Morgunblaðið - 19.07.1991, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1991
Irak:
Segja allar upplýsingar
um kjamorku liggja fyrir
Bagdad. Reuter.
ÍRAKAR afhentu í gær eftirlits-
nefnd Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
formlega yfirlýsingu þess efnis
að allar upplýsingar um kjarn-
orkuvinnslu þeirra væru komnar
fram en formaður SÞ-nefndar-
innar sem umsjón hefur með
eyðingu íraskra vopna hvatti til
varkárni. Dimitri Perricos,
■ BELFAST - Öfgasinnaðir
mótmælendur á írlandi gáfu á
miðvikudag út lista með nöfnum
manna sem þeir segja vera fé-
laga í Irska Iýðveldishernum
(IRA) og tilkynntu að þeir yrðu
drepnir fljótlega. Á listanum
sem kom frá Frelsissveitum
Ulster (UFF), sem hafa það á
stefnuskrá sinni að viðhalda
breskum yfirráðum á Norður-
írlandi, voru nöfn níu manna.
„Þetta eru nöfn úr leyniskjölum
okkar en þar er mun meiri upp-
lýsingar að finna. Við ætlum að
skjóta nokkra þeirra mjög bráð-
lega,“ sagði í tilkynningu UFF.
■ PARIS - Lausn virðist nú
vera í sjónmáli í deilu sem stað-
ið hefur lengi milli Páfagarðs
og gyðinga vegna veru róm-
versk-kaþólskra nunna í Ausc-
hwitz í Póllandi, en þar voru
útrýmingabúðir nasista í síðari
heimsstyijöldinni. Nunnumar
tilheyra karmel-reglunni en
yfirmenn hennar hafa lofað
frönskum gyðingaleiðtoga að
nunnumar verði famar frá
Auschwitz í október á næsta ári.
■ LONDON - Bandaríski leik-
arinn Sylvester Stallone hefur
unnið skaðabótamál gegn
breska tímaritinu Spectator.
Stallone höfðaði málið vegna
þess að í grein í tímaritinu, sem
birt var í febrúar á þessu ári,
var gefið í skyn að hann hefði
komið sér hjá herþjónustu þegar
Bandaríkjamenn áttu í stríði í
Víetnam. Lögfræðingur Stall-
one vildi ekki upplýsa hversu
há fjárhæð Stallone hefði verið
dæmd í skaðabætur. Lögfræð-
ingurinn sagði að í greininni
hefði verið gefið í skyn að Stall-
one hefði komið fram af hug-
leysi og hræsni en sannleikurinn
væri sá að hann hefði aldrei
reynt að komast hjá herkvaðn-
ingu. Þá sagði hann að greinar-
höfundur og ritsjóm tímaritsins
hefðu nú viðurkennt þá stað-
reynd.
■ KOUROU - Evrópskum
rannsóknargervihnetti var
skotið á loft seint á þriðjudag
frá Frönsku Guiana, tveimur
mánuðum á eftir áætlun. Jdver
hringferð hnattarins um jörðina
tekur um 100 mínútur. Hann
er búinn tækjum til að taka
myndir af jörðinni í gegnum ský
og í myrkri og mun hann safna
upplýsingum um mengun, ís-
bráðnum, hitastig í höfunum og
eyðingu regnskóga svo eitthvað
sé nefnt.
■ BANGKOK - Mikil flóð hafa
valdið tjóni í Norður-Búrma og
eyðilagt um 1.200 heimili þar
sem búa u.þ.b. 12.500 manns.
Flóðin em á um 1.600 ferkíló-
metra stóru svæði kringum bæ-
inn Hkamti, nálægt indversku
landamærunum. Yfirborð árinn-
ar Chindwin, sem rennur um
svæðið, var á sunnudag komið
4 metra upp fyrir hættumörk,
að sögn ríkisútvarpsins i Búrma.
Ekki var greint frá manntjóni
en sagt frá því að flutningar á
íbúum frá flóðasvæðinu á ör-
ugga staði hefðu staðið yfír frá
7. júlí sl.
formaður þriðju nefndarinnar
sem fer til Iraks á vegum SÞ til
að leita vísbendinga um leyni-
lega kjarnorkuyopnaframleiðslu
íraka, sagði að írakar hefðu lagt
sig í líma við að útvega allar
upplýsingar sem nefndin hefði
farið fram á.
