Morgunblaðið - 06.01.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIG1MIR SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 1991
B 23
Telilii vcrdi upp 10 ára
ábyrgö á steínsteypn
Á ALÞINGI er komið fram frum-
varp um breytingu á lögum um
lausafjárkaup þess efnis að 10
ára ábyrgð verði tekin upp á
steinsteypu. Flutningsmenn
frumvarpsins eru úr öllum flokk-
um. Frumvarpið fer hér á eftir
ásamt greinargerð.
Frumvarp til laga um breyting á
lögum um lausafjárkaup, nr.
39/1922. Flutningsmenn eru Jón
Sæmundur Siguijónsson, Geir H.
Haarde, Ásgeir Hannes Eiríksson,
Guðrún Helgadóttir, Ingi Björn Al-
bertsson, Jón Kristjánsson, Þórhild-
ur Þorleifsdóttir.
1. gr.
Við 54. gr. laganna bætist ný
málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
Kröfur vegna galla í steinsteypu,
sem keypt var tilbúin frá framleið-
anda, fyrnast á tíu árum frá afhend-
ingu vörunnar, nema seljandi hafi
skuldbundið sig til að ábyrgjast
vöruna lengri tíma eða haft svik í
frammi.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var flutt á
síðasta þingi, en varð ekki afgreitt
úr nefnd.
Frumvarpið er flutt að frum-
kvæði Húseigendafélags Reykjavík-
ur. Það felur í sér að fyrningarfrest-
ur krafna, sem rísa kunna vegna
galla í steinsteypu, lengist úr einu
ári í tíu ár frá afhendingu. Tilgang-
ur frumvarpsins er sá að auka vernd
húsbyggjenda og annarra kaupenda
steinsteypu gagnvart göllum er
leynast kunna í steypunni og auka
ábyrgð framleiðenda, verktaka og
efthlitsaðila að sama skapi.
Á síðari árum hefur æ fleirum
orðið ljóst að ákvæði 54. gr. laga
um lausafjárkaup, nr. 39/1922, er
kveður á um eins árs fyrningarfrest
krafna vegna galla á seldum hlut
eða vöru sem meginreglu, er óeðli-
leg og frestúrinn of skammur hvað
varðar galla á vissum vörutegund-
um, t.d. byggingarefni, þar sem
vitað er að gallar, sem voru á vör-
unni er kaup fóru fram, geta hæg-
lega dulist kaupanda þótt hann
hafi beitt eðlilegri árvekni við kaup-
in og mjög langur tími liðið þar til
þeir koma fram. Er þetta því baga-
legra þar sem hér er oft um afar
mikil verðmæti að ræða og gallinn
getur hæglega valdið kaupanda ill-
bærilegu tjóni ef honum reynist
ókleift að rétta hlut sinn gagnvart
seljanda. Einkum hefur tilbúin
steinsteypa til mannvirkjagerðar
komið til umræðu og athugunar í
þessu sambandi, ekki síst í tilefni
af kunnum málaferlum fyrir nokkr-
um árum þar sem mjög reyndi á
ákvörðun fyrningarfrests vegna al-
varlegra galla á keyptri steinsteypu
til íbúðarhússbyggingar. Varð nið-
urstaðan sú í dómi Hæstaréttar frá
27. júní 1983 (Hrd. 1983, bls. 1469)
að krafa húsbyggjandans (kaup-
anda steypunnar) var talin fyrnd
samkvæmt ákvæði 54. gr. laga nr.
39/1922 um ársfrest til kröfugerðar
frá því að kaup tókust, en mörg
ár liðu hins'vegar þar til húsbyggj-
andinn varð gallans var sem hafði
í för með sér stórtjón fyrir hann.
Vakti þessi niðurstaða m.a. mikla
umræðu í fjölmiðlum og kom fram
í máli margra að niðurstaða í þessa
átt gæti verið óréttlát gagnvart
neytendum enda þótt ekki yrði ve-
fengt að Hæstiréttur hefði einungis
farið eftir gildandi lögum'. Var til-
lögum til úrbóta jafnframt hreyft á
Alþingi án þess þó að þar-fengist
nein niðurstaða um réttarbætur.
Er þessu frumvarpi því ætlað að
leysa tiltekinn vanda á umræddu
sviði ef að lögum verður.
