Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NOVEMBER 1991
Verk Daða í Fold
Sjálfsbjörg mótmælir afstöðu
meirihluta borgarstjórnar
^KYNNING á verkum Daða Guð-
björnssonar í Fold, listmunasölu,
Austurstræti 3, hefst laugardag-
inn 16. nóvember.
Daði Guðbjörnsson fæddist í
Reykjavík árið 1954. Hann stundaði
nám við Myndlistaskólann í Reykja-
vík og Myndlista- og handíðaskóia
íslands. Einnig stundaði Daði nám
við Rijksakademi van Belende kunst-
en í Amsterdam. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt í
mörgum samsýningum bæði hér
heima og erlendis. Daði hefur verið
^kennari við Myndlista- og handíða-
skóla íslands sem og Myndlistaskól-
ann í Reykjavík. Hann var formaður
Félags íslenskra myndlistarmanna
um árabil og þá hefur hann átt sæti
í safnráði Listasafns íslands.
Á kynningunni í Fold verða til
sýnis og sölu vatnslita-, pastel- og
grafíkmyndir. Eins og áður sagði
hefst kynningin laugardaginn 16.
nóvember en henni lýkur föstudaginn
29. nóvember. Opnunartími Foldar
er mánudaga til föstudaga frá kl.
10-18, laugardaga er opið frá kl.
10-18 og sunnudaga frá kl. 14-18.
(Fréttatilkynning)
Daði Guðbjörnsson við eitt verka
sinna.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi fréttatilkynning
frá Sjálfsbjörg:
„Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, mótmælir harðlega þeirri
túlkun meirihluta byggingarnefnd-
ar og borgarstjórnar Reykjavíkur
að starfræksla sambýlis fatlaðra
sé „breyting á notkun” íbúðarhús-
næðis. Sjálfsbjörg bendir á að þessi
túlkun feli í sér að búseta fatlaðra
sé ekki sambærileg við búsetu
ófatlaðra og hefði það í för með
sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir jafnréttisbaráttu fatlaðra.
Sjálfsbjörg skorar því á borgar-
stjórn að taka þetta mál upp að
nýju og hverfa frá þessari túlkun.
Sjálfsbjörg treystir því að hér sé
um misskilning að ræða og að
meirihluti borgarstjórnar sé ekki
þeirrar skoðunar að búseta fatl-
aðra sé réttlægri en annarra.”
d Af|Ai YCIMC^AR
- A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Atvinnurekendur!
Vantar mann?
Ég er fjölhæfur í höndum og við texta.
10 ára verktakastörf að baki.
Vinsamlegast hafið samband við Sigurjón
í síma 611487.
BÁTAR — SKIP
Báturtil sölu
Til sölu 8 tonna bátur útbúinn til línuveiða.
Selst kvótalaus.
Upplýsingar í síma 94-7762.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Aðalfundur
íslensku óperunnar
og Styrktarfélags íslensku óperunnar verður
haldinn mánudaginn 25. nóvember.
Fundurinn verður haldinn í íslensku óper-
unni, Gamla bíói, kl. 18.00.
Stjórn íslensku óperunnar.
Afmælishátíð
Fjölbrautaskóla
Suðurlands
í tilefni 10 ára afmælis skólans - og reyndar
fimmtugsafmælis Iðnskólans á Selfossi -
verður hátíð um hönd höfð í skólanum í dag,
laugardaginn 16. nóvember, og hefst kl.
14.00. w
Þar fer fram hljóðfærasláttur og söngur,
bæði einsöngur og kórsöngur, ávörp verða
flutt og gjafir afhentar.
Sýning verður höfð uppi á myndum úr sögu
og starfi skólans og fólki gefst færi á að
kynna sér húsakynni og búnað.
Léttar kaffiveitingar verða framreiddar.
Allir eru hjartanlega velkomnir til samkom-
unnar. Sérlega er því beint til fyrrverandi
nemenda og starfsmanna skólans að heiðra
okkur með nærveru sinni.
Skólameistari.
--------
VEIÐI
Stangveiðimenn
- stangveiðifélög
Tilboð óskast í stangveiði í Blöndu og í
Svartá ásamt veiðihúsi sumarið 1992.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Tilboð skilist fyrir 20. nóvember nk. til Hall-
dórs B. Maríassonar, Finnstungu, 541
Blönduósi, sem gefur nánari upplýsinqar í
síma 95-27117.
Stjórn Veiðifélags Blöndu og Svartár.
Stangaveiðimenn ath!!
Nýtt flugukastnámskeið hefst næstkomandi
sunnudag kl. 10.20 árdegis í Laugardalshöll-
inni. Nýtið ykkur tækifærið.
Kennt verður 17. og 24. nóvember og svo
8. og 15. desember.
K.K.R. og kastnefndirnar.
HÚSNÆÐI í BOÐl
Athafnamenn!
Til sölu er 250 fm iðnaðar- og verslunarhús-
næði á Patreksfirði í góðu ástandi.
Notkunarmöguleikar eru margvíslegir en við
viljum þó benda á þau tækifæri, sem fram-
undan eru í sjávarútvegi og hugsanlega þörf
fyrir húsnæði við framhaldsvinnslu sjávaraf-
urða, eins og niðursuðu eða pakkningu fram-
leiðslu í lofttæmdar umbúðir, svo eitthvað
sé nefnt.
Vekjum athygli á nálægð við fiskeldistöðvar
með mikla framleiðslu.
