Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 10

Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 10
10 B . MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF-F>MMTUÖASUR '12. DESEMBER >19M Tölvupistill Holberg Másson Með fistölvu ífarteskinu Á Comdex ’91 ráðstefnunni í Bandaríkjunum í október voru kynntar margar nýjar fartölvur. Virðast þessar tölvur ætla að verða sífellt ódýrari, öflugri og léttari. Sala á fartölvum hefur aukist mjög á síðustu tveimur árum og er hún farin að koma niður á sölu á stærri tölvunum. Segjast tölvusalar ytra, sjá vaxtarbroddinn í sölu tölva koma helst fram á þessum mark- aði. Hægt er að nota slíka tölvu á þrennan hátt, á skrifstofu, á ferða- lagi og heima. íslenski markaðurinn Hér á landi hefur orðið aukning á sölu far- og fistölva, þó enn hafi ekki orðið sú gífurlega söluaukning sem hefur átt sér stað ytra. Verð á þessum tölvum hér á landi hefur lagast mikið, en það var ekki sam- keppnishæft miðað við verð á venjulegum PC tölvum. Fyrir 1 til 2 árum var verð á þessum tölvum töluvert yfir listaverði í Bandaríkj- unum. Nú er það nær listaverði. Lítil verðsamkeppni er enn, og af- Samningur Hagkaups við EJS fól í sér kaup á vélbúnaði og hugbún- aði ásamt uppsetningu og viðhaldi í allar verslanir og skrifstofur fyrir- tækisins. Lausnin sem EJS setti upp byggir að langmestu Ieyti á búnaði frá NCR Corp. sem er eitt af stærstu tölvufyrirtækjunum í heimi. Fyrr á þessu ári vakti mikla at- hygli þegar AT&T keypti NCR á um 7,6 milljónir dollara eða um 450 milljónir króna. „Tölvuvæðingin hjá Hagkaup hefur gengið mjög vel og umhverf- ið sem sett var upp þar er það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. NCR hefur því bent mönnum sérstaklega á að skoða þessa uppsetningu. Það FYRR EÐA SEINNA VELURÞÚ RICOH FAX aco" sláttur ekki jafn mikill og á stærri tölvunum. Það er áberandi að frek- ar lítið er til af hinum ýmsu fylgi- hlutum fyrir þessar tölvur, þó slík- ir hlutir finnist hér á markaðinum, svo sem ferðatöskur, lítil mótöld, mýs eða hnúða, ferðaprentarar og framboð á nauðsynlegum trygg- ingum. Ýmislegt að huga að Fjölmargar fartölvur eru á markaðinum og hæfa þær sér- hveiju verkefni mjög misjafnlega, þær minni eru að mestu jafnokar þeirra stærri og í flestum tilfellum duga þær. Má helst skipta fístölv- unum í tvo hópa, þann eldri með 8088 eða 286 örgjörvum eða 386SX fístölvum. Fyrir þá sem þurfa einungis að skrifa bréf duga eldri tölvumar vel, ókostur er þó að lítið eða ekkert framboð er á nýjum slíkum tölvum og em því þær byggðar á eldri tækni sem gerir þær m.a. þyngri og dýrari. Allar nýjustu fístölvumar eru byggðar á 386SX eða þaðan af er mikið um að fyrirtæki séu með móðurtölvur fyrir og því er kannski bara verið að kaupa afgreiðslukassa eða millitölvur svo eitthvað sé nefnt. Því er verið að tengja þetta í nokk- urs konar frumskógarumhverfi, en hjá Hagkaup var um að ræða alger- lega hreint umhverfi með nýjum búnaði og þetta er fyrsti staðurinn sem kerfið er þannig sett upp. Við notum til þess nýja tölvulínu frá NCR,“ sagði Örn. „Viðskiptaráð Taiwan hefur boð- ist til.að taka á móti okkur og und- irbúa heimsóknina,“ segir Stefán Guðjónsson, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra stórkaupmanna. „Þeir hafa jafnframt boðist til að setja upp sýningu fyrir íslenska útflytjendur. Síðan verða skipulagð- ir fundir með hugsanlegum við- skiptaaðilum." Stefán segir að Taiwan sé mjög auðug þjóð og Taiwanbúar eigi því að vera mjög sterkir kaupendur. hraðvirkari örgjörvum og keyra mjög vel Windows 3. Allar tölvur sem eru á markaðinum og nota rafhlöður eru með svart/hvítan skjá. Apple kynnti á Comdex ’91 nýjar afar áhugaverðar fistölvur og bestu hönnun sem sést hefur á slíkum tölvum. Þær hafa m.a. inn- byggðan hnúð til að stýra