Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 5

Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 5
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JUNI 1991 B 5 Á VINNUSTOFUNNI HJÁ TORBIRNI OLSEN OG OLIVI ViÐ NEYST Olivur við Neyst og Torbjörn Olsen. í GÖMLU pakkhúsi á Þinga- nesi, þar sem útsýni er gott yfir Vesturvog og höfnina, hafa þrír listmálarar af yngri kynslóðinni útbúið sér rúm- góða og bjarta vinnuaðstöðu. Það eru þeir Olivur við Neyst, Torbjörn Olsen og Amariel Norðoy. Þegar ég leit inn var sá síðastnefndi staddur er- lendis en Olivur og Torbjörn gengu með mér um húsið. A einni hæðinni er stór og bjartur salur, með gluggum til beggja handa. Þar voru stór málverk eftir þá báða, ekki svo ólík, yfirleitt brota- kenndar myndir af færeysku landslagi eða mannlífi; fjöll- um, húsum, bátum, börnum að leik. Áberandi er þó að Olivur er heitari í litunum meðan Torbjörn heldur sig meira við jörðina, með grænu og brúnu. Torbjörn Olsen: Öliumynd á striga, 1991. Aefri hæðinni hafa listamennirnir hvor sitt herbergið þar sem þeir hafa teikningar sínar _og áhöld, skyssur eru um allt á veggjunum. ■Á vinnustofu Torbjarnar eru mannamyndir áberandi, frammi við dyr þekki ég strax teikningu af myndhöggvaranum Janusi Kamban, innar er stórt mál- verk á trönum af William Heinesen, og við hliðina eru þrjár skyssur af honum unnar með vatnslit og blýanti, en þær gerði Torbjörn i haust. Hann segir mér að þetta hafi verið í síðasta sinn sem rithöfundurinn sat fyrir. Torbjörn Olsen er 36 ára gamall og Olivur við Neyst er ári eldri. „Ég fór í skóla til Danmerkur og var þar í tvö ár, 1972 til 74,“ segir Torbjöm. „Síðan bjó ég í Kaupmannahöfn til 1980 en flutti þá til baka.“ — Hversvegna var það? „Ég vildi gjaman búa í Kaupmannahöfn en ... það er líka gott að búa hérna. Það togaði alltaf í mig að flytja heim.“ — En málaðir þú myndir frá Færeyjum meðan þú varst í Danmörku? — Nei, ég gerði ekki svo mikið af því, ekki til að byija rneð, en það fór smám saman að leita sterkar á mig. Ég er fígúratífur málari að upplagi og vinn eftir fyrirmyndum. Og kannski verð ég alltaf meira og meira Olivur við Neyst: „Skiþasmídastöð", olía á striga, 1989. Morgunbiaðið/imar Faiur William heitinn Heinesen sat fyrir hjá Tór- birni Olsen á haustmánuð- um í fyrra, nokkrum mán- uðum áðuren hann lést. Þá gerði Tor- björn, sem þykir helsti portrettmálari Færeyinga, nokkrar skyss- urogerþessi vatnslitamynd ein þeirra. fígúratífur. En maður spennir út mót- ífin og reynir að sjá á þeim nýjar hlið- ar, gera þau svolítið abstrakt. Það tekur þó alltaf tíma og fer eftir þroska hvers iistamanns hvaða leið hann fer.“ — Olivur hefur eitthvað verið að færa til málverk en kemur nú inn og ég spyr hvort þeir vinni eingöngu að listinni. Þeir segja báðir að svo sé. „Olivur kennir reyndar eitthvað teikningu við Lýðháskólann," segir Torbjörn, „og ég er eitthvað að segja fólki til í kvöld- skóla, en hef einnig unnið nokkuð með þroskaheftum og fötluðum börnum.“ Olivur segir að það sé algengt að list- málarar í Færeyjum hafi eitthvað ann- að að grípa í: „Það er svona upp á öryggið og.til að geta framfleytt sér og sínum. Myndlist er varla talin til atvinnu hér og foreldrar vilja líklega sjá börn sín fara í flest annað. Foreldr- ar mínir vildu alls ekki að ég færi út í listina, þau skildu ekki að ég hefði áhuga á því. Skynsamlegra væri að fara á sjóinn, og það er ekkert skrý- tið að þau hafi hugsað þannig því það var atvinna allra forfeðra minna.“ Áður en Olivur fór út í myndlistarnám lærði Olivur því rafeindavirkjun og Torbjörn hefur lært skipasmíði.