Morgunblaðið - 16.11.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Æu
Fólkið í landinu
Löng og farsæl sjóferðasaga Er-
lends Jónssonar skipstjóra hjá Eim-
skip var á skjánum þann 31. októ-
ber sl. Þótt þetta hafi aðeins verið
lítið brot af íangri og merkri sögu,
var það vel gert og áhugavert. Sjón-
varpið ætti að veija meiri tíma í
þessa þætti, þeir eru í senn þjóðleg-
ur fróðleikur og beina sjónum þeirra
sem yngri eru að því hvers virði
það er að vera borgari þessa góða
jands okkar og hve varkárir við
íslendingar verðum að vera þegar
stórþjóðirnar ásælast gæði lands
okkar.
í þessum þætti var eftirtektar-
verð hlédrægni stjórnandans. Illugi
Jökulsson lét sjónvarpsvélina aldrei
ná til sín, lét athyglina beinast ein-
göngu að þeim, sem við var' rætt
hveiju sinni. Þetta er nýlunda í
þáttagerð hjá sjónvarpinu, þar sem
myndavélum er oft beint í ríkum
mæli að stjórnendum þátta, sem
vitanlega er með öllu ástæðulaust.
Illugi virðist kunna vel til verka
og væri vel ef hann stjórnaði fieiri
þáttum af þessu tagi. Erlendur
Jónsson var háseti á Dettifossi þeg-
ar þýskur kafbátur skaut hann í
kaf í febrúar 1945. Hann greindi
vel frá þeim atburði, hefði þó mátt
vera ítarlegri. Tundurskeytið sem
grandaði Dettifossi var trúlega ætl-
að öðru skipi, að áliti Erlendar, en
það mun hafa verið Ms Yemassee,
finnskur fraktdallur sem varð inn-
lyksa í Bandaríkjunum í stríðinu,
skráður í Panama og var um skeið
í flutningum fyrir Eimskip. Þetta
skip var í næsta nágrenni við Detti-
foss þegar hann sökk. í áhöfn Ms
Yemassee var ungur Íslendingur
sem sigldi heimsins höf, í styijöld-
inni sem loftskeytamaður og horfði
á Dettifoss hverfa í hafið. Þetta var
Matthías Björnsson, sem nú er bú-
settur í Varmahlíð í Skagafirði.
Skipstjóri á Ms Yemassee var um
þessar mundir Kapt. K. Karlsen,
sá er varð heimsfrægur fyrir hug-
rekki og þrautseigju er hann yfírg-
af ekki sökkvandi skip sitt, Flying
Enterprise, í ólgusjóá reginhafi í
marga sólarhringa. Hann stakk sér
til sunds þegar Flying Enterprise
hvarf í hafið og var bjargað. Þær
eru marga skemmtilegar sögurnar
af sjónum, fróðlegar og gefa innsýn
í þann heim sjómanna sem við
þekkjum aðeins af frásögnum og
bókum. Gaman væri því að heyra
fleiri þætti um sjóferðasögur, en
af nógu er að taka. Jón Steingríms-
son skipstjóri væri verðugur „skip-
per” í góðan þátt, til dæmis. Hann
sigldi öll heimsins höf, jafnvel á
seglskipum fyrri tíma, og kann vel
að segja frá. Hann á ekki langt að
sækja frásagnargáfuna, verandi
sonarsonur þjóðskáldsins séra
Matthíasar Jochumssonar. Vonandi
fáum við meira að sjá og heyra af
sjómönnum okkar, þeir hafa óend-
anlegt efni í góða þætti og, fróð-
lega. Það væri tilbreyting frá öllu
poppinu sem er að tröllríða tilver-
unni og fegurðarsmekk fólks.
Gamall messastrákur.
VID GERUM EKKI
UPPÁMILLI
ÍSLENDINGA!
386ST - 20MHz
kr. 11 9.900^" stgr
52 MB haróur diskur 17 ms (64 KB Cache skyndiminni)
2 MB vinnsluminni stækkanlegt í 8 MB á móður borði
1,2 MB 5,25" disklingadrif og rými fyrir 1,44 MB 3,5"
Super VGA-litaskjár (1024X768)
Super VGA-skjákort 512 KB stækkanlegt í 1 MB
Windows 3.0 og mús
Vid afgreiðum af lager!
LÁTTU EKKI ÞVINGA ÞIG
MED RÍKISSAMNINGI !
Umboósmenn um land allt.
MTÆKNIVAL
£kc:far. \7 :23 P.cykjavik UÍql ill 6Ö1665 • !:ax 01 60066«.
Italskir leöurkuldaskór
_________________ ~
Stærðir 30-39, litir svartur og brúnn, kr. 3.600,-
Stærðir 40-46,
litur svartur, kr. 4.200,- öBOo
CgT * >"4*
MILANO
KRINQLAM 0-13 StU! 0003*0
LAUQAVEGI61S. 10666
Spurning:
Hvað er það sem flesta
íslendinga vantar?
Svar:
Tíma og peninga, og suma
vantar auk þess innréttingar.
HER
NU
Hér og Nú innréttingaeiningarnar
eru á lægra verði en þekkst hefur fyrir
gæðainnréttingar. Þær eru alltaf til á lager
og því tilbúnar til afhendingar strax.
Við bjóðum eldhúsinnréttingar, fataskápa
- einingar sem hægt er að nota hvar sem er.
Þú færð innréttinguna fyrr
- fyrir færri krónur.
Innréttingin komin upp fyrir jól.
Gásar h^nú
Ármúla 7, sími 30 500
0PIÐ LAUGARDAG
K l . 1 0 - 1 6
E
EUROCARO
RAÐGREIÐSLUR
Ekkert út og afborganir
til allt að 11 mánaða
FÆST UM ALLT LAND
Gásar Ármúla 7, Reykjavík
Dropinn, málningarv.verslun, Keflavík
Málningarþiónustan hff, Akranesi
Pensillinn ísafirði
Kaupff. Vesftur-Húnvetnlnga
Hvammstanga
Valsmíöi sff, Akureyri
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavtk
Kaupf. A-Skafftffellinga, Höfn
Verslunln Vik, Neskaupsstað
Kaupffélag Rangœinga, Hvolsvelli
Húsgagnav. ReynissftaÖur
Vestmannaeyjum
Verslunin Hantrar hf, Grundarfirði
Blaóid sem þú vaknar við!