Morgunblaðið - 16.01.1992, Síða 9

Morgunblaðið - 16.01.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNULÍF FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1992 B 9 Sjónarhorn Um samstarf fyrirtækja og hagkvæmni smæðarinnar eftir Kristján Guðmundsson Ef verður af samningi um Evr- ópskt efnahagssvæði mun hann fela í sér meiri breytingar fyrir íslenskt efnahagslíf heldur en nokkur annar milliríkjasamningur sem við höfum gert. Þeir hagsmunir, sem í húfi eru, eru þó að miklu leyti undir okkur sjálfum komnir. Hvernig ætlum við að búa okkur undir þessar breytingar, sem m.a. eiga eftir að koma fram í lægra vöruverði, bættu efnahags- legu umhverfi fyrirtækja og aukn- um hagvexti? Ætlar ísland að vera virkur þátttakandi í þessum breytingum eða fljóta sofandi að feigðarósi? Ræðst árangur fyrirtækja af stærð þeirra? Innan við 1% íslenskra fyrir- tækja hefur fleiri en 60 starfs- menn. Sú staðreynd undirstrikar rækilega að ísland er smáfyrir- tækjasamfélag. Ef samningar náðst um Evrópskt efnahagssvæði hljótum við að spyija okkur hvern- ig getum við eflt íslenskt atvinnu- líf, skapað fyrirtækjunum viðun- andi umhverfi og möguleika á að bæta afkomu starfsmanna sinna. í Evrópubandalaginu er í gangi sérstök áætlun, sem miðar einmitt að því að bæta efnahagslegt um- hverfi lítilla og meðalstórra fyrir- tækja. Sú áætlun felur m.a. í sér að draga eins og kostur er úr stjórnunarlegum byrðum, miðla fyrirtækjunum upplýsingum, stuðla að aukinni samvinnu fyrir- tækja, örva fyrirtæki til þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefn- um og bæta aðgang fyrirtækjanna að fjármagni. Að þessu verða stjórnvöld, hagsmunasamtök og fyrirtæki að fara að vinna ekki l.gri seinna en strax, ef við ætlum okk- ur að búa í þessu landi við sam- bærileg lífsskilyrði og gerist og gengur í nágrannalöndum okkar. Mestan hluta þessarar aldar hefur það verið viðtekið sem heil- agur sannleikur í viðskiptalífi heimsins að árangur fyrirtækja ráðist af stærð þeirra. Það var þó ekki fyrr en í upphafi níunda ára- tugarins að menn fóru í alvöru að endurskoða þessa speki. Mönnum fór að verða ljóst að á sama tíma og stóru fyrirtækin áttu í miklum erfiðleikum og urðu af þeim sökum að draga stórlega úr umsvifum sínum, þá blómstruðu víða minni fyrirtækin, einkum fyrirtæki með færri en 100 starfsmenn. Þau færðu út kvíarnar og sköpuðu um það bil 8 af hveijum 10 nýjum störfum á níunda áratugnum. Á þessum tíma voru stór fyrirtækin sein að innleiða nýja tækni og aðlagast nýjum mörkuðum en litlu fyrirtækin kappkostuðu að fara nýjar leiðir og taka upp nýja tækni. Þessi staðreynd leiddi óhjákvæmi- lega til þess að endurskoða þurfti klisjuna um að stórt væri endilega betra. Og í framhaldi af því að spyija sig spurningarinnar: Hvert er hlutverk litlu fyrirtækjanna í efnahagslífi heimsins? Geta þau gert þjóðum kleift að öðlast meiri samkeppnishæfni? Hvaða þjóðir ná forskoti á alþjóðlegnm mörkuðum? Hin hefðbundna skoðun, að því stærri sem fyrirtæki séu, þeim mun hagkvæmari og hins vegar að þeim mun smærri sem