Morgunblaðið - 20.09.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.09.1991, Qupperneq 1
JMOTjttntfifftMft VIKUNA 21. — 27. SEPTEMBER PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FOSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991 BLAÐ B Klúbbmeðlimum stendur ekki á sama þegar morð er framið. P AB B ASTRÁKAR Fyrri hluti framhaldsmyndarinnar Pabbastrákar eða „Billionaire Boys Club“ verður sýndur á Stöð 2 á sunnudagskvöld. í Billjónaklúbbnum eru 30 meðlimir og er hver þeirra bundinn þagnareið um starfsemi klúbbsins. Forsprakkinn sannfærir meðlimina um að með nægilegu fjármagni frá þeim geti hann fjárfest þannig að þeir þurfi ekki að vinna íframtíðinni. Klúbbfélagar lifa hátt í þeirri trú að allt sé í stakasta lagi en þegar morð eru farin að tengjast klúbbnum er þeim hætt að lítast á blikuna og rjúfa þagnareið sinn. Síðari hluti myndarinnar verður sýndur á mánudagskvöldinu. Sveitatónlist Á Aðalstöðinni milli kl. 17 og 21 alla laugardaga er þátturinn „Am- erican Country Countdown" með Bob Kingsley og Erlu Friðgeirs- dóttur. Fariðeryfir40 vinsælustu sveitasöngvana í Bandaríkjunum þá vikuna, auk þess sem sagðar eru sögur af listamönnunum sjálf- um. Þátturinn er í íslenskri endur- sögn Erlu og er síðan endurtekinn aðfaranótt þriðjudags og byrjar þá á miðnætti. Erla Friðgeirsdóttir erá Aðaistöðinni alla laugardaga kl. 17-21. Barna- rán Nýr breskur spennumyndaflokk- ur hefur göngu sína í Sjónvarp- inu á þriðjudagskvöldinu þar sem tekist er á um pólitík og persónu- leg mál. Atburðarásin berst frá London til Þýskalands þar sem umbrotatímar eru. Systkini hverfa úr skóla sínum í London og beinast spjótin fljótlega að föður barnanna, vestur-þýskum róttæklingi sem tapaði barátt- unni um forsjá barnanna. Við rannsókn málsins beinist áhugi yfirvalda að stjórnmálavafstri föðursins og þar með dragast börn hans og fyrrverandi eigin- konu í flókið pólitískt hættuspil. Þættirnir verða á dagskrá næstu sex þriðjudagskvöld. Opinberum aðilum er meira í mun að finna föðurinn en börnin í nýjum myndaflokki sem Sjónvarpið sýnir næstu sex þriðjudags- kvöld. Dúfnaveislan í tilefni þess að Borgarleikhúsið frumsýnir Dúfnaveislu Halldórs Laxness í kvöld verður dagskrá um verkið á Rás 1 á sunnudaginn. Rifjuð verður uppfyrsta uppfærsla verksins hjá Leikfélaginu árið 1966, en henni leik- stýrði Helgi Skúlason og Þorsteinn Ö. Stephensen fór með hlutverk pressarans. Uppfærslunni í Borgarleikhús- inu leikstýrir Halldór E. Laxness og pressarann leikur Þorsteinn Gunnarsson. í þættinum verða flutt brot úr verkinu og skyggnst í bakgrunn þess og rætt við þá sem tóku þátt ífrumflutningnum og eins leikara sem taka þátt í sýningunni nú. Atriðið úr leik- ritinu Dúfna- veislan eftir Halldór Lax- ness sem sýnt er í Borgarleik- húsinu. Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8 Útvarpsdagskrá bls. 2-8 Hvað er að gerast? bls. 3-5 - Myndbönd bls. 8 Bíóin í borginni bls. 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.