Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
B 7
Morgunblaðið/Árni Sæberg
IMETIÐ — Klaus Moller Hansen frá Price Waterhouse í Dan-
mörku segir að fyrirtækjanet séu það sem koma skuli í rekstri lítilla
og meðalsmárra fyrirtækja.
Fyrirtækjanet
Fyrirtæki deili með
sérkostnaði ogáhættu
- segir Klaus Moller Hansen, ráðgjafi hjá
Price Waterhouse í Danmörku, og að þannig
náist sameiginleg markmið
NÁKVÆM skilgreining á eigin fyrirtæki og aðstæðum á þeim
markaði sem það starfar á er forsenda þess að menn geti nýtt
sér kosti fyrirtækjaneta þannig að slíkt samstarfsform beri þann
árangur sem til er ætlast. Þetta voru skilaboð Klaus Moller Hans-
en, ráðgjafa hjá Price Waterhouse í Danmörku, á námskeiði um
fyrirtækjanet sem fyrirtækjaform framtíðarinnar sem haldið var
hér á landi fyrr í þessari viku. Hansen talaði þar um erlenda reynslu
og gaf mönnum hagnýtar leiðbeiningar um samstarf fyrirtækja í
slíkum netum.
„Það er að sjálfsögðu mikilvægt
að hvert fyrirtæki meti kosti þess
og galla að taka þátt í samstarfi í
formi fyrirtækjaneta," sagði Hans-
en í samtali við Morgunblaðið þegar
hann var spurður að því hvort slíkt
samstarf hentaði öllum litlum og
meðalsmáum fyrirtækjum. „Ko-
stirnir eru ótvíræðir, en það er líka
hægt að benda á vissa áhættu sem
fyrirtækin taka. Þá vaknar spurn-
ingin hvort sú áhætta sé alltaf ekki
fyrir hendi í rekstrinum. Ég tel svo
vera.“
Hansen sagði helstu kostina við
fyrirtækjanet vera að fyrirtæki fái
þannig tiltölulega auðveldan að-
gang að nýjum mörkuðum og að-
föngum og kost á að kynnast nýrri
tækni og stjórnunaraðferðum. Lítil
og meðalstór fyrirtæki væru oft
ekki í stakk búin til þess að mark-
aðssetja vöru sína á erlendum
mörkuðum. „Þess eru mörg dæmi
að fyrirtæki í neti stofni sérstakt
útflutingsfyrirtæki sem sjái um að
koma framleiðslu þeirra á nýja
markaði. Það er kannski það eina
sem þessi fyrirtæki eiga samstarf
um, öðrum þáttum er haldið að-
skildum," sagði Hansen.
„Hins vegar eru fyrirtæki oft í
byijun hrædd við hliðarverkanir af
svona netsamstarfi og eiga jafnvel
sum von á því að önnur fyrirtæki
í viðkomandi neti noti tækifærið og
steli góðum hugmyndum. Menn ótt-
ast líka oft að missa viðskiptasam-
bönd í hendur annarra og að verða
áhrifalausir innan netsins."
Aðspurður hvernig menn gætu
komið í veg fyrir þetta sagði Hans-
en aðalatriðið vera að menn bæru
traust til þeirra sem þeir ættu sam-
starf við í gegnum fyrirtækjanet.
„Undirbúningurinn þarf að vera það
góður að menn viti nákvæmlega
að hveiju þeir ganga í samstarfinu
og hvert markmiðið með fyrirtækja-
netinu er. Sumum þáttum er hægt
að halda algerlega utan við netið
þannig að fyrirtækin haldi sjálf-
stæði sínu hvað þá varðar. Fyrir-
tæki í svona netsamstarfi deila með
sér kostnaði og áhættu til að ná
sameiginlegum markmiðum,“ sagði
Hansen.
Árið 1989 var sett á stofn áætlun
í Danmörku sem miðaði að því að
athuga undirtektir forráðamanna
lítilla og meðalstórra fyrirtækja við
samstarfi í formi fyrirtækjaneta.
Síðan hafa yerði sett í gang þtjú
slík net 'með íjárhagslegum stuðn-
ingi hins opinbera sem hefur sýnt
mikinn áhuga á málinu. Fyrirtaékja-
netin sem um ræðir eru sérstakt
útflutningsnet, net fyrirtækja sem
á einhvern hátt tengjast ferðaþjón-
ustu og að síðustu net fyrirtækja
varðandi umhverfistækni.
I Damörku er helmingur þeirra
fyrirtækja sem taka þátt í áætlun-
inni um fyrirtækjanet með færri en
20 starfsmenn og um 25% hafa
færri en tíu starfsmenn. „Þessi fyr-
irtæki þurfa að nýta þá möguleika
sem bjóðast í fyrirtækjanetum því
þau hafa fáa aðra. Fyrirtæki af
þessari stærð eiga oft í erfiðleikum
með að útvíkka starfsemina sjálf.
Til þess geta þau keypt annað fyrir-
tæki eða látið kaupa sig. Ef þannig
er farið að er hætta á því að hvert
fyrirtæki glati einkennum sínum og
þar með er hagkvæmnin sem upp-
haflega var til staðar horfin,“ sagði
Hansen. „Danir eru talsvert stolt-
ir af því vera fyrstir til að setja á
stofn svona áætlun um fyrirtækja-
net. Mörg önnur lönd fylgdu í kjölf-
arið og enn önnur eru að skoða
málið, sbr. ísland. Svona áætlun
miðar að því að hjálpa litlum og
meðalstórum fyrirtækjum að lifa
af í nýrri sameinaðri Evrópu. Við
verðum að markaðssetja okkur þar
upp á-nýtt með tilliti til aukinnar
samkeppni, en jafnframt að halda
kostum þessara minni fyrirtækja
sem hafa oft framtak, sveigjanleika
og hugkvæmni fram yfir þau
stærri" segir Klaus Moller Hansen
að lokum.
Ríkisbréf
gefa mjög góba
ávöxtun og hafa
sveigjanlegan
lánstíma
Ríkisbréf bera breytilega vexti sem miöast
viö vegiö meöaltal ársávöxtunar almennra
útlána hjá viöskiptabönkum og sparisjóöum.
Þessir vextir eru mjög háir í dag eöa um
17,7%. Ofan á þetta bætist aö Ríkisbréf eru
stimpilfrjáls og undanþegin eignarskatti.
Lánstími Ríkisbréfa er mjög sveigjanlegur,
eöa frá 3 mánuöum til 3ja ára, oghægt er
aö velja um innlausnardag hvenær sem er
tímabilinu.
Haföu samband viö Seölabanka íslands eöa
Þjónustumiöstöö ríkisveröbréfa. íÞjónustu-
miöstööinni færöu ókeypis vörslu, innlausn,
endurnýjun og umsjón meö ríkisveröbréfum.
Ávöxtun Lánstími
á ári, nú
Ríkisbréf 17,7% 3 mán,- 3 ár
Kalkofnsvegi 1, sími 91- 69 96 00
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, sími 91- 62 60 40
Kringlunni, sími 91- 68 97 97
1
Jltagisiifybifetfe
Metsölublaðá hveijum degi!
IÐIMLANASJÓÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950