Morgunblaðið - 01.03.1991, Blaðsíða 49
. A}Ql«UJ.\Bl,\t)ID FQSTy^G^fi 1, jaAfiZ .jj991
jAt
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
_ FRÁ MÁNUDEGI
n TIL FÖSTUDAGS
tiká
I/WMI tí UM-U It
Velvakanda.
Maður hugsar með hryllingi til
þess tíma ef núverandi ríkisstjórn
tækist að framlengja valdatímabil
sitt eða halda óbreyttri valdastöðu.
Það væri niðurlægjandi fyrir kjós-
endur ef hugur þeirra stendur til
að veita þeirri arðrána- og niður-
rifsstefnu framlengt vald í efna-
hagslífi landsmanna.
Ef dæma má af fréttum um
ýmis efnahagsmál, verður ekki
betur séð en kaffæra eigi þjóðina
í skatta- og skuldafeni. Hvenær
allar þær skuldir sem á þjóðinni
hvíla verða greiddar og komið á
jafnvægi í þeim málum fæ ég ekki
séð.
Menn hafa ekki verið sparir á
að lána ríkinu fjármuni sína enda
hefur fjármálaráðuneytið kostað
tugi milljóna kr. í gylliboð með
auglýsingaskrumi um ávöxtun
fjárins 'sem leggja skyldi í púkkið
og plata fók til að lána ríkinu spa-
rifé sitt upp á hærri vexti og allt
undanþegið skatti eins og gjarnan
sparifé landsmanna hefur verið og
á að vera, því búið er að greiða
af því skatt. Því hefur ijármálaráð-
herrann haft mikið einblínt á spa-
riféð um lengri tíma til skattlagn-
inga og býr þar að baki svínaríið
sem lífeyrissjóðirnir láta bjóða sér,
að skattleggja lífeyrisgreiðslur
gamalmenna sem hafa áður greitt
skatt af tillagi til sjóðanna. Vextir
af spariskírteinum ríkissjóðs hafa
orðið þess valdandi að vextir hafa
ekki lækkað og varð afleiðingin
stöðnun í atvinnurekstri margra
atvinnuskapandi fyrirtækja og at-
vinnuleysi aukist vegna fýrirtækja
sem hreinlega hafa gefist upp
vegna þess að þau hafa ekki stað-
ið undir skattheimtunni og vaxta-
þunga og þeim fækkar stöðugt,
sem ekki sjá nokkum tilgang í að
reka fyrirtæki. Alar em þesar að-
gerðir ríkisstjórnarinnar til þess
gerðar að ná valdi á fjármunum
landsmanna og eyða í arðlausar
framkvæmdir og tilfærslu fjár-
muna til þeirra sem ekki eru þess
verðir og nota kerfi þessarar sjálf-
skipuðu ríkisstjórnar til fram-
færslu sem hægt er að ná á auð-
veldan hátt og þurfa ekkert á sig
að leggja til að hafa í sig og á
fyrirhafnarlaust, en aðrir gjalda.
Ríkisstjórnin hamast við að aug-
lýsa sig sem eins konar viðreisnar-
stjórn og Ólafur Ragnar Grímsson
kennir sjálfstæðismönnum um það
hmn sem orðið hefur í atvinnu-
rekstri síðan hann tók við fjármála-
stjórn ríkisins, en eins og fleira sem
frá ráðherranum heyrist, er ósatt
að sjálfstæðismenn eigi þar sök,
heldur eru það vinstri stjórnir sem
áður sátu við völd sem bera sökina
og af verkurtum þeirra ber þjóði
enn þungar búsifjar.
Þegar Þorsteinn Pálsson var
fjármálaráðherra lækkaði verð-
þólgan um það leyti um rúmlega
hundrað stig og var það got vega-
nesti fyrir arðránsstjórn Ólafs
Ragnars til bættrar afkomu al-
mennings en þá tók skattaánuð
stjórnar Stéingríms Hermannsson-
ar við og ekkert var gert til að
hagsbóta, þjóðarsáttin svokallaða
var þá framlengd og átti að bjarga
öllu en þrátt fyrir hana var engu
bjargað, afkoma almennings að-
eins bætt með ríkisframlögum af
skattaálögum á fyrirtæki og at-
hafnamenn að viðbættum framlög-
um almennings í ríkisskuldabréf
sem ríkissjóður útbýtti til innlendra
og útlendra þénara ríkisstjórnar-
innar.
