Morgunblaðið - 16.01.1992, Page 3

Morgunblaðið - 16.01.1992, Page 3
morgunblaðið' VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF fimmtudagur 16. janúar 1992 B 3 Fyrirtæki Verðbréfaviðskipti VÍB um 35 milljarðará sl. ári VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI hjá VÍB, Verðbréfamarkaði íslands- banka hf., á árinu 1991 námu tæplega 35 milljörðum króna og er það liðlega tvöföldun frá veltu ársins 1990. Sala verðbréfa nam alls 24,2 milljörðum en verðbréfakaup 10,2 milljörðum. Alls voru seld skuldabréf fyrir 23,2 milljarða en-hlutabréf fyrir liðlega 1 milljarð. Af skuldabréfum seldist mest af skuldabréfum og víxlum banka og sparisjóða eða samtals fyrir 13,8 milljarða, samkvæmt upplýs- ingum VIB. Næst komu Sjóðsbréf VIB sem seldust fyrir 3,1 milljarð en þar af voru Sjóðsbréf 1 seld fyrir 1,2 milljarða króna en inn- leyst voru Sjóðsbréf 1 fyrir tæp- lega 1,9 milljarða króna. Spari- skírteini ríkissjóðs voru seld fyrir um 2,8 milljarða króna, húsbréf fyrir 1,1 milljarð og önnur skulda- bréf fyrir 2,2 milljarða. Af hlutabréfum seldist mest af hlutabréfum í Hlutabréfasjóðnum hf. eða fyrir 135 milljónir og í Hlutabréfasjóði VÍB fyrir 133 milljónir. Þá komu hlutabréf í Flugleiðum sem seld voru fyrir 118 milljónir og þá hlutabréf i Eimskip Hlutabréfamarkaður og Granda sem seld voru fyrir 70 og 67 milljónir. Birgðir hlutabréfa voru lengst af miklar á árinu, um 20-30 milljónir á fyrri hluta ársins en 50-60 milljónir á síðari hlutan- um m.v. lok hvers mánaðar. Lækk- un á verði hlutabréfa um nálægt 10% að jafnaði frá september til ársloka ollu tapi á viðskiptum með hlutabréf á þeim mánuðum um yfír 5 milljónir króna. Vegna góðr- ar sölu í desember voru hins vegar birgðir í árslok aðeins 8 milljónir króna og viðskipti með hlutabréf á árinu öllu voru rekin með hagn- aði. Eignir verðbréfasjóða í vörslu VÍB voru liðlega 4 milljarðar í lok ársins 1991. í upphafi ársins 1991 voru eignir sjóðanna liðlega 5 milljarðar og jukust framan af í tilkynningu sem aðstandendur Enskilda skýrslunnar, Seðlabank- inn, Iðnþróunarsjóður og Verslun- arráð, sendu frá sér í gær kemur fram að stjórnendur nokkurra hlutafélaga hafi þegar lýst því yfir að þeir muni sækja um skrán- ingu hlutabréfa sinna á Verðbréfa- þingi íslands. Stjórnendur nokk- urra annarra hlutafélaga hafa lýst því yfir að þegar reglur þingsins verði tilbúnar muni þeir leggja til við stjórn að sótt verði um skrán- ingu hlutabréfa. VASKHUGI Byrjaðu nýtt ár með bókhaldið á hreinu. Vaskhugi er forrit, sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfaldleika í notkun. Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölukerfi, birgðir, uppgjör vsk., verkefnabókhald, jafnvel einföld ritvinnsla.allt í einu kerfi á mjög hagstæðu verði. Námskeið verða haldin í febrúar, bæði fyrir byrjendur og þá, sem lengra eru komnir. Fáðu nánari upplýsingar hjá okkur í síma 656510. íslensktæki, Garðatorgi 5, Garðabæ. K Y N N I N G Words fyrir Windows í dag kl.13 á 2. hæb. •4— i --------, EINAR J.SKULASON HF Grensásvegi 10, Sími 68 6933 árinu í 5,3 milljarða í maí og 5,1 milljarð í júlí sl. Á síðari hluta ársins minnkuðu eignir verðbréfa- sjóðanna vegna innlausnar Sjóðs- bréfa umfram sölu um nálægt l milljarð. Fjármunir í vörslu VÍB nema nú alls liðlega 7,5 