Morgunblaðið - 31.01.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992
15
Blekkingar VÍS hf.
eftir Ragnar
Ingimarsson
í dreifibréfi Vátryggingaféiags
Islands dags. 20. desember sl. er
eftirfarandi setningu að finna:
„Um þessar mundir berst nokkr-
um hópi bifreiðaeigenda bréf frá fjöl-
þjóðlegu félagi þar sem gefinn er
ádráttur um lægri iðgjöld til ákveð-
inna ökumanna í nafni réttlætis. Hér
er á ferðinni hliðstæða við tilboð
Hagtryggingar hf, á sínum tíma, en
það félag hefur hætt störfum sem
kunnugt er.“
I síðari setningu ofangreindrar
málsgreinar felast lævíslegar blekk-
ingar sem ekki verður hjá komist
að bregðast við.
Stofnun Hagtryggingar hf.
Hagtrygging hf. var stofnuð vorið
1965 við mjög sérstakar aðstæður.
Arið á undan höfðu tryggingar-
iðgjöld bifreiða verið hækkuð um
50% (í 16% verðbólgu) og um það
bil einum mánuði fyrir upphaf nýs
tryggingatímabils vorið 1965 var
tilkynnt um aðra hækkun sem yrði
hvorki meiri né minni en 70% (í 12%
verðbólgu). Það virtist ekki vera
margt sem hægt var að gera til að
sporna við þessari hækkun iðgjalda
— þáverandi tryggingafélög, sem
flest eru hætt rekstri bifreiðatrygg-
inga, t.d. Brunabótafélag íslands og
Sammvinnutryggingar, höfðu sam-
stöðu um hækkunina. Það var á
þessum tímamótum sem velt var
grettistaki. Á einum mánuði var
■ CAFÉ ISLANDveitingastaður
Hótel Islandshefur á boðstólum
Heilsuhlaðborð í hádeginu alla
virka daga frá kl. 12-14. Boðið er
upp á úrval heilsurétta og er ýmis-
legt á boðstóium fyrir fólk sem vill
borða hollan og góðan mat í hádeg-
inu, s.s. pastarétti, hrísgrjónarétti,
sojakjötsrétti, baunarétti, salöt, úr-
val grænmetis auk þess sem boðið
er upp á heitan kjötrétt og/eða fisk-
rétt fyrir þá sem það vilja. Einnig
er boðið upp á úrval brauða, s.s.
sólkjarnabrauð, bóndabrauð,
þriggjakornabrauð, maltbrauð og
rúgbrauð. Öll þau brauð sem boðið
er upp á eru ný og bökuð á staðn-
um. Á Café Island er einnig boðið
upp á heilsudrykkinn „Fit Mineral"
sem er steinefna- og vítamíndrykk-
ur en þessi drykkur er nýr á mark-
aðinum í dag auk annarra drykkja.
Yfirmatreiðslumaður er Magnús
Níelsson. Veitingaþjónn á Café Is-
land er Agnar Hólm Jóhannesson.
(Fréttatilkynning)
„Það er umhugsunar-
vert hvað þeim YÍS-
mönnum gengur til í
tilraun sinni til að kasta
rýrð á þetta frábæra
framtak.“
nýju tryggingafélagi komið á fót.
Stofnuð voru tryggingaumboð um
allt land, gengið var frá nauðsynleg-
um leyfum og gengið var frá traust-
um erlendum endurtryggingasamn-
ingum. Þúsundir bifreiða voru tekn-
ar í tryggingu hjá hinu nýja trygg-
ingafélagi áður enn nýtt trygginga-
tímabil hófst.
Nýjungar í
iðgjaldaákvörðunum
Með Hagtryggingu hf. var ekki
bara stofnað nýtt tryggingafélag.
Fram til þess tíma hafði verið lítið
tekið tillit til frammistöðu tryggj-
enda við ákvörðun tryggingaiðgjalda
— aðeins var um einn afslátt að
ræða fyrir góða ökumenn, 30% ið-
gjaldalækkun. Hagtrygging hf. setti
upp margflokka iðgjaldaskrá sem
byggði á tjónasögu tryggingartaka.
Lökustu ökumennirnir gátu þurft að
greiða þrefalt grunniðgjald, en þeir
bestu minna en hálft grunniðgjaldið.
Það er skemmst frá því að segja
að þegar fram liðu stundir tóku öll
tryggingafélögin upp svipað ið-
gjaldakerfi og Hagtrygging hf.
Iðgjaldahækkunin, 70%, kom í
raun ekki til framkvæmda gagnvart
góðum ökumönnum.
Hvað varð um
Hagtryggingu hf.?
Hagtrygging hf. starfaði í 20 ár,
fyrst og fremst sem bifreiðatrygg-
ingafélag. Árið 1985 hafði Sjóvá-
tryggingafélag íslands náð að kaupa
meirihluta hlutabréfa Hagtrygging-
ar hf. og sameinaði rekstur þess
félags sínum eigin. í árslok 1988
var Hagtrygging hf. sameinuð Sjó-
vátryggingafélagi íslands hf.
Niðurlag
Nú eru liðin 27 ár frá því að hóp-
ur manna, flestir félagar í Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB),
unnu það afrek að stofna bifreiða-
tryggingafélag á einum mánuði til
að sporna við því sem þeir töldu
óeðlilega iðgjaldahækkun. Þessir
menn, sem margir hveijir eru nú til
moldar gengnir, sýndu að mínu
mati sérstakan dugnað og framtaks-
semi, sem hefur í raun ekki ennþá
fengið verðskuldaða umfjöllun. Það
Ragnar Ingimarsson
er umhugsunarvert hvað þeim VÍS-
mönnum gengur til í tilraun sinni
til að kasta rýrð á þetta frábæra
framtak.
Höfundur var stjórnarformaður
Hagtryggingar hf.
Stœrðlr: 13xl8cm.
18x24cm.
24 x 30 cm.
Myndir sem birtast í Morgunblaöinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UOSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœti 6, sími 691150
101 Reykjavík
ÞORRINN I SKRUÐI
/
Sími29900
Við höfum bætt við
þorramat á matseðilinn í
Skrúði. Þar getið þið
notið þessa þjóðlega
matar í vistlegu umhverfi
garðskálans. Að sjálf-
sögðu er hlaðborðið
glæsilega áfram á sínum
stað.