Morgunblaðið - 16.01.1992, Síða 12

Morgunblaðið - 16.01.1992, Síða 12
V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! gWi»r0Mttl>lfal»ll> VIDSKIPn AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1992 XJöfðar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! Gæðamál Vottun verður æ mikil- vægari í útflutningi Fjögur íslensk fyrirtæki munu væntanlega fá vottun á gæðakerfum skv. alþjóðlega staðlinum ISO/9000 á árinu „ÍSLENSK fyrirtæki hafa nú þegar mætt fyrirspurnum erlendra við- skiptavina um hvort þau hafi vottað gæðakerfi og gefið hefur verið í skyn að vottun verði gerð að skilyrði fyrir viðskiptunum. Ef litið er á hina hröðu þróun í Evrópu þá sést að frá því að svona fyrirspurnir berast þá líður ekki langur tími þangað til vottun verður orðið mikil- vægt skilyrði fyrir viðskiptunum", segir Kjartan J. Kárason fram- kvæmdastjóri Vottunar hf. Kjartan telur nauðsynlegt fyrir íslensk fyrirtæki að gera sér grein fyrir auknum gæðakröfum á mörkuðum erlendis og laga framleiðslu sína að þeim, því sé nauðsynlegt fyrir þau að byggja upp vottunarhæft gæðakerfi Vottun fer þannig fram að gæða- kerfi og gæðahandbók fyrirtækisins er metið af vottunarskrifstofu, t.d. fyrirtækinu Vottun hf. Eftir athuga- semdir vottunarfyrirtækisins og þegar breytingar hafa fram þá gerir vottunarfyrirtækið umfangsmeiri vottunarúttekt. Uppfylli fram- leiðandinn alþjóðlega staðla, ISO 9000, sem hafðir eru að leiðarljósi fær það vottun. Ef varan uppfyllir þær grunnkröfur sem um hana gilda iá Evrópumarkaði má setja CE-merk- ið á framleiðsluvöruna, sem kallað hefur verið vegabréfið á hinum sam- eiginlega markaði. Úttektir vottunarfyrirtækja eru framkvæmd- ar tvisvar á ári til að fylgjast með gæðakerfmu og hvetja til sífelldra gæðaumbóta. Kjartan J. Kárason er eini starfsmaður Vottunar hf. og mun hann bráðlega fara á úttekt- arnámskeið erlendis til að geta veitt íslenskum fyrirtækjum úttektarþjón- ustu. Stefnt er að því að innan tveggja ára geti Vottun hf. hlotið viðurkenningu til að mega stunda vottun. Fyrirtækið hefur leitað eftir samstarfí við vottunarstofur í Dan- merku og Bretlandi og segir Kjartan mikinn veljvilja og áhuga vera fyrir hendi hjá hinum erlendu aðilum á samstarfi. Vottun hf. mun væntan- lega starfa fyrst um sinn sem undir- verktaki erlendra vottunarfyrirtækja og síðar sem sjálfstæð eining. Til að uppfylla þær kröfur til framleiðslu, sem gerðar eru og verða hertar á næstu árum á evrópskum mörkuðum, þá hafa nokkur íslensk fyrirtæki nú þegar kynnt sér hinn alþjóðlega gæðastaðal ISO 9000 og eru í samstarfi við erlenda vottunar aðila. Lýsi hf. stefnir að vottun snemma á árinu og íslenska álfélag- ið mun óska eftir vottun á þessu ári. Þá eru tvö önnur íslensk fyrir- tæki langt á veg kominn, annað í iðnaði og hitt er sjávarútvegsfyrir- tæki, en Kjartan vildi ekki nefna hvaða fyrirtæki það eru vegna trún- aðarskyldu sinnar við þau. „Fljótt á litið virðast um 10 íslensk fyrirtæki stefna í vottun á næstu 2 árum“, segir Kjartan og að vaxandi áhugi sé hjá mörgum öðrum íslenskum fyrirtækjum. Að hans mati eru ís- lensk fyrirtæki þó mun skemur á veg kominn en fyrirtæki í nágranna- ríkjum okkar og nefndi hann sem dæmi að á Bretlandi eru yfír 17.000 fyrirtæki með vottað gæðakerfi, yfir 300 fyrirtæki á írlandi og 53 fyrir- tæki í Danmörku, en þar hafa 340 ný fyrirtæki sótt um vottun. Vott- un hf. var stofnað s.l. sumar og mun fyrirtækið sérhæfa sig í úttektum og vottun gæðakerfa hjá íslenskum fyrirtækjum. Að stofnun fyrirtækis- ins stóðu 16 fyrirtæki og hagsmuna- samtök, þ.