Þégar hugað er að breytingum á
54. gr. laga nr. 39/1922 í fyrr-
nefnda átt er ljóst að örðugt getur
verið að ákvarða þær vörutegundir
sem til álita kemur að setjá um
sérstakt ákvæði þar sem fyrningar-
frestur sé lengdur til muna frá því
sem algengast er í lausafjárkaup-
um. Hefur orðið að ráði að miða
hér einungis við tilbúna steinsteypu,
sökum þess að þar birtist vandamál-
ið í skýrustu ljósi og ætla má að
gallat' á því sviði hafi verið og séu
allalgengir (sbr. m.a. „alkalí-
skemmdir" svokallaðar). Er þá mið-
að við það í 1. gr. frumvarpsins að
um þessa sérstöku vörutegund gildi
tíu ára fyrningarfrestur sem reynd-
ar er hinn aimenni fyrningarfrestur
samkvæmt lögum nr. 14/1905
(nema annað sé sérstaklega tekið
fram í þeim lögum). Jafnframt þyk-
ir eðlilegt að hafa sama fyrirvara
og nú er í 54. gr. um sérstaka
ábyrgð seljanda til lengri tíma en
tíu ára og um svik seljanda, en um
svik gildir þá að öðru leyti ákvæðið
í 7. gr. laga nr. 14/1905. Rétt þyk-
ir hér einnig til þess að taka af öll
tvímæli, að miða upphaf fyrningar-
frestsins við afhendingu vörunnar
svo sem gert er í 54. gr. laga nr.
39/1922, en reglur laga nr.
14/1905 um það efni eru hins veg-
ar ekki nbegilega ljósar. Verður al-
mennt að ætla að ákvæði um tíu
ára fyrningarfrest á umræddri vöru
ntuni hvort tveggja í senn verða
framleiðendum (seljendum) sérstök
hvatning til vöruvöndunar og ná-
kvæms gæðaeftirlits og leiða til
fullnægjandi réttarbóta fyrir neyt-
endur í flestum tilvikum, þótt hins
vegar séu dæmi þess, svo sem í
fyrrnefndu dómsmáli, að sá frestur
sé ekki nægilega langur sökum
þess hve gallar í steinsteypu geta
verið lengi að koma fram. Á hitt
ber þó að líta að seljendur þessarar
vöru sem annarrar hafa augljósa
hagsmuni af því að reglur um fyrn-
ingarfrest séu glöggar og einnig
að fresturinn verði ekki ákveðinn
mjög langur, t.d. langt umfram tíu
ár, því að það mundi skerða rétta-
röryggi þeirra um of.
Meðal annarra Norðurlandaþjóða
stendur nú yfir endurskoðun hinna
almennu laga um lausafjárkaup og
hafa sumar þjóðirnar nýlega lögtek-
ið endurskoðaða lagabálka um það
efni. Hefur þetta endurskoðunar-
starf farið fram í norrænni sam-
vinnu sem íslensk stjórnvöld hafa
haft tækifæri til að fylgjast með
þótt ekki hafi þar verið um beina
þátttöku að ræða. Hefur verið leit-
ast við að hafa sem mest samræmi
milli texta hinna nýju norrænu laga
á þessu sviði, en ijóst er þó að um
algert samræmi verður þar ekki að
ræða. Ætla verður að á næstu árum
muni íslensk stjórnvöld hlutast til
um endurskoðun núgildandi laga
um lausaijárkaup. Má þá telja víst
að í flestum efnum verði tekið mið
af meginreglum hinna endurskoð-
uðu kauplaga grannþjóða okkar, en
jafnan verður þó að taka nægilegt -
tillit til íslenskra séraðstæðna þar
sem það á við. Ákvæði það um við-
bót við núverandi 54. gr. kaupa-
laga, sem hér er borið fram í frum-
varpsformi, mun tvímælalaust eiga
fullan rétt á sér í endurskoðuðum
lögum um lausafjárkaup, en
ástæðulaust er að bíða þeirrar end-
urskoðunar hvað þetta ákvæði varð-
ar sökum þess að um brýna réttar-
bót er að ræða sem verndar hag
neytenda á mikilvægu viðskipta-
sviði.
Flutningsmenn gera sér ljóst að
ævinlega er vandasamt að kveða í
löggjöf á um ábyrgð einstakra aðila
að almennum viðskiptum. Verslun
með steinsteypu er mjög mikilvægt
svið viðskipta hér á landi þar sem
iðulega eru ríkir hagsmunir í húfi
enda ekki óalgengt að húsbyggjend-
ur leggi aleigu sína að veði þegar
ráðist er í húsbyggingu. Því er brýnt
að hugað sér að vernd þeirra sem
neytenda, en þó þannig að gætt sé
eðlilegs jafnvægis milli hagsmuna
kaupenda og seljenda. Sala og með-
fet'ð steinsteypu er nú mun þróaðri
tæknilega en áður var. Ljóst er og
að ending steypu er ekki einvörð-
ungu háð gæðum framleiðslunnar
sem nú er venjulega dælt í steypu-
mót úr flutningstæki, heldur einnig
meðferð hennar á byggingarstaðn-
um. Því þarf að vega og meta hvern-
ig ábyrgð á hugsanlegum göllum
skuli skipt milli framleiðenda og
annarra er að verkinu koma sem
og eftirlits- og úttektaraðila.
