Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐlÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTÚDAGUR 12. DESEMBER 1991
B 11
Stjórnun
Dagskhma
frá degi tíl dags...
... er haukur í horni fyrir þá sem skipuleggja
vilja tíma sinn. Dagskinna er nýtt íslenskt dag-
bókarkerfi, klætt í fyrsta flokks kálfskinn. Allar
upplýsingar eru á íslensku, lagahar að íslenskum
aðstæðum og Dagskinnu fylgir fjögurra tíma
námskeið í tímastjórnun.
Dagskinna er árangurs-
ríkt dagbókarkeríi í glæsi-
legum búningi. Hún er
góð gjöf og ekki síðri eign,
Dagskinnan fæst í þremur litum
og tveiinur stærðum, sú minni á
7.900,- kr. og sú stærri á
7.900»‘l 9.900,- kr. lnnifalið í
verði er gylling á nafni
eiganda Dagskinnunnar.
Kynntu þér Dagskinnu
frá Leðuriðjunni hf.
Mlson
Alson-Lcfturiftjan
Hverfisgötu 52 • 101 Heykjnvík
Síini 91-2 14 58 • Fax 91-2 14 54
ekki bara ofnar.
...líka
Læstir fataskápar
á vinnustöðum og
í búningsherbergjum
leysa margan vanda
og eru í mórgum
tilfellum brýn
nauðsyn.
Fataskáparnir frá
Ofnasmiöjunni eru úr
epoxyhúðuðu stáli,
- fáanlegir í mörgum
litum. Breiddir 25,30
og 40 cm -hæð 170 cm,
-dýpt 55 cm.
Þá má festa á vegg
eða láta standa
frítt á gólfi. Skápunum
má raða saman eða
hafa eina sér.
fyrir
vinnustaði
og búningsklefa
HÁTEIGSVEGI 7,
Hópákvörðun tryggir ekkirétta ákvörðun
eftir Marinó G. Njálsson
Margt fólk leitar einfaldrar
lausnar á óvissuatriðum við ákvörð-
unartöku: Það fær fleira fólk til liðs
við sig, vegna þess að það heldur,
að með því að láta marga góða
heila vinna saman komi örugglega
góð ákvörðun.
Því miður er þetta rangt. Það
skiptir ekki máli hversu vel gefnir
meðlimir hópanna eru, hóparnir
verða ekki ofurmannlegir. Hópar
standa sig eingöngu betur en ein-
staklingar að því marki að ágrein-
ingur verður á milli þátttakenda,
sem þeir geta leyst sín á milli með
rökræðum og nákvæmari upplýs-
ingaöflun. Þegar slíkt gerist, er lík-
legt að hópur skilji viðfangsefnið
betur en einstaklingur og komi með
viturlegri niðurstöðu. Þegar það
gerist ekki, eru hópar jafn líklegir
og einstaklingar til að gera mistök,
ef ekki líklegri.
Gæði rökræðu innan hóps veltur
á því hve vel tekst að greiða úr
ágreiningsefnum og skoðanamun. í
upphafi er rétt að hvetja aðila til
að koma fram með ólík viðhorf. Og
aðeins þegar staðreyndir, áætlanir
og vel rökstuddar skoðanir hafa
verið settar fram er rétt að hópur-
inn fari að nálgast niðurstöður. Ef
hópurinn í heild er á því, að ákvörð-
unin hafi verið tekin með því að
fylgja góðu ferli, er líklegt að hún
reynist vel.
Hvers vegna bregðast
hópar?
Hópum af vel gefnu fólki er oft
illa stjórnað. Meðlimir sættast oft
í fljótfærni á ranga lausn. Síðan
gefa þeir hverjum öðrum svörun,
sem lætur hópinn halda að hann
hafi valið rétt. Meðlimir letja hvern
annan til að skoða veiku hliðarnar
í vinnu þeirra. Eða að hópar skip-
ast í algjörlega andstæðar fylking-
ar, sem gerir rökrétta og samstillta
ákvörðunartöku alveg vonlausa.
Irving Janis setti fram í bók sinni
Groupthink ýmsar kenningar um
það hvers vegna hópar bregðast.
Hann rannsakaði fjöldann allan af
hópákvörðunum og komst að því,
að þær áttu ýmsa sameiginlega
þætti, sem virtust saklausir í upp-
hafi, en höfðu haft ógnvænlegar
afleiðingar í förm með sér. Þessir
voru helstir:
1. Snmstaðu. Meðlimir þekktu
og kunnu vel hver við annan og
vildu halda einingu innan hópsins.
2. Einangrun. Hópar sem gerðu
sig seka um villur voru oft að taka
ákvarðanir í fullri leynd, þannig að
ekki var hægt að bera ákvörðunina
undir óháða aðila.
3. Mikið álag. Mikilvægi
ákvörðunarinnar, hve margbrotin
hún var og þröng tímamörk settu
mikinn þrýsting á hópinn.
4. Sterkur leiðandi stjórnandi.
Formaður nefndarinnar gerði öllum
ljóst strax í upphafi hvaða niður-
stöðu hann/hún var fylgjandi.
Allir þessir þættir vinna saman
við að mynda það sem kallað er í
dag „hóphugsun“. Samstaða, ein-
angrun og mikið álag gera það
venjulega að verkum að hópar kom-
ast of fljótt að niðurstöðu, oft með
því að styðja það sem formaður
hópsins lagði fyrst til. Hóparnir
beina síðan athyglinni nær ein-
göngu að upplýsingum, sem styðja
skoðanir þeirra. „Við erum búnir
að negla það niður,“ mundu nefnd-
armenn síðan segja hver við annan.
