Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 Með Stanley Carter. Myndin er tekin í Englaiuli á heimili hans. reysa þetta mikla mannvirki sem Kringlan 8-12 raunverulega er. Pálmi kom oft á Hard Rock og stundum var Stella með honum og bara það að fá hann í heimsókn var mér ákveðin viðurkenning á því að allt væri í lagi hjá okkur á Hard Roek. Alltaf öðru hvoru birtast stór- menni á borð við Thor Jensen og Einar Guðfínnsson, menn sem skilja eftir sig slík spor að þeirra verður minnst næsþu aldir eftir að þeir hverfa frá. Á því leikur enginn vafi að Pálmi Jónsson er einn þeirra, slík eru verkin sem eftir hann liggja þó ekki hafí farið mikið fyrir honum út á við. Það er sagt að í Frakk- landi sé spurt: „Hver er konan,“ þegar einhver maður nær árangri í lífinu og víst er að Stella hefur lagt sitt af mörkum sem hans stoð og stytta í baráttunni. Þegar mér er hugsað til þeirra Sigurðar, Gísla, Jóns, Lilju og Ingibjargar sé ég að eplið fellur ekki langt frá eikinni. Megi Pálmi hvíla í friði. Guð blessi íjölskyldu hans. Tómas A. Tómasson og fjölskylda Minn gamli vinur Pálmi Jónsson er látinn. Andlátið kom á óvart, enda þótt hann hefði áður fengið hjartaáfall, því aðgerð sem hann gekkst undir í London fyrir mörgum árum virtist hafa bætt úr að mestu. Hins vegar er álagið mikið hjá þeim, sem þurfa að bera ábyrgð og áhyggjur langt umfram meðallag. Eg kynntist Pálma fyrir um það bil aldarfjórðungi. Hafði reyndar áður heyrt talað um mann er seldi konum sloppa, sem voru ódýrarí en efnið kostaði í þá til heimasaums. Þetta var áhugavert, en ennþá áhugaverðari var þó persónan á bak við nýjungina. Pálmi reyndist vera hugsjóna- maður, sem dreymdi stóra drauma og það sem meira var, kom þeim í framkvæmd. Hann hafði meðfædda kaupmennskuhæfileika og áttaði sig á, að mestum árangri er hægt að ná með því að þjóna fjöldanum. Hann sat ekki við stórt skrifborð á fínni skrifstofu, heldur gekk oft á milli viðskiptavina og starfsfólks, fylgdist með framvindu mála og dró sínar ályktanir. Þótt vísirinn væri mjór í fyrstu var sífellt sótt á brattann og smám' saman jukust umsvifin. Eftir sér- hvern áfangasigur var hugsað hærra uns þjóðfélagið hafði verið umskapað á viðskiptasviðinu. Þetta er mikið og eftirminnilegt afrek, sem margir hafa notið góðs af. En Pálmi var ekki alltaf að hugsa um viðskipti, fjarri því. Hann frædd- ist mikið af bókum og þó enn frek- ar af lestri tímarita, hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og heimsmál- um, og var alltaf uppfullur af skoð- unum og hugmyndum, sem hann gat viðrað í löngum samræðum. Mörgum hefur þó líklega fundist hann dulur og lítt málgefinn og jafn- vel þurr á manninn, en raunin var oft allt önnur. Samtalslistin var ein- mitt hans aðalsmerki, þegar hann vildi svo við hafa, og stutt í hóg- væra glettni og gamansemi, sem gerði návist hans oft mjög skemmti- lega. Reyndar gat Pálmi líka verið þver og hvass í tali, en sjaldan stóð það lengi. Pálmi hafði ímugust á hégóm- legri eyðslusemi og tamdi sér hóf- sama lífshætti miðað við aðstæður. Mættu margir af því læra. Sumum er gefin djörfung til að sækja á brattann, skilningur og framsýni til að meta aðstæður og auk þess heppni til að ná góðum árangri. Pálmi Jónsson var slíkur maður. Margs er að minnast eftir áralöng samskipti við Pálma og konu hans Jónínu Gísladóttur, en þau voru mjög góð heim að sækja og áttum við Valborg margar góðar stundir á þeirra hlýlega og smekklega heim- ili. Við sendum Stellu og fjölskyid- unni allri innilegar samúðarkveðjur. Valdimar Kristinsson í lífi flestra eru ákveðnar persón- ur sem hafa meiri áhrif á feril lífs- brautar en aðrir. Pálmi Jónsson beindi stefnu minni inn á svið iðnað- ar og útflutningsmála