Morgunblaðið - 16.11.1991, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK
262. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 16. NÓYEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Líbýustjórn hafnar framsalskröfum;
Yesturveldin ráðg-
ast um næstu skref
Tvísýnar kosningar í Louisiana
Ríkisstjórakosningar eru í Louisiana í dag og hefur kosningabaráttan vakið mikla athygli í Bandaríkjun-
um. Frambjóðandinn David Duke, sem hér sést ræða við aðdáendur sína, segist vera repúblikani þótt
frammámenn flokksins vísi honum á bug. Duke er fyrrum leiðtogi Ku Klux Klan-hreyfingarinnar sem
ofsótti blökkumenn og myrti marga þeirra, einnig þótti honum á yngri árum nasistaforinginn Adolf Hitler
hið mesta valmenni og vildi halda minningu hans á lofti. George Bush forseti hvetur repúblikana til að kjósa
að þessu sinni Edwin Edwards, frambjóðanda demókrata. Sjá ennfremur frétt á bls. 20.
Mitterrand segir aðild Líbýumanna
að Lockerbie-tilræðinu sannaða
London, Washington, Bonn, Túnisborg, Nikosiu. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Líbýu vísuðu í gær á bug öllum ásökunum yfir-
valda í Bretlandi og Bandaríkjunum um aðild tveggja líbýskra leyni-
þjónustumanna að sprengjutilræðinu yfir Lockerbie árið 1988. Því
var hafnað að framselja mennina og Vesturveldin hvött til að fela
málið í hendur óháðum, alþjóðlegum dómstóli. Helstu ráðamenn í
Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi munu á næstu dögum
ráðgast um aðgerðir sem gripið verði til ef líbýskir waldamenn
neita áfram að framselja hina grunuðu og er ekki útilokað að
beitt verði hervaldi. Aðrar leiðir, s.s. viðskiptabann, eru þó líklegri.
Francois Mitterrand FraTck-
landsforseti sagði í gær að sannan-
ir virtust vera fyrir aðild Líbýu-
manna að tilræðinu. Forsetinn
sagði að tengsl væru milli Lock-
Afsögii
tveggja
ráðherra
í Noregi
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaósins.
ELDRID Nordbo, viðskiptaráð-
herra Noregs, og Matz Sandman,
fjölskyldu- og neytendamálaráð-
herra, sögðu af sér embætti í gær
af persónulegum ástæðum. Orð-
rómur er á kreiki um að frekari
breytingar á stjórn Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra séu
í vændum.
Afsögn ráðherranna kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti og þykir
fréttnæmari sakir
þess að ijölmiðlar
höfðu margir metið
stöðu þeirra innan
stjómar Brundt-
land sem mjög
sterka.
Við starfí
Nordbo tekur Bjorn
Tore Godal, for-
maður utanríkis-
nefndar Stórþings- Eldrid Nordbo
ins, og Grete Berget leysir Sandman
af hólmi, en hún hefur starfað í for-
sætisráðuneytinu sem ráðgjafi
Brundtland.
Nordbo hefur óskað eftir að taka
við fyrra starfi í umhverfisráðuneyt-
inu en Sandman segist þurfa meiri
tíma fyrir fjölskyldu sína.
Gro Harlem Brundtland sagðist
hnuggin yfir því að Nordbo og Sand-
man yfirgæfu stjómina því þau hefðu
stutt sig dyggilega. Fullyrti hún að
pólitískar ástæður lægju ekki að
baki afsögnunum, þær hefðu átt sér
nokkuð langan aðdraganda. Það hef-
ur þó legið fyrir að Matz Sandman
er yfirlýstur andstæðingur hugsan-
legrar aðildar Norðmanna að Evr-
ópubandalaginu og Nordbo hefur
margsinnis látið í ljósi efasemdir
um gildi aðildar. Hún stýrði samning-
um um Evrópska efnahagsssvæðið
(EES) fyrir hönd Norðmanna og mun
hafa ákveðið að segja skilið við anna-
samt starf viðskiptaráðherra þegar
EES-samningarnir voru í höfn.
erbie-tilræðisins og annars tilræðis
níu mánuðum síðar, er frönsk far-
þegaþota hrapaði í Sahara og 170
manns létu lífið. í Lockerbie-til-
ræðinu fórust 270 manns.
Athygli vekur að í opinberri yfir-
lýsingu stjórnar Moammars Gadd-
afís, leiðtoga Líbýu, er tónninn
ekki jafn herskár í garð vestrænna
ríkja og oft áður og öllum formæl-
ingum sleppt. Sagt er að Líbýa
fordæmi sem fyrr öll hryðjuverk,
leysa beri deilur með samningum.
Líbýumenn hafa árum saman stutt
ýmsa hryðjuverkahópa, þ. á m.
liðsmenn írska lýðveldishersins
(IRA) á N-írlandi, með vopnum.