“ — En fórst þú líka til Danmerkur í nám, Olivur? „Já, ég var á Kunstakademíinu frá 1975-82 og flutti síðan heim tveimur árum eftir að ég kláraði. Ég vildi koma heim til að mála. Hér er ljósið öðru- vísi en annars staðar og það er gaman að glíma við það í málverkinu. Birtan er mjög hrein og skuggarnir eru mjúk- ir og gefa blíðlegt litaspil." — Nú veit ég að þú hefur talsvert fengist við myndskreytingar, og til dæmis gert myndir í barnabók. „Já, ég hef gert eina bók með rithöf- undinum Martin Næs. Það er gaman að myndskreyta texta sem annar hef- ur skrifað, en getur einnig verið mjög erfitt, eins og bara það hvernig teikna á tröll. Sjálfur hef ég einungis séð tröll í bókum. Einhver sagði að tröllin mín, risinn og kerlingin sem ég teikn- aði við söguna, væru mjög íslensk." Torbjörn og Olivur tala um að líklega hafi Heinesen haft mest áhrif á það í Færeyjum á seinni tímum, hvemig hugmyndir menn gera sér um tröll og þurs hverskonar, en hann vann mikið með svoleiðis fyrirbæri í teikningum sínum. Færeyskir listamenn koma víða við, og Torbjörn vann leikmynd og búninga við ballett Karistians Blak, Turnana íjóra._„Ballettinn var settur upp hér ineð íslenska dansflokknum, og það var mjög spennandi verkefni. Þetta var allt annað en það sem ég er vanur að gera; ég málaði alla búningana, svo dansararnir voru eins og lifandi mál- verk! Allt var þetta unnið í samvinnu við Kristian og dansahöfundinn Hlíf Svavarsdóttur. Þá smíðaði ég líka stór- an turn, Turninn á heimsenda, sem nú stendur fyrir utan Listaskálann." Eins og aðrir kunnir færeyskir myndlistarmenn eiga Torbjöm og Olivur oft myndir á færeyskum sam- sýningum í öðrum löndum. Þeir segj- ast þó ekki selja mikið erlendis. „Ann- ars seldust nokkrar myndir eftir mig á sýningu í Hirtsals fyrir skömmu, en ætli það sé ekki undantekning," segir Torbjörn. „Ástandið hvað varðar sölu á myndum utan sýninga er vont hérna," bætir Olivur við; „það er ekk- ert sölugallerí í Færeyjum eins og er. En við Torbjörn og Amariel Noroy sýnum yfirleitt saman og það gengur bara vel. Ég held að fólk kaupi mynd- list nokkuð mikið hér. Þá er yfirleitt góð sala á Ólafsvökusýningunni.“ „Jú, maður getur þannig skrimt af þessu, en það er ekki þar með sagt að það sé svo gáman að borða hafragraut í hvert mál. En hvað leggur maður ekki á sig fyrir listina," segir Torbjörn og brosir breitt. / / MOTTOKUHUSIÐ I ÞORSHOFN Morgunblaðið/Einar Falur „Almannagjá" eftir Þórarinn B. Þorláksson, frá 1911. Ein af íslensku myndunum í Móttökuhúsi Þórshafnar. Safn málverka frá Færeyjum, Grœnlandi og Islandi í NÝUPPGERÐU móttökuhúsi Þórshafnarbæjar er gaman að skoða sig um, en á veggjum hangir mikið safn málverka, vatnslitamynda og teikninga. Myndimar eru vel á annað hundrað talsins og eftir ýmsa listamenn, aðallega þó danska, og málaðar á seinni hluta nítjándu ald- ar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Meirihluti myndanna em frá Færeyjum, en einnig er allnokkuð af Grænlandsmyndum og nokkrar frá Islandi. Móttökuhúsið stendur nærri Vaglinu, aðaltorginu í Þórs- höfn, og er byggt á fyrri hluta þess- arar aldar. Bærinn keypti húsið fyrir nokkrum árum og gerði það upp. Þá hafði samband við bæjaryfirvöld færeyskur maður, sem hafði lengi verið búsettur í Kaupmannahöfn, og bauð til sölu málverkasafn sitt, með ýmsum myndum frá eyjunum í norðr- inu: Færeyjum, Grænlandi og ís- landi. Hann kvaðst vera orðinn gam- all, hann hafði ekki lengur rúm fyrir safnið og vildi heldur vita af því á góðum stað. Þórshafnarbær bauðst til að kaupa þær myndir sem maður- inn vildi láta og það varð úr, mynd- imar voru hengdar upp í móttöku- húsinu en sjálfur hélt hann nokkrum eftir. Síðustu árin var hann síðan að senda þær til Færeyja, eina og eina, og Poul Michelsen bæjarstjóri segir að ein sú síðasta sem hann hafi látið frá sér hafi verið Þingvallamynd Þórarins B. Þorlákssonar sem hann hefði talin eina alfallegustu myndina í safninu. Þórshafnarbær notar húsið fyrir hverskonar opinberar móttökur, en það er opið um helgar að sumarlagi. ZACHARIAS HEINESEN LISTMALARI Fann minn stílá