Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Verslun Jólin koma ætíð á endanum - hjá kaupmönnunum líka Jólaverslun hefur farið hægt af stað, kaupmenn segjast ekki hafa tapað viðskiptum vegna verslunarferða, en benda hver á annan Innlend úttekt 5.000 Nokkur stöðugleiki virðist vera kominn á notkun greiðslukorta ef marka má þessar upplýsingar frá VISA-lsland. Til vinstri gefur að líta samanburð á vöruúttekt í árslok 1989 og 1990 og leiða innlendu tölumar í Ijós 12-13% vöxt á milli ára. Hins vegar kemur í Ijós að tímabilin frá 18. nóv. til 17. jan., „jólaverslunin" eru rúmlega 30% hærri en næstu sambærilegu tímabil á undan. Erlendu tölurnar eru um fjórðungur af veltu fyrirtækisins, og sýna u.þ.b. 20% aukningu á milli ára. Um þrfr fjórðu hlutar erlendu úttektarinnar er í formi vöru en afganginn tekur fólk út í reiðu fé, tæpar 270 millj. kr. í október og nóvember 1991. Meðal vöruúttekt innlend var á bilinu 2.500-3.100 kr. á skoðunartímanum en erlend á bilinu 7.000-7.500 kr. Erlend Reiðufé -8.000 1.000 Innlend meðalúttekt Vörur O/N D/J 1989 O/N D/J 1990 O/N O/N O/N '89 '90 '91 I r II I ■ I I O/N D/J O/N D/J 1989 1990 O/N O/N O/N '89 '90 '91 -6.000 -4.000 -2.000 -0 eftir Hildi Friðriksdóttur JÓLAVERSLUN hefur almennt farið seinna og hægar af stað en oft áður og svo virðist sem kaup- menn hafi einnig átt rólegri tíð í september og október miðað við fyrri ár. Hér eru barnafataversl- anir þó undantekning, því að af samtölum við eigendur nokkurra þeirra má ráða að salan sé síst minni nú en fyrir ári. Nýtt kredit- kortatímabil hófst í gær, miðviku- dag, og ef ástandið verður eitt- hvað svipað og í fyrra má búast við verulegum kipp í innkaupum fram að jólum. Þrátt fyrir að talað sé um samdrátt í atvinnu- og efna- hagslífi þjóðarinnar á næstunni láta Islendingar það ekki á sig fá og leggja mikið á sig til þess að geta haft jólahaldið eins myndar- legt og framast er unnt. Kaup- menn sem hafa verið lengi viðloð- andi verslun segja að jólainnkaup- in hafi ætíð haft forgang, þótt lit- ið sé langt aftur í söguna og vitna meðal annars til Haraldar Árnas- onar í Iiaraldarbúð. Morgunblaðið hafði samband við fjölda kaupmanna, þó aðallega þá sem selja fatnað. Ummæli þeirra um jólaverslunina í ár voru nokkuð mis- munandi. Sumir bera sig mjög vel, en aðrir segjast ekki geta dæmt árangurinn ennþá, þar seni aðal sölu- tíminn sé framundan. Flestir segja þó að innkaupaferðir íslendinga er- lendis hafi veruleg áhrif á verslunina í heild. Það sem vekur hvað mesta athygli er að fæstir bera sig illa, en segjast heyra hjá öðrum kaupmönn- um, að harðnað hafí á dalnum. Sumir spyrja ekki hvað hlutirnir kosta Verslunareigendur telja sig margir hveijir ekki vei a vara við að fólk hafí minni fjárráö en ella. Einstaka benda þó á að fólk velji ódýrari föt. Einn kaupmannanna lýsti ástandinu þannig, að bilið milli þeirra sem eiga nóga peninga og þeirra sem hafa minna sé að breikka. „Það kemur inn fólk sem spyr ekki einu sinni hvað hlutirnir kosta, meðan aðrir hafa afskaplega lítið handa á milli," sagði hann. í sama streng tók verslunar- eigandi sem selur barnafatnað. „Við tökum alltaf einhveija áhættu og kaupum inn fatnað sem er í dýrari kantinum. Sá fatnaður er nánast því uppseldur núna.