með því að ráða mig til starfa sem framkvæmd- astjóra Sútunarverksmiðjunnar Loðskinns hf. á Sauðárkróki við stofnun þess fyrirtækis árið 1969. Þar með hófst kunningsskapur okk- ar, sem stóð fram á þennan dag. Það var mikil áhætta af Pálma að ráða lítt reyndan mann, nýútskrifað- an úr Viðskiptadeild HÍ, til starfa. Þetta traust Pálma var mér mikils virði. Á þessum tíma var rekstur Hag- kaups mjög erfiður. En Pálmi var ótrúlega hugmyndaríkur, þrautseig- ur og úrræðagóður. Starfsemi Hag- kaups mætti mikilli mótspyrnu í upphafi eins og kunnugt er. Margir vildu setja stein í götu Pálma og gera honum eins erfitt fyrir og mögulegt var. En það voru líka ýmsir aðilar í þessu þjóðfélagi, sem gerðu sér grein fyrir þýðingu þess brautryðjendastarfs, sem Pálmi var að vinna og mikilvægi þess fyrir afkomu íslensks almennings. Þessir aðilar studdu Pálma með ráðum og dáð. Pálmi Jónsson var á margan hátt óvenjulegur maður og starfsaðferðir hans voru ekki hefðbundnar. Þann tíma, sem ég vann hjá Loðskinnum hf., hittumst við Pálmi reglulega. Skrifstofur Hagkaups voru á ann- arri hæð verslunarinnar við Lækjar- götu. Pálmi hafði ekki þá frekar en siðar eigið skrifborð eða skrifstofu og því ekki hægt um vik að ræðast einslega við. Flestir fundir okkar fóru því fram við kaffiborð á Hótel Borg eða heima í Básenda. Mér fannst það nokkuð einkennilegt í upphafi hvernig Pálmi vann. Flestir þeirra, sem farið hafa í gegnum viðskiptanám, geta ekki hugsað rök- rétt nema festa hugsanir sínar, í orðum eða tölum, niður á blað. Pálmi var mikill hugsuður en skrifaði lítið. Flestir útreikningar Pálma voru gerðir á munnþurrkur Hótels Borg- ar. Pálmi var dulur maður og flíkaði ekki tilfinningum sínum. En mér kom hann fyrir sjónir sem tilfinning- aríkur maður. Hann var hlýr í við- kynningu, blátt áfram og lét sér annt um starfsmenn sína. Pálmi mun ekki falla undir lýs- ingu hins dæmigerða forstjóra og leiðtoga stórfyrirtækis. Hann hreif ekki samstarfsmenn sína með sér með fljúgandi mælsku. Hann tók ekki skjótar ákvarðanir í leiftrandi framkvæmdaham. Hann sóttist ekki eftir opinberri athygli. En hann hreif aðra með sér í verkum sínum. Hann vissi hvað hann vildi, setti sér mark- mið, ruddi hindrunum úr vegi og náði settum markmiðum. Pálmi var hugsuður og leiðtogi. Árangur Pálma er ekki síður því að þakka, að með honum valdist gott sam- starfsfólk sem bætti margt sem hann sjálfan skorti. Hér koma marg- ir starfsmenn til. Að öðrum starfs- mönnum ólöstuðum tel ég, að þar beri hæst nafn Magnúsar Ólafsson- ar, sem unnið hefur við hlið Pálma í 20 ár. Pálmi Jónsson verður í framtíð- inni talinn brautryðjandi og einn af stórmennum íslenskrar atvinrju- sögu. Það þurfa margir þættir að koma saman í eitt til þess að stór- menni verði til. Það ræðst m.a. af persónulegum eiginleikum, aðstæð- um og e.t.v. dálítilli heppni. Pálmi Jónsson varð mikilmenni í íslenskri atvinnusögu vegna þess að hann var hugsjónamaður, sem skynjaði þörf fyrir breytta tíma og hann skynjaði líka réttar tímasetningar fyrir þess- ar breytingar. Hann hafði trú á ákveðnum málstað og var tilbúinn til þess að beijast fyrir honum. Pálmi hafði kjark og þor til þess að taka mikla áhættu, og hann var tilbúinn til þess að fórna miklu fyr- ir þennan málstað og hann hafði sigur. Hann hafði líka lag á því að fá aðra til þess að trúa á eigin málstað. Það var með Pálma eins og marga sem ná árangri í atvinnu- rekstri, að hagnaðarvonin er ekki aðalmarkmið heldur ákveðin draum- sýn, sem vilji er til að koma í fram- kvæmd. Hagnaðurinn og uppbygg- ingin verður svo afleiðing draum- sýnarinnar. Undanfarið endurnýjaðist enn frekar kunningsskapur okkar. Und- anfarna mánuði hittumst við oft í tengslum við verkefni, sem