Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 B 9 ur ofarlega á blaði. Sem dæmi um þróunina í heiminum má nefna að á síðasta ári samþykkti Bandaríkja- þing lög sem skylda lyfjaframleið- endur til að veita Medicaid afslátt. Medicaid er opinber stofnun sem hjálpar fátækum að standa undir lækniskostnaði. Hækki framleið- andi lyfjaverð meira en nemur verð- bólgu eykst afslátturinn. Stórfyrirtæki og tryggingarfélög greiða lyQakostnað sífellt fleiri starfsmanna og eftirlaunaþega. Þessir aðilar þjarma nú að lyfja- framleiðendum og fyrirtæki á borð við Medco Containment Services gætu breytt efnahagslögmálum lyfjaiðnaðarins. Medco starfar í þágu bandarískra vinnuveitenda sem greiddu á síðasta ári 1,3 millj- arða dala (78 milljarða ÍSK) fyrir lyf. Fyrirtækið fer yfir lyfjaávísanir og hefur samband við lækna sem ávísa að tilefnislausu á dýrari lyf. Um 35% læknanna fallast á að breyta lyfjagjöfinni. Eitt helsta skotmark Medco er einmitt metsöl- ulyfið Zantac. Frá því í júní hefur Medco einnig gert út lyfjafræðinga sem heimsækja lækna og ráðleggja þeim hvernig megi spara ónauðsyn- legan lyfjakostnað. Þrýstingur af þessu tagi gæti orðið til þess að lyfjaframleiðendur verði að sanna fyrir stórum kaup- endum að lyf þeirra séu hagkvæm- ari en önnur. Takist það ekki selj- ast lyfin á lægra verði eða alls ekki neitt. Rísandi sól Ofan á allt saman óttast vestræn- ir lyfjaframleiðendur aukna sam- keppni frá japönskum framleiðend- um. Japanir standa mjög framar- lega á sumum sviðum en hlutdeild þeirra á heimsmarkaði er þó innan við 2%. Hingað til hafa þeir fremur kosið að selja erlendum framleið- endum einkaleyfi en að flytja sjálf- ir út. Japan er annar stærsti lyfja- markaður í heimi og japanskir framleiðendur hafa um helming markaðarins. í fyrra seldust þar lyf fyrir 30 milljarða dala (1.800 millj- arða ÍSK). Lyfjakaup á hvern íbúa eru 40% meiri en í Bandaríkjunum. Ástæðan er ekki síst sú að japansk- ir læknar hafa stóran hluta tekna sinna af því að kaupa lyf í heild- sölu og selja þau síðan sjúklingum með hagnaði. Samkeppni um hylli lækna er gífurlega hörð. Sölumenn fara til dæmis í sendiferðir og bóna bifreiðar fyrir lækna. Álagning framleiðenda er mun lægri en á Vesturlöndum og verðstríð eru al- geng. Japansmarkaður er reyndar einnig frægur fyrir þær sakir að þar eru til sölu ýmis lyf sem aldrei fengjust samþykkt á Vesturlöndum. Yfirvöld hirða lítið um það hvort lyf hafi áhrif svo fremi að þau séu ekki skaðleg. Bandarískir lyfjaframleiðendur halda því fram að meginskýring lít- ils útflutnings Japana sé sú að þeir hagnist nógu mikið innanlands. Áætlað er að hlutur bandarískra framleiðenda á heimsmarkaði sé um 42% og lyfjaframleiðsla er vissulega ein af perlum bandarísks iðnaðar. Þarlendir framleiðendur óttast að verðsamkeppni og opinber verð- lagshöft í Bandaríkjunum muni veikja stöðu þeirra á öllum mörkuð- um. Bandarískir lyfjaframleiðendur eru öflugur þrýstihópur sem þreyt- ist seint á að minna þingmenn á öll störfin sem kynnu að tapast í kjördæmum þeirra. Nokkrir japanskir lyfjaframieið- endur undirbúa nú sókn á alþjóða- mörkuðum. Japanir leita erlendra samstarfsaðila og þeir hafa verið að koma sér upp rannsóknarstofum, verksmiðjum og markaðsskrifstof- um á Vesturlöndum. Vegna þess hve viðbragðstíminn á lyfjamörkuð- um er langur munu Japanir þó ekki láta mikið að sér kveða fyrr en þá einhvern tímann á næstu öld. En þegar Japanir talá um alþjóðavæð- ingu þá er hlustað á Vesturlöndum. Menn hlógu að Japönum þegar þeir hófu að flytja út. bifreiðar og allir vita hvernig það fór. Fjármál Chrístian Dior staulast inn íkauphöllina íParís París, Reuter Miðvikudaginn fjórða deseniber varð Christian Dior annað fran- skra tiskuhúsa tii að hætta sér inn í kauphöllina í París. Spádóm- ar sérfræðinga rættust og sala tæplega tíu af hundraði hlutafjár varð ekki sú glæsilega innganga sem stjórnarformaðurinn, Bern- ard Arnault, hafði gert sér vonir um. Boðnar voru 1,92 milljónir hlutabréfa á 410 franka hvert og þar af fóru 620.000 