Hóphugsun verður til þess, að
annars vel hæfir einstaklingar, gera
glappaskot. Janis telur að hóphugs-
un sýni líka eftirfarandi einkenni:
— Sjálfsritskoðun nefndar-
manna, sem forðast að tala gegn
álitil meirihluta áf ótta við að gert
verði grín af þeim eða vegna þess
að þeir vilja ekki að tími hópsins
fari til ónýtis,
— þrýstingur á fólk innan hóps-
ins, sem er ósammála áliti meiri-
hlutans, til að koma í veg fyrir að
samstaða rofni,
— blekking um styrk, sem er
mjög algeng þegar stór aðili ætlar
að ráðskast með þann sem talinn
er minnimáttar,
— villandi og einhæft álit á fólki
utan hópsins, eins og við höfum oft
heyrt í pólitík Vesturlanda er
„kommunum ekki treystandi".
I öllum tilfellum leiðir hóphugsun
til þess að of fáir möguleikar eru
skoðaðir og of fá markmið tekin inn
í myndina. Fyrsta afmörkun við-
fangsefnisins eða möguleiki, sem
sett er fram er jafnan hrint í fram-
kvæmd án tillits til hvort það er
gott eða slæmt. Upplýsingaöflun
er einhliða, sérstaklega varðandi
hættuna, sem felst í fyrirfram
mynduðum skoðunum hópsins.
(Akvörðunartakar klikka oft á því
að kynna sér skýrslur, sem draga
fram villur í lykilforsendum þeirra.)
Jafnvel þó hópur verði hóphugs-
un ekki algjörlega að bráð, þá líða
flestar hópákvarðanir fyrir það, að
fólk hneigist frekar að normi hóps-
ins, en að segja álit sitt beint út.
Hópar virðast þurfa einhvers konar
staðfestingu til að virka. Og ef inn-
an hóps er fólk með mismunandi
og jafnvel andstæðar skoðanir á
afmörkun viðfangsefnisins, er
hætta á að samkomulag náist ekki.
En það er jafn hættulegt fyrir ein-
staklinga hópsins að tapa sinni
sjálfstæðu skoðun.
Ef löngunin til að þóknast öðrum
getur breytt einföldu mati, þá er
ekki óeðlilegt að hægt sé að hafa
áhrif á skoðanir fólks í flóknari
málum. Kenningin er að betur sjá
augu en auga, en fólk hefur oft
þannig áhrif hvert á annað að það
kemur í veg fyrir að sjálfstæðar
skoðanir séu settar fram.
og svo koll af kolli upp stigann.
Þannig geta allir sagt sína skoðun
án þess að þurfa að hafa áhyggjur
af því hvort hún stangast á við
þegar fram setta skoðun yfirboðara
síns.
Líklega er stærsta hindrunin í
vegi hópákvörðunar sú hugsun, að
ágreiningur sé af hinu slæma.
Ágreiningur (um hugmyndir) er
nauðsynlegur og mikilvægur, ef
hópákvörðun á að ná út fyrir hóp-
hugsun. Þegar ágreiningur verður
þar sem gagnkvæm virðing er, leið-
ir hann til heilbrigðari skoðana-
skipta og betri niðurstöðu. Þannig
heilbrigð skoðanaskipti verða helst
þar sem stjórnandinn skilur þörfina
fyrir velmótaðar spurningar, hópur-
inn hefur misleita meðlimi og hann
notar ferli, sem er sniðið til að koma
í veg fyrir að samkomulag náist of
snemma.
INNKAUPA-
KÖRFUR
Níðsterkar og endingar-
góðar innkaupakörfur.
Bæði til krómaðar
og úr plasti.
Hjólagrindur eru
einnig fáanlegar
undir körfurnar.
VERSLUNARTÆKNI HF.
VATNAGÖRÐUM 12 REYKJAVÍK SlMI 688078
Hvernig á að stjórna
ákvörðunartöku innan
hópa?
Að móta viðfangsefnið vandlega,
er líklega mikilvægara í hópákvörð- '
un, en hjá einstaklingi. Á meðan
einstaklingur sem tekið hefur ranga
stefnu getur farið aftur á byijunar-
reit, þá á hópur sem þannig er kom-
ið fyrir erfiðara með að bakka yfir
margvíslegt samkomulag og vænt-
ingar, sem orðið hafa innan hópsins.
Þar sem áhrifa hóphugsunar
gætir, næst samkomulag venjulega
of fljótt. Það er ekki alltaf slæmt,
t.d. ef hópurinn hefur ekki mikinn
tíma til ítarlegrar umræðu og
stjórnandi hópsins er .nokkuð ör-
uggur um lausn þess vanda, sem
við er að glíma. Þannig er oft með
samráðsfundi innan fyrirtækja.
Þegar stjórnandi hópsins vill að
hópurinn leggi eitthvað til, ætti
hann/hún að leita eftir ólíkum hug-
myndum. Það þýðir að stjórnandinn
ætti að:
— Sitja á sínum skoðunum fyrst
um sinn,
— óska eftir nýjum hugmyndum
og gagnrýni,
— tryggja að hópurinn hlusti á
skoðanir minnihlutans.
Japönsk fyrirtæki hafa forvitni-
legan sið, sem gæti verið þess virði
að taka upp: Þar er það megin-
regla, að lægst setti einstaklingur-
inn fær að segja sína skoðun fyrst
Höfundur er með meistara- og
verkfræðigrádu í aðgerðarrann-
sóknum frá Standford-háskóla
með ákvörðunarfræði sem sérsvið.
Hann rekur eigin ráðgjafarþjón-
ustu..