Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 1
SKIPASMÍDI: Þorgeir og Ellert hf. gengin í endurnýjun lífdaganna/6
LYFfAIÐNADUR: Lyfjakostnaður ekki bara íslenskt heldur alþjóðlegt vandamál /8
píior0tmMaí>ií>
■--—-------------------------------------------L--------------
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
BLAÐ
Hlutahréfamarkaður
Mikil lækkun á markaðs-
virði stærstu hlutafélaganna
Samanlögð lækkun á markaðsvirði hlutabréfa Eimskips, Flugleiða,
Skeljungs og Olíufélagsins er 1.400 m.kr. síðan í ágúst
LÆKKANIR á gengi hlutabréfa frá því í lok ágúst í fjórum af
helstu skráðum hlutafélögum þ.e. Flugleiðum, Eimskip, Olíufélag-
inu og Skeljungi samsvara iæplega 1.400 milljóna lækkun á mark-
aðsverðmæti bréfanna miðað við skráð sölugengi HMARKS í gær.
Samtals er lækkun markaðsverðmætis á skráðum bréfum nálægt
2 milljörðum eins og kom fram í blaðinu í gær. Af einstökum félög-
um má nefna að markaðsverðmæti hlutabréfa Eimskips hefur lækk-
að um rúmar 100 milljónir en samsvarandi lækkun er 561 milljón
á Flugleiðabréfum eins og reyndar hefur áður komið fram, 392
milljónir á Olíúfélagsbréfum og 329,8 milljónir á Skeljungsbréfum.
Dæmi eru hins vegar um ennþá lægra gengi t.d. á Flugleiðabréfum
á tilboðsmarkaði Kaupþings.
Hlutabréf eru eins og aðrir
fastafjármunir eignfærð á fram-
reiknuðu kaupverði hjá þeim fyrir-
tækjum sem eiga hluti í öðrum.
Þannig nam t.d. bókfært verð
hlutabréfa í eigu eignarhaldsfélags
Eimskips, Burðaráss, sem skráð
eru á hlutabréfamarkaði alls um
SÖLUGENGI DOLLARS
Síðustu fjórar vikur
60.50 ------------------------
kr.
60,00--------1--;-------------
59.50 ------------------------
59,00
13.nóv. 20. 27. 4. des. 11.
1.258,8 milljónum um sl. áramót.
Skráð kaupgengi bréfanna nam á
sama tíma 2.101,5 milljónum. Þær
lækkanir á gengi hlutabréfa sem
orðið hafa frá því í haust hafa því
ekki áhrif á bókfærða eign Eim-
skips eða annarra fyrirtækja í
skráðum hlutabréfum. Markaðs-
virði er á hinn bóginn jafnað miðað
við sölugengi.
Hins vegar hefur hlutafjáreign
Eimskips í Flugleiðum lækkað um
190 milljónir frá því í ágúst þegar
miðað er við markaðsverðmæti
bréfanna samkvæmt skráðu gengi
HMARKS. Er þá miðað við söiu-
gengið 2,20 en þegar miðað er við
sölugengið 2,10 sem skráð var á
tilboðsmarkaði Kaupþings í fyrra-
dag er lækkunin um 255 milljónir.
Þá má nefna sem dæmi að mark-
aðsverðmæti hlutabréfa stærsta
hluthafans í Eimskips Sjóvá—
Almennra hefur lækkað um 11,1
milljón frá því í ágúst miðað við
sölugengið 5,95 en um 28 milljón-
ir þegar miðað er við gengið 5,80.
Annar stór hluthafi í Eimskip
og reyndar í Flugleiðum líka er
Lífeyrissjóður verslunarmanna og
hefur markaðsverðmæti bréfa
hans í Flugleiðum lækkað um 37
milljónir miðað við gengið 2,20 en
um 49 milljónir miðað við gengið
2,10.