“ Fleiri kaupmenn sem selja barnaföt eru ánægðir með hlutdeild sína og segja að á síðustu mánuðum hafi orðið veltuaukning miðað við sama tímabil í fyrra. Margir viðmælendur Morgun- blaðsins nefndu Hagkaup sem dæmi um hugsanlegan aðila sem hefði orð- ið fyrir tekjutapi vegna utanlands- ferða. Jón Ásbergsson framkvæmda- stjóri Hagkaups er ekki á sama máli og segir að heildarsalan hafí verið meiri að magni í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra. „Við höfum endumýjað Hagkaup í Kringl- unni algjörlega og aðstaðan á Akur- eyri er orðin betri, þannig að við ætluðum okkur stærri hlut." Hann sagði að jólasalan væri ekki hafin af krafti og því væri hann ekki tilbú- inn að meta árangurinn út frá þeim tíma sem Iiðinn væri af desember. „Það hefur alltaf endað með því að jólin hafa komið hjá kaupmönnum sem öðrum. Ég held að það verði einnig nú.“ Aðspurður um hvort aukning væri á notkun greiðslukorta sagði Jón að dregið hefði úr þeim viðskiptum. Fólk nýtir sér staðgreiðsluaf slátt Þeir kaupmenn sem bjóða stað- greiðsluafslátt á fatnaði segja að það skili sér, fólk velti fyrir sér þeim peningum, sem afslátturinn veitir. Hins vegar höfðu nokkrir kaupmenn á orði, að þeir kysu að bjóða ekki staðgreiðsluafslátt heldur reyndu frekar að lækka verðið. Meðal þeirra er Svava Johansen kaupmaður í Versluninni Sautján. „Það eru ýmsar vörur á lægra verði hjá okkur núna samanborið við í fyrra," sagði hún og bætti við að verðið skipti við- skiptavini máli. „Fólk virðist kaupa jafn margar flíkur og áður, en kaup- ir þess í stað ódýrari vörur.“ Oddur Pétursson eigandi tísku- verslananna Kjallarans og Kókó seg- ir að 10% raunaukning hafi orðið í sölu í nóvember miðað við nóvember 1990. Hann segist þakka það lágu vöruverði. „Þegar fólk fer að gera verðsamanburð, þá virðist það skila sér meira til okkar, þannig að við höldum okkar hlut.“ Stærsti við- skiptahópur verslananna er fólk á aldrinum 20-40 ára. Verðsamanburður getur borgað sig Verslunar- og skemmtiferðir hafa verið margar á þessu hausti og um 4.000 fleiri farþegar fóru til Bret- lands í nóvembermánuði nú miðað við sama tíma í fyrra. „Það er eins og eitthvert æði hafi gripið um sig. Ég veit ekki hvort það er umtalið um kreppuna sem ýtir undir þessar ferðir og fólk sé þá hrætt um að það missi af einhveiju," sagði einn kaup- maðurinn. Kosturinn við Bretlandsferðimar er meðal annars sá, að hægt er að gera ódýr innkaup á stuttum tíma. En það er líka hægt að kaupa ódýrt á íslandi, það kostar bara aukna fyrirhöfn. Fjölskylda nokkur ákvað að gefa pabba/tengdapabba vestis- peysu, sem kostaði 12.000 krónur. Þau ákváðu samt sem áður að leita víðar og höfðu árangur sem erfiði, því þau fundu svipaða peysu að gæðum í annarri verslun en hún var mun ódýrari. Þar sem þetta var gjöf frá nokkrum fjölskyldum bættu þau við hönskum og tvennum pörum af sokkum. Fyrir allt þetta greiddu þau um 6.000 krónur. Kaupmenn leggja áherslu á að þegar fólk beri saman verðlag hér á landi og annars staðar verði að miða við sömu gæði. Þannig sagði Aðal- heiður Karlsdóttir eigandi barnafata- verslunarinnar Englabarna, að sama tegund af úlpu hefði verið 1.000 krónum dýrari í Selfridges í London en hér heima. Undir þetta taka fleiri kaupmenn og yfirleitt er svokölluð „merkjavara" á hagstæðara verði á Islandi en annars staðar. í nýlegu hefti tímaritsins Vísbend- Enginnjólaandi ájólamarkaðinum Fjölmargar verslanir opna útibú fyrir jólin til að mæta aukinni samkeppni JOLASKEIFAN — Ólafur Sigmundsson framkvæmdastjóri og Guðrún Ásdís Ólafsdóttir í Jólaskeifunni, þar sem 65 verslarnir hafa útibú nú fyrir jólin. UM 65 aðilar á höfuðborgar- svæðinu hafa sett á fót útibú frá verslunum sínum í Jólaskeifunni, sem opnuð var í lok nóvember og ætlunin er að reka fram að jólum. Forsvarsmenn Jólaskeif- unnar telja að slík