Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
B 5
Morgunblaðið/Þorkell
JOLAVERSLUN —• Jólaverslunin fór hægt af stað í ár eins
og gerðist í fyrra, en væntingar eru um aukna verslun síðustu dagana
fyrir jól. Kaupmenn sem hafa verið lengi viðloðandi verslun segja að
íslendingar hafi ætíð látið jólainnkaupin hafa forgang.
ingar er vísað til könnunar OECD,
þar sem kemur fram að í ágúst síð-
astliðnum var verðlag á írlandi og í
Bretlandi um 20% iægra en hér á
landi og ennþá meiri munur var á
Spáni og í Bandaríkjunum. Tekið er
fram, að nægileg gögn til að bera
saman verðlag hér á landi og í ná-
grannalöndum liggi ekki fyrir ennþá,
en íslensku tölurnar hafi verið byggð-
ar á lauslegri úrtaksathugun.
Sigurður E. Haraldsson kaupmað-
ur í Elfur á Laugavegi segir að í 30
ára sögu fyrirtækisins hafí jólaversi-
unin í ár haft einna rólegastan að-
draganda. „Innkaupaferðir fólks,
sem gengur í gegnum tollmúra á
Keflavíkurflugvelli án þess að borga
nokkra tolla, hljóta að hafa áhrif á
verslunina," segir hann og bætir við
að hann verði ekki var við að fólk
sem eigi viðskipti við hann hafi minni
íjárráð fyrir þessi jól en oft áður.
Innheimtar 11,5 m.kr. í
kjölfar herts eftirlits
tollgæslu
Eftir að tollgæslan fór að herða á
eftirliti í bytjun október hafa verið
innheimtar tæpar 11,5 milljónir
króna í tolla- og aðflutningsgjöld,
að sögn Þorgeirs Þorsteinsson lög-
reglustjóra.
En hvernig skyldi hljóðið vera í
Heildsalar snúa vörn í sókn
Líkt og fyrr segir eru nokkrir
heildsalar með sölubása í Jólaskeif-
unni og í máli eins þeirra kom fram
að sú þátttaka væri einungis aðlög-
un að breyttum aðstæðum. Margar
smærri búðanna sem hefðu mest-
megnis skipt við heildsalana væru
víða dottnar upp fyrir og sumar illa
staddar fjárhagslega. Ymsir heild-
salar sæu því þann kostinn vænstan
að fara út í smásölu og ef til vill
sameinast í verslunarkeðjur sem
legðu áherslu á ódýra vöru.
Þessir nýju verslunarhættir, þar
sem verslanir eða útsölustaðir eru
settir á fót einungis til að selja
vörur fyrir jólin, vekja ugg hjá
mörgum kaupmönnum þar sem
mánuðurinn fyrir jól er aðalsölu-
tímabil þeirra. í samtali Morgun-
blaðsins við sölumann hjá fyrirtækj-
asölu sagði hann að hér á landi
væri allt of mikið af verslunum. „Nú
um jólin opna menn útibú frá versl-
unum og er það mjög alvarlegur
hlutur þar sem verið er að taka
ijómann af þeim sem reyna að burð-
ast með verslunarrekstur allt árið.“
Verslunareigendur í Jólaskeif-
unni virðast bjartsýnir þótt salan
fari hægt að stað. Telja þeir að um
eðlilega verslunarhætti sé að ræða
og útibúin séu einungis sjálfsögð
þjónusta við neytendur. Einn þeirra
sagðist búast við að áframhald yrði
á slíkum jólamörkuðum næstu ár
og líkleg þróun væri sú að verslan-
ir sameinuðust um að koma upp
ódýru stóru verslunarhúsnæði með
fjölbreyttri þjónustu, hvort sem er
til frambúðar eða einungis tíma-
bundið.
AHB
kaupmönnum á Akureyri eftir að
hátt í 2.000 íbúar á Norðurlandi fóru
í verslunar- og skemmtiferðir til
Bretlands? „Ég held að það hafi ekki
haft eins mikil áhrif á verslunina og
gefið hefur verið í skyn í fjölmiðl-
um,“ sagði einn kaupmaðurinn, sem
haft var samband við. „Jólaverslunin
hefur farið svipað af stað og í fyrra.
ekki sé búist við sömu verslun og
áður. „Verslunarferðimar gera ekki
neinn útslátt í því sambandi. Það
hefur kannski þau áhrif að fólk fer
síður til Reykavíkur að kaupa inn.
