Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 51
x(>ei sjiam .i fluo&airreffi WfTOMI qiGAJaM.JDflOM
MOHGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991
51
KNATTSPYRNA
Guðmundur með samn-
ing frá Stuttgart
Guðmundur Benediktsson gengur nú með hækjur og verðurfrá æfingum í þrjár vikur
GUÐMUNDUR Benediktsson,
leikmaðurinn efnilegi úr Þór f rá
Akureyri, hefur fengið sendan
samning frá Stuttgart. Samn-
ingurinn er á svipuðum nótum
og sá sem Eyjólfur Sverrisson
er með, eða áhugamanna-
samningur. Stuttgart hefur um
tíma haft augastað á Guð-
mundi, sem æfði með félaginu
um skeið í vetur og vilja forr-
áðamenn félagsins fá hann til
liðs við sig.
Eg er svo nýbúinn að fá samn-
inginn, að ég get lítið sagt um
málið. Það er verið að þýða hann
fyrir mig,“ sagði Guðmundur, en
ef hann tekur samningnum verður
það samkomulag milli hans og
Stuttgart hvenær hann færi til
Þýskalands.
Á meðan er verið að þýða samn-
inginn, sem er á þýsku, hvílist Guð-
mundur, sem kom til Akureyrar í
gær frá Reykjavík. Guðmundur fór
í hnéaðgerð í Reykjavík og verður
hann að vera í gifsi í tvær til þijár
vikur. Gangur hann nú með hækj-
ur. Liðbönd í hné rifnuðu og um
leið og gert var að þeim var
brjóskflís fjarlægð. „Gifsið verður
tekið af eftir um þijár vikur og þá
get ég farið að æfa. Ég vona að
ég verði orðinn góður í mars, en
þá fer drengjalandsliðið á mót á
Möltu. Ég hef gott að þessari hvíld,
enda búinn að vera á fullri ferð í
knattspyrnunni í rúmt ár, án þess
að slaka á,“ sagði Guðmundur.
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
Kristján Arason
lék á ný með Teka
Kristján Arason lék á ný með Teka í sigurleik, 28;17, gegn Caja
Madrid. Kristján, sem hefur verið meiddur á öxl, skoraði eitt
mark. Teka á frekar létta leiki framundan, þannig að Kristján fær
góða hvíld til að safna kröftur fyrir frekari átök. Sigurður Sveinsson
skoraði flest mörk Atletico Madrid, eða fimm, þegar félagið vann
Arrate, 18:16, á útivelli.
Guðmundur Benediktsson verður frá æfingum í þijár vikur.
FOLK*
■ GUÐMUNDUR Guðmunds-
son mun að öllum líkindum halda
áfram sem þjálfari Víkings í 1.
deildinni í handknattleik. „Við erum
mjög ánægðir með störf hans og
hann hefur unnið mjög vel. Það
hefur þó ekki verið gengið frá
neinu,“ sagði Kristján Sigmunds-
son, formaður handknattleiksdeild-
ar Víkings. Hann sagði að Guð-
mundur færi til Svíþjóðar i vor á
þjálfaranámskeið. ^
■ JOHANN Cruyff, þjálfari
Barcelona, sem gekkst undir
hjaitaaðgerð á miðvikudaginn, var
hress þegar hann vaknaði í gær-
morgun og það fyrsta sem hann
spurði um, var hvernig bikarleikur-
inn gegn Las Palmas hafi farið og
þegar hann frétti að sínir menn
hefðu unnið stórsigur, 6:0, spurði
hann hveijir hefðu skorað mörkin.
■ MARSEILLE mætir Mónakó í
Frakklandi um helgina, en liðin
eru í tveimur efstu sætunum þar í
landi. Jean Tigana, fyrrum lands-'
liðsmaður Frakklands, er óhress
með að hann sé ekki valinn til að
leika með Marseille og hefur sen|»
þjálfara liðsins tóninn. Raymond
Goetltals, þjálfari hefur ekkert lá-
tið það á sig fá og sagði: „Tigana
er 35 ára. Eg hef ekkert annað að
segja um málið.“
■ KENNY Dulgtísh til Real
Madrid. Þannig voru fyrirsagnir í
blöðum á Spáni í gær. Mendoza,
fyrrum forseti Reai Madrid, sem
sagði starfi sínu lausu á dögunum,
tilkynnti í gær að'ef hann yrði end-
urkjörinn forseti félagsins í aprfl,
myndi hann koma með nýjan þjátjjg^
ara fyrir næsta keppnistímabil. Þao
væri Kenny Dalglish.
aUiDBNATTLElKim
BnaRÚBSUT
VIKINGVR
mv
í Laugardalshöll laugardaginn 2. mars Id. 16.30
Hljómsveitin Papar hita upp fyrir leikinn
Heiðursgestir: Davíð Oddsson, borgarstjóri íReykjavík, og
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóriíVestmannaeyjum.
ÞU lætur þig ekki vanta!
«
HRAÐi RYSTISTÖÐ
\ KST.MANNAEYJA
Forsala aðgöngumiða í Laugardalshöll frá kl. 13.00
SIEMENS loUIL-L-M'A Royal
_______
' VISTMAHNACVIUM
KORNAX
Urvals
hveiti
miLA
SINDRI <a»# ISFELAG sióvaMPalmennar
Veatmannaeyjum HAMPIÐJAN HF SLIPPFÉLAGIÐ HF.
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22