Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 9
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐTALrMIÐVIKUDAGUR 13. MARZ Rtsamarkaðir auðvelda að koma sjávarafurðum okkar beint á framfæri VIÐSKIPTI við svokáll- aða risamarkaði (hyper markets) eiga eftir að gegna mikilvægu hlut- verki varðandi sölu ís- lenskra sjávarafurða í framtíðinni _ að mati Höskuldar Ásgeirsson- ar, forstöðumanns söluskrifstofu Iceland Seafood í Boulogne-sur- mer í Frakklandi. Telur hann þær breytingar sem nú eru að verða á smásöluverslun í Evrópu opna Islendingum þann mögu- leika að koma afurðum okkar beint á framfæri. Forsenda þess sé hins vegar samþjöppun hér heima. Skrifstofan í Boulogne var opnuð 1. september 1988 og hefur sala á markaðssvæði hennar aukist um 140% í frönskum frönkum talið frá 1987. f magni hef- ur söluaukningin verið 110% á sama tíma. Á síðasta ári var sala skrifstofunnar tæp 8.000 tonn og söluverðmæti tæpar 170 miiljón- ir franka eða sem samsvarar um 1,8 milljörðum íslenskra króna. Er það 52% söluaukning í frönskum frönkum miðað við árið áður. A Höskuldur Asgeirsson hjá Iceland Seafood í Boulogne Hér má sjá sýnishorn af þeim neytendapakkningum sem Iceland Seafood selur í Evrópu. * * Höskuldur segir að árið 1987 hafi verið kannað hvort fýsilegt væri að setja upp skrifstofu í Frakklandi fyrir afurðir Iceland Seafood og einnig var markaðurinn mmmmmm^mm endurmetinn þar í eftir landi. k þeim tíma Steingrím s4 skrifstofa fyrir- Sigurgeirsson tækisins í Bretlandi um þann markað. Aðdragandi þessarar könnunar var að innflutningur Frakka á físki hafði aukist stöðugt, jafnt vegna -minni eigin veiða sem aukinnar neyslu á mann. i kjölfar þessarar athugunar var tekin ákvörðun í lok ársins 1987 um að setja á laggimar skrifstofu í Boulogne-sur-mer. Seg- ir Höskuldur þá borg hafa orðið fyrir valinu þar sem hún væri helsta dreifingarmiðstöð fyrir ferskan og frosinn físk í Frakklandi og þar að auki stærsta löndunarhöfn landsins. Þá þjónar skrifstofan einnig belg- íska markaðinum en mjög stutt er yfír til Belgíu frá Boulogne. Önnur lönd á markaðssvæði skrifstofunnar eru Spánn og Portúgal. Um 85% af sölu skrifstofunnar fer á Frakklandsmarkað en mesta verðmætaaukningin milli áranna ■1989 og 1990 var í Belgíu eða 260% en þar var gert sérstakt átak í smásölupakkningum. Spánn kom einnig sterkt inn 1990 fyrst og fremst vegna sölu á humri og öðrum skelfíski. „Við staðsettum skrifstofuna þar sem helstu viðskiptaaðilar ókkar eru miðað við núverandi vöraúrval, sem er millilögð frosin flök, milli- lagðar flakapakkningar og blokkir. Síðan þessi ákvörðun var tekin 1987 hafa aftur á móti orðið stökk- breytingar og meiri áhersla er nú lögð á pakkningar fyrir smásölu- markaðinn," segir Höskuldur. Stefnan er á neytendapakkningar „Það er engin launung á því að þessi aukna sala í smápakkningum hefur kallað á aukið markaðsstarf og munum við stórefla það næsta árið. Hlutdeild smápakkninga hefur farið mjög vaxandi og er nú 5-10% af sölu okkar inn á jafnt Belgíu sem Frakkland. Það er ljóst að við stefn- um að því að hasla okkur meiri völl á þessum markaði en of snemmt er að skýra frá hvemig við ætlum að gera það,“ segir Höskuldur. Höfuðástæðu þess segir hann vera að þannig skapist aukin verð- mæti sem skili sér heim til íslands. Þá hafi íslenskar sjávarafurðir hf. stofnað þróunarsetur á ís.landi til að svara kröfum markaðarins frek- ar. Eigi hún að vera ráðgjafi og þjónustuaðili en aðalvinnan eftir sem áður að fara fram í frystihús- unum. Helsta dreifíkerfi sjávarafurða í Frakklandi segir Höskuldur vera stofnanamarkaðinn, þ.e. skóla, sjúkrahús og herinn. „Það er ekki mikill vöxtur á þeim markaði og hann er mjög viðkvæmur fyrir verð- breytingum. Við eigum því ekki mikla möguleika þar með okkar dýra fisk og að mínu mati eigum við frekar að einbeita okkur að öðram mörkuðum.