á.m. Sölusamband ís- lenskra fiskframleiðenda, Iðnlána- sjóður, Félag íslenskra iðnrekenda, Verslunarráð íslands og Eimskipafé- lag íslands. Vottun er ekki bundin eingöngu við framleiðslufyrirtæki heldur getur hvaða fyrirtæki sem er fengið vottun þó erfiðara sé t.d. að meta starfsemi þjónustufyrirtækis en iðnaðarfyrir-' tækis. „Gæðakerfi samkvæmt þess- um stöðlum byggist á því að ná sem mestri nýtni út úr hráefninu og öllum starfskröftunum, stjórnendunum líka, þannig að sem minnst fari til Fólk Nýir menn hjá Þróun M Ásgcir J. Sigurðsson hefur ver- ið ráðinn til starfa við hugbúnaðar- gerð hjá Þróun hf., frá l.ágúst 1991. Asgeir er 27 ára rafmagns- tæknifræðingur, af tölvulínu, frá Aarhus Teknikum í Danmörku, 1991. Hann hefur meðal annars starfað að hugbúnaðargerð hjá Hagvangi og Fjárfestingafélagi Is- lands. Mjóhann Sveinsson hóf störf við hugbúnaðargerð hjá Þróun hf. í nóvember 1991. Jóhann er 28 ára rafmagnstæknifræðingur af tölvu- línu frá Odense Teknikum í Dan- mörku 1988. Vorið 1991 lauk hann M.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole í Danmörku, þar sem hann starfaði tímabundið við rannsóknarstörf. Jóhann á eina dóttur. MReynir Kristbjörnsson tók til starfa hjá Þróun hf. í september 1991. Reynir er 26 ára rafmagns- verkfræðingur, með B.Sc. frá Há- Morgunblaðið/Árni Sæberg. Vottunarfyrirtæki —Kjartan J. Kárason, framkvæmda- stjóri Vottunar hf. segir vottun á gæðakerfum fyrirtækja verða æ mikilvægari í útflutningi íslenskra fyrirtækja spillist. Það er náttúrulega mikil- vægt fýrir fyrirtækið sjálft og þjóð- félagið líka að allur vinnsluferill sé sem hagkvæmastur“, segir Kjartan J. Kárason. Þess má geta að lokum að Vottun hf. mun hafa kynningu á þjónustu sinni og kostnaði við gæða- mat á næstu mánuðum. Vottun hf. er til húsa hjá Iðntækistofnun ís- lands að Keldnaholti. Ásgeir Jóhann skóla íslands 1989 og M.Sc. próf í rafmagns- verkfræði frá Danmarks Tekniske Höj- skole 1991. - MÓlafur Ólafs- son hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Þróun- ar hf. Ólafur er 32 ára og lauk hann B.Sc._ prófi í tolvunarfræði frá Háskóla íslands 1982 og M.Sc. prófi í tölvunarfræði frá Florida Institute of Technologi 1991. Hann hóf störf hjá Þróun í hluta- starfi 1980 en kom í fullt starf Reynir Ólafur 1982 og starfaði að hugbúnaðar- gerð til ársins 1989. H Tryggvi Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Þróunar hf. Hann er 32 ára. Tryggvi lauk prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Islands 1983, B.Sc. prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Islands 1985 og M.Sc. prófi í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole 1991. Hann starfaði við ráðgjafa- og rannsókn- arstörf hjá Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins samhliða námi 1983-1985 og starfaði síðan að hugbúnaðargerð hjá Þróun 1985- 1989. Tryggvi er kvæntur Oddf- ríði Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvær dætur. ð Einkavæðingin þarf aukinn meðbyr RÍKISSTJÓRNIN lýsir þvíyfir í Hvít- bókinni svokölluðu að áformað sé að breyta í hlutafélög og undirbúa sölu hlutabréfa í Búnaðarbanka íslands, Sementsverksmiðju ríkis- ins og Síldarverksmiðjum ríkisins. Einnig er stefnt að sölu eignar- hluta ríkisins í Gutenberg hf., Ferð- askrifstofu íslands, Endurvinnsl- unni o.fl. fyrirtækjum. David Watson, framkvæmda- stjóri hjá Enskilda Corporate Fin- ance í London vék að þessum áformum ríkisstjórnarinnar á morgunverðarfundi Verslunarráðs sl. þriðjudag í erindi sínu um einka- væðingu. Hann birti þar sinn eigin lista yfir nokkur ríkisfyrirtæki sem hann taldi að hægt væri að selja. Þar var Búnaðarbankinn efstur á blaði og benti Watson á að bank- inn væri starfraektur á