeirra er
pólitískur fangi en hinn situr
inni vegna kynferðisafbrota.
Lífsreynsla þeirra og viðhorf
eru gjörólík og eiga þeir í fyrstu
fátt sameiginlegt nema kaldan
fangaklefann og kúgara sína.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Utvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er að gerast? bls. 3-5
Myndbönd bls. 5
Bíóin í borginni bls. 6
Vinsælustu myndböndin 8