Morgunblaðið - 16.01.1992, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF fimmtudagur
16. JANUAR 1992
HVERSU TRYGG ERU
GÖGNIN ÞÍN?
Tölvur
Komdu og kynntu þér bandstöðvarnar
frá ARCHIVE
Núna með „DATA COMPRESSION"
allt að 8 GB.
ARCHIVEL XL, 60 Mb............Verð m/vsk. kr. 29.731,-
ARCHIVE VIPER 150,150 Mb.... Verð m/vsk. kr. 83.664,-
ARCHIVE VIPER 525, 525 MB.... Verð m/vsk. kr. 88.146,-
ARCHIVE PYTHON, DAT, 2,0 GB.. Verð m/vsk. kr. 179.280,-
Tölvur seldar ígegnum síma
MEÐ NÝJUM markaðsaðferðum, bæði hvað varðar sölu og þjónustu,
hefur tölvuframleiðandanum Dell Computers tekist að bjóða fram-
leiðslu sína allnokkru ódýrar en stóru tölvufyrirtækin, svo sem IBM,
og jafnframt aukið hagnað sinn ár frá ári þrátt fyrir gífurlega sam-
keppni.
-BQÐEIND SF:
AUSTURSTRÖND 12
170 SELTJARNARNES
SiMI 612061
FAX 612081
Velgengni Dell Computers á ræt-
ur sínar að rekja til þess að á síð-
ustu árum hafa PC-tölvur orðið
hver annarri líkari hvað varðar
gæði og afköst. Það hefur leitt til
þess að kaupendur eru reiðubúnir
að kaupa vélarnar í gegnum síma,
án þess að reyna þær fyrst. Slík
sala, án nokkurra milliliða, hefur
gert Dell og öðrum sem fylgt hafa
í kjölfarið kleift að bjóða mun lægra
verð en stóru framleiðendurnir.
En kaupendur gera einnig kröfu
um öfluga viðhaldsþjónustu. Það
leysti Dell einnig með því að nota
símann. Kaupendum um öll Banda-
ríkin býðst að hringja í svokölluð
græn númer, en þau eru þess eðlis
að viðtakandi greiðir kostnaðinn.
Þar svara sérfróðir menn og eru
reiðubúnir til aðstoðar og geta með
aðstoð tölvu fundið allar upplýsingar
um vélina sem er til vandræða og
leiðbeint eigandanum um lausn
þeirra. Ef um alvarlegri vandamál
er að ræða lofar framleiðandinn að
maður verði kominn á staðinn til
viðgerða innan sólarhrings.
Að vera þannig í stöðugu síma-
sambandi við viðskiptavinina hefur
ennfremur þann kost að upplýsingar
um óskir og þarfir neytenda berast
undrahratt til æðstu stjórnenda
fyrirtækisins. í lok hverrar viku er
nefnilega haldinn fundur með öllum
símaafgreiðslumönnum og farið yfir
símtöl vikunnar.
Dell Computers og lík fyrirtæki
hafa hingað til einbeitt sér að ódýr-
asta hluta PC-markaðarins en nú
hafa Dell-menn tekið stefnuna á
dýrari tölvur og nettengingar.
Margir telja að það muni reynast
Dell erfiður biti að kyngja þar sem
kaupendur sem eyða miklu fé í
tölvubúnað geri kröfu um öfluga og
umfram allt stöðuga viðhaldsþjón-
ustu.
En hingað til hefur árangurinn
verið góður. Svo góður að stóru
framleiðendurnir íhuga margir
hveijir að grípa til sömu aðferða.
Þannig hefur til dæmis Digital
Equipment, eitt stærsta tölvufyrir-
tæki í Bandaríkjunum, ákveðið að
heija sölu um síma. En þeir hjá
Dell Computers eru bjartsýnir og
treysta því að þeir muni enn um
sinn geta eflt stöðu sína með hug-
myndaauðgi og framsýni.
-------» ♦ ♦--------
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVlK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
Hagnaður
eyksthjáHP
HAGNAÐUR Hewlett Packard á
síðasta ár var 755 milljónir doll-
ara eða 45,3 milljarðar íslenskra
króna miðað við 739 milljónir
dollara árið áður. Heildarvelta
fyrirtækisins var 14,5 milljarðar
dollara eða rúmir 800 milljarðar
íslenskra króna. Veltan jókst um
10% milli ára.
Mestur vöxtur var í sölu HP
9000-UNIX íjölnotendakcrfum, HP
geislaspilurum og HP 9000/700
UNIX vinnustöðvum. Tölvuþáttur-
inn í rekstri HP nálgast nú um 80%
af heildarveltu. Önnur svið sem
fyrirtækið starfar eru sala og fram-
leiðsla á lækningatækjum, efna-
greiningatækjum og sérhæfðum
mælitækjum.
John Young, forstjóri Hewlett
Packard, segir niðurstöðu síðasta
árs mjög góða í ljósi þess að nú séu
mikil umbrot á tölvumarkaðnum og
mörg tölvufyrirtæki að ganga í
gegnum erfíðleikatímabil.
Frimiði fyrir maka
þeirra mm
ferðast með
a Biuðness Class
1 New ''lerk
eða Baitimere
Farþegar sem greiða
fullt Saga Business far-
gjald til New York eða
Baltimore frá íslandi
njóta sérstakra vildar-
kjara fyrstu þrjá mánuði ársins. Þeir fá í kaup-
bæti frímiða fyrirmaka í sömu ferð og á Saga
Business Class ef þar er laust sæti þremur sólar-
hringum fyrir broftför; að öðrum kosti gildir
miðinn á almennu farrými. Þetta tilboð gildir til
31.mars og ferð verður á ljúka fyrir 6. apríl.
Farþegum d Saga Business Class til
Bandaríkjanna stendur m.u. til boða:
• Fyrirvaralaus breyting ú ferðaáœtlun
• Hröð innrítun á sérstökum
innrítunarborðum
• Sérstakar setustojur á Keflarríkuiflugvelli og
JFK-flugvelli
• Veitingar án endurgjalds á setustofum
og um borð
• Breið steti oggott sœtabil
• Sérstakur viðurgjömingur t mat og þjónustu
• Gott úrvaí kvikmynda á vídeóttekjum
• Boðin erfrír „límúsínu-aksturufráJFK-
flugvelli á bótel íManhattan eða á annað
hvort La Guardia flugvöll eða Netvark.
SAGA
BUSINESS
CLASS
FLUGLEIÐIR
BIM\ IIRIM\ YLSTIR
IHES?