“ Nefndi hann sérstaklega hinn mikla vöxt sem orðið hefði í hlut- deild risamarkaða í smásölu en sú breyting kallaði á viðbrögð hvað varðaði dreifíngu á fiski. „Stóru verslunarkeðjurnar eru að þjappa Höskuldur Ás- geirsson, for- stöðumaður skrifstofu Ice- land Seafood í Boulogne-sur- mer í Frakk- landi. sér saman og það er kominn vísir að innkaupabandalagi á milli þeirra. Þessi þróun krefst þess að birgjar þeirra aðila séu af ákveðinni stærð og það öflugir að þeir geti boðið stöðugleika varðandi framboð og gæði. Verðþátturinn er kannski í þriðja eða fjórða sæti.“ Sem dæmi um þá breytingu sem orðið hefur á þessu sviði má nefna að 1988 vora risamarkaðimir í Frakklandi 566 en 712 árið 1988. Venjulegir stóiTnarkaðir voru 4.590 árið 1984 en 6.466 árið 1988. Þótt risamarkaðimir séu aðeins 10% af heildarfjölda verslana þá eru þeir með um 39% af smásölunni. Má búast við því að samþjöppunin verði enn þá meiri eftir 1992. Einnig má nefna að átta stórar verslunarkeðj- ur úr löndum innan EB og EFTA hafa tekið upp samvinnu og mynd- að með sér samtökin .Associated Marketing Services. „Þessi stökkbreyting gæti kallað á að við þyrftum að þjappa okkur meira saman heima og jafnvel á samruna. Því miður virðumst við hins vegar vera að sundra okkur. Sundraðir eigum við enga mögu- leika á að sinna kröfum þessa mark- aðar.“ Höskuldur sagði risamarkaðina kalla á smásölupakkningar og hefðu margir þeirra á stefnuskrá sinni að hafa bein tengsl við samtök framleiðenda til að losna við milli- liðakostnað. Sá aðili sem þeir væra í viðskiptum við yrði að sýna ákveð- inn styrkleika og það væri spurning hvort íslensku sölusamtökin væru nógu stór til að fara inn á þennan markað. „Ég lít hins vegar fyrst og fremst á þetta sem tækifæri fyrir Íslendinga til að koma sjávar- afurðum beint á framfæri þannig að gæðin séu tryggð alla leið til neytenda," segir Höskuldur. Leifturf rystur humar til Spánar Þó botnfiskur sé uppistaðan í sölu skrifstofunnar hefur skelfískur aukið hlutdeild sína mjög á síðustu árum. „Við höfum m.a. verið að hasla okkur völl með sölu á leiftur- frystum, þ.e. köfnunarefnisfryst- um, humri á Spánarmarkað og fengið hærra verð en með hefð- bundinni frystingu. Með því að setja þessa tækni upp í einu frystihúsi voram við að svara kröfum markað- arins og verður að segjast að þetta hefur gengið framar vonum." Soðin og pilluð rækja hefur átt erfitt uppdráttar á þessu sölusvæði en svo virðist sem salan á henni sé að taka við sér. Jókst hún um tæp 50% milli áranna 1988 og 1989 og virðist þessi vara eiga meira upp á pallborðið en áður. Þá er Frakkland orðið að helsta markaði íslendinga fyrir hörpudisk. Sama sem ekkert var selt þangað af hörpudisk árið 1987 en í fyrra fór þangað stærsti hluti framleiðslunnar. Eitt helsta vandkvæðið við að vinna á þessu markaði sagði Hösk- uldur vera að margar þjóðir settu upp tæknilegar og viðskiptalegar hindranir til að takmarka innflutn- ing á físki. Ein aðferð væri að láta innflutningsaðila sæta strangari heilbrigðiskröfum en þá á heima- markaðinum. „Við höfum orðið verulega varir við þetta á EB-mark- aðinum. Má nefna sem dæmi hve yfirvöld líta í gegnum fíngur sér gagnvart ýmsum aðilum sem hér era að vinna fisk. Á ég þá aðallega við þá sem kaupa á uppboðsmörk- uðunum og vinna og selja fiskinn ófrosinn inn á markaðinn. Slíkir aðilar myndu ekki fá vinnsluleyfí heima með sömu tæki og hreinlæt- isaðstöðu og hér. Á sama tíma hef- ur innflutningsleyfí frá íslandi verið stoppað þar sem vantaði fótstýringu á handlaug í frystihúsi.