Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
KRAFTLYFTINGAR / HM I OREBRO
. Ætlum á verðlaunapall
- segja þremenningarnir Hjalti, Jón og og Guðni sem keppa á HM
ÞRÍR íslendingar, Hjalti „Úrs-
us” Árnason, Guðni Sigurjóns-
son og ión Gunnarsson, verða
á meðal keppenda á heims-
meistaramótinu í kraftlyfting-
um sem fram fer í Örebro í
Svíþjóð um helgina. Þeir sögð-
ust í samtali við Morgunblaðið
vera bjartsýnir á góðan árang-
ur og ætla að komast á verð-
•***■ launapall.
Þetta heimsmeistaramót er það
fjölmennasta sem fram hefur
farið hingað til. Alls verða 150 þátt-
takendiir frá 30 þjóðum og eru
Kínveþar nú með í fyrsta sinn.
Jón Gunnarsson keppir í -100 kg
flokki og hefur lyft mest 870 kg í
samnlögðu. Guðni Sigurjónsson
keppir í -110 kg flokki og hefur
mest lyft 900 kg í samanlögðu og
Hjalti Ámason í +125 kg flokki og
hefur hann lyft 1.017 kg saman-
lagt. Jón og Guðni keppa í dag, en
Hjalti á morgun.
Þetta er frumraun þeirra á HM,
en hafa allir áður tekið þátt í Evr-
ópumóti. Þeir sögðu að ef allt gengi
að óskum ættu þeir allir möguleika
á að komast á verðlaunapall. Þeir
töldu þó að Jón Gunnarsson ætti
mestu möguleikana. „Ég tel mig
nokkuð öruggan með annað sætið
og við skulum bara sjá til með gull-
ið,” sagði Jón.
Þeir þurfa að fjármagna ferðina
sjálfir þar sem Kraftlyftingasam-
- bandið er gjaldþrota. „Við höfum
fengið styrki frá ýmsum fyrirtækj-
um og svo hafa menn verið að heita
y á okkur og hefur Sveinn bakari
heitið því að greiða okkur 100 þús-
und fyrir gullverðlaun,” sagði
Hjalti.
Heimsmótsfararnir (f.v.) Guðni Siguijónsson, Jón Gunnarsson og Hjalti Árnason.
KNATTSPYRNA
KSI fær 6 milljónir kr. frá UEFA
um stöðum í Svíþjóð, Stokkhólmi,
Gautaborg, Malmö og Norköpp-
ing. Dregið verður í riðla 16. jan-
úar í Gautaborg. Keppnin stendur
yfir frá 10. til 26. júní 1992.
KORFUKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Knattspyrnusamband íslands á
von á 6 milljón króna ávísun
frá Knattspyrnusambandi Evr-
ópu, UEFA, fyrir þátttöku sína í
Evrópukeppni Iandsliða. Öll þátt-
tökuliðin fá þessa upphæð, en lið-
in sem komast í úrslitakeppnina
fá hærri upphæð.
Þau lið sem koma til með að
leika til úrslita í keppninni í Sví-
þjóð næsta sumar fá 2,5 milljónir
punda, eða 255 milljónir ÍSK. Þau
lið sem falla út í undanúrslitum
fá 2 milljónirpunda, eða rúmlega
200 milljónir ISK. Hin liðin fjögur
fá 1,6 mjlijónir punda, eða 164
milljónir ÍSK.
Urslitakeppnin fer fram á íjór-
ÍBK með fullt hús
KEFLAVÍK hefur forystu í 1.
deild kvenna í körfuknattleik
þegar 6 umferðum er lokið,
hefur unnið alla sína leiki. A
fimmtudag vann ÍBK lið KR
55:37, eftir að staðan i hálfleik
var 23:23. Á sama tíma stein-
lágu íslands- og bikarmeistarar
ÍS fyrir ÍR 35:62 og Haukar sigr-
uðu UMFG 58:36.