þau eru þýði það meiri óhagkvæmni og óstöðugleika, er á hallanda fæti. Efnahagsleg og tæknileg þróun síðustu ára hefur leitt til nýrrar sýnar, nýs afsprengis, sem sam- einar bæði kosti stórra og lítilla fyrirtækja. Við getum litið á þetta Kristján Guðmundsson sem nýtt „rekstrarform“, þar sem það er ekki stærðin sem skiptir mestu máli, heldur gæði þeirra viðskiptatengsla, sem tengja fyrir- tækin saman. Lykileiningin er ekki fyrirtækið sem slíkt, heldur net fyrirtækja, sem tengjast saman á lýðræðislegan hátt. Þetta hefur verið að gerast á nokkrum stöðum í heiminum á sama tíma, í Japan, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Dan- mörku og Ítalíu. Þetta nýja „rekstrarform“ hefur að sjálfsögðu ekki orðið til af sjálfu sér. Auðvitað er þama um að ræða þróun, sem hefur orðið m.a. vegna þess að stjórnendur hafa haft vilja til að skilgreina fyrir- tæki sín upp á nýtt en það hefur leitt til þess að samskipti og við- horf til bæði viðskiptavina og keppinauta hefur orðið að endur- skoða. Og til þess að þessi þróun geti átt sér stað, þurfa stjórnvöld, atvinnurekendasamtök og verka- lýðsfélög að skapa nauðsynlegt stofnanalegt umhverfi, nýtt um- hverfi, sem er jafn mikilvægt og góðar samgöngur og gott fjar- skiptakerfi. Þjóðir sem bera gæfu til að skapa slíkt umhverfi munu ná forskoti á alþjóðlegum mörkuð- um, það hefur þegar sýnt sig. , Smáfyrirtækin skapa flest atvinnutækifæri í Bandaríkjunum hafa menn þóst sjá að skortur á samstarfi lí- tilla framleiðslufyrirtækja og jafn- framt að viðunandi umhverfi víæri ekki til staðar, væri höfuðástæða þess að staða smáfyrirtækjanna í Bandaríkjunum er langt að baki því sem gerist meðal annarra iðn- aðarþjóða. Einnig er viss kald- hæðni í því fólgin að á sama tíma og fjölmargir málsmetandi menn í Bandaríkjunum lofa og prísa smáfyrirtækin, þá hafa önnur lönd, sérstaklega Japan, Þýska- land og Ítalía með markvissum aðgerðum lagt áherslu á að gera lítil og meðalstór fyrirtæki að mik- ilvægum þætti í alþjóðlegri sam- keppni. Mestan hluta þessarar aldar hefur mikilvægi smáfyrirtækja, mælt sem hlutdeild í heildarvinnu- afli í fyrirtækjum með færri en 100 starfsmenn, farið minnkandi í öllum hinum iðnvædda heimi. Upp úr 1970 fer þetta að snúast við jafnframt því sem stórfyrirtæki sjá í vaxandi mæli hag sínum bet- ur borgið með því að kljúfa sig í smærri einingar. Milli áranna 1980 og 1986 fækkaði starfsmönnum í fyrir- tækjum í Bandaríkjunum með fleiri en 500 starfsmenn um 11%, eða sem samsvarar tæplega tveim- ur milljónum starfa. Á sama tíma fjölgaði starfsmönnum í fyrirtækj- um með færri en 100 starfsmenn um 326.000 eða sem samsvarar um 8% aukningu. í sjálfu sér ei nógu merkilegt að þetta skuli ge rast í Bandaríkjunum, en enn at hyglisverðara er að þessar grund vallarbreytingar eru að eiga séi stað víða á sama tíma, einkum löndum eða svæðum þar sem um- hverfi er svipað. Þessi fjölgui starfsmanna í litlum og meðalstór-" um fyrirtækjum endurspeglai bæði efnahagslegar og tæknilegai breytingar. Á fyrri hluta aldarinn- ar stóð