Lækkun á gengi hlutabréfa end-
urspeglast í gengi hlutabréfasjóða
sem hefur komið fram í því að
gengi bréfa í þeim hefur ýmist
lækkað eða staðið í stað að undanf-
örnu. Sjóðirnir fjárfesta hins vegar
jafnframt í skuldabréfum sem
dregur úr áhrifum lækkana hluta-
bréfa. „Hlutabréfasjóðurinn hf. er
í almennu útboði núna sem hófst
um miðjan nóvember og gengi í
útboðinu tók mið af stöðunni eins
og hún var miðað við þann tíma.
Ég held að gengið endurspegli
ágætlega stöðuna eins og hún er
á markaðnum núna,“ sagði Þor-
steinn Haraldsson, framkvæmda-
stjóri sjóðsins í samtali við Morg-
unblaðið.
Svipað ástand ríkti á hlutabréfa-
markaðnum í gær og verið hefur
undanfarna daga. Verðbréfafyrir-
tækin keyptu ekki hlutabréf gegn
staðgreiðslu nema í undantekning-
artilvikum. T.d. hætti HMARK
skráningu á kaupgengi í gær. Á
tilboðsmarkaði Kaupþings voru
kauptilboð í nokkur hlutafélög en
þau fólu í sér talsvert lægra gengi
en almennt hefur gilt á markaðn-
um að undanförnu. Þar var m.a.
sölutilboð í Flugleiðabréf miðað við
gengið 2,0 og kauptilboð í Eim-
skipsbréf miðað við gengið 5,30.
VEXTIR á Norðurlöndum 1990-91
; Á ÍSLANDI 0 | Þriggja mán. vextir
1 Forvextir rikisvíxla
10- 1990 ECU-vextir 1991
A J 0 J A J 0
25 % I Noregi Þriggja mán. vextir
rTenging við ECU
10- 1990 ECU-vextir 1991
A J 0 A J 0
cO , % 1 Finnlandi Þriggja mán. vextir
Tenging við ECU - •
10 10
1990 ECU-vextir 1991
A J 0 J A J O
% í Svíþjóð Þriggja mán. vextir
Tenging við ECU n
10 fs^rs 1990 d 1991 :CU-vextir
A J 0 A J 0
Á RÁÐSTEFNU Félags viðskipta- og hagfræðinga fyrir stuttu hélt Yngvi
Harðarson fjá Félagi íslenskra iðnrekenda erindi um hvort tengja ætti ís-
lensku Igónuna ECU-myntinni. Þar kom m.a. fram að vegna mikilla viðskipta
íslendinga við lönd EB og EFTA sé ótvírætt hagræði af því að draga úr
gengissveiflum með því að tengja íslensku krónuna við ECU. Minni gengis-
áhætta gagnvart löndum Evrópu þýðir einnig nánari tengsl fjármagns-
markaðar hérlendis við fjármagnsmarkað í Evrópu og minnkandi vaxtamun.
Eins og sést hér að ofan dró töluvert úr þessum vaxtamun hjá hinum
Norðurlandaþjóðunum þegar þær ákváöu að tengja gjaldmiðla sína við ECU.
í Finnlandi hækkuðu vextir úr 10,7% í 18,9% skömmu áður en Finnar voru
knúnir til að fella gengið um 12,3% vegna spákaupmennsku. Eftir
gengislækkunina lækkuðu vextir strax í 14%.
SAGA
BUSINESS í viðskiptaferðum með Saga
/^I X QQ Business Class lækkarðu
ferðakostnað til muna með
því að eiga kost á heimferð strax og þú
hefur lokið viðskiptaerindum þínum.
Hagsýnir kaupsýslumenn velja
alltaf Saga Business Class
Mundu einnig að eitt og sama fargjald með
Saga Business Class getur gilt á milli margra
áfangastaða í sömu ferð. Þú nýtur svo
ávinnings af að geta eins fljótt og auðið er
tekist á við verkefni sem bíða þín heima.
FLUGLEIDIR