Lið KR stóð óvænt í sterku liði
ÍBK en eftir að jafrit hafði
verið í hálfleik tóku ÍBK stúlkurnar
mikinn kipp og KR
Vanda skoraði ekki stig
Sigurgeirsdóttir fyrstu 10 mín. af
skrifar seinni hálfleik og
IBK sigraði örugg-
lega 55:37. Lið ÍBK var ekki eins
sannfærandi og oft áður og munar
þar mestu að Anna María Sveins-
dóttir er meidd og gat einungis leik-
ið hluta leiksins.
Stig ÍBK: Björg Hafsteinsdóttir 20, Kristín
Blöndal 14, Anna María Sveinsdóttir 7,
Olga Færseth 6, Elínborg Herbertsdóttir
4, Anna María Sigurðardóttir 2, Svandís
Gylfadóttir 2.
Stig KR: Guðrún Gestsdóttir 15, María
Guðmundsdóttir 10, Kristín Jónsdóttir 8,
Anna Gunnarsdóttir 2, Alda Valdimarsdótt-
ir 2.
jafn í byijun en síðan tóku ÍR stúlk-
urnar öll völd á vellinum og eftir
það var einungis spurning um
hversu stór sigurinn yrði. Lið IR lék
vel og þá sérstaklega Linda Stef-
ánsdóttir .og Hildigunnur Hiimars-
dóttir, sem átti margar fallegar
stoðsendingar. Lið ÍS var langt í
frá sannfærandi, leikmenn liðsins
hittu illa, tóku fá fráköst og áttu
fjöldan allan af lélegum sendingum.
Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 24, Hrönn
Harðardóttir 17, Hildigunnur Hilmai-sdóttir
11, Sigrún Hauksdóttir 4, Ingibjörg Magn-
úsdóttir 4, Guðnin Árnadóttir 2.
Stig ÍS: Vigdís Þórisdóttirl2, Erna Jóns-
dóttir 6, Hafdís Helgadóttir 5, Kristín Sig-
urðardóltir 5, Díanna Gunnarsdóttir 3,
Anna Björk Bjarnadóttir 2, Elínborg Guðna-
dóttir 2.
Hanna gerði 21 stig
Haukar sigruðu UMFG 58:36 og
var sigurinn aldrei í hættu. í liði
Hauka átti Hanna Kjartansdóttir
mjög góðan leik, sérstaklega í seinni
hálfleik en þá skoraði hún 18 stig.
Hanna er gífurlega efnileg og hefur
spilað hvern stórleikinn af öðrum
fyrir Hauka. Þess má geta að á
sumrin ver Hanna mark Hauka í
knattspyrnu og var markmaður
U-16 ára landsliðsins á Norður-
landamótinu í Finnlandi í júlí sl.
Stig Hauka: Hanna Kjartansdóttir 21,
Hafdís Hafberg 14, Ásta Óskarsdóttir 9,
Sólveig Pálsdöþír ý. Guðbjörg Norfjöyý (4,
Hildur Porsíeinscióttii' 2, Éva Havlekova 2. i
Yfirburðasigur ÍR
ÍR sigraði ÍS með yfirburðum
62:35 og virðist lið ÍS vera í lægð
um þessar mundir. Leikurinn var
Morgunblaðið/Sverrir
Olga Færseth, hin unga og efnile^a körfuknattleiks- og knattsp^yrnukona
tír Keff ýíjk,^ . .|j;v £.nit,c[ | nfism-Aji ,Í!:S1 .jyfolf l'ivóiiii imi-id |
ín&m
FOLK
M HINRIK Þórhallsson hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður Gunn-
ars Gíslasonar, þjálfara 1. deildar-
liðs KA í knattspyrnu. Hinrik lék
með liðinu um árabil, en undanfarin
ár hefur hann þjálfað UMSE-b og
Snæfell í Stykkishólmi.
