Morgunblaðið - 06.01.1991, Side 17
'í.mmáá'PASTEiíSMPSSSSMá'igMíœiff'i*!
% ^7
Velja byggingarefni, sérstaklega
þau sem eru í snertingu við inni-
loft, með það fyrir augum að þau
mengi loft sem minnst („náttúru-
leg“ efni best).
Hafa skal í huga að byggingar-
efni sem innihalda rokgjörn efni
(t.d. lím, ýmis fúguefni, málningu
o.fl.) menga mest í byijun, stundum
allt að fyrstu sex mánuðina. Eðli-
legt er að taka tilHt til þess við
skipulagningu verktilhögunar
þannig að húsið nái að jafna sig
sem mest áður en það er tekið í
notkun.
Notkun, vinnsla og
starfsemi
Velja skal vinnsluaðferðir og
haga notkun og starfsemi þannig
að sem minnst mengun hljótist af.
Mengandi þætti á að loka af eftir
bestu getu (með skilrúmum eða
' loftræstingu) þannig að mengun
valdi ekki óþægindum.
Dæmi: í skýrslunum eru sérstak-
lega taldir eftirfarandi algengir
mengunarvaldar: Ljósritunarvélar.
Laserpi'entarar. Reykingaménn.
Viðhald, rekstur og þrif
Hanna skal byggingu og tækni-
búnað þannig að auðvelt sé að þrífa
byggingu og búnað. Tryggja skal
með rekstraráætlunum að þrifið sé
reglulega, og á réttan hátt (verklýs-
ing). Við hönnun skal hafa í huga
að rekstur og viðhald verði viðráð-
anlegt.
Dæmi: Haga frágangi þannig að
óhreinindi nái ekki að safnast sam-
an þar sem ekki verður komist til
að þrífa, t.d. má hafa lausa sökkla
á skápum þannig að hægt sé að
þrífa undir þeim.
Loðið yfirborð tekur meira ryk
heldur en slétt, og stallar á veggjum
eru ryksælir.
Ofnar ættu að vera sléttir að
aftan til að takmarka ryksöfnun,
og í öllu falli að vera mögulegt að
þrífa bakhlið þeirra.
Vandamál sem koma upp að
loknum fyrstu sex mánuðunum frá
endurbótum eða nýbyggingu húss
má oftast rekja til einhvers af eftir-
farandi: Niðurbrots efna. Myglu eðá
fúa. Loftræstingar eða hitakerfis.
Ytri mengunar.
Þáttur RB
Þekking hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins varðandi
vandamál sem tengjast heilsuspili-
andi hjúsnæði, tíðni þeirra og afleið-
ingum er lítil, enda er þetta í verka-
hring annarra. Stofnunin hefur ekki
aðstöðu til að framkvæma athugan-
ir á hollustu byggingarefna sem eru
á markaði hérlendis. Á stofnuninni
er hins vegar allnokkur þekking á
byggingareðlisfræði (samband hita,
raka, og loftræstingar m.a.), þannig
að kunnátta á hluta þeirra þátta
sem geta orsakað heilsuspillandi
húsnæði er að nokkru fyrir hendi.
Tengsl stofnunarinnar við erlendar
rannsókna- og prófanastofnanir í
iðnaði (sem margar hafa hollustu
húsnæðis á sínu starfssviði) eru
umfangsmikil.
Undanfarin ár hafa komið fáein-
ar beiðnir til stofnunarinnar um
aðstoð við orsakagreiningu vanda-
mála sem höfðu .valdið sýkingu
íbúa. I öllum tilvikum var um að
ræða húsnæði sem ekki uppfyllti
eðlilegar kröfur til einangrunar og
rakavarnarlaga, þannig að fletir
voru kaldir og rakir, eða rakaþétt-
ing átti sér stáð í byggingarhlutum.
í einu tilvikanna olli rakaþétting í
illa einangi’uðum byggingarhlutum
mjög háum efnisraka í timbri.
Raka- og hitastig skapaði vaxtar-
skilyrði fyrir myglusveppi og var
talið að mikið magn sveppagróa í
andrúmslofti væri orsök astmaein-
kenna hjá íbúum. Húsið var endur-
bætt með þetta í huga, og vanda-
málið hvarf.
Hollusta húsa ræðst af samspili
margra þátta, sem eru á starfssviði
margrE^stétta. Hérlendis er enginn
einn aðili eða stofnun sem hefur
aðstöðu eða þekking til að takast
á við þessi vandamál, en vandamál-
ið kemur inn á svið fjölmargra. Þar
sem ekki er fyrir hendi samstarfs-
nefnd þessara aðila, þá er hætta á
að upplýsingar berist hægt og illa
milli hópa. Til þess að tryggja sem
besta nýtingu þeirrar þekkingar og
aðstöðu sem þegar er fyrir í landinu
og jafnframt auka þekkingaröflun,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
þá er nauðsynlegt að auka tengsl
og ýta undir samstarf hagsmunaað-
ila.