verslun sé eðlileg viðbrögð smærri fyrir- tækja við æ stærri og fleiri versl- unarkjörnum hérlendis og versl- unarferðum íslendinga erlendis, sem hafa verið mjög algengar fyrir þessi jól. Aðstandendur Jólaskeifunnar hafa auglýst hana sem útibú til kynningar á vörum þessara 65 verslana. Einn viðmælandi Morgun- blaðsins tók svo til orða að nauðsyn- legt væri fyrir smærri verslanir að standa saman fyrir jólin þar sem um helmingur af veltu margra þeirra byggðist á því sem seldist síðasta mánuðinn fyrir jól. Það hvernig áraði fyrir jól réði í mörgum tilfellum hvort verslanirnar næðu að rétta úr kútnum eða yrðu gjald- þrota. Jólaskeifan er til húsa að Faxa- xeni, alls er hún um 1.700 fm að si,ærð og hefur hver verslun sinn bás, en þeir eru misstórir. Hlutafé- lagið sem rekur Jólaskeifuna er í eigu Trimmbúðarinnar hf., en fram- kvæmdastjóri er Ólafur Sigmunds- son, sem jafnframt er eigandi Trimmbúðarinnar. Að sögn Ólafs er boðið upp á samskonar vöru og í verslununum sjálfum. Verðið sé oftast það sama, en í sumum tilfell- um ódýrara. Á þessum jólamarkaði eru einnig heildsölur með verslun, sem væntalega geta boðið lægra verð en milliliðir gera í smásölu. Verslunareigandi í Jólaskeifunni vildi taka það fram að ekki væri um að ræða „ódýran draslmarkað" heldur væri boðið upp á vandaða vöru og mikil áhersla hefði verið lögð á það í upphafi að sem fjöl- breyttast úrval vöru yrði á boðstól- um, þannig að fólk þyrfti ekki að leita annað í jólainnkaupunum. Það hafí því verið bagalegt þegar í ljós kom að keppinautarnir, venjulegar verslanir, beittu heildsala þrýstingi til að hætta að selja vöru sína til aðila í Jólaskeifunni, vegna þess að þar fengist varan ódýrari en boðið hefði verið upp á áður. Ekki má selja jólabækurnar í Jóiaskeifunni Ætlunin hafði verið að vera með nviustu iólabækurnar á iólamarkað- inum með því að vera þar með útibú frá bókaverslun á höfuðborgar- svæðinu. Það fékkst ekki fram, því til þess þarf sérstakt bóksöluleyfi og það fá einungis bókaverslanir sem selja bækur allt árið. Ekki dugir að vera með útibú frá bóka- verslun sem fyrir er heldur þarf hvert útibú sérstakt Ieyfi. Að sögn Heimis Pálssonar framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bókaútgef- enda er röksemdin fyrir þessu sú að bækur séu það óvenjulegar vörur að réttlætanlegt þykir að hafa fasta verðlagningu til að tryggja að bók- sala sé í gangi allt árið. Því er sett það skilyrði þegar bóksöluleyfí eru veitt að menn séu með bóksölu allt árið. Að sögn Heimis þá hlýtur slíkt félag bókaútgefenda að standa vörð um rétt þeirra bóksala, sem búnir eru að undirgangast þær kvaðir sem félagið setur, til að njóta viðskipt- anna þann mánuð sem e.t.v. 70% af veltunni fer fram í. Á þessum forsendum fékk Jólaskeifan ekki bóksöluleyfi, enda sé Hagkaup með bókaverslun við hliðina á Jólaskeif- unni og því ekki langt að fara til að versla bækur. Brigður hafa verið bomar á þessa röksemdafærslu og sagt að hin raunverulega ástæða sé einfaldlega ótti við samkeppni frá Jólaskeif- unni. Einn verslunareigandinn á jólamarkaðinum sagði þessi vinnu- brögð tímaskekkju, sem vart gæri liðist nú þegar fijáls samkeppni eigi að ríkja. í því sambandi var á það bent að Hagkaup í Kringlunni hefði til dæmis ekki haft bóksöluleyfi heldur einungis Hagkaup í Skeif- unni. Heimir Pálsson staðfesti það að Hagkaup í Kringlunni væri ekki með sérstakt bóksöluleyfi og sagði að ekki hefði verið nógu vel fylgst með, þetta væru mistök sem bæri að bæta úr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.