■ MARCO van Basten, framheiji
AC Milan, verður með gegn
Sampdoria í ítölsku 1. deildar-
keppninni á morgun. Hann var
dæmdur í eins leiks bann eftir að
hafa verið rekinn af velli á dögun-
um, en nefnd á vegum ítalska knatt-
spymusambandsins aflétti banninu.
Enda þótti fuilsannað að hann gerði
nákvæmlega ekkert af sér. Það var
Aldo Serena, félagi hans hjá
Mílanóliðið sem sló andstæðing.
■ GUNNAR Gren, einn frægasti
knattspyrnumaður Svía, er látinn.
Hann var m.a. í liði Svía sem lék
til úrslita um heimsmeistaratitilinn
gegn Brasilíu 1958. Hann fannst
látinn á heimili sínu í Gautaborg í
gær, og er talið að hann hafi þá
verið látinn í fjóra daga. Gren, sem
var 71 árs, var einnig í sigurliði
Svía á Ólympíuieikunum 1948.
Hann lék með nokkrum ítölskum
liðum á árunum 1949 til 1956 og
var þekktur undir nafninu „Prófess-
orinn”.
■ TÓRÍNÓ, mótheiji KR-inga í
1. umferð Evrópukeppninnar, verð-
ur að leika næsta heimaleik í keppn-
inni, gegn AEK Aþenu minnst 300
km frá Tórínó vegna óláta áhang-
enda liðsins í heimaleiknum gegn
Boavista 6. nóvember.
■ MIDDLESBROUGH, sem er í
efsta sæti í ensku 2. deildinni,
keypti í gær Andy Payton frá
Hull City fyrir 750 þúsund pund.
Payton, sem er 25 ára miðheiji,
hefur gert 48 mörk í 148 leikjum
fyrir Hull.
■ RUSSEL Osman hefur verið
seldur frá Southampton til Bristol
City fyrir 60 þúsund pund. Osman,
er 32 ára og lék áður með Ipswich
og Leicester._______
ÚRSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni landsliða, leikmanna 21 árs
og yngri. ^
Tel Aviv, Israel:
ísreal - Svíþjóð 0:0
Áhorfendur: 3.000
Staðan:
Svíþjóð ,...5 3 2 0 14: 2 8
,...5 2 2 1 9: 5 6
Kýpur 4 1 1 2 2:11 3
Grikkland... .....4 0 1 3 3:10 1
Íshokkí
Bandaríska NHL-deildin:
Washington - New York 5:3
Pittsburgh Penguins - Edmonton Oilers 5:4
■Eftir framlengingu
Körfuknattleikur
Bandaríska NBA-deildin
Þriðjudagur:
Atlanta - Charlotte...........118:100
Cleveiand - Milwaukee.........119:113
New York - New Jersey......... 98: 96
Orlando - Washington.......... 95: 82
Chicago - Detroit Pistons.....110: 93
Houston - Dallas.............. 98: 92
Portland - Denver.............120: 82
Golden State - Phoenix........119:116
Boston - Sacramento...........126:103
Miðvikudagur:
Chicago Bulls - Charlotte Hornets ...117: 95
Indiana Pacers - New York Knicks ..110:107
Miami Heat- Detroit Pistons...107:102
Utah Jazz - New Jersey Nets... 98: 92
Philadelphia 76ers - Orlando Magic.121:100
W ashington Bullets - Minnesota 119:114
■Eftir framlengingu
San Antonio - Los Angeles Clippers 107: 93
Boston Celtics - Phoenix Suns...117:111
Fimmtudagur:
Cieveland — Seattle SuperSonics ....115:109
Eftir framlenginu
Dallas Mavericks — L.A. Clippers.95: 88
L.A. Lakers — Golden State......115:112
Sacramento Kings — Atlanta Hawks 98: 96
1. DEILD KVENNA
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 6 6 0 401: 273 12
HAUKAR 5 3 2 254: 213 6
ÍR 5 3 2 225: 201 6
is 5 2 3 229: 266 4
UMFG 6 1 5 261: 328 2
KR I' 5 1 4 204: 293 2