fjöldaframleiðsla undii vexti stórfyrirtækjanna en í dag er hins vegar eftirspurn eftir sér- hæfðari afurðum, stöðuguir tækninýjungum og afkastameir tölvutækni, sem leiðir til minni og minni miðstýringar í framleiðslu. Við getum borið þessar breyt- ingar saman við iðnbyltinguna á sínum tíma, sem olli gjörbreytingi' í atvinnuháttum og uppbyggingu þjóðfélaga. Véltækni kemur tii sögunnar og framleiðslugeta margfaldast. Borgarsamfélögin þenjast út, samgöngur batna og markaðir verða því ekki eins ein- angraðir. Upp úr aldamótunum fei að bera á aukinni samkeppni mill: framleiðenda, sem fljótt leiðir al sér viðbrögð til að ná forskoti á keppinautana. Það markar upphæí sjálfvirknivæðingar í iðnaði, seir löngum var litið á sem hina full- kömnu lausn. í fyrstu einskorðuð- ust þær lausnir við að auka hraða- vélanna og alveg framundir 1940 eru sjálfffirknilausnir útfærðar fyrst og fremst vélfræðilega, þ.e. ekki út frá þörfum mannsins. Um 1940 heldur rafeindatæknin inn- reið sína og um 1950 koma fyrsti iðntölvurnar á markað. Sú bylting, eða þróun sem nú er að eiga sér stað er kannski ekki eins áberandi og erfiðara að henda reiður á henni, heldur en iðnbyltingunni forðum. En það ei auðvitað líka vegna þess að í dag kemur okkur fátt á óvart, við lifum í tækniheimi, sem sjálfsagt er að haldi stöðugt áfram að skila okkui nýjum og nýjum afurðum. í næstu grein verður skoðac hvernig þessar breytingar koma fram í rekstri og umhverfi fyrir- tækja og borin saman þrjú svæði, Bandaríkin, Japan og Ítalía. Höfundur er viðskiptafræðingur hjá Landssambandi iðnaðar- manna. Samanburður stýrikerfa eftir Snorri Agnarsson Fimmtudaginn 19. desember birtist á viðskiptasíðu Morgunblaðs- ins grein eftir ívar Pétur Guðnason, þar sem ívar þykist gera saman- burð á nýjustu stýrikerfunum fyrir Macintosh-tölvur og PC-tölvur. Samanburður þessi var villandi, ósmekklegur og lítt ígrundaður. Ég vil benda á nokkur atriði í hans grein, sem mér finnst sérlega aðfinnsluverð. ívar heldur því fram að System 7 á Macintosh II tölvu með 4MB vinnsluminni sé hægvirkara en MS-Windows á 2MB, 16 megariða 386SX tölvu. Þetta er samkvæmt minni reynslu hreinlega kolrangt og ég hef reynt hvort tveggja. Ivar heldur síðan áfram og gerir þá at- hugasemd að DOS 5,0 gangi á allar PC-tölvur, sem framleiddar hafi verið frá 1981, en System 7 gangi einungis á nýrri gerðum Macintosh- tölva. Það er rétt að System 7 þarf meira minni en sumar eldri Macint- osh-tölvur búa yfir. í flestum tilvik- um er auðvelt að bæta úr því með því að kaupa stærra minni í vélarn- ar hafi eigendur þeirra hug á að nota System 7. Eigendur PC-tölva verða einnig oftast að auka minni þeirra vilji þeir nota MS-Windows að einhveiju inarki og ekki veit ég um neinn, sem notar MS-Windows á eldri gerðum PC-tölva. System 7 er, eins og önnur stýrikerfi fyrir Macintosh, grafískt stýrikerfi, og veitir notandanum mun meiri þjón- ustu en DOS 5,0 gerir. Málflutning- ur ívars er því mjög villandi. ívar lýsir slæmri reynslu sinni af uppfærslu í System 7. Hann lætur ekki fylgja