íslandi FLESTIR færeyskir myndlistarmenn hafa numið í Danmörku og er Zacharias Heinesen ekki undantekning þar á, en áður var hann þó einn vetur við Myndlistaskóla íslands og tengist þannig íslenskri myndlist meira en flestir aðrir listamenn færeyskir. Zacharias, sem er fæddur 1936, er með þekktustu listamönnum þjóðar sinnar. Á unga aldri var hann byrjaður að teikna og eftir að námi lauk hefur hann helgað sig listinni óskiptur, hann málar mest, en hefur einnig fengist við grafík, gert veggmyndir, sem og myndskreytt bækur, ekki síst bækur föður síns, rithöfundarins góðkunna Williams Heinesens, en þær myndir ættu íslenskir lesendur Heinesens að þekkja. Zacharias og fjölskylda hans búa við Dalagötu í Þórshöfn, húsið stendur uppi á lítilli hæð, við hliðina er hús for- eldra hans og handan þess tekur tijá- garðurinn Viðarlundur við. Zacharias er rólegur maður og yfirvegaður, seg- ist skilja íslenskuna þokkalega ennþá og sjálfsagt að ég tali hana en hann kýs frekar að nota sitt eigið móður- mál. Vinnustofa hans er byggð við íbúðarhúsið norðanvert, þangað setj- umst við inn og margt er að sjá; á miðju gólfi undir þakgluggum eru málverk á trönum, málverk hanga einnig á veggjum og enn fleiri eru í rekkum í einu horninu. Á einum vegg eru litlir skúlptúrar gerðir úr hlutum sem Zacharias hefur fundið hér og þar og við hlið þeirra eru bókahillur með allrahanda listaverkabókum. Zac- harias býður pilsner, kveikir sér í vindli og þegar ég spyr segist hann mála bæði abstrakt og fígúratíft. „Mest er það þó fígúratíft, mest færeyskt lands- lag. Reyndar vill það oft verða þannig með okkur málarana hér að við nýtum landslagið einnig í abstraktmyndum, við byijum að mála landslagsmynd en hún fer stundum út í abstraktsjón." — Hefur landslagið mjög sterk áhrif á myndlistarmenn hér? „Já, það fer ekki á milli mála. Lista- fólk lærir þó erlendis og tileinkar sér oft ólíka hluti, en þegar það kemur heim fer aftur að bera á landslaginu, og þá spilar líka inn í að það er yfir- leitt best að selja landslagsmyndir. Fólk hér vill kaupa landslag. Færey- ingar kaupa nokkuð mikið af mynd- list og þeir kaupa verk eftir sína menn. Fólk vill helst hafa málverk uppi á veggjum, ekki eftirprent. Þetta er þörf fyrir að hafa eitthvað fallegt í kringum sig.“ — En nú er áhrifamikið landslag hér, hvert sem litið er, nægir fólki ekki bara að líta út um gluggann? „Jú kannski, en það er nú ekki það sama.“ — Einhver sagði við mig að sér þætti helst vanta fólk f færeyska myndlist. „Það getur vel verið að það vanti fólk í landslagið, en það kemur þá annarsstaðar. Pabbi teiknaði allra- handa fólk, ég hef teiknað mikið af fólki í sambandi við bókaskreytingar, og það eru fleiri málarar sem mála fólk í bókum og svoleiðis.“ — Hvernig gengur listamönnum að framfleyta sér af söiu mynda? „Allt gengur það ósköp rólega og í smáum stíl þar til menn verða þekkt- ir. Listamenn þurfa iðulega að sækja aðra vinnu samhliða listinni, til að framfleyta sér og sínum.“ — Nú veit ég að þú selur vel hér í Færeyjum, og þú hefur einnig verið að sýna erlendis síðustu árin. Zacharias Heinesen „Já, ég sýni alltaf öðru hveiju í Danmörku, það hefur gengið alveg ágætlega, og einnig hef ég sýnt víðar á Norðurlöndum, í Skotlandi og í sum- ar á ég myndir á sýningu í Orkneyj- um. En oftast er þetta á samsýningum með færeyskri list.“ — Þú hefur einnig átt verk á sam- sýningum á íslandi. „Já já. Líklega tvisvar í Norræna húsinu, árin 1972 og 83 minnir mig.“ — En er ekki kominn tími á einka- sýningu á íslandi? „Tja!