Morgunblaðið - 16.02.1992, Side 31
morgúnbÍlaðið
FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
SMIÐJAN
(■cfiirn eld-
hússkápun-
iini nýtt úllil
Hér má sjá fallega eldhússkápa frá 1932.
Löngum hefur það talist til
dyggða að vera nýtinn og hag-
sýnn, sóa ekki verðmætum að óþörfu
eða henda nothæfum munum á ösku-
hauga. Síðustu ár höfum við lifað
tísku ein-nota vör-
unnar. Með aug-
lýsingum hefur
okkur verið sagt
að nú sé tími til
kominn að fá sér
ný húsgögn, nýja
fataskápa, eldhús-
skápa, ný föt
o.s.frv.
Síðan hafa risið upp hreyfingar
sem vinna gegn slíkri stefnu. Þannig
hefur margt fólk aflað sér húsgagna
sem þóttu annars of gamaldags.
Mætti telja upp mörg dæmi slíkrar
nýtnistefnu.
Á árunum 1950 til 1970 var smíð-
að mikið af eldhúss: og fataskápum
með rennihurðum. í eldhússskápum
voru það einkum yftrskáparnir sem
búnir voru rennihurðum.
Rökin fyrir því voru þau að slíkar
hurðir tækju minna rúm og að
skápahurðirnar væru þreytandi til
lengdar, þær skyggðu alltaf á hluta
af innihaldi skápsins og svo tækju
þær fljótlega að renna illa, stæðu á
sér.
Eru skáparnir góðir
að öðru leyti?
Það er hægt að setja nýjar og
fallegri hurðir framan á skápana.
Við skulum þó fyrst athuga þá að
innan.
1. Eru hillumar ósléttar eða með
sprungum og rifum?
2. Er bak í skápunum?
3. Eru grindur innan á hliðunum
sem torvelda hreingerningu skáp-
anna?
Ef svarið við 1. og 2. spurningu
er já, þá má vel bæta úr því með
því að kaupa sér t.d. vatnsheldan
plastdúk, eins og stundum er límdur
innan á sturtuklefa. Gott er að líma
slíkan dúk á hillur og vegginn inni
í skápunum, ef ekki er í þeim slétt
bak. Þetta á einnig við um hillurn-
ar. Vatnshelt veggfóður má nota í
sama tilgangi.
Einnig er hugsanlegt að skipta
megi um hillur, ef þær eru ekki
góðar. Þá má benda á hið gamla
og góða ráð að mála skápana vel
að innan.
Varðandi 3. spurningu má vel
hugsa sér að klæða með þunnri plötu
innan á hliðargrindurnar, en málun
sótthreinsar einnig vel. Þar á ég við
olíumálningu.
Ef áhugi er fyrir að láta gamlan
trélit haldast, er ráðið einfaldlega
að þvo skápana vel að innanverðu.
Til sótthreinsunar má e.t.v. blanda
svolitlu kalki í sápuvatnið.
Nýjar skáphurðir?
Það kann að vera gott ráð að
setja nýjar hurðir á gömlu skápana.
Hjá verslunum sem selja eldhúsinn-
réttingar eða fataskápa eru seldar
skáphurðir af mismunandi gerðum
og stærðum.
Einnig vil ég benda á að mörg
trésmíðaverkstæði munu taka að sér
að smíða skáphurðir eftir máli, ef
þörf krefur.
Ekki má heldur gleyma að fá ný
stykki framan á skúffurnar í eldhús-
inu, þær verða að vera í samræmi
við skáphurðirnar.
Þegar settar eru nýjar hurðir
framan á skápa þar sem áður voru
rennihurðir, en nýju hurðirnar
hanga á hjörum, þá þarf að setja
lóðrétta pósta sem hjarirnar eru
hengdar á.
