Morgunblaðið - 25.10.1991, Qupperneq 1
Haustljóð
- Allt breytist -
Súkkulaðibrún moldin í görðunum
þekst laufi.
Gulrauðu og brúnu laufi.
Alveg eins og laufið
þekst snjó á vetuma.
Hvítum snjó.
Það skiptir allt um lit
eftir árstíðum.
Pollamir þekja götumar á haustin.
Snjórinn gerir það sama á vetuma.
Allt breytist.
Haukur S. Magnússon, 5. bekk, Grunnskólanum
á Isafirði sendi þetta ljóð.
Eggja-mósaik
Hægt er að búa til skemmtilegt mósaik úr eggja-
skurn. Skurnin er brotin í smá búta og þeir límdir á
pappa eða t.d. steina. Gaman er að lita bútana með
mismunandi litum áður en þú límir þá.
Leikhornið
Þið getið búið til skemmtilegan og einfaldan leik
með því að teikna nokkra fleti á jörðina og skrifa
ólík stig á fletina, eins og sést á myndinni. Stillið
ykkur upp þannig að þið snúið bakinu í rúðurnar og
kastið steinum yfír öxlina. Hver þátttakandi fær ákveð-
inn fjölda af steinum til dæmis 5 steina. Sá sem fær.
hæstu summu þegar stigin eru lögð saman vinnur.
Að vetri til má kasta snjóboltum í staðinn.
----2 40C.
Lítil tré
í Japan hafa menn í
hundruð ára haft þá hefð
að búa til örlitla garða
með smá fossum, vötnum,
brúm og mjög smáum
trjám. Þessi tré eru alveg
sérstök og það getur tekið
mörg ár að fá þau til að
líta út eins og eigandinn
vill. Trén eru sömu gerðar
og venjuleg tré, en rætur
og greinar eru skornar af
jafn óðum og þær vaxa.
Þannig er hægt að fá trén
til að búa til mjög lítil blöð
og smáan stofn, sem pass-
ar alveg við stærðina.
Þykkt stofnsins getur ver-
ið eins og þykkt þumalf-
ingurs, en hæðin um
15-20 sm. Þessi tré kallast
bonsai.
'í~iaralilu,r Láf
(A
\J \ kifiq wr.
A”a"c!a Oaíor€5
Ojlj CR
2to C] (- ^ -
Amanda Dolores, 10 ára, Björk v/Álftanes, sendi okkur þessa
mynd af Haraldi Lúfu.