Morgunblaðið - 12.07.1991, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1991
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MUtamlU
TiSgp
..
Þessir hringdu ...
Ný stafsetningarstefna?
Matthildur hringdi:
Óvenjulegt fannst mér að sjá
nafn eyjunnar Kúbu í karabíska
hafinu stafað „Kúpa“ eins og
höfuðkúpa væri á bls. 5 í Morgun-
blaðinu s.l. miðvikudag. Mér vit-
andi dregur eyja þessi nafn sitt
ekki af því að líkjast hauskúpu
(því ég fæ ekki séð að hún geri
það). Hér hlýtur því að vera á
ferðinni ný stafsetningarstefna
Morgunblaðsins.
Smitast eyðni af mýbiti?
Kristinn hringdi:
Fyrir stuttu var mynd um mý-
bit á dagskrá Sjónvarpsins. Nú
er eitt sem ekki var getið í mynd-
inni en mér þætti forvitnilegt að
fá að vita. Allir vita að sú skæða
pest eyðni smitast með sprautum.
En ef mý bítur eyðnisjúkling og
því næst annan mann getur sá
síðarnefndi fengið pestina? Vænt
þætti mér um ef landlæknisem-
bættið sæi sér fært að svara
þessu.
Óþolandi hávaði
íbúi í Langholtshverfi hringdi:
Mig langar að vekja athygli á
tillitsleysi. Ég bý nálægt Lang-
holtsskóla og þaðan hefur borist
mikill hávaði flest kvöld í viku og
einnig um helgar síðan í haust.
Einhveijir unglingar eru þar að
framleiða einhvern hávaða sem á
eflaust að heita tónlist og það eru
ófögur hljóð. Ég er alveg að verða
vitlaus á þessu.
Hringur tapaðist
Tapast hefur handsmíðaður
gullhringur með bláum steini, trú-
legast í Kolaportinu laugardaginn
30. júní. Finnandi er beðinn um
að hafa samband í síma 75609.
Svartur dömujakki
Svartur dömujakki týndist á
Klapparstíg seinasta föstudag.
Drengur í fylgd með móður sást
finna jakkann skömmu síðar. Vin-
samlegast hringið í s. 612251.
Fundarlaun.
fþróttaskór víxluðust
Eygló Guðjónsdóttir hringdi:
Dóttir mín var á námskeiði í
Kerlingarfjöllum 27. júní til 1.
júlí. Þar víxluðust íþróttaskór
þannig að hún kom heim með
allt of stóra skó (númer 40) sem
að vísu eru svipaðir honum.
Skórnir eru hvorir tveggja af
gerðinni Cut 91 en þeir sem hún
á eru þremur númerum smærri
en hinir. Sá sem tók skóna í mis-
gripum er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 651024.
Gullhringur týndur
Gullhringur (á litla fingur)
týndist 25. júní í Miklagarði við
Sund, Bílanausti eða jafnvel í
Kringlunni. Fundarlaunum heitið.
Hafið samband í síma 98-22034.
Lýst eftir hjálmi
Blár plasthjálmur týndist í
Rekagranda fyrir nokkrum vik-
um. Upplýsingar í síma 616888.
Sunnanfari, ekki Sumarfari
Pétur Pétursson hringdi:
í bréfi Elínar sem birtist í Vel-
vakanda laugardaginn 6. júlí hef-
ur misritast nafn blaðsins sem
vísan var í. Ekkert blað með nafn-
inu Sumarfari hefur verið gefið
út á íslandi. Þarna mun því eiga
að standa Sunnanfari. Sunnanfari
kom lengi út fyrr á öldinni. Hon-
um ritstýrðu Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður og forseti Sögufé-
lagsins og síðar Þorsteinn Gísla-
son ritstjóri og skáld.
London
KR. 1 8.9001'
Fast verð án flugvallaskatts og forfallatryggingu.
j Til samanburðar: ódýrasti superpex miði til
| London á 31.940 kr. Þú sparar 13.040 kr.
1 Flogið alla miðvikudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
= FLUGFgROIR
= SDLHRFLUC
__________Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331_
P A R I S
verður haldið laugardaginn 13. júlí að
Hlíðarvelli Mosfellsbæ. Spilaðar verða 18
holur með og án forgjafar. Skráning fer fram
hjá Golfklúbbnum Kili, sími 667415.
Allir þátttakendur fá glaðning frá f
STENDHAL. \J J
OPNA.
KVENNAMám
1991
Grænblik sólar
Grænblik sólar er fyrirbæri sem
hljótt hefur verið um til þessa.
Sólin geislar frá sér ljósi í öllum
regnbogans litum, birtu á daginn
en roða kvölds og morguns.
Þann 11. júlí verður sólmyrkvi á
Hawaii og Mexíkó, þá skyggir
tunglið á kringlu sólar og útilokar
allt það ljós sem kringlan gefur frá
sér. Þá skín eingöngu kóróna sólar-
innar sem krans og þar koma fram
hinar ótrúlegustu ljóslínur, litrófs-
línur hinna ýmsu frumefna.