Sendiherra landsins í Frakklandi,
Saeeb Mujber, sagði í sjónvarpsvið-
tali að framsal mannanna tveggja
kæmi ekki til greina, með því
myndi þjóðin afsala sér fullveldi
sínu. Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Richard Bouch-
er, segir að stjórnvöld í Líbýu hafi
skipulagt tilræðið. „Sprengjutil-
ræðið gegn Pan Am 103 var ekki
verk fáeinna glæpamanna. Svona
umfangsmikið verk, með þátttak-
endum sem eru nátengdir æðstu
mönnum landsins, hefur aðeins
verið hægt að framkvæma með
samþykki háttsettra embættis-
manna,” sagði Boucher.
Árið 1986 gerðu Bandaríkja-
menn loftárás á einkabúðir
Gaddafis í Líbýu og fórst kjördótt-
ir hans. Árásin var gerð í hefndar-
skyni fyrir tilræði gegn bandarísk-
um hermönnum í Þýskalandi sem
talið var að Líbýumenn hefðu stað-
ið á bak við og telja margir að
Lockerbie-tilræðið hafi verið svar
Gaddafis við loftárásinni.
Bardagar sambandshers Júgóslavíu og Króata:
Yopnahlé tekur gildi
í þrettánda sínn í dag
Zagreb. Reuter.
HER Júgóslavíu og stjórnvöld í Króatíu sömdii í gær um vopnahlé
sem taka á gildi kl. 17 í dag. Dirk Van Houten, yfirmaður sendi-
nefndar Evrópubandalagsins í Króatíu, sagði að vopnahléð væri
byggt á samkomulagi sem gert var í Haag í Hollandi 18. október
en var ekki framfylgt. Samkvæmt því munu Króatar leyfa hermönn-
um sambandshersins að yfirgefa umsetnar herstöðvar í Króatíu
og herinn mun stöðva árásir á borgir í landinu. Bardagar héldu
áfram í gær, þrír menn féllu í sprengjuárásum á borgina Split og
sambandsherinn herti tök sín á bænum Vukovar við Dóná.
Þetta er í þrettánda sinn sem
samið er um vopnahlé milli Króata
og sambandshersins eða stjórn-
valda í Júgóslavíu. Van Houten
kynnti vopnahléssamkomulagið í
Zagreb eftir viðræðúr við Andrija
Raseta, hershöfðingja í Júgóslavíu-
her, og króatíska embættismenn
Baker heim-
sækir Kína
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom í gær í opin-
bera heimsókn til Kína og ræddi
við kínverska starfsbróður sinn,
Qian Qichen. Búist er við að Ba-
ker knýi á kínversk stjómvöld um
úrbætur í mannréttindamálum en
samkvæmt fréttastofunni Nýju
Kína bar það mál ekki á góma á
fundi utanríkisráðherranna í gær.
Qian hvatti hins vegar Bandaríkj-
astjórn til að aflétta refsiaðgerð-
um gegn Kínveijum og lét í ljósi
von um að heimsókn Bakers yrði
til að bæta samskipti ríkjanna.
Myndin var tekin af ráðherrunum
fyrir fund þeirra.
Sjá frétt á bls. 20.
undir forystu Imra Agotics,
foringja í þjóðvarliði landsins, og
Mates Granics, aðstoðarforsætis-
ráðherra. Að þessu sinni munu
hermenn en ekki stjórnmálamenn
sjá um útfærslu vopnahlésins.
Svifnökkvi Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna kom í gær heill í
höfn í Dubrovnik í Króatíu. Júgó-
slavneskt herskip hafði skotið
varúðarskotum að nökkvanum á
leið hans til borgarinnar en að
sögn var ástæðan sú að júgóslav-
neska flotanum var ekki fullkunn-
ugt um hvaða farartæki væri þar
á ferð. Áformað er að nökkvinn
flytji börn frá Dubrovnik en borgin
hefur sætt linnulausum árásum
undanfarnar vikur.
Önnur þingdeild júgóslavneska
þingsins samþykkti í gær van-
traust á Ante Markovic forsætis-
ráðherra og Budimar Loncar utan-
ríkisráðherra sem báðir eru Króat-
ar. Ekki er ljóst hvort ráðherrarnir
verða að hlíta þessari samþykkt
vegna þessað þingmenn frá íjórum
af átta lýðveldum og sjálfstjórnar-
héruðum Júgóslavíu, þ. á m. Kró-
atíu, sækja ekki þingfundi. For-
sætisnefnd Júgóslavíu þar sem
Serbar hafa tögl og hagldir ákvað
í gær sömleiðis að undirbaa brott-
rekstur þessara tveggja ráðherra.
Sjá frétt á bls. 2.