Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 3
_________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 Sigríður Halla Sigþórsdóttir, „Fugl". D 3 —-----1. Þroskahjálpar segir: „Við gefum þessar myndir ekki. Þær eru til sölu.“ Það sem fólst í þessari yfirlýsingu, fyrir Japani, var að þeir þyrftu að borga fyrir myndirnarog greiða rándýrartryggingar vegna flutnings til Japans. Maðurinn hreinlega missti áhugann. Hvers konar gildismat er hér á ferðinni? Ég verð að játa að ég var mjög stolt af okkur íslendingum. Eg veit ekki hvert framhald þessa máls verður, en ég leyfi mér að vona að við séum ekki enn eina ferðina svo áköf í að koma okkur til útlanda að við förum að gefa þessi verðmæti. Sýningin í Listasafni ASÍ ífyrra var stórt skref í þá átt að vekja okkur til umhugsunar um að fatlaðir eru hluti af okkar tilveru og við hluti af þeirra — og við eigum að varðveita þá tilveru. Við eigum ekki að ryðja henni til útlanda, heldur eigum við að renna undir hana Guðmundur Ófeigsson, „Páfagaukar". •I; Jóhannes Ólafsson, „Úr iðjuþjálfun". styrkum stoðum, þartil hún stendur óhagganleg hér. Nú veit ég hvert er gildismat þeirra sem starfa að málefnum fatlaðra. En mér er spurn, hvert gildismat okkár hinna er. Erum við tilbúin að gangast inn á það að þeir sem ekki hafa hæfni til að ganga í gegnum hefðbundnar menntastofnanir geti skarað fram úr á annan hátt? Erum við tilbúin til að taka á móti því sem fatlaðir hafa að gefa okkur? Erum við tilbúin að koma til móts við þá; leyfa þeim að gefa og verða sjálf þiggjéndur. Erum við tilbúin til að sýna þeim virðingu? Þeir sem hafa unnið að málefnum fatlaðra hafa unnið þrotlaust starf við að upplýsa okkur hin um hversu mikilvægir þessir einstaklingar eru. Ég efast um að við séum móttækileg. Okkur finnst líklega sjálfsagt að leyfa þessum einstaklingum að halda myndlistarsýningu og finnst við vinna góðverk með því að skoða hana. En mig grunar að djúpt sé á hugsuninni um að hér sé dýrmæt vinna á ferðinni. Gildismat samfélags okkar býður okkur ekki að verðmeta list þessa hóps til jafns við þeirra sem skólagengnir eru. Þessi hópur á ekki aðgang að opinberum sýningarsölum og galleríum. Gildismat okkar er svo staðlað — að verk fatlaðra verða ómetanleg. Eftir að hafa skoðað þessar myndir og áttað mig á því að við erum skrefi á undan ýmsum öðrum þjóðum sem þykjast þó meiri og merkilegri, er sú spurning efst í huga mér, hvers vegna við stígum ekki næsta skref og leggjum á ráðin með að koma hér upp Listasafni fatlaðra. Texti/Súsanna Svavarsdóttir Anna Borg, „Mynd'1 '

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.