Árið 1860 fannst lína sem ekki
tilheyrði neinu þekktu frumefni,
nýtt efni var búið til og gefið nafn-
ið helíum, sólefni; það fannst þó
árið 1895 á jörðu niðri. Einnig kom
í ljós græn lína sem ekki tilheyrði
neinu þekktu frumefninu, þá var í
skyndi búið til frumefnið koronium
og þannig var græna línan feðruð.
í upphafi atómaldar kom fram
röðun frumefnanna eftir sætum og
þunga og þar var ekkert laust pláss
fyrir koroníum, sem þar með var
skorið niður við trog og græna línan
var munaðarlaus til ársins 1940
að hún var feðruð á ný, og eignuð
„þrettán sinnum jóníseruðu jámi“
og þar við situr enn í dag.
Stjömufræðingamir þurftu sól-
myrkva til að sjá þessa grænu línu,
en við getum stytt okkur leið og
notað jörðina til að skyggja á sólu
og búa til gervisólmyrkva. En þeg-
ar sólkringlan er horfin undir hafs-
brún en kórónan ekki má sjá mjög
skært grænblik yfir sjóndeildar-
hring þar sem sólin settist. Þetta
blik varir aðeins augnablik og ef
auga er deplað getur allt gamanið
tapast. Samskonar blik má sjá við
sólarupprás. Grænblik sést ein-
Ég vil taka undir allt sem Olga
Hákansen segir í grein sinni í Morg-
unblaðinu 6. júlí. Ég er lyfjafræð-
ingur (cand.pharm) og vinn í apó-
tekinu í Hveragerði. Við höfum átt
töluverð samskipti við læknana á
Heilsuhælinu í Hveragerði, þ.á.m.
Jakob Úlfarsson, og þau hafa öll
verið til fyrirmyndar.
göngu þegar loft er hreint og eng-
in blika við hafsbrún.
Núna er sól svo hátt á lofti að
hún hverfur aðeins stutta stund
undir sjóndeildarhring, hún sest
mjög hægt norðanlands og þá var-
ir blikið nokkrar sekúndur en þegar
lengra líður frá sólstöðum sest sól-
in hraðar og þá varir blikið aðeins
brot úr sekúndu. Óþarfi er að horfa
í sólina til að gæta að grænblikinu
því það kemur ekki upp fyrr en
sólin er sest og kvöldroðinn sem
fýlgir er hjaðnaður. Eins er með
sólaruppkomuna, þá sést grænblik-
ið fyrst, síðan morgunroðinn og þá
fyrst sjálf sólin.
Og sannið þið til, þeim sem einu
Það hefur verið til siðs að kvarta
sáran yfir dagskrá Sjónvarpsins
okkar og finnast aldrei nóg að gert.
í framhaldi af því heimta menn svo
að sleppa við að borga fyrir Sjón-
varpið sitt. En ég ætla ekki að
kvarta heldur þakka fýrir. Núna
hefur Sjónvarpið nefnilega tekið
sér tak og sýnt myndir Charles
Chaplin nokkra laugardaga. Það
er svo sannarlega til fyrirmyndar
því verk Chaplins eru albestu kvik-
myndir sem gerðar hafa verið og
það eru engar ýkjur.
Einnig vil ég þakka sjónvarpinu
fyrir sakamálaþættina um Taggart
og Morse lögregluforingja. Sá galli
er hins vegar á síðarnefndu þáttun-
um (eða myndunum) að þeir eru
oftast sýndir þegar heiðarlegt fólk
Mér finnst því illilega vegið að
Jakobi Ulfarssyni af stjórn Lækna-
félags íslands og furða mig á ger-
ræðislegri framkomu hennar og
þögn kollega Jakobs. Mér finnst
furðulegt að ekki skuli hafa verið
haldinn félagsfundur í Læknafélag-
inu út af þessu máli.
Hulda Björg Sigurðardóttir
sinni hefur séð grænblik finnst sól-
setrið hálf snubbótt án þess.
Jóhannes G. Jóhannesson
er löngu farið að sofa og það er
mjög leiðinlegt því fólk á mínum
aldri á erfítt með að halda sér vak-
andi svona lengi og ég veit að
mörgum þykir súrt í broti að missa
af Morse.
Ég þakka samt fyrir mig og bíð
spennt eftir Einræðisherra Chapl-
ins en hann hef ég aldrei séð.
Kona í Teigahverfinu
Skrifið eða hringið til
Yelvakanda
Velvakandi hvetur Iesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
scm hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafngreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér f
dálkunum.
Hlilega vegið að Jakobi
Takk fyrir Chaplin
GALDRAMEISTARINN
bókaflokkur eftir
höfund ísfólksins
VLDRAR
Meim en þú geturímyndað þér!