bréf á alþjóða- markað. Jafnvel þótt fleiri hafi skrifað sig fyrir bréfum en fengið, lækkaði gengi þeirra í París um níu af hundraði á fimm dögum, niður í 372,30 franka. Með skráningu hlutabréfanna í kauphöllum er að minnsta kosti ekki fyrst um sinn verið að útvega fyrirtækinu nýtt fjármagn, heldur að auðvelda hluthöfum að koma bréfum sínum í verð. Áðurnefnd hlutabréf voru í eigu sjö einstakl- inga. Sérfræðingar skýra verðfallið með óeðlilega háu verði bréfanna og almennum doða á frönskum hlutabréfamarkaði. Lengi hefur staðið til að gera Dior að almenn- ingshlutafélagi, en tímasetningin var afleit. Efnahagslægðin í heim- inum hefur komið hart niður á tískuhúsum og almennur glæsilifn- aður níunda áratugarins þenur ekki lengur seglin. Vegna átak- anna fyrir botni Pérsaflóa fækkaði flugfarþegum og hin mikilvægu fríhafnarviðskipti drógust enn frekar saman. Afkoma tískuhúsa segir þó varla nema formálann að sögu Dior. Þótt hlutabréfunum hafi ekki fylgt Flug Stórtap bandarískra flugfélaga annað árið / •• Y íroö Florída. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit- ara Morgunblaðsins. í fyrsta sinn í marga áratugi mun flugfarþegum í Bandaríkj- unum fækka nú miðað við næstl- iðið ár. Fækkunin í innanlands- flugi nemur um 3% miðað við árið í fyrra. Farþegar í utan- landsflugi, sem er um fjórðung- ur af flugi bandarískra flugfé- laga, verða fleiri en í fyrra en fjölgunin þar nægir ekki til að vega á móti farþegafækkun inn- anlands. Bókfært tap bandarískra flugfé- laga nam 3,9 milljöðrum dollara á árinu 1990 og á þessu ári er áætl- að tap þeirra um 1,3 milljarðar dollara. Þijú flugfélög hafa orðið gjaldþrota á árinu, Eastern. Midway og Pan Am. United, eitt öflugasta flugfélag Bandaríkj- anna, horfír fram á mesta tap í sögu þess. Framtíðarhorfurnar eru einnig daprar næstu mánuðina. Þó er tal- ið að þeir munu verða betri en sömu mánuðir í fyrra en sá saman- burður er ekki raunhæfur því í þessum mánuðum á síðasta ári hófust vandræði allra flugfélaga vegna Persaflóastríðsins og efna- hagslægðar í Bandaríkjunum. Sér- fræðingar spá því áframhaldandi erfiðleikum í flugrekstri og að það verði erfiður róður hjá flugfélögun- um að hækka fargjöldin til að rétta úr kútnum. miklar upplýsingar um fjármál Dior gefst þarna kjörið tækifæri ti! að skyggnast inn í huliðsheim frönsku tískuhúsanna. Eins og svo mörg önnnur frönsk fyrirtæki er Dior hluti af stórum eignarhald- svef. Megnið af virði fyrirtækisins má rekja til 45,7% eignarhluta í samsteypunni LVMH, sem einnig er undir sjórn Bernards Arnaults. Meðal fyrirtækja LVMH má nefna Louis Vuitton-farangur, Henessy- koníak og Dior-ilmvötn. I fyrra var hreinn hagnaður Dior 803 milljónir franka (8,58 milljarðar ÍSK) og þar af komu 710 milljónir franka (7,58 milljarð- ar ÍSK) frá LVMH. Með því að fjárfesta í Dior eru menn í raun að kaupa hlutabréf í LVMH, skreytt með nafni virts tískuhúss. Kauphallargengi hlutabréfa í LVMH hefur lækkað á undanförn- um vikum og í samanburði voru bréfín í Dior einfaldlega of hátt skráð þegar nýir eigendur fengu þau í hendur. Eins og flest önnur tískuhús hefur Dior meginhluta rekstrar- tekna sinna af því að selja fram- leiðsluleyfi. Á síðustu tveimur árum hefur framleiðsluleyfunum verið fækkað úr 280 niður í 160. Ætlunin er að finna betra jafn- vægi á milli þess afla skammtíma- tekna og vernda ímynd fyrirtækis- ins. Hin fræga hátíska i París er nánast eingöngu ætluð til kynning- ar á tískuhúsunum. Að sögn Ar- naults kosta tískusýningarnar Dior um 30 milljónir franka (320 millj- ónir ÍSK) á ári. í DAG...KL.17:15... „Eru Flugleiðir á rétíri leið ? " SIGURÐUR HELGASON forstjóri Flugleiða hf. Aðgangur er öllum heimill. S T O F A N Armula 13a, 1. hæö. VOLKSWAGEN hentugur fyrir ALLAR STÆRÐIR FYRIRTÆKJA AN VSK W Sparneytinn ® Gangviss SÉRBÚINN SENDIBÍLL ® ÞæS^gur í notkun W Auðveldur í endursölu NÝGÉRBi Stgrverð kr. 746.880 Vsk kr. 146.986 = kr. 599.894 Fjöldi fyrirtækja hefur valið vw POLO ÁN VSK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.