bendlin- um. Engar venjulegar ferðatrygg- ingar duga ef ferðatölvur verða fyrir hnjaski eða brotna t.d., við það að detta, en fæstar fartölvur þola að detta úr hendi í hart gólf. Þetta er mjög slæmt þar sem þær eru frekar dýrar og örugglega það dýrasta sem tekið er með heim eða í ferðalag. Væri nauðsynlegt að hægt væri að tryggja sig fyrir slíku. Góð sérhönnuð ferðataska fyrir fistölvur er afar mikilvæg og verndar tölvuna vel auk þess að þar er hægt að geyma aukahluti. Nauðsynlegt er að skrá tölvuna og alla dýra fylgihluti þegar farið er úr landi, þar sem tollyfírvöld gefa ekki kost á að fylla út þessi eyðublöð fyrirfram. Þó slíkt taki tíma við brottför má skrá þessar upplýsingar á límmiða og líma hann á eyðublaðið. Ýmis hug- búnaður sem notar aðgerðarlykla er ekki eins aðgengilegur á minni lyklaborðum og þeim stærri og getur verið nauðsynlegt að hafa með hnappamát til að finna rétta aðgerðarlykla. Nauðsynlegt er fyrir flesta sem ferðast með tölvu að eiga mögu- leika á að prenta gögn. Nokkrir mjög góðir físprentarar eru komn- ir á markaðinn og reyndist Citizen PN48 prentarinn vel. Ýmis önnur ráð eru til eins og t.d. að hafa með fax mótald og senda skjalið sem prenta á á næsta fax, t.d. frá hótelherbergi niður í afgreiðslu hótels. Eins og kom fram í grein um sama mál fyrr á þessu ári er aðstaða í Evrópu mun lakari fyrir tengingar mótalda og faxa við sím- akerfíð heldur en í Bandaríkjunum. Þetta virðist þó vera að lagast en á þó langt í land. Aðstaða í setu- stofum á flugvöllum hefur lagast og er aðstaðan hjá Flugleiðum í New York sú besta í betri setustof- um, en þar er nú skrifborð með síma sem hægt er að tengja við bæði mótald og fax og greiða fyr- ir notkun með greiðslukorti. Væri óskandi að slík aðstaða væri til á fleiri stöðum. „Vöruskipti íslands eru jákvæð við Taiwan og sú skýring hefur verið nefnd að það þyrfti svo mikið magn til að geta átt viðskipti við landið. Þetta er ekki rétt því fyrirtæki þar eru samningslipur og sveigjanleg í afgreiðslu á vörusendingum.” Hann segir heimsóknina þannig m.a. vera lið í baráttunni fyrir Iækkuðu vöru- verði á íslandi. Tilgangurinn með henni sé að koma á nýjum viðskipt- um og fínna nýja markaði. Tækifærið var notað þegar farið var, fyrr í haust, fyrst á Telecom ’91 símaráðstefnuna í Genf og á Comdex ’91 tölvusýninguna í Las Vegas og voru AST 386SX og Tulip 386SX fístölvur með í far- teskinu, í bæði skiptin með Citizen PN48 fistölvuprentara. Reyndust báðar tölvumar og prentarinn vel og skiluðu á nokkrum dögum um það bil 1 til 3 klukkutíma aukningu á hagnýtum vinnutíma á dag, þar sem í tölvunum var hægt að hafa meðferðis töluvert af gögnum og upplýsingum sem hægt var að vinna með. Auk þess sem tíminn var notaður til að semja texta. Ef fístölva á að auka aíköst, þegar hún er tekin með í ferðalag verður hún að hæfa verkefninu og hafa bæði þann hugbúnað og aukahluti sem duga. Rétt er líka að hafa í huga að notkun á tölvum í viðskipt- aferðalögum er nýbreytni sem m.a. kallar á ákveðinn sjálfsaga við að nýta tíma sinn. Hvað er framundan? Fistölvur vega flestar núna á „í umræddri grein kemur fram að Prentsmiðjan Edda hf. hafi verið til sölu um langan tíma. í sömu setningu er bent á að önnur prent- smiðja hafi fengið greiðslustöðvun og síðan er komist að þeirri niður- stöðu að menn séu orðnir lang- þreyttir á baslinu og jafnvel orðnir hræddir um gjaldþrot. Sá sem ekki þekkir til reksturs Prentsmiðjunnar Eddu hf. gæti skil- ið þetta sem svo að sú prentsmiðja ætti í miklum rekstrarerfiðleikum og að eigendur væru árangurslaust að reyna að losa sig við vandamála- rekstur. Hið sanna í málinu er hins- vegar það, að eftir töluverða endur- skipulagningu á rekstri Prentsmiðj- unnar Eddu hf. á síðastliðnum tveimur árum hefur rekstur prent- smiðjunnar tekið