Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 3

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF iFMMlWBAGUít «>2., DESEMBER 1991 <B (3 PROFUN — í vikunni fóru fram pappírslaus viðskipti milli Búnaðarbankans og Heklu hf. Á myndinni eru Sigfús Sigfússon, fram- kvæmdastjóri Heklu, Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbank- ans og Hrafnkell Gunnarsson, fjármálastjóri Heklu. Tölvur Búnaðarbankinn og Hekla í pappírs- lausum viðskiptum * Islenskt bergvatn sel- ur Seltzer til Astralíu ÍSLENSKT bergvatn hf. hefur gert samning við aðila í Ástralíu um söiu á Seltzer og fara fyrstu gámarnir út skömmu eftir áramót. Að sögn Jóns Sch. Thorsteinssonar, framkvæmdastjóra íslensks berg- vatns, er um að ræða hálfa milljón dósa sem send verður út í tólf gámum á næstu mánuðum. Sömu við Islenskt bergvatn um kaup á Seltzer er seldur til Ástralíu und- ir vörumerkinu Glacier, og er það þriðja vörumerkið sem íslenskt bergvatn notar fyrir drykkinn. „í Bretlandi notum við Seltzer eins og hér heima, en í Bandaríkjunum er orðið safnheiti og því urðum við að taka upp nýtt vörumerki þar. Nátt- úra varð fyrir valinu, en það geng- ur ekki í Ástralíu frekar en Seltz- er. Þar er Seltzer safnheiti og Nátt- úra er vörumerki fyrir konfekt sem selt er þar í landi,“ sagði Jón. Talsverður kostnaður fylgir því að flytja Seltzer alla leið til Astral- íu. Að sögn Jóns kostar 2.000 feta gámur 3.500 dollara eða um 210.000 íslenskar krónur. „Gámur- inn er því nýttur eins og kostur er og við stöflum þar í 17 hæðir í stað 10 eins og við eram vanir,“ sagði Jón. Hann sagði ennfremur að Ástr- alíumarkaður væri mjög lofandi því þar ætti Seltzer ekki í eins mikilli samkeppni við aðra svipaða drykki og t.d. í Bandaríkjunum. Þeir aðilar sem eru að kaupa aðilar eiga ennfremur í viðræðum vatni. Seltzer af íslensku bergvatni hafa einnig hug á að flytja inn vatn frá fyrirtækinu, en það mál er mun styttra á veg komið. Einnig hafa aðrir ástralskir aðilar skoðað vatnið í gegnum umboðsaðila íslensks bergvatns í Hong Kong og’þá með innflutning í huga. „Maður bíður bara í rólegheitum og sér hvort eitt- hvað verður úr hugleiðingum þess- ara aðila varðandi vatnið," sagði Jón. Að sögn Jóns gekk útflutningur á Seltzer vel í síðasta mánuði og jókst sala til Englands um 30% frá nóvember á síðasta ári. XJöfdar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! anco pj EFTIRUTS- SPEGLAR Eigum fyrirliggjandi | eftirlitsspegla. Veita góöa yfirsýn og eru auöveldir í uppsetningu. Stærðir: 40, 50 og 60 sm. VERSLUNARTÆKNI HF. VATNAGÖRÐUM 12 REYKJAVlK SlMI 688078 BÚNAÐARBANKI íslands og Hekla hf. hafa unnið saman að þróun pappírslausra viðskipta og nú í vikunni fór fyrsta próf- un farið fram þegar Hekla hf. sendi Búnaðarbankanum beiðni um greiðslumiðlun. Stefnt er að þvi að Búnaðarbankinn bjóði öðrum fyrirtækjum þessa þjón- ustu í janúar. Viðskiptin fara þannig fram að fyrirtæki sendir tölvuskeyti með fyrirmælum um greiðslu til við- skiptabanka í gegnum X.400 gagnahólfaþjónustu Pósts og síma. Um leið og pappírslaus við- skipti fara fram á milli kaupanda og seljanda, fær bankinn greiðslu- fyrirmæli, sem hann framkvæmir og sendir síðan staðfestingu með tölvuskeyti til beggja aðila. Auk greiðslumiðlunar stefnir Búnaðarbankinn að enn víðtækari þjónustu fyrir fyrirtæki í gegnum gagnahólfíð, s.s. vegna launa- greiðslna, gjaldeyrisviðskipta og ýmissa skeytasendinga til og frá bankanum. Þessi prófun greiðslumiðlunar er árangur samstarfsverkefnis um pappírslaus viðskipti, ÍSEDI 91, á vegum EDI félagsins og nokkurra aðila, sem hafa það að markmiði að aðstoða fyrirtæki við að taka upp pappírslaus viðskipti. Bún- aðarbankinn er eini bankinn sem tekur þátt í þessu verkefni. Bankar og sparisjóðir á íslandi hafa frá árinu l989 verið notendur að hinu alþjóðlega SWIFT greiðsl- umiðlunarkerfí banka um heim allan og í fréttatilkynningu frá Búnðarbankanum og Heklu hf. segir að það sé í raun fyrsta kerfí fyrir pappírslaus viðskipti (EDI) hér á landi þó það sé eingöngu fyrir bankastofnanir. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur til umfjöllunar hug- myndir um breytingu á lögum nr. 51/1968, þar sem lagt er til að séu pappírslaus viðskipti stunduð með skjalaskiptum milli tölva sé heimilt að víkja frá ákvæðum 5.gr. - 17.gr. að því er varðar pappírs- gögn. Þess skuli gætt að tölvu- skjöl séu varðveitt með aðgengi- legum og sambærilega tryggum hætti og pappírsgögn eða eftir- myndir af þeim. Jafnframt kemur fram í þessum hugmyndum að um pappírslaus viðskipti skuli gilda samskonar efnislegar kröfur og viðskipti studd pappírsskjölum vegna innra eftirlits, endurskoðun- ar og eftirlits opinberra aðila. BlLDSHOFÐA I6SIMI672444 TELEFAX672560 r Lœkkaöu sorpkostnaö og sparaöu pláss. Sorpressan er góö lausn, sem hentar allsstaöar. Sérstakt kynningarverð. ! Vélin fyllt Eftir verður I og handhægur pakki. BP 1800 Loftknúin KROKMALSI 6 - REYKJAVIK - SIMI 671900 BHP 1200 Handknúin J EGGERT feldskeri Efst á Skólavörðustígnum, sími 11121. VETURINN1991 Selslánnsjakkamir sérhönnuöu frá Eggert feldskéra em nýjung sem nútímakonan kann að meta. Glóandi litir í mjúku skinni. Stórkostlegt úrval af pelsa - og skinna vöru á góðu verði; Bísamfeldir frá kr. 86.000,- Selskinnsjakkar frá kr. 125.000,- Minkafeldir frá kr. 220.000,- Síðar peysur - kasmírsjöl - slár - töskur - húfúr. Opið laugardag frá kl. 10 - 18. Sunnudag frá kl. 12 - 18. Verif velkomin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.