viðskipta- grundvelli í samkeppni við aðra banka og væri bæði arðbær og fjárhagslega sterkur. Þetta ætti að auðvelda sölu hans. Jafnframt væri starfandi einkabanki fyrir sem auðveldaði ákvörðun um markaðs- verð bréfanna. Watson kvaðst hafa lesið um skoðanakönnun meðal almennings um sölu Búnað- arbankans þar sem niðurstöður urðu þær að tveir þriðju þátttak- enda lýstu sig andvíga sölunni. Þessi niðurstaða undirstrikaði nauðsyn öflugrar kynningarher- ferðar meðal almennings um að einkavæðing væri framfaramál. Næsta fyrirtæki á lista Watson er Póstur og sími en hann segir nauðsynlegt að póstdreifingin og símakerfið verði aðskilin. Benti hann sérstaklega á góða reynslu af einkavæðingu breska símafé- lagsins. Þar næst í röðinni er Frí- höfnin í Keflavík og Keflavíkurflug- völlur sem sjaldan er raunar minnst á í umræðu um einkavæð- ingu. í kjölfarið koma svo Lands- virkjun og Ríkisútvarpið. Watson bendir hins vegar á að Landsvirkj- un sé of stór biti fyrir íslenska hlutabréfamarkaðinn og þörf sé á aðild erlendra fjárfesta. Hvað snertir ríkisútvarpið viðurkennir hann að einkavæðing ríkisrekinna sjónvarpsstöðva sé mjög umdeild í Evrópu og mörg vandamál óleyst í því sambandi. Ef ráðist yrði í kynningarherferð meðal almennings um kosti einka- væðingar ríkisfyrirtækja hér á landi mætti e.t.v. leita í smiðju til Davids Watsons sem rakti nokkur almenn markmið einkavæðingar og dæmi um góðan árangur í Bretlandi. Höfuðmarkmiðið er jafnan að auka hagkvæmni í viðkomandi starf- semi. í Bretlandi hefur þetta glögg- lega komið í Ijós en þar hefur ver- ið dregið úr skriffinnsku í fyrirtækj- um í kjölfar einkavæðingar og ábyrgð aukist í rekstri. Þá verða fyrirtæki í einkageiran- um jafnan að hafa það að leiðar- Ijósi að vaxa og skila hagnaði þó ýmis önnur markmið hafi áhrif þar á t.d. umhverfissjónarmið eða af- staða til starfsmanna og notenda þjónustunnar. Þegar aftur á móti tiltekin starfsemi er þjóðnýtt kunna pólitísk sjónarmið að hindra að slík markmið nái fram að ganga. Áður en breska flugfélagið British Airways var einkavætt keypti það gjarnan allar nýjar útgáfur af þot- um -sem voru framleiddar. Núna eru viðhöfð markvissari vinnubrögð við kaup á vélum sem skilar sér í hagkvæmari þjónustu, þjálfun starfsmanna og viðhaldi. Fyrir nokkru ákvað félagið að kaupa ekki Rolls Royce-hreyfla heldur ganga til samninga við bandarískt fyrirtæki en það hefði verið óhugsandi ef það væri enn í ríkiseigu. Markmið einkavæðingar er einnig að koma á aukinni sam- keppni en Watson benti á að aug- Ijóslega væri mjög mikilvægt að skapa skilyrði fyrir samkeppni þeg- ar einokunarstarfsemi væri seld einkaaðilum. Af öðrum markmiðum má nefna dreifingu eignaraðildar en til marks um það má nefna að frá árinu 1979 hefur hluthöfum í Bretlandi fjölgað úr 2 milljónum í 12 milljón- ir. Loks eru ónefnd pólitísk mark- mið einkavæðingar sem hljóta allt- af að ráða ferðinni og markmið um tekjuöflun ríkisins með sölu ríkis- fyrirtækja. Lítið hefur bólað á undirbúningi að einkavæðingu ríkisfyrirtækja í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar að frátaldri ákvörðun um sölu eigna Skipaútgerðar ríkis- ins. Þá virðist ekki ríkja nægur skilningur í þjóðfélaginu á þýðingu einkavæðingar ef marka má áður- nefnda skoðanakönnun um Bún- aðarbankann. Virðist Ijóst að þörf er á öflugu átaki til að kynna kosti einkavæðingar þannig að stjórn- völd fái nauðsynlegan meðbyr við þetta brýna verkefni. Er þar af nógu að taka því áætlað hefur verið að um 75% af eigin fé fimm- tíu stærstu fyrirtækja á íslandi séu í eigu ríkis eða annarra opinberra aðila. KB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.