miklum stakka- skiptum þannig að í dag skilar prentsmiðjan hagnaði. Á aðalfundi 1991 var heimiluð hlutafjáraukning um 25 m.kr. og hefur á þeirri stundu sem þetta er ritað verið aukið um 10 m.kr. Eiginfjárstaða Prentsmiðjunnar Eddu hf. verður að teljast vel viðunandi ef tekið er mið af bókfærðu verði eigna en mjög góð ef tekið er mið af mark- aðsvirði eigna. Á aukaaðalfundi Prentsmiðjunn- milli 3 og 4 kg, búast má við að þær verði léttari á næsta ári eða milli 2,3 til 3 kg. Harðir diskar eru í dag stærstir um 80 MB en á næsta ári munu koma 100-120 MB diskar. Hraðvirkari mótöld koma á markaðinn, frá 9600 til 14400 baud og flest slík mótöld munu geta sent og tekið á móti faxi. Innbyggð mús eða hnúður, mun fylgja flestum fístöLvum. Betri skjáir, með möguleika á tengingu í litaskjá með góðri litaupplausn. Ný tegund rafhlaðna mun endast lengur og verður hægt að hlaða í flýti. Og síðast en ekki síst, mun verð lækka um 25 til 45% á næsta ári á nýjustu tölvunum. Það sem mun ekki koma á markaðinn í nánustu framtíð er; ódýr fistölva með litaskjá, fistölva sem brotnar ekki þegar hún dettur, og innbyggð samskipti sem byggja á farsíma- tækni og mótaldi. Höfundur starfar við tölvu- ráðgjöf. ar Eddu hf. 23. október 1991 voru samþykktar þær breytingar á sam- þykktum fyrirtækisins að einstakl- ingum er gert mögulegt að nýta sér kaup á hlutabréfum fyrirtækisins til frádráttar á skattskyldum tekj- um. Þannig hafa allar hömlur á viðskiptum með hlutabréf Prent- smiðjunnar Eddu hf. verið afnumd- ar og fyrsta skrefíð verið stigið í þá átt að bjóða út hlutabréf fyrir- tækisins á almennum markaði. Um þá fullyrðingu að Prentsmiðj- an Edda hf. hafí verið til sölu um langan tíma er það að segja að um all langt skeið hafa ýmsir aðilar sýnt áhuga á því að kaupa hlut Sambandsins í Prentsmiðjunni Eddu hf. Sambandið hefur að sjálf- sögðu rætt við alla slíka aðila en ekki hefur orðið af sölu, meðal ann- ars vegna þess að Sambandið hefur ekki verið að vinna að sölu á eignar- hlut sínum í fyrirtækinu. Þannig að sú fullyrðing að Sambandið hafi verið með Prentsmiðjuna Eddu hf. til sölu í langan tíma er algjörlega úr lausu lofti gripin. Á síðustu mánuðum hefur rekstr- arsvið Prentsmiðjunnar Eddu hf. verið breikkað enn frekar með það að markmiði að geta betur en áður sinnt þörfum viðskiptavina sinna.“ Tölvur Tölvuvæðing Hagkaups vekur athygli erlendis UPPSETNING Einars J. Skúlasonar hf. á tölvukerfi í Hagkaup, sem um var samið í byrjun þessa árs,. hefur vakið töluverða athygli meðal verslunarkeðja í Evrópu. Að sögn Arnar Andréssonar, sölu- og markaðsstjóra hjá EJS, hafa þegar komið hingað fulltrúar stórr- ar verslunarkeðju í Grikklandi og aðilar frá Bretlandi og Hollandi eru væntanlegir til landsins á næstunni til að skoða uppsetninguna. Utanríkisviðskipti Stórkaupmenn efna til hópferðar til Taiwan FÉLAG íslenskra stórkaupmanna mun efna til hópferðar til Taiwan í byrjun apríl á næsta ári og verða með í för forráðamenn bæði inn- og útflutningsfyrirtækja. Tvær viðskiptasendinefndir hafa komið hingað til lands frá Taiwan á þessu ári og voru þar á ferð bæði opinberir embættismenn og fulltrúar innflutnings- og útflutningsfyr- irtækja. Er nú fyrirhugað að endurgjalda þær heimsóknir enda hef- ur viðskiptaráð Taiwan eindregið hvatt til aukinna samskipta ríkj- anna. Síðari nefndin sem hingað kom hélt m.a. fjölmennan fund með útflutningsráði stórkaupmanna þar sem ræddir voru möguleik- ar á auknum útflutningi Islendinga til Taiwan. Um 40 óháð útflutn- ingsfyrirtæki eiga aðild að ráðinu. Athugasemd frá stjórn- arformanni Eddu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Birni Ingimarssyni stjórnarformanni Prentsmiðjunnar Eddu hf. í tilefni greinar sem birtist í viðskiptablaði Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.