neina lýsingu á vinnubrögðum sínum við uppsetn- inguna. Ivar hefur engar skýringar á þessu og virðist ekki hafa leitað þeirra. Hann hefði átt að leita skýr- inga og hjálpar, til dæmis hjá um- boðsaðilum Macintosh-tölva, til að komast að því hvort gagnrýni hans á við rök að styðjast. Þessi vinnu- brögð eru mjög gagnrýnisverð í grein, sem virðist eiga að vera tæknileg. Á einum stað í grein Ivars skrif- ar hann: „System 7 er heimska átján vetra ljóskan, sem svaf hjá öllum í dómnefndinni til þess að fá útlitsverðlaunin." Þessi samlíking er órökstudd og óskýrð og er því ekki unnt að sjá hvað ívar meinar með þessu. Er Ivar að gagnrýna System 7 stýrikerfið fyrir útlitsfeg- urð og gott viðmót? ívar skrifar að frágangurinn á System 7 pakkanum minni mest á lagerútsölu saltfiskframleiðanda. Enn er samlíkingin óskýrð og órök- studd og er því gagnslaus lesendum. Greinar eins og sú, sem ívar skrifaði, eru alls ekki til þess falln- ar að hjálpa tölvunotendum til ákvarðanatöku. Ef greinin átti að vera brandaragrein um tölvumál þá er ljóst að brandararnir hafa misst marks, að smekkleysa og fordómar ívars hafi borið kímnigáfuna ofur- liði. Ef vel er að staðið geta tæknileg- ar greinar um tölvumál verið les- endum Morgunblaðsins til gagns við að ákveða hvers kona vélbúnað og hugbúnað þeir vilja kaupa. En f>að er ljóst að greinar eins og grein vars eru frekar til þess fallnar að villa um fyrir mönnum og gera þeim erfiðara að taka réttar ákvarð- anir í tölvuvæðingu. Eftir að hafa lesið grein ívars hafa eflaust margir haldið að hér væri verið að bera saman sambæri- lega vöru og að MS-DOS 5.0 byði upp á svipað vinnuumhverfi og Macintosh-tölvur, nema hvað MS- DOS 5.0 væri betra. Þetta er langt frá sanni. Án þess að ég vilji taka þátt í trúarbragðastríði um hin og þessi stýrikerfi á einmenningstölvum vil ég halda því fram að ef bera eigi System 7 fyrir Macintosh-tölvur saman við stýrikerfi á PC-tölvum, þá ættu þau kerfi helst að vera MS-Windows og OS/2. Slíkur sam- anburður yrði vafalaust einhveijum lesendum gagnlegur, þ.e. þeim les- endum, sem vilja kaupa tölvu með grafísku notendaviðmóti, en eiga eftir að taka ákvörðun um hvers konar tölvu þeir muni kaupa. í slíkri grein þyrfti að sjálfsögðu að gæta fyllsta hlutleysis og telja upp bæði kosti og galla á þeim kerfum, sem fjallað er um. Einnig væri gagnlegt að bera MS-DOS 5.0 saman við önnur stýri- kerfi á sömu vélargerðum, svo sem DR-DOS 6.0 og OS/2. Þessi stýri- kerfi geta öll keyrt meira eða minna sama hugbúnað og samanburður á þeim getur því vel verið hlutlægur og laus við fordóma. Vel unninn samanburður á þeim kerfum yrði mörgum lesendum vafalaust að gagni, til dæmis þeim lesendum, sem þegar eiga tölvur, sem keyrt geta þessi stýrikerfi. Loks væri gagnlegt að fá saman- burð á þeim stýrikerfum, sem bjóð- ast á Macintosh-tölvur, þ.e. System 6, System 7 og A/UX (útgáfa Apple af UNIX stýrikerfinu). Höfundur er prófessor í tölvunar- fræði við Háskóla íslands. Tilboð Vetð frá .. 31.120,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.