“, Zacharias brosir afsakandi; „ég veit ekki hvort af því verður nokk- Morgunblaðið/Einar Falur urntímann, ætli ég sé ekki of kraft- laus til að koma slíku fyrirtæki í verk. Það væri mikil fyrirhöfn." — Nú varst þú við nám á íslandi á sínum tíma. „Já, veturinn 1958-59 var ég í Reykjavík. Það kom þannig til að auglýst var í dagblaðinu Dimmalætt- ing að einum ungum Færeyingi byð- ist styrkur til myndlistamáms á ís- landi, ekki stór styrkur að vísu, en hjálpaði samt til. Ég sótti um og var sá heppni. Og mér þótti það æði spennandi. Ég var að byrja að læra myndlist fyrir alvöru og Sigurður Sig- urðsson kenndi mér jnálun, Bragi Ásgeirsson grafík og Ólöf Pálsdóttir höggmyndagerð. Síðan kenndi Bjöm Th.Bjömsson listasögu. Allt var það úrvalsfólk.“ — Hvaða listamönnum kynntistu þennan vetur? „Ég kynntist Elíasi B.Halldórssyni vel. Gísli B.Björnsson auglýsingamað- ur var einnig þarna og Tryggvi Ólafs- son var á kvöldnámskeiðum, en ég held að fleiri hafi ekki orðið málarar úr þeim hópi sem ég umgekkst mest. En mér leið vel þennan vetur og fékk mikið út úr náminu. Árið eftir innritaðist ég á Akademí- ið í Kaupmannahöfn og var þar nokk- ur ár. Þar kynntist ég Alfreði Flóka. Tryggvi Ólafsson var einnig kominn þangað út og Elías var þar um tíma. Og einhveijum fleiri íslendingum hafði ég af að segja.“ — Hvað tók við að námi loknu? „Ég kom heim 1965 og fór strax að fást við listina. Áður lagðist ég reyndar í ferðalög; fór niður til Egypt- alands, til Grikklands, fór um Evrópu og var í París. Ég fór til að skemmta mér og skoða list um leið.“ — Varstu búinn að finna þinn stíl við heimkomuna? „Nei, ég held ég hafi fundið hann á Islandi, en ég týndi honum aftur! Ég gat strax farið að vinna að list- inni að mestu, en kenndi þó einnig teikningu í nokkur ár við Kennara- skólann. Annars hef ég að mestu sinnt mínu, en tekið að mér ýmis verkefni innan þess ramma.“ — En hvernig stóð á því að þú ákvaðst að verða listamaður? „Ég veit ekki af hverju ég fór í þetta. Pabbi átti bækur með myndum eftir erlenda listamenn og ég lá í þeim sem strákur, þótti þetta mjög spennandi og var von bráðar farinn að teikna sjálfur. Þá hefur það eflaust skipt máli að pabbi var alltaf að skrifa og teikna líka svo þaðan hef ég kannski fengið þetta í mig.“ — Hvernig var listalífið í Færeyj- um þegar þú varst ungur? „Það var lítið. Mikines bjó í Dan- mörku en kom svona annaðhvert sum- ar, málaði og sýndi síðan hér í Þórs- höfn. Það var myndlistarlífið í Færeyj- um á þeim dögum“, segir Zacharias og hlær. „Síðan kom Ingálvur av Reyni, síðast á sjötta áratugnum, og hann sýndi einnig annaðhvert ár. Eft- ir 1960 fór okkur myndlistannönnun- um fjölgandi, og fjölgar enn. Nú má finna hér nokkra unga og fína iista- menn.“ — En finnst þér þú ekkert vera einangraður hér í Færeyjum? „Mér fmnst gott að vera mátulega einangraður. Listamaður getur ekki verið sífellt á mannamótum, talandi við þessa og hina út um hvippinn og hvappinn. Hér er gott næði til að vinna.“ — Finnst þér eitthvað vera líkt með myndlist íslendinga og Færey- inga? „Auðvitað er það eitthvað, hjá eldri listamönnunum til dæmis, en annars höfum við farið aðrar leiðir hér. Á meðan íslendingar virðast vera á nokkuð alþjóðlegum nótum þá sækj- um við aðallega til Evrópu. Það held ég sé áberandi. Og þá eru tengslin við Danmörku vissulega sterk hjá okkur. Eldri málarar ykkar fóru mik- ið til Danmerkur, og einnig fóru menn eins og Scheving og Engilberts til Noregs, en ég held það hafí breyst.“ — Þú segist taka stundum þátt í sýningum erlendis, en sýnir þú ekki einnig oft hér í Þórshöfn? — Jú, ég tek aðallega þátt í sam- sýningum; yorsýningunni I Listaskál- anum og Ólafsvökusýningunni sem haldin er í Norðurlandahúsinu. Svo hef ég einnig haft einkasýningar í galleríum." — En tekur þú þér þá aldrei frí frá málverkinu? „Jú jú, á sumrin geri ég það. Ég ferðast alltaf nokkuð, fer um eyjarnar og skyssa, og fer einnig til annarra land. Þá nota ég sumarið, eins og aðrir Færeyingar, í að dytta að hús- inu, vinna í garðinum, mála grind- verkið og slíkt. Veturnir eru til að sinna listinni."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.