Morgunblaðið - 16.11.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
35
fclk í
fréttum
SÓLIN
Elvis segist hafa það fínt
Breska blaðið The Sun, sem
reyndar hefur stundum þótt
ótrúverðugt, fékk fyrir skömmu
miðil í lið með sér til þess að ná
sambandi við rokkgoðið Elvis
Presley sem lést um árið af völdum
lyfjaáts. Miðillinn, hinn bandaríski
Kim Tracey, náði skjótt sambandi
við goðið sem vildi koma skilaboð-
um á framfæri til allra velunnara
sinna.
Þetta var hin athyglisverðasta
uppákoma, því eftir að Tracey
náði sambandi við efra, opnuðu
fréttastjórar símann og lesendur
blaðsins hringdu hverjir um aðra
þvera til að koma fyrirspurnum
til goðsins á framfæri. Sat Tracey
í trans með símann í höndunum
og Elvis skrafaði við lesendur
blaðsins í gegn um miðilinn. Einn
lesandi vildi vita hvernig Elvis
hefði það og hvort hann væri ekki
örugglega í efra. Jú, það var ör-
uggt. Og hann hefði það fínt, hann
sæti þá stundina ásamt John Lenn-
on og Jimmy Hendrix og þeir
væru að „djamma”, eða að leika
af fingrum fram eins og það heit-
ir á betra en lengra máli.
Elvis Presley
Þetta er Jennifer Flavin. Móðir Stallones reyndi að spilla sambandi
þeirra þar seni henni þótti Flavin ekki vera nógu miíull „kroppur”.
Stallone mætir
maka sínum
Sylvester Stallone er í þann
mund að ganga í þá vaxandi
breiðfylkingu karlleikara sem gera
sér far um að leika á móti mökum
sínum í bíóborginni Hollywood.
Svo virðist sem í sumum tilfellum
geri drengirnir það af góðmennsku
sinni, mökunum til framdráttar á
frægðarbrautinni. Áður hafa Tom
Cruise leikið á móti Nicole Kidman
og Patric Swayze leikið á móti
Lisu Niemi svo einhver séu nefnd.
Dæmið um frægðarkastljósið hef-
ur raunar snúist við þar sem Mel-
anie Griffith hefur séð sér þann
kost vænstan að leika í kvikmynd
á móti bónda sínum Don Johnson
til að hressa upp á feril hans. I
öðru tilviki má ekki milli sjá hvor
aðilinn sé frægari og því hlýtur
fólkið að gera það fyrir skemmtun-
ar sakir. Má nefna Bruce Willis
og Demi Moore.
Hvað Stallone viðkemur þá stóð
það svo sem ekki til að leika á
móti sambýliskonu sinnf Jennifer
Flavin. Það hafði komið til tals og
í undirbúningi var ný mynd með
Stallone, „Cliffhanger” heitir hún.
Finninn Renny Harlin mun leik-
stýra myndinni og hann taldi sig
ekki þurfa að leita langt yfir
skammt með val í aðalkvenhlut-
verkið eftir að hafa hitt Jennifer.
Raunar var Sly aldrei spurður, þvi
Harlin er sagður harður í horn að
taka og virtur vel vestra. Flavin
fær því sína eldskírn í kvikmynd-
um í faðmi maka síns Sylvesters
Stallone.
BAKKUS ■ JBUHHU Jgg ÉPi i i
A Ottast um Mel Gibson ! / ? r i í 1 r r i 1 n 1
fjað er vitað mál, að leikarinn ■t* Mel Gibson hefur af og til átt báírt. í viðskintum sínum við Bakk- !F’**Tlrri j JÍJJ j
us, þann gamia ref, en allra síðustu
árin hefur Gibson haft svo mikið
að gera að hann hefur varla mátt
vera að því að hugsa um veigarn-
ar. Þannig reyna einmitt margir
alkóhólistar að sneiða fram hjá
skeijunum, þ.e.a.s. með því að hafa
bara nóg fyrir stafni.
Nú óttast menn að Gibson sé
farinn að bila á taugum. Fyrir fáein-
um mánuðum „sprakk” hann eins
og það er stundum kallað, en reif
sig upp og fór að mæta á AA-
fundi. Nú er hann aftur sjaldséður
á þeim samkundum, en því oftar í
vinskap við flöskurnar, Nágrannar
hans tóku eftir því eitt kvöldið, að
kappinn hafði gleymt að draga fyr-
ir gluggatjöldin, þannig að fólkið
sá til hans af og til allt kvöldið.
Hann sat inni í stofu og horfði á
Mel Gibson.
sjónvarpíð. Hann drakk bjór mjög
stíft allan tímann. Kona hans og
börn voru hvergi nærri og undir
miðnætti sofnaði hann í stól sínum.
COSPER
COSPF R U’UO '''
; f.un' :,-l 1» I' Wgf 'r.rlt.)
Fjöldinn alluraf
fyrirtækjum og
einstaklingum
selja vörursýnar
um helgina á
hlægilega lágu
OPIÐ;
Laugard. frá kl. 11.00-18.00
Sunnud. frá kl. 12.00-18.00
Leiktæki fynir börnin
Jólaskraut
Fólk í búningum
M
r 1 f/H.
|J
n 'J| M,
ALLT MILLIHIMINS OG
JARÐAR TIL SÖLU
BBBdUBB
Grensásveg 14 (bakatil) Sími 651426
mastoW'