Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 1
 or0iumil>lafeií> MENNING LISTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 16 NÓVEMBER 1991 BLAÐ JLÞ M. BUTTERFLY í ÞJÓOLEIKHðSINU fl FIMMTUDAG: ÁSTARSAGA MEÐ HARMRÆNUM ENDI - SEGIR ÞÓRHILBUR ÞORLEIFSDÓTTIR LEIKSTJÓRI M. BUTTERFLY, bandarískt verðlaunaleikrit eftir David Henry Hwang, verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins næstkom- andi fimmtudag, 21. nóvember. Leikritið var frumsýnt á Bro- adway 1988 og vakti þá mikla athygli. Það er byggt á frétt úr heimspressunni sem vakti mikla furðu fyrir nokkrum árum, en þar sagði af frönskum diplómat sem átti vingott við kínverska listakonu frá Peking Óperunni um tuttugu ára skeið og eignaðist méð hénni barn. Franska leyniþjónustan komst á snoðir um að stúlkan var njósnari, en jafnframt kom á daginn að hún var karl- maður í dulargervi. Þórhildur Þorleifsdóttir er leikstjóri, Arnar Jónsson leikur diplómatinn, Þór Tulinius leikur „kínversku lista- konuna”, og með önnur hlutverk fara Bríet Héðinsdóttir, Erla Ruth Harðardóttir, Gísli Rúnar Jónsson, Rúrík Haraldsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. Sverrir Hólmarsson þýddi verkið, lýsingu annast Björn B. Guðmundsson, Unnur Guðjónsdóttir sér um kín- verska dansa, búningar eru eftir Helgu Rún Pálsdóttur og leik- mynd eftir Magnús Pálsson. MButterfly fjallar um franskan diplómat sem dvelst í Kína í nokkur ár, hann eignast þar kín- verska ástkonu, þau fara síðan til Frakklands og eru þar í fimmtán ár, en þá kemst upp að þau hafa stundað njósnir”, segir Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri. „Þau era dregin fyrir rétt og þá kemur ekki bara í ljós að þau hafa verið að njósna, heldur að kínverska konan er karlmaður. Svipaður atburður átti sér stað í raun og veru og varð höfundinum að yrkisefni. Höfundurinn, David Henry Hwang, er kínverskættaður Bandaríkjamaður, af fyrstu kyn- slóð fjölskyldunnar sem er fædd í Bandaríkjunum, og hann er að hluta til að skrifa um það hvernig tveimur menningarheimum slær saman. Ætli viðfangsefni verksins sé ekki annars vegar samskipti vestrænnar menningar og þjóðar sem ekki tilheyrir þessum hvíta kynstofni, og hinsvegar samskipti karls og konu. Höfundur fléttar einnig inn frásögnum frá Víetnam, og með þessu virðist hann draga upp samlíkngu milli samskipta kynja í karlveldi, samskipti tveggja kynstofna þar sem annar er sterkari, og samskipti tveggja þjóða þar sem önnur telur sig vera sterkari og tekur sér allan rétt til að reyna að ná fram sínum vilja. Til era góð orð yfir þetta á er- lendu máli: sexismi, rasismi og imperíalismi, og kannski á þetta sér sömu rætur; bara mismunandi kúgunarform. Sá sterkari þvingar hinn aðilann inn í ákveðna rullu, og sér aðeins það sem hann vill sjá, því kúgari vill gjarnan trúa því að hinn kúgaði elski hann og hann sé í rauninni að frelsa hann með kúguninni. Þetta á sér stað í þessu verki. Þar að auki tekur höfundurinn sögu óperunnar Mad- ame Butterfly og fléttar hana inn í. Þar birtist draumur hvíts karl- manns í niðursuðudós; fulltrúi herraþjóðar heltekur svo hjarta austurlenskrar konu að hún gleymir öllu nema honum. Hún er hin fórnandi kona - hin full- komna kona. En í leikritinu er það í raun hinn kúgaði sem er sá sterki, vegna sjálfsblekkingar og blindu mannsins sem langar svo óskap- lega til að hitta hina fullkomnu konu, að þegar hann hefur hitt hana þá er hann tilbúinn til að trúa hveiju sem er.” Þórhildur segir að þetta sé ást- arsaga: „En eru ekki allar ástar- sögur harmleikir? Við bara pössum okkur yfírleitt að enda þær áður en harmleikurinn fer að laumast inn,” segir hún og hlær. „Jú, öðr- um þræði er þetta ástarsaga, en með harmrænum endi, eins og vera ber.” _ efj

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.