Samkvæmt vopnahlésskilmálun-
um sem Irökum voru settir eftir
Persaflóastríðið verða þeir að eyða
öllum gereyðingarvopnum sínum.
Öryggisráð SÞ sem samþykkti
vopnahléssamninginn 3. apríl sl.
gaf írökum frest til 25. þ.m. til að
upplýsa öll kjamorkuleyndarmál
sín og tilkynntu þeim jafnframt að
þeir yrðu að horfast í augu við al-
varlegar afleiðingar ella. Banda-
ríkjamenn undirbjuggu sig undir
að gera árás og Bretar og Frakkar
sögðust myndu styðja hernaðarað-
gerðir, reyndust þær nauðsynlegar.
Perricos sagði að nægar upplýs-
ingar væru nú komnar fram til að
hægt væri að gera sér grein fyrir
kjarnorkuvinnslu í írak. írakar
héldu því fram í fyrstu að öll kjam-
orkuvinnsla þeirra færi fram í frið-
samlegum tilgangi en viðurkenndu
um síðir að í gangi væru þijár
áætlanir um auðgun úrans.
Johan Molander, sérstakur ráð-
gjafí Rolfs Ekeus sem hefur umsjón
með eyðingu íraskra vopna, sagði
að taka bæri yfirlýsingum íraka
með fyrirvara. Hann sagði að þótt
írakar hefðu verið samvinnuþýðir
þessa síðustu daga þá hefðu þeir
ekki orðið það fyrr en þeir urðu
uppvísir að því að leyna upplýsing-
um um auðgun úrans. Hann sagði
að ekki væri hægt að draga neinar
ályktanir eftir að hafa skoðað örfáa
staði. Nefnd Perrecos gefur örygg-
isráði SÞ skýrslu í næstu viku en
Johanson sagði að þá yrði fjórða
eftirlitsnefndin send til íraks.
Óbreyttir írakar óttast að
Bandaríkjamenn geri árás á landið
þegar frestur öryggisráðsins renn-
ur út í næstu viku og eru byijaðir
að birgja sig upp af matvöm. Að
sögn fréttamanna í Bagdad hafa
ýmsar nauðsynjavörur horfið af
mörkuðum og aðrar tvöfaldast í
verði á síðustu dögum.
Reuter
Togleðurstökk
Frankfurt-búum gefst nú kostur á að stökkva af palli, sem er á 50
metra hæð, fyrir 150 mörk (3.200 ÍSK). Krani heldur pallinum uppi
og reipi úr togleðri er bundið um ökkla þeirra sem áræða að stökkva,
þannig að þeir falla ekki alveg til jarðar. Þessi stökk njóta mikilla
vinsælda á meðal borgarbúa. í bakgmnni er fjarskiptaturninn í Frankf-
urt.
Viðbrögð við leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims:
Lyktir fundarins fá dræmar
undirtektir í Sovétríkiunum
Moskvu, Lundúnum, Bonn, Washington. Reuter.
Umbótasinnuðum hagfræðing-
um og stjórnmálamönnum í Sov-
étríkjunum fannst lítið koma til
þeirrar aðstoðar og vilyrða sem
Míkhaíl Gorbatsjov hlaut á
fundi með leiðtogum sjö helstu
iðnríkja heims. Harðlínumenn
innan kommúnistaflokksins
sögðu að verjast yrði öllum
„borgaralegum og frjálslynd-
um“ umbótum á borð við þær
sem Alþjóðagjaldeyrisstofnunin
og aðrar vestrænar stofnanir
legðu til. Vestrænir sérfræðing-
ar eru flestir sannfærðir um
vilja Gorbatsjovs til umbóta en
telja að hann geri sér ekki grein
fyrir umfangi verkefnisins.
Á fundi með leiðtogum sjö
helstu iðnríkja heims fékk Gorb-
atsjov loforð fyrir víðtækri tækni-
Reuter
Brúin yfir Stórabelti:
Sovétmenn krefj-
ast vindubrúar
Kaupmannahöfn. Frá Nils-Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
TALSMAÐUR sovéska utanríkisráðuneytisins, Vitaly Tsjúrkín, hefur
sent út tilkynningu þar sem segir að fyrirhuguð brúarsmíði Dana
og Svía yfir Stórabelti tryggi ekki óhindraðan aðgang að alþjóðleg-
um siglingaleiðum. Hún brjóti því gegn þjóðarétti. Krefjast Sovét-
menn þess að byggð verði vindubrú.
