Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 1

Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 1
litid byggt á nordvest- urhorninn RÚMLEGA 40% þeirra íbúða, sem fullgerðar voru á árinú 1990 hér á landi, voru byggðar í Reykjavík. Það ár voru smíðaðar 748 íbúðir í höf- uðborginni af 1754 nýjum íbúð- um á landinu öllu. Hlutur Reykjavíkur í nýsmíðinni sveifl- aðist verulega á sfðasta áratug eða allt frá 25% árið 1982 upp í rúm 50% 1987. Svipaða sögu er að segja um aðra lands- hluta. Mikla sveiflur voru þar í fjölda þeirra íbúða, sem full- gerðar voru á hverju ári. Á meðfylgjandi mynd sést skipting fullgerðra íbúða eftir landshlutum á árunum 1988- 1990. Þar kemur í Ijós, að mjög fáar íbúðir hafa verið smíðaðar á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra á sfðustu árum eða 20-40 íbúðir á hverju ári. Hlutur grannbyggða Reykjavíkur hefur hins vegar verið mjög stór í nýsmíðinni, enda hafa verið skipulögð þar stór ný svæði undir íbúðabyggð á undanförn- um árum. Heldur virðist þó hafa dregið úr nýsmíðinni þar á árinu 1990, á meðan talsverð aukning varð f nýjum íbúðum á Suðurnesjum. BLAÐ Gamlír eldhús- skápar Íþætti sínum Smiðjan fjallar Bjarni Ólafsson f dag urh, hvernig gera megi upp gamla eldhússkápa og gefa þeim nýtt og ferskt yfirbragð. Hann ræðir fyrst um ástand gamalla eld- hússkápa og síðan um skápa- hurðir, sem eru úr sér gengnar og þarf að endurnýja. Bjarni bendir á, að á mörgum gömlum eldhússkápum og fataskápum eru heillegar og góðar hurðir og ráðleggur fólki eindregið frá því að skipta um þær. Lagfæra þurfi hengslin og smellurnar og ef til vill að kaupa nýjar höldur og mála hurðirnar, helzt með fallegri og sterkri olíu- málningu. Hið sama gildir auð- vitað einnig fyrir skúffurnar. Við slíka meðferð fær gamla innréttingin nýtt, hreinlegt og fallegt yfirbragð. ^ Skattfrelsi leigutekna NÚ er mikið rætt um að taka upp húsaleigubætur eða grípa til annarra aðgerða í því skyni að draga úr húsnæðis- kostnaði leigjenda. Það er mat stjórnar Húseigendafélagsins, að raunhæfasta og raunar eina leiðin til þess að ná þessu markmiði sé sú að fella niður tekjuskatt af húsaleigutekjum. Þetta kemurfram íviðtali hér f blaðinu f dag við Sigrúnu Benediktsdóttur, stjórnarform- ann Húseigendafélagsins. Hún segir þar, að niðurfelling tekju- skatts af húsaleigu muni óhjá- kvæmilega hafa íför með sér aukið framboð á leiguhúsnæði, sem hljóti að leiða til lækkunar á húsaleigu. Hagsmunir hús- eigenda og leigjenda færu hér saman, sem sýndi sig í því, að á aðalfundi Leigjendasamtak- anna sl. haust var samþykkt ályktun um, að tekjur af húsa- leigu verði gerðar skattfrjálsar. 16 SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.