Flutningsmenn telja eðlilegt að í
þingnefnd verði farið nánar í saum-
ana á þessum atriðum og kallað
eftir áliti tæknimanna á þessu sviði.
i
FASTEK3IMAÍVIIC3L.UN
SVERRIR KRISTJÁNSSON - HÚSIVERSLUNARINNAR 6. HÆÐ - BALDVIN HAFSTEINSSON HDL
OKKUR VANTAR GÓÐAR EIGNIR í SÖLU. SKOÐUM OG VERÐMETUM SAMDÆGURS
if Símatími 1-3 if
EINBÝLI Á SJÁVARLÓÐ - SELTJNESI
Ca 225 fm mjög gott einbhús m/innb. bilsk. Á hæðinni er 5 herb. ib. i kj. lítil
stúdiólb. Stór og falleg lóð sem liggur mót suöri. Mikið útsýni. Húsið er laust.
VESTURHOLAR - EINBYLI
Mjög gott 185 fm einb (pallahús) sem sk. í forstofu, snyrt., hol, eldh., húsbónda-
herb. og stofu. Niöri eru 2 svefnherb. og þvottaherb. (bakinngangur). Útfrá holi
er sérgangur með 3 svefnherb. og baði. Miklar og vandaðar innr. 30 fm bílsk. Hiti
í plani. Mikið útsýni. Ákv. sala. Laus fljótl.
LAUFVANGUR - SÉRHÆÐ
Ca 138 fm falleg neðri sérhæð ásamt 20 fm bílsk. Stórar stofur, parket, arinp.
Ákv. sala.
Einbýlishús
HLYNGERÐI. Ca 350 fm mjög vand-
að og gott hús m/lítilli aukaíb. Fallegur garður.
NORÐURBÆR - HF.
ÞVERARSEL. Ca 251 fm gott einb.
(pallahús) ásamt bílsk. 35 fm. Húsið stend-
ur v/útivistarsvæði. Gott útsýni. í húsinu
er m.a. 4-5 svefnherb., stofur o.fl. Góð eign.
Ákv. sala.
Ca 330 fm einb. á 2 hæðum ásamt tvöf.
bílsk. Gott hús á hornlóö. Sólstofa. Hiti í
stéttum. Áhv. ca 7 millj. langtímal. Ákv.
sala eða skipti ó minni eign.
STÓRITEIGUR - MOS.
145 fm mjög gott og vandað einb. á
einni hæð ásamt 48 fm bilsk. Húsið
er mjög vei skipulagt með góðum innr.
og vel umgengið. Staðsett innst i lok-
aðri götu. Fallegur garður.
HNOTUBERG - HF. 152
fm nýtt og vandað einb. á einni hæð
ásamt 39 fm bílsk. Húsiö skiptist í
s0rar stofur m/arni, blómastofu, 3
stór svefnh., stórt eldhús og bað.
Vandaðar innr. (Yfirstærð á hurðum).
Ákv. sala eða skipti á minni eign.
HÓLAHVERFl. Gott 216 fm einb.
á tveim hæðum ásamt 45 fm bílsk. Húsið
stendur við óbyggt svæði við Elliðaárdal-
inn þar sem er fallegt útsýni og mikil frið-
sæld. í húsinu eru 5 svefnherb. o.fl. Ákv.
'sala. Eins kemur til greina að taka uppí
' minni eign.
Einbýli — tvíbýli
ÞINGASEL. Ca 271 fm á tveimur
hæðum. Á efri hæð eru 4 svefnherb. o.fl. Á
neðri hæð er mögul. á 2ja herb. séríb. Mik-
ið tómstrými. Útsýni. Skipti koma til greina
á minna einbhúsi eða raðhúsi gjarnan á
svipuðum slóðum.
SELTJARNARNES. Einb.00237
fm kj., hæð og ris. í kj. er 2 herb. ofl. 1.
hæð: 3 stofur, eldh. og fl. Ris: 5 herb. og
bað. Svalir út af báðum hæðum. Fallegur
garður. 27 fm bílsk. Ákv. sala eða skipti á
minni eign.
Þríbýli
HVAMMSGERÐI. Gott hús ca
3 x 80 fm grunnfl. kj., hæð og ris. í kj. er
3ja herb. ib. o.fl. Á 1. hæð er 4ra herb. íb.
í risi er 3ja herb. íb. 35 fm bílsk. Húsið er
til sölu í einu lagi eða skipt. Veðbandalaust.
BLESUGROF. Gegnt gróðrarstöð-
inni ca 153 fm einb. sem er jarðh., hæð
og ris + 40 fm nýr bílsk. í húsinu eru 5-6
herb., stofur ofl. Húsið er að mestu nýl.
endurb. Verð 10,9 millj. Ákv. sala.