Fyrirhuguð hæð brúarinnar er
65 metrar og hafa Finnar þegar
stefnt Dönum og Svíum fyrir Al-
þjóða dómstólinum í Haag. Segja
þeir að ekki verði hægt að flytja
olíuborpalla smíðaða í Finnlandi
undir brúna.
Uffe Ellemann Jensen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, sagði í viðtali
vjð d.agblaðið Politiken að hann liti.
frémur "á "þessá" ýfirfysínSovét-"
Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, ásamt Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseta í Lundúnum í gær.
---------------------------------- legri aðstoð og auknum viðskipt-
um við Sovétríkin en enga beina
fjárhagsaðstoð eins og talið var
að hann hefði vænst. Samþykkt
var áætlun í sex liðum sem á að
miða að því að efla efnahagslíf
Sovétríkjanna. Umbótasinnaðir
stjómmálamenn og hagfræðingar
þar í landi sem vilja koma mark-
aðskerfí á hið fyrsta sáu fátt bita-
stætt í þessari áætlun. Nikolaj
Shmelov, sem er umbótasinnaður
hagfræðingur, sagði að Gorbatsjov
hefði ekki tekist að sannfæra leið-
togana um hversu alvarlegt
ástandið í Sovétríkjunum væri til
að fá þá aðstoð sem nauðsynleg
væri. „Því miður líta leiðtogamir,
eins og allt venjulegt fólk, til
næstu áratuga, en nú ríður á að
líta til næstu mánaða,“ sagði hann
í samtali við Reuíers-fréttastof-
una. Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins, Vítalíj Tsjúrkín,
sagði við sjónvarpsfréttamann að
„meira hefði getað áunnist, hugur
Gorbatsjovs stefnir hærra“. Sjálf-
ur sagði Gorbatsjov við breska
sjónvarpsmenn að hann hefði ein-
sett sér að gera Sovétríkin að virk-
um þátttakanda í efnahagslífi
heimsins.
Háttsettur breskur embættis-
maður sagði að Alexander Bes-
smertnykh, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, hefði sagt við
breska starfsbróður sinn, Douglas
Hurd, að hann væri ánægður með
niðurstöðu fundarins.
Nicholas Brady, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í sam-
tali við Reuters-fréttastofuna að
Gorbatsjov hefði sannfært alla
leiðtogana um að sér væri full al-
vara með umbætur sínar, en lýsti
yfír efasemdum um að Sovétleið-
toginn vissi hvað efnahagsumbæt-
umar hefðu í för með sér. Hann
sagði að í máli Gorbatsjovs kæmu
öll réttu orðin fram, s.s. frelsi ein-
staklingsins, fijáls verslun og er-
lendar fjárfestingar, en það væri
ekki nóg að segja orðin. „Það
væri eins og að ætla sér skyndi-
lega að tala þýsku. Einstök orð
gætu skilist, en heildarsamhengið
og lögmál tungumálsins em lengi
að lærast og þar liggur vandinn,“
sagði Brady, og margir vestrænir
sérfræðingar og framkvæmda-
stjórar lýstu svipuðum viðhorfum.
manna sem stríðni en kröfu. Hann
héldi því ró sinni. Hefðu Dönum
ekki borist opinber mótmæli af
hálfu Sovétmanna.
Utanríkisráðherrann sagði Sov-
étmenn hafa verið með í ráðum
allt síðan undirbúningur hófst árið
1980 og hefði hæð brúarinnar m.a.
verið hækkuð úr 60 í 65 metra að
kröfu þeirra.
• • * »« » ***•••*•» «■••■»-*»«»• •*•»«(
■ BRUSSEL - Einn af atkvæða-
mestu stjórnmálamönnum Belgíu
eftir síðari heimsstyijöldina, Andre
Cools, var skotinn til bana á bíla-
stæði í borginni Liege í gær. Grun-
ur leikur á að tveir ungir menn
hafi ráðist á Cools og lögreglan
leitar þeirra enn. Cools var 63 ára
að aldri þegar hann var myrtur og
var aðstoðarforsætisráðherra á ár-
unum 1969-1973. Hann var einn
af vinsælustu stjómmálamönnun-
um á meðal frönskumælandi Belga,
var áður formaður sósíalistaflokks
þeirra og síðustu árin yar hann
bæjarstjóri I Flemaíle.