Morgunblaðið - 16.01.1992, Side 1

Morgunblaðið - 16.01.1992, Side 1
HEILDSALA: Breyttir tímar kalla á breytt ráö /4 IÐNAÐUR: Umtalsveröur árangur af vöruþróunarátaki /8 VEDSKIFn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. JANUAR 1992 BLAÐ B Einkavæðing Stórfelld einkavæðingá döf- inni hjá Reykjavíkurborg REYKJAVÍKURBORG hefur frá sl. hausti unnið að undirbúningi mjög umfangsmikillar einkavæðingar í starfsemi sinni. Á þessu ári verða hafnar tilraunir með útboð á almennri sorphirðu í ein- stökum hverfum borgarinnar, að sögn borgarstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar. Hann segist vonast til þess að hægt verði að breyta Pípugerð Reykjavíkurborgar í hlutafélag eða selja fyrir- tækið á næstunni. Þá er verið að meta kosti og ókosti þess að breyta Rafmagnsveitu Reykjavíkur í hlutafélag eða sameina hana Hitaveitu Reykjavíkur. Frá síðasta hausti hafa ýmis önnur atriði verið könnuð með einkavæðingu í huga og hefur borgarstjóri m.a. nefnt rekstur Malbikunarstöðvar Reykjavíkur og Strætis- vagna Reykjavíkur. Markús Örn segir að útboð á sumarblómum og trjám verði hafín í sumar. „Gróðrastöð borgarinnar í Laugardal hefur séð borginr.i fyrir sumarblómum og trjáplönt- um og auk þess hafa verið við- skipti við Skógræktarfélag Reykjavíkur í Fossvogi. Aðrar gróðrastöðvar hafa ekki komið við sögu. Við ætlum að stefna að því að hefja útboð á að a.m.k. ein- hverjum hluta af því sem við þurf- um að planta á næsta sumri til að fá fram samanburð á verði og kanna markaðsástand." Borgarstjóri segist vonast til að tilraunir með útboð á sorphirðu hefjist á árinu og segir hann Breið- holtshverfi helst hafa verið nefnt í því sambandi. Hann nefnir sér- staklega að einkareknar gáma- stöðvar hafi staðið sig vel í sorp- hirðu. Borgarstjóri telur nauðsyn- legt að prófa sig áfram í ákveðnum hverfum í borginni þar sem það taki einkafyrirtæki tíma að koma sér upp þeim tækjabúnaði sem þurfi til almennrar sorphirðu. Um einkavæðingu strætisvagn- anna segir Markús Örn að borgin hafi rætt um samstarf við nýja fyrirtækið Almenningsvagna höf- uðborgarsvæðisins, sem er að taka að sér samgöngurnar í nágranna- byggðunum. Enn sé þó margt óljóst í þeim efnum. „Umræður hafa verið um það frá sl. hausti innan meirihluta borgarstjórnar að til greina komi að huga að breytingum á rekstrar- formi orkufyrirtækja. Menn eru þá fyrst og fremst með það í huga að Rafmagnsveita Reykjavíkur verði gerð að hlutafélagi, annað hvort algjörlega í eigu borgarinn- ar, eða með það að markmiði að selja hluta á almennum mark- aði.„Þetta eru stórar pólitískar ákvarðanir og breyting í þessa átt yrði mjög í anda þeirrar stefnu sem ríkisstjórnin hefur mótað og stefnuskrár Landsfundar Sjálf- stæðisflokksins.’ í henni er tekið fram að það beri að breyta rekstri orkuveitufyrirtækjanna og sam- eina rafmagnsveitur og hitaveitur í eitt fyrirtæki. Það er ein hlið sem við hljótum að kanna hér í Reykjavík með Rafmagnsveituna annarsvegar og Hitaveituna hins vegar, ekki síst þar sem stefnt er að því að Hitaveitan fari að fram- leiða rafmagn á Nesjavöllum í framtíðinni," segir Markús Örn. Verslunarráð íslands sendi Borg- arráði bréf fyrr í vikunni þar sem ráðið óskaði eftir því að hafist yrði handa við að kanna af fullri alvöru einkavæðingu hjá Reykjavíkurborg. Aðspurður hvert væri svar borgarstjóra við bréfi Verslunarráðs sagði Markús Örn að borgin hefði verið með þessa könnun í gangi frá sl. sumri og væri hún nú langt komin. Hann tók fram að borgarfulltrúar hefðu verið samstíga í einkavæðingará- formum og ekki þyrfti hvatningu frá Verslunarráði til þess. Vegin meðaltöl 14 12 10 F M J J VAXTAÞROUMN á sl. ári einkenndist sem ö 0 N kunnugt er af miklum sveiflum á raunvaxtastigi óverðtryggðra lána. Hér að ofan sést vaxtaþróunin á sl. ári og fram á þetta ár. Vextir óverðtryggðra lána eru nú svipaðir og á fyrri hluta sl. árs áður en verðbólgan fór af stað með slæmum afleiðingum fyrir bankana þar sem ekki tókst að láta nafnvaxtastigið haldast í hendur við verðbólguna. Aðstæður eru hins vegar allt aðrar um þessar mundir enda er búist við að verðbólgan verði aðeins 2-3% á árinu og skilyrði séu jafnvel að skapast fyrir raunvaxtalækkun. Rádgjafar Landsbréfa hf. veita fyrirtækjum víðtæka ráðgjöf um viðskipti á hlutabréfamarkaði, sem felur meðal annars í sér eftirfarandi: m LANDSBRÉF H.F. S Landsbankinn stendur með okkur | Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598 s Löggilt verðbréfafyrirtæki. Adili að Verðbréfaþingi íslands * • Mat á verðmæti hlutabréfa. • Aætlanir um opnun fyrirtækfa og sölu hlutabréfa á almennum markaði. • Undirbúning og framkvæmd hlutafjárútboða. • Tengsl við Verðbréfaþing Islands. • Skráningu hlutabréfa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.