Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 2

Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Fyrirtæki Hagnaður Olíufélagsins hf. 158 milljónir króna HAGNAÐUR Oiíufélagsins hf. á fyrstu níu mánuðum ársins nam alls um 158 milljónum en var allt árið í fyrra um 207 milljón- ir. Gert er ráð fyrir nokkru lak- - fyrstu níu mánuði ársins ari afkomu á þessu ári en á sl. ári og má einkum rekja það til aukins fjármagnskosnaður en einnig hefur heildarsala á bensíni og olíuvörum verið tals- Fyrirtæki Stefnt að stofnun frí- svæðis strax um áramótin STEFNT er að því að Tollvöru- geymslunni við Héðinsgötu í Reykjavík verði breytt í frí- svæði um áramótin en viðræður standa nú yfir við ríkistollstjóra og fjármálaráðuneytið um starfsleyfi. Mánuði síðar eða þann 31. janúar mun flugfragt Flugleiða flytja afgreiðslu sína frá Reykjavíkurflugvelli inn að Héðinsgötu en jafnframt mun afgreiðsla flugfragtar á Bílds- höfða flytjast til Tollvörug- eymslunnar. Að auki verður bætt við starfsfólki frá toll- stjóra og sett upp almenn toll- afgreiðsla. „Það verður bylting í þjónustu við þá sem nýta sér flugfragt," sagði Júlíus S. Ólafsson, stjórnar- formaður Tollvörugeymslunnar í samtali við Morgunblaðið. „Með breytingunni yfir í frísvæði munu vörur sem koma inn á svæðið ekki teljast innfluttar fyrr en þær fara út af svæðinu. í Tollvörugeymsl- unni er hins vegar tollafgreitt inn á svæðið og út af því aftur. Frí- svæðið er miklu einfaldara og það gerir erlendum aðilum auðveldara að eiga vörur hér á landi. Þeir geta tekið þær til baka hvort sem um er að ræða að vörum sé skilað héðan eða þær fluttar annað.“ Júlíus segir hins vegar erfitt að spá fyrir um hvaða þýðingu frí- svæðið hafi fyrir Tollvörugeymsl- una. „Við búumst ekki við neinni stórkostlegri byltingu en frísvæð- inu munu ábyggilega fylgja aukin umsvif fyrir fyrirtækið. Það gefur augaleið að tekjur Tollvörug- eymslunnar munu vaxa á næsta ári en hagur fyrirtækisins hefur einnig batnað verulega á þessu ári vegna breytinga úr svokallaðri klefaþjónustu yfír í hilluvæðingu. Þjónustusviðið hefur breikkað og nýir viðskiptavinir komið til eftir sölu- og markaðsátak. Tollvörug- eymslan hefur sýnt það að hún er á réttri leið og frísvæðið verður viðbót við núverandi starfsemi." Fyrirtækjanet íslenska áætlunin hefst formlega íbyrjun næsta árs Leitað hefur verið til 6 sjóða og stofnana til að standa straum af styrkveitingum ISLENSK áætlun um samstarf í formi fyrirtækjaneta hefur verið í undirbúningi undanfarið á vegum Samtaka atvinnurek- anda í sjávarútvegi, Félags ís- lenskra iðnrekanda, Landssam- bands iðnaðarmanna, Út- flutningsráðs Islands, ASI og VSI. Undirbúningurinn er vel á veg kominn og er áætlað að starfið hefjist formlega í byrjun næsta árs. Á námskeiði sem haldið var fyrr í vikunni um fyrirtækjanet sem fyrirtækjaform framtíðarinn- ar kom fram að tvö eða fleiri fyrir- tæki geta sótt sameigýilega um styrki til að standa straum af kostnaði við að framkvæma at- huganir, gera útreikninga og standa að þeirri samningsgerð sem nauðsynleg kann að vera til að koma á arðbæru samstarfi í formi fyrirtækjaneta. Styrkurinn getur verið að hámarki 1.200 krónur á hvert riet. í máli Kristjáns Jóhannssonar, rekstrarhagfræðings hjá VSÍ, sem starfar í undirbúningsnefnd, kom