Á mörgum yfirskápum í eldhús-
um var hafður halli, þannig að skáp-
urinn var mun grynnri að neðan
heldur en að ofan. Þar sem svo
hagar til er nauðsynlegt að bæta
lista framan á botnstykkið svo að
hægt sé að setja lóðréttu póstana
framan á skápinn. Síðan verða nýju
hurðirnar hengdar á þessa pósta.
Fallegar gamlar hurðir
Nú hefi ég aðallega rætt um
gamlar skápahurðir sem eru úr sér
gengnar. Á mörgum gömlum eld-
husskápum og fataskápum eru heil-
legar og góðar hurðir. Ef svo er,
ræð ég fólki eindregið frá að skipta
um hurðirnar. Þá þarf að lagfæra
hengslin og smellumar, e.t.v. að
kaupa nýjar höldur og mála hurðim-
ar, helst með sterkri og fallegri olíu-
málningu. Hið sama gildir auðvitað
einnig fyrir skúffumar.
Við slíka meðferð fær gamla inn-
réttingin nýtt, hreinlegt og fallegt
yfirbragð.
Eru neðri skáparnir of lágir?
Allir kannast við hve þreytandi
það er fyrir fætur og bak að vinna
við eldhúsbekk eða borð sem er of
lágt.
Þetta á einkum við um gamla eld-
húsbekki, að ég tali nú ekki um að
vaska upp mataráhöld úr djúpri
vaskskál sem er felld ofan í lágan
eldhúsbekk.
Með endurtekningu slíkrar vinnu
er hætt við að hryggjarliðir okkar
skemmist. Það borgar sig að gefa
þessu atriði gaum.
I gömlum eldhúsinnréttingum
geta neðri skáparnir verið 78 til 80
sm háir. Það fer að vísu eftir hæð
einstaklinga sem mest vinna í hvetju
eldhúsi, hve háir bekkirnir skulu
vera, vel má tala um 90 sm hæð.
Nýjar plötur
Það fer vel á því að laga einnig
borðplöturnar, þegar eldhúsið verð-
ur málað, eða settar nýjar hurðir á
skápana.
Undanfarið hefur tíðkast að setja
svonefndar límtrésplötur á borðin í
eldhúsum. Plötur þessar eru fallegar
og með góðri hirðu haldast þær lengi
heilar og fallegar.
Ef skipt verður urn borðplötur er
sjálfsagt að hækka skápana, eða
bekkina um leið, séu þeir of lágir.
Hækkunina er hægt að fram-
kvæma á tvennan hátt. I fyrsta lagi
með því að losa undirskápana frá
veggjum og hækka sökkulinn undir
þeim.
í öðru lagi með því að bæta lista
eða mjóu borði ofan á skápinn áður
en nýja platan er sett á. Hækkunin
getur orðið allt að 7 til 10 sm. Við
slíka smíði er mönnum í lófa lagið
að fella inn í borðið útdragsplötu,
jafnvel litla borðplötu sem þægilegt
getur verið fyrir tvo að sitja við og
matast.
Það getur verið þægilegt í litlu
eldhúsi að bæta við slíkri borðplötu.
Hæð eldhúsgluggans
Eitt vandamál getur komið upp
ef eldhúsbekkirnir verða hækkaðir,
það er hve hátt er frá gólfi upp á
gluggakistu.
Ef eldhúsbekkurinn verður 90 sm
hár er viðbúið að gluggakistan sé
ekki hærri en 85 sm. Þetta er þó
misjafn og verður auðvitað’ að mæl-
ast á hverjum stað fyrir sig. Það er
auðvelt að leysa úr slíkum vandamál-
um með því t.d. að loka borðplötu-
kantinum við gluggann með lista.
Vinnuljós í eldhúsið
Þegað unnið er við lagfæringar á
eldhússkápum og innréttingum má
ekki gleyma því að koma góðri vinn-
ulýsingu í eldhúsinu. Það er þægi-
legt að hafa lampa undir yfirskáp-
unum sem lýsa niður á helstu vinnu-
staði.