ég var vinna að og í því sambandi leitaði ég ráða hjá Pálma. Þrátt fyrir veik- indi hans og minna starfsþrek, fann ég að framsýni hans og hugsjónir voru óskertar. Ég votta Jónínu Sigríði Gísladótt- ur og fjölskyldu innilega samúð mína. Þráinn Þorvaldsson Það kom okkur öllum í opna skjöldu þegar við fréttum þann 4. apríl síðastliðinn að Pálmi Jónsson væri látinn. Að vísu vissum við öll að hann hafði verið alvarlega veikur fyrir nokkrum árum en hann virtist hafa náð sér af þeim veikindum og var vakinn og sofinn yfir rekstri Hagkaups eins og áður. Pálmi var maður sem allir báru virðingu fyrir. Hann átti auðvelt með að fá fólk til að vinna með sér á sinn hægláta hátt. Hann var frum- kvöðull að mörgu stórvirkinu í versl- un hér á landi sem við munum lengi búa að. Við minnumst Pálma sem hóg- værs manns sem vildi láta lítið á sér bera. En þrátt fyrir það var hann mjög virkur í öllu sem snerti rekstur fyrirtækisins. Hann var kaupmaður fram í fingurgóma sem lagði áherslu á að hafa alla þætti, stóra sem smáa, í lagi og að skilja þá. Það er mikill missir af því að sjá ekki lengur til Pálma ganga um verslanirnar og fylgjast með. En þó að Pálmi sé horfinn, þá lifir hugsjón hans og starf áfram í fyrirtækinu sem hann byggði upp. Við viljum votta eiginkonu Pálma, Jónínu Gísladóttur, og börnum þeirra þeim Sigurði Gísla, Ingi- björgu og Lilju, tengdabörnum og barnabörnum, okkar innilegustu samúð. Guð styrki ykkur á þessari erfiðu stundu. Starfsfólk á skrifstofu Hagkaups. Kveðja Með Pálma Jónssyni er horfinn merkur maður og frumkvöðull á sviði verslunar hér á landi. Hann er mikill leiðtogi sem átti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Pálmi geislaði alla tíð af áhuga á viðfangs- efni sínu og það var mikil lífs- reynsla að fá að vinna undir stjórn hans og öll höfum við lært mikið af honum. Pálmi var maður sem allir báru mikla virðingu fyrir. Hann var sann- gjarn maður og honum var eiginlegt að koma eins fram við alla, án til- lits til hvaða stöðu þeir höfðu. Yfir- lætisleysi og hógværð voru ein sterkustu einkenni hans. Hagkaup hefur vaxið og dafnað undir stjórn Pálma og er nú eitt af stærstu fyrirtækjum landsins en Pálmi fylgdist alla tíð vel með öllu þó svo að fyrirtækið stækkaði. Það bar aldrei mikið á því að hann væri að fylgjast með en aldrei var þó komið að tómum kofunum hjá Pálma varðandi neitt sem snerti rekstur fyrirtækisins. Við viljum votta fjölskyldu Pálma einlæga samúð okkar. Verslunarstjórar í verslun- um Hagkaups. Pálmi Jónsson í Hagkaup er fall- inn frá á 68. áidursári. Með honum er genginn einn helsti brautryðjandi smásöluverslunar hér á landi á síð- ustu áratugum og frumkvöðull að byggingu verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar. Pálmi gekk ekki heill til skógar hin síðari ár en fylgdist þrátt fyrir það ótrauður með vexti og fram- gangi Kringlunnar og fyrirtækja sinna. Ekki er hægt að segja að Pálmi hafi verið maður fjölmiðlanna og hann hafði sig lítið í frammi á opin- berum vettvangi, en lét verkin tala. Verslunarrekstur var ævistarf Pálma. Fyrir rúmum þremur ára- tugum stofnaði hann Hagkaup. Allt frá upphafi hefur Hagkaup rutt brautina og innleitt margar nýjung- ar í verslunarháttum hér á landi. Undir öruggri stjórn Pálma hefur fyrirtækið þróast úr lítilli póstversl- un í stærstu verslunarkeðju lands- ins. Þetta gerðist ekki baráttulaust. Margir reyndu að standa á móti til- raunum Pálma til framfara, en hon- um tókst að koma flestum hugsjón- um sínum í framkvæmd með fram- sýni og dugnaði. Hann fylgdist vel með þróun í viðskiptaháttum og því sem var að gerast á þessu sviði, bæði austan hafs og vestan. Er þeir Hagkaups- menn fóru í byijun síðasta áratugar að huga að