fram að til að standa straum af styrkveitingum hefur nefndin leit- að til 6 sjóða og stofnana um fjár- mögnun. Þegar hefur verið gengið frá samkomulagi við fjóra af þess- um sex aðilum, en eftir er að ræða betur við Iðnþróunarsjóð og Fiskveiðasjóð. Fjármögnunaráætlunin hljóðar upp á 30 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að heildarstyrkir verði 12 milljónir, með fjármögnun fyrirtækja náist sama upphæð og að afgangurinn felist í vinnu- framlagi samtaka atvinnulífsins, launum starfsmanns áætlunarinn- ar, rekstri, kynningum o.þ.h. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásífjum Moggans! Sævar Karl Ólason Bankastræti 9, sími 13470 vert minni en í fyrra. Fyrstu tíu mánuði ársins var heildarsala olíufélaganna 479 þúsund tonn en var 515 þúsund tonn á sama tímabili í fyrra. Geir Magnússon, forstjóri 01- íufélagsins hf., segir að auk meiri fjármagnskostnaðar á þessu ári eigi sarndráttur í sölu vegna minni fiskafla og loðnuleysis stærstan þátt í lakari afkomu félagsins en í fyrra. Rekstrartekjur voru alls 6.152 milljónir fyrstu níu mánuð- ina og var rekstrarhagnaður 311 milljónir. Þá var hagnaður fyrir tekju- og eignarskatt alls 281 milljón. Heildareignir félagsins í lok september voru alls 6.733 milljónir og höfðu aukist um 15,9% frá áramótum. Eigið fé var 3.918 milljónir og hafði hækkað um 15% frá áramótum en eiginíjárhlutfall var 58,2% í lok september. mest seldu fólks- bílategundirnar jan.-nóv. 1991 Fiöldi % 1. MITSUBISHI 1.644 18,9 2. TOYOTA 1.587 18,2 3. NISSAN 906 10,4 4. SUBARU 840 9,6 5. AE-LADA 594 6,8 6. DAIHATSU 502 5,8 7. MAZDA 281 3,2 8. SUZUKI 277 3,2 9-10. RENAULT 262 3,0 9-10. VOLKSW. 262 3,0 Aðrir 1.558 17,9 9.179 6.371 I l Bifreiða- innflutningur jan.- nóv. 1990 og 1991 |— FÓLKSBÍLAR, nýir og notaðir HÓP- VÖRU- og SENDIBÍLAR, nýir og notaðir 1990 2.164 1.700 ■ 1990 1991 í NÓVEMBER sl. voru fluttir til landsins alls 632 bílar, þar af 596 nýir. [ október voru fluttir inn 883 bílar og er því um að ræða tæplega 30% samdrátt í bílainn- flutningi milli þessara tveggja mánaða. Miðað við nóvember á síðasta ári þegar fluttir voru til landsins 713 bílar, er samdrátturinn um 12%. Meðaltalsinnflutningur bíla fyrstu tíu mánuði þessa árs er 1.017 bíll. Miðað við það meðaltal er um að ræða 40% samdrátt bílainnflutningi í síðasta mánuði. Sambærilegar tölur fyrir síðasta ár sýna að bflainnflutningur í nóvember var um 3% minni en meðaltals- innflutningur fyrstu 10 mánuðina. Frá síðustu áramótum hafa verið fluttir til landsins 10.565 nýir bílarog 778 notaðir eða alls 11.343 bílar. Árin 1980-1990 voru að meðaltali fluttir inn 11.074 bílar. Innflutningurinn náði eins og kunnugt er hámarki árið 1987 þegar fluttir voru inn alls 23.459 bílar. Árið eftir voru fluttir inn 15.078 bflar, síðan hrapaði innflutningurinn í 7.476 bíla árið 1989. í fyrra voru fluttir inn alls 8.819 þannig að Ijóst er að bílainnflutningur er í uppsveiflu í ár þrátt fyrir samdrátt síðustu mánuðina. Að sögn Jónasar Þórs Steinarssonar, framkvæmdastjóra Bíl- greinasambandsins, búast menn almennt við að sá samdráttur nái fram á næsta ár. Verðbréf Brýnt að gera engar megin- breytingar á húsbréfakerfinu Vafasamt að aukning húsnæðislána hafi valdið vaxtahækkunum segir í skýrslu starfshóps félagsmálaráðherra