Ég held að við komum til með að
taka þátt í niðursveiflunni nákvæm-
lega eins og allar aðrar greinar."
Væntingar eru um aukna verslun
síðustu dagana fyrir jól, þrátt fyrir
hæga byijun, því eins og einn kaup-
maðurinn orðaði það: „íslendingar
halda alltaf jól. Það getur vel verið
að áfallið komi í febrúar með
greiðslukortareikningum, en jólin eru
haldin með pompi og prakt.“
Jólaverslun út á Visa greiðslukort
námu í fyrra um 4,6 milljörðum
króna og segja forsvarsmenn þess
að vanskil hafi orðið nokkur í febrú-
ar. „Það eru alltaf toppar í vanskilum
á þessum tíma, en það þynnist smám
saman út og fólk gengur frá vanskil-
um sínum,“ sagði Leifur Steinn Ei-
ríksson hjá Visa. Gunnar Bæringsson
framkvæmdastjóri Kreditkorta segir
að vanskil í febrúar í fyrra hafi ver-
ið um 30% meiri en í venjulegum
mánuðum.
Hjá Kreditkortum er búist við að
notkun greiðslukorta verði rúmlega
20% meiri í svokölluðum jólamánuð-
um, þ.e. desember og janúar, miðað
við næstu tvo mánuði þar á undan.
Hjá Visa er gert ráð fyrir 30% aukn-
ingu fyrir sama tímabil.
K Y N N I N G
Excel 3.0
fyiir Wíndows
* í dag kl.13 á 2. hæb.
EINAR J.SKULASON HF
Grensásvegi 10, Sími 68 6933
£$at Heildsali
er Reikninga-, Vidskiptamanna-, Lager- og Fjárhagsbókhald
og gerir Bókhaldiö að Bamaleik
vM Hcildsali fullnscgir öllum kröfum lftdlla og mcdalstórra fyrirtækja.
Hcildsali facrir bókhaldid Þitt sjálfkrafa um lcid og Þú gcrir rcikninga og skráir
innágrciðslur vidskdptamanna.
C5ol Hcildsali gcrir Þér kleyft ad fá allar upplýsingar um veltu og
stödu hjá fyrirtæki Þínu.
Ó6oI Heildsali fiest í einstaklega hagstæðu verdi eða á
38,000 m/vsk
Kynntu-Þér milið 1
Kfktu við f Tseknival hf eða á skrifstofuna okkar.
Þú verður ckki fyrir vonbrigðum.
Óðal Hugbúnaður hf Hafðu samband! Sfmi
Ármúli 19 Við erum alltaf Fax
við sfmann
108 Reykjavík
Sfmboði
91-679540
91-814730
984-52128
EIGNAMIÐLUNIN
Sími 67*90*90 - Sídumúla 21
ii
Sambandshúsið Kirkjusandi
er til sölu
Hér er um að ræða vandað og glæsilegt hús, sem er innréttað á þann hátt, að allar
breytingar á innra skipulagi eru auðveldar.
Flatarmál hússins er samtals um 7.000 fm. Það er á fimm hæðum og hentar vel fyrir
skrifstofustarfsemi og ýmis konar þjónustu. í húsinu eru innréttaðar skrifstofur, fundar-
salir, mötuneyti o.fl.
Lóð er fullfrágengin og á henni er mikill fjöldi bílastæða.
Húsið selst í einu lagi eða hlutum.
Auk þess eru aðrar byggingar, sem standa á lóðinni, til sölu.
Heimilt er að byggja um 10.000 fm stórhýsi til viðbótar. Samtals er lóðin um 23.000 fm.
Sambandshúsið er ein glæsilegasta skrifstofubygging í Reykjavík.
SKVll 67-90-90 SIDUMULA 21
Slurísmcnn: Svcrrir Krisíinsson, solusljóri, lögR. faslcignasali, Þórólfur Halldórsson, hdl., lögg. faslcignasali, Þorlelfur St. Guómundsson, B.Sc., sðlum., Guðmundur Sigur-
jónsson, lögfr., skjalagcrð. Guðmundur Skúli llartvigsson, lögfr., sölum., Stcfin Hrafn Stcfinsson, lögfr., sölura„ Kjartan Þórólfsson, Ijósmyndun, Áslríður Ó. Gunnars-
domr, gjaldkeri, Johanna 3 aldimarsdottir, auglýsingar, Inga Hanncsdóllir, simvarsla og rilari, Kolbnin Birgisdóllir, simvarsla og rllari, Margrcl Þórhallsdóllir, bókhald