Mig grunar að ef þessir menn
fá umboð til lengri setu í valdastól-
um alþingis, þá verði lagt hald á
innstæður landsmanna í ríkis-
skuldabréfunum því ríkissjóður
verður kki fær um að borga þau
út ef til kæmi og eigendur þyrftu
á sínum peningum að halda. Ríkið
skuldar hátt á annað hundrað millj-
arða, endurtek milljarða kr. en það
kom fram í fjölmiðlum nýlega og
er samanlagt utanlands og innan-
lands. Það er því ófagur viðskilnað-
ur þingheims við efnahagsmálin
og ekkert lát á skuldasöfnuninni
eftir því að dæma sem spyrst út
og heyrist af í fjölmiðlum. Nú
stendur til að ríkið kaupi tugi jarða
og þúsundir fjár til að kasta afurð-
um af eða gefa útlendingum ef ég
þekki stjórnkerfið rétt, ríkisvaldið
er með klærnar í hvers manns
vasa, á hvers manns heimili og
jarðnæði til að ná eignum bænda
undir ríkisvaldið. Þetta gerist und-
Tilgangur
lífsins
Til Velvakanda.
Oft er spurt um tilgang lífsins.
Svarið er einfalt. Höfundur
þess ætlaðist aðeins til að
lífverurnar viðhaldi sjálfum sér
og svo lífinu sjálfu. Lífið er
undursamlegt, þökk og lof sé
móður náttúru.
RÚN.
í upphafi var oröið
og viö trúum
á þaö
Rás 2
Útvarp í eigu íslensku þjóóarinnar
Hrjá
HROTUII
konu þína...?
Er þetta þjóðarsáttin?
ir stjórn og ráðagerðum þeirra afla
sem nú fara með völdin. Er þetta
þjóðarsáttin?
Rembingurinn og yfirdrepsskap-
urinn er svo mikill að verið er að
gefa tugi milljóna króna í breyttu
formi út um lönd og jafnvel þeim
sem hafa gert þjóðum heims mest
ógagn um árabil, meðan þeirra
eigin þjóð kveinar og kvartar um
fátækt. Þetta virðist vera meira
en lítil brenglun stjórnvalda á
mannlegum og andlegum skiln-
ingi. Núverandi ríkisstjórn verður
að velta úr sessi og algjör nýskipan
að verða á grundvelli ábyrgðar
allra sem hlut eiga að samfélagi
íslensku þjóðarinnar.
Þeir menn sem nú stjórna helstu
málum þjóðarinnar hafa svo sann-
arlega hneppt þjóðina í skuldaánuð
þó hún hafi allt til að bera að geta
lifað sómasamlegu lífi efnahags-
lega og andlega ef þessu linnir.
Verðmæti í framleiðslu sjávaraf-
urða verða ekki mikið aukin frá
því sem nú er vegna fullnýttra fisk-
stofna svo eitthvað annað verður
að koma í staðinn, þar er landbún-
aður fær um að bæta úr ef ekki
er lokað öllum leiðum til aukinnar
framleiðslu eins og nú er. Iðnaður
getur gefið arð ef því stjórnarformi
sem nú er verður rutt úr vegi.
Vandamálin verður að leysa á
grunni ábyrgðar og samstöðu, al-
vöru þjóðarsáttar, ekki stundarúr-
lausn sem eykur vandann. Atvinn-
umálin og framfærsla almennings
á ríkisins kostnað er siðferðislegur
vandi.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
Sölustaðir:
Nesapótek
Ingólfsapótek
Rey kj a ví ku ra pótek
Holtsapótek
Laugarnesapótek
Borgarapótek
Hóaleitisapótek
Garósapótek
Akureyrarapótek
Selfossapótek
Apótek
' Vestmannaeyja
Gegn: hrotum, munnþurrki og nefstíflum.
Alfonso Vilallonga
og CabaretRose
íkvöld kl. 22.00,
HROTU-
BANINN
OVENT
Söngur
stemming
- stíll
Húsið opnaðfyrir
matargesti
kl. 20.00 W'lDij
0
OÍSHÖTEI BDR€0=ol
.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Rauð tónleikaröð
Heimsviðburður
r ~w r i r i i r r •
i Haskolabioi
laúgardaginn 2. mars kl. 14.30
Frumflutningur í Evrópu
á tveimur verkum Rachmaninoffs
Upphafleg útgáfa á Píanókonsert nr. 4
og ófullgerða óperan Monna Vanna
Einleikari: William Black
Einsöngvarar: Sherrill Milnes,
Jón Þorsteinsson,
Nickolas Karousatos,
Seth McCoy,
Blythe Walker og
kór íslensku óperunnar.
Hljómsveitarstjóri: Igor Buketoff
Aðgöngumiðar eru seldir á skrifstofu
hljómsveitarinnar í Háskólabíói á skrifstofutíma
og við innganginn við upphaf tónleikanna.
Sími 622255.
im
á íslandi er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar
íslands starfsárið 1990-1991.