milljörð- um. Starfsmenn YÍB voru 36 í lok ársins en 35 í ársbyijun. Reiknað er með því að fyrirtækið hafi ver- ið rekið með hagnaði á árinu 1991 en mun minni en á síðustu árum. Þá breytingu er einkum að rekja til breyttra markaðsaðstæðna á verðbréfamarkaði á árinu 1991 og til aukinnar samkeppni. Nýjar reglur Verð- bréfaþings taka gildi STEFNT er að því að nýjar reglur um Verðbréfaþing íslands taki gildi um næstu mánaðamót en þær eru liður í framkvæmd til- lagna Enskilda Securities um verðbréfamarkað hér á landi. Helstu atriðin í nýju reglunum varða sjálfstæði Verðbréfaþings, skipun sljórnar, upplýsingakerfi og gjaldskrá. Samkvæmt drögum að reglum verður slakað á formkröfum vegna umsókna um skrán- ingu hlutabréfa á þinginu á aðlögunartímabili sem stendur frá 1. febrúar til 1. júlí. Gert er ráð fyrir að á þeim tíma verði fyrir- tækjum heimilt að sækja um skráningu á grundvelli ársreiknings 1990, milliuppgjörs 1991 eða ársreiknings 1991 og bæklings með viðbótarupplýsingum í stað þess að upplýsingar séu í einu skjali. Unnið hefur verið að breyting- um á tölvukerfi þingsins og mun þeim breytingum væntanlega ljúka í mars nk. Einnig hefur ver- ið unnið að kynningu á Verðbréfa- þingi íslands og fyrirhuguðum breytingum. Fyrirhugað er að ný stjórn Verðbréfaþings skipuð 7 aðilum taki til starfa þann 1. júlí nk. Er gert ráð fyrir 2 fulltrúum hluta- félaga, 1 fulltrúa Seðlabanka, 2 fulltrúm þingaðila og 2 fulltrúum kaupenda. H0VIK*STÁL Lagerhillur Vörubrettahillur Hillubúnaður fyrir allar þarfir! HF.OFNASMIDJAN HÁTEIGSVEGI 7, S: 21120 VERSLAR ÞÚ VIÐ BANDARÍKIN ? Þeir hjá Ambrosio vita allra best hvernig koma á vörusendingum hratt og örugglega til og frá íslandi. REYNIR GÍSLASON, ÍSLENSKUR STARFSMAÐUR UJÁ AMBROSIO, HEFUR ÞAÐ SÉRVERKEFNI AÐ ANNAST SENDINGAR TIL OG FRÁ ÍSLANDI. Ambroslo Shipping Company hefur sérhæft. sig í flutningum frá Bandaríkjunum til íslands í rúm 30 ár. Fyrirtækið hefur aðsetur í New York og Norfolk. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen hf. er umboðsaðili Ambrosio á íslandi. Ambrosio annast flutninga- miðlun, sækir vörur innan Bandaríkjanna, sér um alla pappíra, og kemur sendingum í flug- eða sjófrakt. í sameiningu bjóða Skipaafgreiðsla Jes Zimsen og Ambrosio bætta flutningaþjónustu frá Bandaríkjunum: safnsendingar í flugi frá New York. GÓÐ OG HRÖÐ ÞJÓNUSTA Á FRÁBÆRU VERÐI. B R O s j o> ^ / p p I ^ Virginia: Sími: 90-1-804-523-411, fax: 90-1-804-523-6190. New York: Sími: 90-1-718-244-6294, fax-. 90-1-718-995-4293 skipaafgneiösla jes zimsen hf ALHUCA HJJTNINGAWÓNUSTA Sími: (91) 13025, 14025, fax: (91) 622973 t(to§dJ(í){5(D0Í3 veitir lán til raunhæfra framfaraverkefna í öllum atvinnugreinum • Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag- stæðum greiðslukjörum. • Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign eða bankaábyrgð. • Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna í samvinnu við umsækjendur. • Sjóðurinn veitir einnig styrki til greiðslu á nauð- synlegri ráðgjöf vegna þróunarverkefna. Lánasjóðurinn er í eigu Norðurlandanna allra. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e. Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði. HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð, pósthólf 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.