Einnig er gott að hafa lampa
yfir vaskinum og yfir eldavél er oft-
ast lampi í gufugleypinum. Auk
þess er þörf á a.m.k. einum eða
tveimur lömpum til viðbótar. Einnig
getur verið nauðsynlegt að fjölga
tenglum yfir undirskápunum.
eftir Bjarna
Ólafsson
681066
Leitið ekki iangt yfir skammt
Opið kl. 12-15
2ja herb.
Barónsstígur
56 fm mjög góð íb. mikið end-
urn. Verð 5,2 millj.
Lindargata
Ca 30 fm einstaklib. í risi. Laus
strax. Verð 2,4 millj.
Fálkagata
40 fm snyrtil. íb. m/sérinng.
Lítið niðurgr. Verð 3,1 millj.
Flyðrugrandi
61 fm góð íb. á 3. hæð. Stórar
svalir í suður. Verð 6,2 millj.
Nýlendugata
36 fm einstklíb. Sérinng. Verð
2450 þús.
Hraunbær
60 fm íb. á 2. hæð. Skipti mögu-
leg á stærra. Verð 5,5 millj.
Rekagrandi
52ja fm mjög góð íb. Suðursv.
Stæði í bílskýli. Ákv. sala. Verö
6,0 millj.
Asparfell
Ca 55 fm góð íb. m. sérinng.
Parket. Skipti mögul. á stærra.
Verð 5,1 millj.
Vesturbær
56 fm mjög skemmtil. 2ja herb.
íb. á efri hæð j þríbh. Parket.
Arinn í stofu. Ákv. sala. Áhv.
gott veðdlán. Verð 6,0 m.
Reykjavíkurvegur - Hf.
48 fm snyrtil. 2ja herb. íb. Skipti
mögul. á 3ja-4ra herb. í Hafn.
eða Gbæ. Verð 4,9 millj.
Garðavegur - Hf.
52ja fm íb. á neðri hæð í tvíb.
Sérinng. Verð 3,5 millj.
3ja herb.
Þverholt
80 fm skemmtil. íb. í lyftuh. Til
afh. strax tilb. u. trév. Stæði í
bílskýli.
Rauðás
70 fm falleg íb. á 1. hæð m/suð-
urverönd. Bílskplata. Skipti
mögul. á 4ra-5 herb. V. 6,9 m.
Fífusel
96 fm mjög góð íb. á 2. hæð.
Vandaðar innr. Sérþvottah.
Stæði í bílskýli. Mögul. á 3
svefnherb. Verð 8,5 millj.
Goðatún - Gbæ
Ca 80 fm íb. á neðri hæð i tvib.
Sérinng. Bílsk. Skipti mögul. á
stærri eign tilb. u. trév. V. 6,4 m.
Hlíðar
76 fm góð íb. á 3. hæð. Park-
et. Nýl. eldhinnr. Áhv. gott
veðdlán. Verð 6,4 millj.
Grensásvegur
72ja fm mjög góð íb. á 3. hæð.
Parket. Nýtt eldhús. V. 6,4 m.
4ra herb.
Espigerði
110 fm mjög góð 5 herb. íb. á
3. hæð m/útsýni. Toppeign.
Laus strax. Verð 11,0 millj.
Nýbýlavegur
110 fm góð íb. m/bílsk. Skipti
mögul. á einb. Verð 9,1 millj.
Suðurbraut - Hf.
4ra-5 herb. mjög góð endaíb.
m/glæsil. útsýni. Sérþvhús.
Bílskréttur. Ákv. sala. Verð
7.950 þús.
Hvassaleiti
98 fm góð íb. á 1. hæð. Skipti
mögul. á minni eign. V. 8,9 m.
Álfheimar
107 fm vönduð íb. Verð 7,5 m.
Jöklafold
110 fm mjög vönduð íb. Falleg-
ar innr. Bílsk. Ákv. sala.
