Morgunblaðið - 16.11.1991, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
mmám
© 1991 Jim Unger/Distributed by Universal Press Syndicate
. Bý maeU mei boxhönskum og
höfuðkj&LrriL."
TM Reg. U.S. Pat Off.—all nghts reserved
c 1991 Los Angeles Times Syndicate
Hann var ljótur eins og frosk-
ur og það varð aldrei neitt
mikið betra!
Þesslr hringdu . .
Potturinn sem aldrei var
sóttur
Hún María hringdi og vildi
koma á framfæri eftirfarandi
skilaboðum: „Kæri Viðar, þú
keyptir í fyrra stóran pott, til að
nota í slátursuðu, í flóamarkaðs-
skúr við Suðurgötu beint á móti
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Komdu vinsamlegast og náðu í
pcttinn því við geymum hann
ennþá og gaman væri að losna
við hann. Þú getur haft samband
í síma 50260 e. kl. 18 (María).
Bamaföt
Barnaföt fundust 13. nóv. í
bakgarði við Flúðasel 93. Þeirsem
kannast við fötin geta haft sam-
band í síma 71929.
Meira um kennitöluna
Steinka hringdi og sagðist vera
óánægð með klausuna sem birtist
í miðvikudagsblaðinu frá ensku
konunni. Steinka sagðist vera
hæstánægð með kennitöluk,erfíð,
það væri þó hægt að muna þá
tölu. Hún sagðist telja mál til
komið, að ef nútímakonur vilji að
hætt sé að iíta á þær sem einhveij-
ar afsláttamerar er þær komist
yfir fertugt, að þær hætti þá að
fela aldur sinn. Allir eiga að reyna
að líta vel út, bæði karlar og kon-
ur, á hvaða aldri sem þeir eru og
bera hann með stolti og reisn,
sagði Steinka ennfremur.
Filofaxið dýrmæta
Pétur Örn hringdi og vildi aug-
lýsa eftirfarandi: „Sá eða sú sem
stal filofaxi úr vasa mínum aðf-
aranótt sunnudagsins 12. sept.
er vinsamlega beðinn um að skila
því, þess er sárt saknað. Sem fyrr
er ég tilbúinn að fyrirgefa við-
komandi manneskju verknaðinn
ef hún skilar því til baka. Vinsam-
legast hafið samband í síma
674263 og biðjið um Pétur Örn.”
Afmælishjólinu stolið
Nýtt Muddy-Fox 21. gírs hjól
var tekið þar sem það stóð fyrir
utan Æfíngadeild Kennarahá-
skóla íslands þriðjudaginn 5. nóv.
Hjólið er flekkótt, fjólublátt og
brúngult á litinn. Drengurinn sem
á hjólið fékk það í afmælisgjöf í
sept. sl. Ef einhver gæti gefið
upplýsingar um hjólið þá vinsam-
legast hafi hann samband við
Helga Berg í síma 620037 eða
689265.
Skólataska tapast
Skólataska var tekinn úr
strætóskýli við Kringlumýra-
braut, beint á móti Verslunarskó-
lanum, fimmtudaginn 14. nóv.
Taskan er eðlilega full af skóla-
bókum og hvarf hennar kemur
sér illa fyrir eigandann. Þeir sem
einhveijar upplýsingar hafa um
skólatöskuna vinsamlegast hafi
samband við Bjarka í síma 50755.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar
Yíkveiji fór með bílinn sinn í
skoðun í fyrsta sinni, en hann
er þriggja ára gamall. Bifreiðin,
sem er af Volvo-gerð, fékk ekki
fullnaðarskoðun og þegar Víkverji
spurðist fyrir um, hvort Volvo-verk-
stæðið, sem rekið er af Brimborg,
hefði leyfi til þess að framkvæma
svokallaða endurskoðun, var svarið
neitandi. Astæður voru ekki upp-
gefnar.
Þegar Víkveiji spurðist fyrir um
það hjá verkstæði Brimborgar, var
sagt að ekki hefði samizt á milli
Bifreiðaskoðunar íslands og fyrir-
tækisins um endurskoðunina og var
helzt að skilja, að Brimborg neitaði
að innheimta svokallað endurskoð-
unargjald fyrir Bifreiðaskoðun Is-
lands, enda hefði fyrirtækið talið
það ósanngjarnt, þar sem Bifreiða-
skoðunin framkvæmdi ekki endur-
skoðunina.
Aftur var lejtað skýringa hjá
Bifreiðaskoðun Islands og kom þá
í ijós að ekkert endurskoðunargjald
væri innheimt og hefði það ekki
verið gert. Aðeins hafi verið um
hugmyndir að gjaldi að ræða, sem
aldrei hefðu komið til framkvæmda.
Þessar skýringar eru furðuiegar og
stangast á. Hvers vegna í ósköpun-
um er sérhæfðu fyrirtæki ekki
heimilt að endurskoða þær bifreið-
ar, sem þeir eru sérfræðingar í að
gera við? í Bifreiðaskoðun íslands
voru í raun örfá verkstæði sem
höfðu endurskoðunarrétt og fékk
Víkveiji að sjá þar lista yfir þau.
Þar vantaði fjölda af verkstæðum
stórra bifreiðaumboða. Þarna er
greinilega einhver pottur brotinn.
Raunar kom í ljós við þessar fyr-
irspurnir, að hið eina, sem svokölluð
endurskoðunarverkstæði þyrftu að
greiða Bifreiðaskoðun Islands væru
skoðunarmiðarnir, sem kosta 50
krónur stykkið. Raunar er óskiljan-
legt, að Bifreiðaskoðunin sé að inn-
heimta fyrir þessa miða, þegar hún
tekur þúsundir króna fyrir hveija
skoðun. Miðarnir, sem límdir eru í
gluggann á bílunum - eða á nýju
númerin, hljóta að geta verið inni-
faldir í skoðunargjaldinu.
Annars lítur Víkveiji dagsins svo
á að einkavæðing bifreiðaskoðunar
sé einhver klaufalegasta aðgerð,
sem framkvæmd hefur verið og lítt
skárri en sú skoðun, sem Bifreiða-
eftirlitið sáluga framkvæmdi. Þá
kostaði þó þessi þjónusta ekki þessi
ósköp, sem hún kostar nú.
xxx
Víkverji hefur tekið eftir því að
hið nýja happdrætti „Happó”
auglýsir að aðeins sé dregið úr seld-
um miðum. Þrátt fyrir það tekur
happdrættið ákveðið hlutfall vinn-
ingsmiða sjálft, sjálfsagt til þess
að stækka pottinn. Engu að síður
er ljóst að þeir láta ekki af hendi
peninga, sem næmu sölu þessara
miða. Einhvern veginn hefur Vík-
veiji það á tilfinningunni, að þarna
sé um að ræða einhverja blekkingu.
I raun er ekki rétt að segja að að-
eins sé dregið úr seldum miðum.
Annars eru það örfá happdrætti
í þessu þjóðfélagi, sem draga aðeins
úr seldum miðum. Öll stóru happ-
drættin spila t.d. sjálf á.óselda miða
og sé t.d. aðeins selt um 40% vinn-
ingsmiða þýðir það að 60% miða
séu í eigu happdrættanna og þá fá
þau líklegast vinningshlutfall, sem
er mjög nálægt þeirri tölu, þ.e.a.s.
sex vinningar af 10 falla happ-
drættinu sjálfu í skaut.