Morgunblaðið - 19.07.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991
5
Skipulagsstjórn ríkisins;
Athugað hvar Fljóts-
dalslína 1 skuli liggja
SKIPULAGSSTJÓRN ríkisins
og Náttúruverndarráð hafa
ásamt bandarískum ráðgjöfum
frá Global Environment
Management Systems verið að
vinna að mati á umhverfislegum
áhrifum á Fljótsdalslínu 1.
Vinnuhópur rannsakaði mögu-
lega legu háspennuiínu frá
Fljótsdalsvirkjun að Rangár-
völlum við Akureyri í síðustu
viku. Niðurstöður rannsókn-
anna verða tilbúnar í lok þessa
mánaðar og verður þá skilað til
umhverfisráðherra.
Skipulagsstjórn ríkisins hefur
um skeið fjallað um ósk Lands-
virkjunar til þess að auglýsa til-
lögu um legu háspennulínu frá
Fljótsdalsvirkjun að Rangárvöllum
við Akureyri. Samkvæmt beiðni
frá umhverfisráðuneytinu var
ákveðið að fresta auglýsingu lín-
unnar þar til mat á umhverfisleg-
um áhrifum og samanburður fleiri
kosta hefði farið fram þar sem
bygging háspennulína eru fram-
kvæmdir sem skilja eftir sig spor
og breyta útliti umhverfisins.
Ragnar Jón Gunnarsson hjá
Skipulagsstjóm ríkisins sagði að í
rannsóknarferðinni hefðu þær
leiðir verið bornar saman sem
mögulegar eru fyrir línustæði. í
þessum leiðangri voru náttúruleg-
ir, félagslegir og hagrænir þættir
sem hafa áhrif á línulagningu at-
hugaðir. Gert er ráð fyrir að
skýrslu með mati og niðurstöðum
verði skilað til umhverfisráðherra
í lok mánaðarins.
Morgunblaðið/PPJ
Pétur Einarsson, flugmálastjóri, og John Karbo, framkvæmdastjóri
Swedavia.
*
Flugmálastjórn Islands:
Samningur um ráðgjafar-
og þjálfunarstörf erlendis
Möguleiki á 10 ársverkum sérfræðinga stofnunarinnar erlendis
Leit hafin
að fólki í neyð:
Bóndi var
að skjóta
upp göml-
um blysum
BJÖRGUNARSVEITIR voru
kallaðar út á miðvikudag er
neyðarblys sást á lofti í Mý-
vatnssveit. Taiið var að ein-
hvers staðar væri ferðafólk
í neyð og var flugvél meðal
annars send til leitar. í ljós
kom að bóndi nokkur var að
eyða gömlum neyðarblysum
með því að skjóta þeim á loft.
Flugmaður leitarflugvélar-
innar varð var við hvers kyns
var þegar hann var kominn á
þær slóðir þar sem blysið hafði
sézt, þar sem annað blys
sprakk þá skammt frá.
Að sögn lögreglu er strang-
lega bannað að skjóta upp
neyðarblysum eða öðrum flug-
eldum án þess að láta lögreglu
vita, nema í neyðartilfellum. Á
þessu er þó gerð undantekning
á gamlárskvöld og þrettándan-
um. Vilji menn halda flugelda-
sýningu ber þeim skilyrðislaust
að leita leyfis.
FLUGMÁLASTJÓRN íslands hefur undirritað samstarfssamning
við sænska fyrirtækið Swedavia um þátttöku íslendinga í erlendum
verkefnum fyrirtækisins. Swedavia, sem er í eigu sænsku flugmála-
stjórnarinnar, starfar viða um heim við ráðgjafar- og þjálfunar-
verkefni. Að sögn Péturs Einarssonar flugmálasijóra getur sam-
starf Flugmálastjórnar og Swedavia myndað tækifæri fyrir um
10 ársverk sérfræðinga stofnunarinnar á erlendri grundu.
Sem dæmi um verkefni Sweda-
via má nefna að fyrirtækið hefur
nýlega gert 10 ára samning við
Eistland, Lettland og Litháen um
skipulag starfsemi flugmála-
stjórna ríkjanna og mun m.a. að-
stoða við þjálfun yfirmanna, flug-
umferðarstjóra og flugvallar-
starfsliðs.
Pétur Einarsson, sem undirrit-
aði samninginn fyrir hönd Flug-
málastjórnar íslands, sagði að
hann væri mjög ánægður með
þennan samning. Pétur kvaðst
eiga von á því að samningurinn
veitti íslendingum gott tækifæri
til þess að flytja út sérþekkingu
sína á ýmsum sviðum flugmála.
Að sögn Péturs getur samstarf
Flugmálastjórnar og Swedavia
veitt tækifæri fyrir um 10 ársverk
sérfræðinga stofnunarinnar á er-
lendri grundu.
John Karbro, framkvæmda-
stjóri Swedavia, sagði að fyrirtæk-
ið væri að efla markaðssókn sína
og væri þetta ein ástæða þess að
Swedavia tekur upp samstarf við
íslendinga. „Við viljum bæta við
verkefnum og stækka markaðs-
hlutdeild okkar. En til þess að
tryggja að við höfum nægjanlegan
mannafla með tilheyrandi sér-
þekkingu þurfum við að leita út
fyrir okkar eigin raðir.“ Karbro
sagði að það hefði verið fyrirtæk-
inu til trafala að hafa ekki nægi-
lega marga sérfræðinga með gott
vald á ensku til þess að nota í
daglegu starfi. Hann sagði að þar
sem enskan væri alþjóðamál í flug-
heiminum væri mjög mikilvægt
að hafa gott vald á henni og þar
sem starfsmenn Flugmálastjórnar
væru yfirleitt mjög góðir ensku-
menn gætu þeir brúað bil þar sem
vöntun væri hjá Swedavia.