byggingu aðalstöðva fyrir fyrirtækið, var víða leitað fanga og m.a. til erlendra sérfræð- inga í verslunarrekstri og byggingu stói’verslana. Eftir ítarlega athugun var ákveðið að reisa verslunarsam- stæðu í nýja miðbænum í Reykja- vík, þar sem viðskiptavinir gætu sinnt erindum sínum undir einu þaki óháð veðri og vindum. Þegar í upphafi var sett það markmið að verslunarmiðstöðin gæfi ekki eftir því besta, sem þekk- ist í verslun og viðskiptum erlendis. Húsið reis og var gefið nafnið Kringlan. Bygging Kringlunnar er með stærstu verkefnum sem einkafyrir- tæki hefur ráðist í hér á landi. Verk- efnið var bæði umfangsmikið og áhættusamt. Mikil vinna var lögð í allan undirbúning byggingarinnar og einnig voru farnar óhefðbundnar leiðir við fjármögnun hennar. Það er ljóst að ef framsýni, dirfsku og þrautseigju Pálma heitins Jónssonar hefði ekki notið við væri Kringlan ekki til í dag. Kringlan er glæsilegur minnis- varði um mikið og heilladijúgt lífs- starf Pálma heitins. Við sem höfum fengið að taka þátt í Kringluævin- týrinu með Pálma, erum honum þakklát fyrir þann stórhug og dugn- að er hann sýndi við að láta þessa hugsjón sína verða að veruleika. Verk Pálma munu lifa áfram í nafni Hagkaups, þessa stærsta verslunar- fyrirtækis landsins og halda þannig minningu hans á lofti um ókomna tíð. Að leiðarlokum vottum við eigin- konu hans, Jónínu S. Gísladóttur, börnum og öðrum ættingjum dýpstu samúð vegna fráfalls brautryðjand- ans Pálma Jónssonar. Okkur langar að minnast Pálma Jónssonar með örfáum kveðjuorð- um. Það var okkur mikið áfall þegar við fréttum lát hans. í hugum okkar blandast söknuður og þakklæti. Pálmi fylgdist alla tíð náið með störfum innkaupadeilda og var okk- ur til halds og trausts. Hann bar glöggt skyn á starf okkar enda hafði hann mikla reynslu í innkaup- um. Hann miðlaði okkur af þeirri reynslu af hógværð og prúð- mennsku og án allra málalenginga. Við erum þakklát fyrir að hafa no- tið samfylgdar við Pálma, sum okk- ar um margra ára skeið. Við söknum nálægðarinnar við þennan sterka hægláta persónuleika sem átti á bak við sitt alvarlega yfirbragð gáska- fulla glettni. Við munum ætíð geyma minninguna um þennan mæta mann. Fjölskyldu hans sendum við ein- lægar samúðarkveðjur. Starfsfólk innkaupadeilda Kveðja frá starfsmanna- félagi Hagkaups Við viljum með nokkrum orðum kveðja Pálma Jónsson og þakka honum allt sem hann hefur gert fyrir okkur. Pálmi reyndist okkur alla tíð af- bragðs góður vinnuveitandi. Áhrif þau sem hann hafði á okkur með sinni traustvekjandi og prúðmann- legu framkomu voru mikil og góð og nærvera hans laðaði fram viljann til að vinna vel. Til þess þurfti hann hvorki neikvæðar aðfinnslur né eft- irrekstur. Hann bar hag starfs- manna fyrir bijósti og vissi að hags- munir starfsmanna og eiganda fara tíðum saman. Hlýhug sinn til starfsfólksins sýndi Pálmi oft í verki og nægir að minnast þess að á 25 ára afmæli fyrirtækisins gaf hann starfsmann- afélaginu stórgjöf sem gerði félag- inu kleift að hefja byggingu sumar- bústaða fyrir starfsfólkið. Þeir eru nú orðnir þrír og bera tveir þeirra nafnið Ásendi eftir götu þeirri sem Pálmi bjó lengi við. Sú nafngift er örlítið dæmi um þann hug sem bor- inn var til Pálma. Pálmi var ekki afskiptasamur um það hvað við höfðum fyrir stafni í starfsmannafélaginu, en hann styrkti starfsemina af rausn án minnsta þrýstings frá félaginu, enda hefur félagið aldrei þuiTt að starfa sem þrýstihópur. Við kveðjum Pálma Jónsson-með djúpri virðingu ogþökk. Við söknum þess að sjá hann aldrei framar ganga um deildir fyrirtækisins í sín- um hægláta, þögla virðuleik. Fjöl- skyldu hans sendum við hugheilar samúðarkveðjur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.