Höfundur er verkfræðingur og
arkitekt og starfar ly'á Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins. Grein þessi er erindi, sem
hann flutti á námstefnu um húsa-
sótt, sem Endurmenntunarnefnd
háskólans og Arkitektafélag ís-
lands efndu til fyrir skömmu.
SPURT OG SVARAÐ
Hve mildó hældtar
reiðslubyróin?
Jón Rúnar Sveinsson félags-
fræðingur hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins verður fyrir svörum.
Spurning: Hve mikið hækkar
greiðslubyrði í húsbréfakerfinu
eftir að vextimir hækkuðu úr
5,75% í 6%?
Svar: Fyrstu flokkar húsbréfa
bám 5,75% ársvexti, en þann 15.
nóvember sl., sama dag og hús-
bréfakerfið var opnað gagnvart
öllum íbúðabyggjenduin, var gef-
inn út nýr flokkur húsbréfa, þar
sem vextir era 6%. Fasteignaveð-
bréf, sem kaupendur íbúða undir-
rita og sem seljendur íbúðanna
síðan skipta fyrir húsbréf hjá
Byggingarsjóði ríkisins, bera
sömuleiðis eftir 15. nóvember sl.
6% vexti. Það eru að sjálfsögðu
þessi fasteignaveðbréf (alls ekki
húsbréfin sjálf!) sem íbúðarkaup-
endurnir greiða af, ijórum sinnum
á ári í 25 ár.
Hækkun vaxta á framangreind-
um fasteignaveðbréfum úr 5,75%
FJÖLDI seldra fasteigna hefur
farið minnkandi ár frá ári í
Danmörku frá árinu 1983, en
það ár var fjöldi seldra fast-
eigna skráður i fyrsta sinn þar
í landi. Á fyrra helmingi ársins
1990 voru t. d. skráðar 34.355
sölur á fasteignum á móti
58.669 á fyrra helmingi ársins
í 6% leiðir aðeins til óverulegrar
hækkunar á greiðslubyrði íbúðar-
kaupenda. Þannig hækkar árleg
greiðslubyrði af kr. 3,2 milljónum
(sem er um það bil meðalfjárhæð
fyrirgreiðslu í húsbréfakerfinu) úr
kr. 244.410 á ári kr. 250.325 eða
aðeins um kr. 5.915. Samanlagðar
heildargreiðslur íbúðarkaupan-
dans, þ.e. bæði vextir og afborgan-
ir yfir allan lánstímann (25 ár),
eru kr. 6.110.253 ef vextirnir eru
5,75% en hækka upp í kr.
6.258.137 eða um kr. 147.884
eftir að vextirnir hafa hækkað í
6%.
Spurning: Geta leigusalar
óhindrað krafið leigjendur um
fyrirframgreiðslur til langs
tíma í senn?
Svar: í gildandi lögum um húsa-
leigusamninga er að finna ákvæði
sem ætlað er að vinna gegn óeðli-
lega miklum fyrirframgreiðslum á
húsaleigu.
Almenna reglan um greiðslu
1983.
I samanburði við fyrstu sex
mánuði 1989 fækkaði sölum um
10% á sama tímabili 1990. Þessi
samdráttur var mismunandi eftir
hinum ýmsu tegundum fasteigna.
Hann var hlutfallslega mestur á
óbyggðum lóðum eða 27% en á
íbúðum um 14%.
húsaleigu er sú, að hún skal greidd
fyrirfram til eins mánaðar í senn
í upphafi hvers mánaðar. 1 upp-
hafí leigutíma er óheimilt að krefj-
ast fyrirframgi-eiðslu til lengri
tíma en fjórðungs umsamins leig-
utíma og síðar á leigutímanum er
óheimilt að krefjast fyrirfram-
greiðslu til lengri tíma en þriggja
mánaða í senn.
Það er ennfremur tekið fram í
lögunum að ef eigi að síður er
krafist fyrirframgreiðslu til lengri
tíma en þriggja mánaða, þá leiði
það til þess að leigjandinn öðlast
rétt á íbúðinni fjórfaldan þann
tíma sem greitt var fyrirfram fyrir.
Þessi „fjórföldunarregla" hefur
það í för með sér að fyrirfram-
greiðsla til t.d. 6 mánaða veitir
leigjanda rétt á íbúðinni í 2 ár og
eins árs fyrirframgreiðsla veitir
leigjandanum leigurétt til fjögurra
ára.
Það getur því reynst varasamt
fyrir leigusala að taka tilboði leigj-
anda um miklar fyrirframgreiðslur
eða að krefjast slíkra greiðslna
sjálfur.
Danmörk:
I jöldi seldra íasl-
eifiiia fer iiiiiikandi
Lögmanns- & fasteignastofa
REYKJA VÍKUR
Skipholti 50C, sími 678844
Fasteign er
Opið kl. 13-15 okkar fag
Einbýli — raðhús
Grafarvogur. Einb. á einum
besta stað i Garfarvognum. Afh. fullb.
að utan, fokh. að innan. Uppl. á skrifst.