VESTURBÆR - EINB. 195 fm
einb., kj. og tvær hæðir. Nýtt eldhús o.fl.
Góð eign. Ákv. sala.
B ERGST AÐ ASTRÆTI. 175 fm
gott járnv. timburh., kj., hæð og ris. Sól-
stofa, „terrace11 og svalir. Bílastæði
m/hitalögn og hiti í stétt.
GOÐATUN. 154 fm gott hús á einni
hæð. Bílsk. í húsinu eru 3 svefnherb., rúmg.
stofur o.fl. Blómaskáli með heitum potti.
Falleg og mikið ræktuð hornlóð. Útsýni.
Ákv. sala.
Raðhús
FLUÐASEL. Ca 200 fm fallegt og
vel innr. raðhús. Bílskýli. Ákv. sala.
BREKKUBYGGÐ. 86 fm fallegt
raðhús ásamt bílsk. Sérsmíðaðar innr.,
parket. Ákv. sala.
Sérhæðir
MELAS - GB. Ca 140 fm góð og
björt neðri sérh. Sólverönd. Fallegur garður.
4ra-5 herb.
VESTURBÆR - KR-
BLOKKIN. Falleg íb. á 3. hæð.
-Þvottaherb. á hæöinni. Sauna. Mikið
úsýni. Ákv. sala. Áhv. veðdeild ca 2,0
miilj. Laus fljótl.
FELLSMULI. 5 herb. góð og björt
íb. sem skiptist í hol. borðst., stofu, 3 svefn-
herb., eldh. og bað. (Mögul. á 4 svefn-
herb.). Útsýni. Ákv. saia.
ARAHÓLAR. 98 fm góð íb. á 1.
hæð. Útsýni.
KRUMMAHOLAR. ioefm
íb. á 4. hæð. Nýtt eldhús. Stórar
svalir. Bílskúrsplata. Útsýni.
HRAUNBÆR. Mjög rúmg. íb.
á 3. hæð. Gott skipulag. Verð 6,9
millj. Laus.
AUSTURBERG. Góð 4ra herb. íb.
á 2. hæð.
HVERFISGATA. 93 fm rb. á 1.
hæð. Laus fljótl.
3ja herb.
STÓRAGERÐI. Ca 95 fm góð ib. á
4. hæð. herb. í kj. fylgir. (Stórar stofur.)
Ákv. sala.
VANTAR góðar 3ja herb. íb. í sölu.
2ja herb.
VANTAR góðar 2ja herb. íb. í sölu.
I smíðum
GRAFARVOGUR - TVÍBÝLI. Til sölu á útsýnisstað stflhreint par-
hús. í fullb. hverfi. Stutt f skóla, á iþróttavöll og i verslun. Minni íb. er á tveimur
hæðum ca 115 fm + 24 fm biisk. Stærri ib. ca 170 fm + 25 fm bilsk. einnig á
tveim hæðum. Húsið er i dag tæpl. fokh. Til greina kemur að afh. húsið fokh. eöa
lengra komið t.d. tilbúið undir tréverk.
GRAFARVOGUR - PARHUS. Ca 136 fm á einni hæð + 25 fm
bílskúr. Húsið er fokhelt til afhendingar strax. Til greina kemur að afhenda eignína
tilbúna undir tréverk.
ROFABÆR - 3JA HERB. Til sölu 3ja herb. íb. á jarðhæð (1. hæð) í
nýju fjölbhúsi. Rétt við skóla og verslun. Tilbúin til afhendingar strax tilbúin,
undir tréverk með fullfrág. sameign. Góð greiðslukjör.
Verslunar-, skrifstofu-, iðnaðarhúsnæði
BLIKAHOLAR. Ca 155 fm íb. + 40
fm bílsk. á 1. hæð. Mikið útsýni. íb. er stórt
hol, eldhús, stór stofa 3 góð svefnherb og
bað. Nýl. innr, hurðir og gólfefni. Mjög góð
íb. Ákv. sala.
KÓNGSBAKKI. Ca 100 fm góð og
björt íb. á 3. hæð. Þvottaherb. innaf eldh.
Suðursv. Parket. Laus.
í VERSLUNARMIÐSTOÐ I AUSTURBÆ. caioofmgott
verslpláss. Selst m/eða án lagers. Traust fjárfesting.
SUÐURLANDSBRAUT. Mjög gott hús fyrir heildsölur og iðnaö 630
fm. Lofthæö 4,5-5 m, súlulaust. Þrennar stórar og góðar innkdyr. Malbikuð bilast.
m/hitalögn. Mögul. að skipta húsinu í 2-3 ein.
VESTURVOR - KOP. 421 fm iðnaðarhúsn. á einni hæð að mestu einn sal-
ur. Tvennar stórar innkdyr. Lofthæð frá 3,2-4,5 m. Hægt að selja eignina skipta. Mjög
góð greiðslukjör.