Ólafsvík:
60 atvinnulausir
UM 60 manns eru nú á atvinnuleysisskrá í Ólafsvík en það er nokkru
minna en fyrst eftir að vinnsla stöðvaðist hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvík-
ur í júní. Búist er við að atvinnulausum fjölgi nokkuð um næstu
mánaðamót vegna sumarlokana fyrirtækja, auk þess sem þá er gert
ráð fyrir að um 30 unglingar missi vinnu sína hjá bæjarfélaginu.
Keppnisflug dúfna:
Þörffyrir sér-
íslenskar reglur
- segir formaður Dýravemdunarnefndar
SIGURÐUR Sigurðarson, dýralæknir og formaður Dýraverndunar-
nefndar ríkisins, segir að viðbúið sé að setja þurfi reglur um keppn-
isflug dúfna hér á landi.
Kristján Guðmundsson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Jökuls, segir
að nú séu um 60 manns á atvinnu-
leysisskrá og hafi sá hópur minnkað
lítillega frá því Hraðfrystihúsið varð
gjaldþrota snemma í júní. Hins veg-
ar fjölgi atvinnulausum líklega aft-
ur um næstu mánaðamót, en þá séu
fyrirhugaðar sumarlokanir hjá ýms-
um fiskvinnslufyrirtækjum í bæn-
um. Þá sé einnig gert ráð fyrir að
um 30 unglingar missi sumarvinnu
sína hjá bænum.
Kristján segir að menn hafi mjög
miklar áhyggjur af atvinnuástand-
inu á staðnum, .enda virðist ekki
von til þess að vinnsla hefjist í HÓ
á næstunni. „Ég trúi hins vegar
ekki öðru en húsið opni aftur,“ seg-
ir hann. „Ég tel að það geti til
dæmis orðið í kjölfar sameiningar
fyrirtækja í sjávarútvegi hér í bæn-
um, sem ég tel reyndar að hefði
þurft að eiga sér stað fyrr.“
Fyrstu helgina í júlí urðu mikil
afföll á keppnisdúfum þegar þeim
var sleppt á Þórshöfn á Langanesi
og ætlað að fljúga til Reykjavíkur.
Sigurður segir að fram til þessa
hafi ekki verið til neinar íslenskar
reglur um keppnisflug af þessu
tagi, en Dýraverndunamefndin
muni fjalla um málið á fundi sínum
í lok mánaðarins.
Sigurður segir að sér sé kunn-
ugt um að dúfnaræktunarmenn
hafi í keppni sem þessari tekið
mið af erlendum reglum, en hér-
lendis séu ýmsar séraðstæður sem
kunni að þurfa að taka tillit til við
samningu reglna fyrir keppnisflug
Nýjung í skólastarfi á Laugarvatni:
Styttri leið til stúd-
ents í bekkiakerfi
Laugarvatni.
NÆSTA vetur verður tekin upp sú nýbreytni að menntaskólinn og
héraðsskólinn á Laugarvatni standa saman að skipulagi náms og
kennslu í tveimur efstu bekkjum grunnskóla og að hluta í fyrsta
bekk framhaldsskóla.
Ætlunin er að veita nemendum
í 9. og 10. bekk möguleika á að
fara hraðar í gegnu'm grunnskólann
upp í fyrsta bekk menntaskóians.
Einhverskonar deildaskiptingu
verður þá komið á. Þeim sem van-
búnir eru til að takast á við námið
verður boðin aukin kennsla í þeim
greinum þar sem þeir standa verst
að vígi.
í fijálsum valgreinum og félags-
lífi liggja svo leiðir þessara nem-
enda saman. Þannig verða kynni
þeirra af eldri nemendum mennta-
skólans einnig smám saman meiri
til ávinnings fyrir báða en heima-
vistir eru áfram aðskildar.
- Kári.
dúfna.
Nefndin mun að sögn Sigurðar
leita nánari upplýsinga frá stjórn
Dúfnaræktunarsambandsins um
framkvæmd keppninnar á dögun-
um og leita skýringa á því hvers
vegna 80 prósent dúfnanna týnd-
ust.
Halldór Guðbjörnsson með-
stjórnandi í stjórn Dúfnaræktun-
arsambands íslands segir að sam-
bandið fari í keppni eftir alþjóðleg-
um reglum um keppnisflug dúfna.
Eins segir Halldór afföllin í fluginu
frá Þórshöfn vera einsdæmi.
Nokkrar dúfnanna sem töpuðust
hafa þegar komið í leitirnar og
eigendur vonast enn eftir frekari
heimtum á fuglum sínum.
♦ ♦ ♦
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Skólahús Héraðsskólans að Laugarvatni sem nú verður rekinn í
samstarfi við menntaskólann.
Innbrotsþjóf-
ur gripinn
LÖGREGLA greip innbrotsþjóf,
sem brotizt hafði inn í veitinga-
húsið Þrjá Frakka við Baldurs-
götu í fyrrinótt. íbúi í nærliggj-
andi húsi hafði séð til tveggja
manna skríða inn um glugga
og gerði lögreglu viðvart.
Er lögreglumenn komu á stað-
inn forðaði annar maðurinn sér á
hlaupum, en hinn fannst eftir dá-
litla leit í hnipri undir borði, allöl-
vaður. Mennirnir höfðu ekki haft
ráðrúm til að stela neinu.