Dalhús
Ingólf sstrseti — miðbær.
Ágæt 60 fm íb. á 2. hæö á besta stað
í bænum. Áhv. 2 millj. V. 4,4 m.
'l!M!!H
Boðagrandi. Stórgóð ca.
80 fm íb. á 2. hœð í blokk ásamt
bílskýli.
Háteigsvegur — sér-
hœð - nýtt á sölu. 117
fm hæð á þessum fráb. stað.
Vandaðar innr. Parket. Bílsk.
Vesturberg — iaus —
nýtt á sölu. 2ja herb. 75
fm góð íb. á 2. hæð. Lyklar á
skrifst. Verö 4,5 millj.
Stórglæsil. ca 200 fm parhús á tveimur
hæðum. 4 svefnherb. Innb. bílsk. Húsið
er fullb. að utan, tilb. u. trév. að innan.
Til afh. strax. Eignask. mögul. Teikn. á
skrifst., sendum samdægurs. V. 9,5 m.
Fjarðarsel. 190 fm raðhús á
tveimur hæðum + bílsk. 3 svefnherb.
Arinn. Góður garður. Hentar vel fyrir
húsbréf. Ákv. sala.
Álftanes. 128 fm einb. Selst fokh.
Bilsksökklar og -plata. Eignask. mögul.
Sendum teikn. samdægurs. V. 6,7 m.
Kjalarnes. Hentugtfyrirsmiði. Vel
íbhæft 240 fm einb. Tvöf. bílsk. Fráb.
staðsetn. Gott útsýni. Eignask. eða
húsbréf.. Verð 7,8-8 millj.
Raðhús — Hafnarfirði. 197
fm fokhelt raðhús á tveimur hæðum.
Afh. fokh. að innan, fullb. að utan. Innb.
bílsk. Afh. strax. Sendum teikn. sam-
dægurs. Eignask. mögul. Verð 7,6 millj.
Mosfellsbær. Einbýli ca. 180fm
á einni hæð. Afh. tilb. u. tréverk og
fullb. utan. Frábær staðsetn.
2ja—5 herb.
Seljahverfi. 4-5 herb. ib, á 2. hæð
ásamt bílskýli.
Fossvogur. Einstakl.íb. á jarð-
hæð. íb. er laus.
Garðavegur — Hf. — nýtt
á sölu. 2ja herb. 51 fm þokkaleg íb.
á jarðhæð. Áhv. 1 millj. Verð 3,5 millj.
Eignask. mögul. á stærri eign í Hafnar-
firði.
Vesturbær. Mjög góð ca 70 fm
íb. Ib. er öll endurn. Parket. Aukaherb.
f kj. Verð 5,6 millj.
Hraunstfgur — Hf. —
nýtt á sölu. Góð 3ja herb.
rlsíb. á góðum stað í Hafnarfiröi.
Áhv. veðdeild 1 mlllj. Verð 5 millj.
Heimar — „pent-
house“ — nýtt á sölu.
3ja herb. 90 fm mjög góð ib.
Nýstandsett. 25 fm svalir. Fráb.
útsýni. Laus strax. Verð 6,8 millj.
Seljahverfi. Stórgl. 95 fm 3ja
herb. íb. á 1. hæð. Sérþvhús. Búr. Suð-
vestursv. Áhv. 3,5 millj. Verð 6,5 millj.
Hraunbær. 4ra herb. 110
fm ágæt ib. á þessum vinsæla
stað. Eignask. mögul. á Ibhæfu
i Grafarvbgl.
Víkurás. Fullb. mjög snyrtil. eígn
90 fm á 3. hæð. Parket. Þvhús á hæð.
Bílskýli. Eignask. í Hraunbæ mögul.
Ölduslóð — Hf. 100fmgóðeign
á jarðhæð i þribýfi. 2 stór svefnherb.
Þvhús. Góð kjör. Verð 4,8 millj.
Barmahlíð — nýtt á sölu.
Ca 80 fm stórgóð íb. i þríbh, Rólegt
og gott umhverfi. Ákv. sala.
Suðurgata — Hf. — nýtt á
sölu. 110 fm hæð með sérinng. í
fjórbýli. Tilb. u. trév. Afh. ftjótl. Áhv.
nýtt lán frá veðdeild 3,6 millj.
Snyrtivöruverslun -
Laugavegi. Vegna sérst.
ástæðna er til sölu á besta steð
við Laugaveg glæsii. snyrtivöru-
versl. Besti tíminn framundan.
Uppl. eingöngu á skrifst.
Vantar eignir
höfum kaupendur
Ólafur Örn, Páll Þórðars., Friðgerður Friðriksd., fulltr. og Sigurberg Guðjónss. hdl.