Háagerði
Góð íb. á miðh. í þrib. Skipti
mögul. á sérbýli. Verð 8,5 millj.
Vesturberg
98 fm góð íb. á 1. hæð. V. 6,8 m.
Ljósheimar
86 fm íb. á 1. hæð. Ákv. sala.
Verð 7,0 millj.
Engihjalli
97 fm góð ib. Parket. V. 7,1 m.
Álfatún - Kóp.
100 fm góð íb. á 2. hæð. Skipti
mögul. á rað- eða einbhúsi.
Verð 9,6 millj.
Ofanleiti
105 fm vönduð íb. á 3. hæð.
Skipti mögul. á stærri eign.
Verð 11,0 millj.
Engihjalli
97 fm snyrtil. íb. Parket. Ákv.
sala. Verð 7,0 millj.
Hlíðarhjalli - Kóp.
108 fm mjög góð íb. Fallegt
útsýni. Vandaðar innr. Bílsk.
Skipti mögul. á einb. V. 11,0 m.
1
5-6 herb.
Suðurgata - Hf.
145 fm glæsil. íb. á neðri hæð.
Skipti mögul. á minni íb. Verð
12,0 millj.
Álfheimar
Góð íb. 4 svefnherb. V. 7,8 m.
Leirutangi - Mos.
115 fm efri hæð í tvíb. Allar
innr. i 1. flokki. Skipti mögul. á
stærri eign. Verð 9,1 millj.
Reynihvammur - Kóp.
112 fm neðri hæð f tvíb.
Stúdíóíb. fylgir. Verð 10,3 millj.
Hólmgarður
138 fm efri hæð. Búið að lyfta
þaki. Miklir mögul. Skipti mögu-
leg á minni eign. Verð 10,8 millj.
Hofteigur
118 fm góð ib. á efri hæð. Ákv.
sala. Bílsk. Verð 10,2 millj.
Miðbær
233 fm íb. á tveimur hæðum +
óinnr. ris. íb. gefur mikla mögu-
leika. Skipti mögul. á minni
eign. Verð 9,5 millj.
Álfhólsvegur - Kóp.
140 fm mjög góð efri hæð.
Mögul. á lítilli íb. Glæsil. útsýni.
Bílsk. Verð 11,5 millj.
Raðhús/einbýli
Dalsel
177 fm gott raðhús. 4 svefn-
herb. Mögul. á sér stúdíóíb. í
kj. Skipti mögul. á 4ra-5 herb.
íb. Stæði í bílskýli. Verð 12,8 m.
Móaflöt — Gbæ
150 fm einbhús á einni hæð. 5
svefnherb. Vel staðsett. Tvöf.
bílsk. Verð 14,8 millj.
Vesturbær
220 fm mjög vandað einbhús á
tveimur hæðum. Bílsk. Ákv.
sala. Eignaskipti mögul. Verð
20,0 millj.
Nesbali
200 fm gott hús með innb. stór-
um bilsk. Ákv. sala. V. 15 m.
Kársnesbraut - Kóp.
Glæsil. hús vel staðs. m. bílsk.
Verð 18,0 millj.
Víðigrund - Kóp.
131 fm mjög gott hús á einni
hæð, vel staðs. Ákv. sala. Verð
14,0 millj.
Steinasel
280 fm fallegt hús. Glæsil. út-
sýni. Bílsk. Skipti mögul. á ca
100 fm íb. miðsv. Verð 18,0 m.
Víðiteigur - Mos.
82ja fm mjög fallegt hús á einni
hæð. Skipti mögul. á stærra.
Verð 8,3 millj.
Vogahverfi
Vandað hús á tveimur hæðum.
Mögul. á tveimur íb. Til afh.
fljótl. Bílsk. Skipti mögul. á
minni eign. Verð 14,8 millj.
Húsafell
104 Reykjavik Sími68 10 66
Jón Kristinsson, Þorlákur Einarsson, Gissur V. Kristjánsson hdl.