Upplýsingar gefur Hilmar Jónsson spari-
sjóðsstjóri, sími 94-1151.
Eyrasparisjóður,
Patreksfirði.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta sala fer fram á
eftirtöldum eignum
þriðjudaginn 19. nóvember 1991 á eignunum sjálfum:
Miðstræti 8A, Neskaupstað, þingl. eigandi Þuríður Una Pétursdótt-
ir, talinn eigandi Hörður Þorbergsson: Uppboðsbeiðendur eru: Lífeyr-
issjóðu starfsmanna ríkisins og Byggingársjóður ríkisins. Kl. 14.30.
Þiljuvöllum 27, efri hæð, Neskaupstað, þinglesinn eigandi Oddur
Þór Sveinsson. Uppboðsbeiðendur eru: Lífeyrissjóður Austurlands,
S. Ingólfsson hf., Bæjarsjóður Neskaupstaðar, Húsasmiðjan hf.,
Byggingasjóður ríkisins, Sjóvá-Almennar hf., Landsbanki islands og
Sparisjóður Norðfjarðar. Kl. 15.00.
Bæjariógetinn í Neskaupstað.
Nauðungaruppboð
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum í dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, ísafirði, og hefjast þau kl. 14.00:
Fiskverkunarhúsi á hafnarbakka, Suðureyri, þingl. eign Fiskiðjunnar
Freyju hf., eftir kröfu Hannesar Halldórssonar. Annað og síðara.
Hlíðarvegi 26, ísafirði, þingl. eign Lilju Sigurgeirsdóttur og Harðar
Bjarnasonar, eftir kröfum Nesco hf., Bæjarsjóðs ísafjarðar, veðdeild-
ar Landsbanka íslands og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Annað og
síðara.
Pollgötu 4, verslunarhúsnæði a, ísafirði, þingl. eign Guðmundar
Þórðarsonar, eftir kröfum Jóns Fr. Einarssonar, Sjóvá Almennra hf.,
Sindrastáls hf., innheimtumanns ríkissjóðs, Pólsins hf. og Sparisjóðs
Bolungarvikur. Annað og síðara.
Pólgötu 10, ísafirði, þingl. eign Magnúsar Haukssonar, eftir kröfum
Laugarásbíós, Skífunnar hf., Billjardbúðarinnar, innheimtumanns
ríkissjóðs og Sjóvá Almennra. Annað og síðara.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu.
TILKYNNINGAR
Drætti frestað
til 7. desember.
Happdrætti Olympíunefndar.
Fasteignagjöld
Eigendur fasteigna í Neshreppi utan Ennis,
á Hellissandi og Rifi: Álögð fasteignagjöld
ársins 1991 eru öll gjaldfallin. Þeim, sem enn
hafa ekki greitt, er bent á.að gera skil nú
þegar svo konmist verði hjá frekari inn-
heimtuaðgerðum.
Sveitarstjóri.
KENNSLA
Iðnnám - verknám
- hönnunarnám
Innritun í fjölbreytt nám við flestar brautir
skólans á vorönn 1992 fer fram þessa dag- •
ana. Innritun lýkur um nk. mánaðamót.
Símar á skrifstofu 51490 og 53190.
Iðnskólinn í Hafnarfirði.
Gítarkennsla
Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa-
skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku.
Upplýsingar í síma 91-629234.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Félag íslenskra gítarleikara.
FÉLAGSSTARF
Kópavogsbúar athugið!
í dag, laugardaginn
16. nóvember, mun
Arnór Pálsson, bæj-
arfulltrúi og meiri-
hlutamaður I félags-
málaráði, og Kristín
Lyngdal, varabæjar-
fulltrúi og formaður
lista- og menning-
arráðs, vera til við-
tals I Hamraborg 1,
3. hæð. Opið er frá kl. 10.00-12.00 og eru allir velkomnir.
Það verður heitt á könnunni.
Sjálfstæðisfélögin.
FÉLAGSLÍF
UTIVIST
HALLVEIGARSTÍG 1 • SÍMI 14606
Dagsferð sunnudaginn
17. nóvember
Kl. 10.30: Póstgangan
23. áfangi
Kirkjuferja - Torfeyri. Gengin
verður gamla þjóðleiðin frá
Kirkjuferju um Bakkaárholt og
Torfeyri. Þægileg ganga. Stað-
fróður Árnesingur verður með í
för. Pósthúsið í Hveragerði verð-
ur opnað vegna stimplunar póst-
göngukorta. Brottför frá BSl
bensínsölu, stansað við Árbæj-
arsafn. Verð kr. 1.200,-, frítt
fyrir börn allt að 15 ára í fylgd
með fullorðnum.
Sjáumst!
Útivist.
□ MÍMIR 599111187 = V FRL.
□ GIMLI 599118117 - 1 Atkv.
Frl.
AÍÍSEA
Aðalfundur fimmtudaginn 28.
nóvember kl. 20.30 á Hótel Leif-
ur Eiríksson, Skólavörðustíg 45.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
fítmhjaip
Samhjálparsamkoma
verður i Akraneskirkju i dag kl.
16.00. Fjölbreytt dagskrá með
Samhjálparkórnum og vitnis-
burðum Samhjálparvina. Gunn-
björg Óladóttir leiðir fjöldasöng.
Ræðumaður Óli Ágústsson.
Skagamenn og nágrannar
hjartanlega velkomnir.
Samhjálp.