STARFSHÓPUR, sem falið var að meta reynsluna af húsbréfakerf- heppilegt sé að veita skattfríðindi inu, telur í skýrslu til félagsmálaráðherra að húsbréfakerfið hafi í vegna kaupa á húsbréfum í verð- meginatriðum reynst vel og afar brýnt sé að ekki verði gerðar breyt- bréfasjóðum. Lagt er til að ákvæði ingar á því á næstu tveimur árum. Starfshópurinn telur vafasamt skattalaga um afföll verði endur- að skýra hækkun vaxta á þessu ári með aukningu húsnæðislána. Vaxtahækkunin hafi hafist með vaxtahækkun spariskírteina í júní 1990 og að stjórnmálaleg sjónarmið hafi ráðið því að ávöxtun spari- skírteina hafi verið óraunhæf á fyrri hluta þessa árs. Meirihluti hópsins telur þær breytingar sem gerðar voru á húsbréfakerfinu í október, sem m.a. fólust í lækkun hámarkslána, hafi verið óþarfar og ótímabærar og að á næsta ári muni draga úr fjárstreymi inn á húsnæðismarkaðinn. Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir hrakspár hafi verið jafnvægi á fasteigna- markaði s.l. tvö ár og fasteignaverð verið stöðugt. Útborgun hafi lækk- að úr 75% í 45% og innri fjármögn- un verið í samræmi við markmið þar sem um helmingur húsbréfa sem gefin eru út vegna kaupa á notuðu húsnæði gangi áfram til húsnæðisviðskipta eða séu geymd sem sparnaður. Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra sagði á fréttamannafundi í gær að niður- staða starfshópsins staðfesti að lít- inn hluta af veltu fjármagnsmark- aðarins mætti rekja til húsbréfa andstætt því sem fram hefur komið af hálfu Seðlabankans í nýbirtri skýrslu. Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að flest bendi til að út- gáfa húsbréfa vegna nýrra og not- aðra íbúða á árinu verði svipuð og gert var ráð fyrir eða um 12 millj- arðar kr., að greiðsluerfiðleikalán- um undanskildum. Helstu vandamál kerfisins megi hins vegar rekja til uppsafnaðs vanda frá biðraðakerf- inu frá 1986, að tvö lánakerfi hafa verið starfandi samtímis og vegna útgáfu greiðsluerfíðleikalána. Starfshópurinn leggur m.a. til að athugaðir verði möguleikar á að koma á fót sérstöku sparnaðar- hvetjandi fyrirkomulagi sem bygg- ist á reglubundnum kaupum ein- staklinga á húsbréfum og hvort skoðuð til að tryggja jafnstöðu svo þeir sem byggja á eigin vegum, og eru útgefendur fasteignaveðbréfa og viðtakendur húsbréfa fái þau lögð til grundvallar vegna vaxta- bóta. Þá er ekki talið tímabært að afnema ríkisábyrgð á húsnæðislán- um en hugað verði að því að hús- bréfadeild nýti heimild til að taka upp vaxtaálag í húsbréfaviðskiptum til að mæta áætluðum útlánatöpum. í starfshópnum sátu Yngvi Örn Kristinsson, formaður Húsnæðis- málstjórnar, Grétar J. Guðmunds- son, þjónustuforstjóri Húsnæðis- stofnunar, Þórólfur Halldórsson, formaður Félags fasteingasala, Sig- urður Geirsson, forstöðumaður hús- bréfadeildar, Gunnar Helgi Hálf- dánarsson, forstjóri Landsbréfa hf., Sigurður B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar íslandsbanka hf., Gunnar S. Björns- son byggingameistari og Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félags- málaráðuneytinu. HUSBREFIN — Frá blaðamannafundi félagsmálaráðherra. Talin frá vinstri Ingi Valur Jóhannsson, Grétar Guðmundsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Yngvi Örn Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.