“ Segir Höskuldur þetta sýna mjög skýrt hvernig sum ríki reyni að takmarka frjáls viðskipti. Neytendasjónarmið séu ekki höfð að leiðarljósi heldur hagsmunir útgerðarmanna og físk- verkenda í EB. Fiskverkafólki hætt við líkamlegnm óþægiiidum Vinnueftirlitið kannar líkamleg óþægindi ýmissa starfshópa FRUM- NIÐUR- STÖÐUR könnunar á líkam- legum óþægindum verkafólks, sem Vinnueftirlitið hefur gengizt fyr- ir, benda ótvírætt til þess að óþægindin sem skoðuð voru frá hreyfi- og stoðkerfi séu algengari hjá fiskverkafólki en hjá íslensku þjóð- inni almennt og á það sérstaklega við óþægindi frá hálsi, herðum og úinliðum. Auk þess virðast óþægindin há fiskverkafólki meira við dagleg störf en þjóðinni almennt og valda meiri fjarvistum fisk- verkafólks frá vinnu eri hjá samanburðarhópnum. Það era margir sem einhvern tím- ann á ævinni hafa óþægindi, verk, frá hreyfi- og stoðkerfi en með hreyfí- og stoðkerfí er átt við vöðva, sinar, liði, liðamót og bein. Vinnueft- irlit ríkisins gerði athugun á þessum óþægindum meðal íslendinga 'al- mennt og sendi spurningalista til að afla þessara upplýsinga til 855 ein- staklinga af báðum kynjum árið 1986. Spumingalistinn var unninn •af samstarfshópi á vegum Norrænu embættismannanefndarinnar og í ljós kom við úrvinnslu að íslendingar hafa meiri óþægindi frá hreyfi- og stoðkerfí en fólk í sambærilegum rannsóknum erlendis. Markmið rannsóknarinnar var þó ekki að bera okkur saman við aðrar þjóðir heldur afla upplýsinga um ástand þjóðar- innar hvað þetta varðar og nota síð- an upplýsingamar til samanburðar þegar farið væri að +eggja spum- ingalistann fyrir ýmsa starfshópa. Fyrsti starfshópurinn sem valinn var er flskverkafólk. Líðan starfsfólks 18 fiskverkunarhúsum könnuð Hulda Olafsdóttir sjúkraþjálfari hjá atvinnusjúkdómadeild Vinnueft- irlits ríkisins annast úrvinnslu á at- huguninni á líðan fiskverkafólks: „Spurningalisti var sendur til alls starfsfólks í 8 fískverkunarhúsum víðs vegar um land og svörunin var um 68%, þar af svöruðu 63 karlar og 187 konur. Enn sem komið er höfum við einungis frumniðurstöður en þær benda ótvírætt til þess að óþægindin sem við vorum að skoða frá hreyfi- og stoðkerfi séu algeng- ari hjá fískverkafólki en hjá íslensku þjóðinni almennt og á það sérstak- lega við óþægindi frá hálsi, herðum og úlnliðum. Auk þess virðast óþæg- indin há fiskverkafólki meira við dagleg störf en þjóðinni almennt og valda meiri fjarvistum fiskverkafólks frá vinnu en hjá samanburðarhópn- um. Hér erum við ekki að tala um öll veikindaforföll heldur bara vegna umræddra óþæg- inda frá hreyfí- og stoðkerfi. Óvíst hvaö veldur Við vitum ekki með vissu hvað það er í eðli starfs fisk- verkafólks sem veld- ur þessum mun en eitt af mörgu sem athyglisvert væri að skoða seinna er hvort breyttir starfshættir og þá á ég við tilkomu flæðilínunnar munu hafa áhrif á þetta. Með tilkomu flæðilínunnar er horfið frá einstakl- ingsbónus yfir í hópbónus eða húsa- bónus og hægt er að hækka og lækka borðin sem unnið er við og jafnvel vinna sitjandi. Eitt atriði sem má nefna og kom fram í athuguninni er að mjög marg- ir hafa starfað lengi við fiskverkun, sérstaklega konumar og getur það Ljósmynd/Gunnar auðvitað haft áhrif á hversu algehg óþægindin era hjá fískverkafólki því hér hefur verið um einhæfa og erf- iða ákvæðisvinnu að ræða. Þetta eru hins vegar getgátur að minnsta kosti enn sem komið er því lokaniðurstöður eru ekki komnar. Þegar þær verða fengnar verða þær kynntar í skrifum og á ráðstefnum," sagði Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálf- ari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.